Dagur - 01.12.2000, Qupperneq 9
FÖSTUDAGUR 1. DESEMBER 2000 - 9
ÍÞRÓTTIR
Æ MI
i
:: Jp-
L
mótaröðinni í ár.
Westwood vann sex mót á evrópsku
Westwood bestur
Breski kylfingurinn Lee
Westwood var í gær útnefndur
kylfingur ársins í Evrópu eftir að
hafa sigrað á sjö stórmótum á ár-
inu, en hann tekur við titlinum
af Colin Montgomerie, sem hef-
ur hlotið hann sjö síðustu árin.
Westwood tekur þessa dagana
þátt í „Milljóndollaramótinu"
svokallaða, sem hófst í Sun City
í Suður-Afr/ku í gær og er verð-
launaféð þar hvorki meira né
minna en 2 milljónir dollara fyr-
ir sigursætið. Eftir fyrsta keppn-
isdaginn er Westwood í efsta
sætinu ásamt Spánverjanum
Jose Maria Olazabal á 65 högg-
um, eða sjö höggum undir pari
og hefur því góða möguleika á að
bæta áttunda sigrinum á árinu í
safnið. Westwood sigraði reyndar
á þessu móti fyrir tveimur árum
og varð fyrir vikið tveimur millj-
ónum dollara ríkari.
Westwood vann sex mót á evr-
ópsku mótaröðinni í ár og jafnaði
þar með met þeirra Ballesteros
frá árinul986, Faldos árið 1992
og Montgomeries frá því í lyrra
og hafði hann upp úr krafsinu
rúmar 2,5 milljónir dollara, eða
um 220 niilljónir íslenskra
króna, sem hann getur um það
bil tvöfaldað um helgina verði
heppnin með honum.
Petersons í toppsætinu
Þegar tíu umferðum er lokið í
Nissandeild karla í handknattleik
er Alexander Pettersons, leikmað-
ur Gróttu/KR, í toppsæti Dagslist-
ans, eftir að hafa verið sex sinnum
valinn í Dagsliðið. Þessi tvítugi
Letti, sem nú er að leika sitt þrið-
ja tímabil með Gróttu/KR, hefur
Ieildð mjög vel með Iiðinu í vetur
og er nú einn markahæsti leik-
maður deildarinnar. Hann hefur
heklur betur sannað sig sem eina
mestu skyttu deildarinnar og sam-
an með Hilmari Þórlindssyni eru
þeir félagar hættulegasta sóknarp-
ar deildarinnar.
I öðru sæti Dagslistans, er Lit-
háinn Savukynas Gintaras, leik-
maður Aftureldingar, en hann
hefur fimm sinnum verið valinn í
Dagsliðið. Gintaras hefur leikið
mjög vel í vetur og verið prímus-
mótor í sóknarleik liðsins.
1 þriðja sætinu er svo Einar Orn
Jónsson, íþróttafréttamaður og
leikmaður Hauka, en hann hefur
verið Haukum ómetanlegur á
fyrsta tímabili sínu með liðinu,
eftir að hann sagði skilið við Val.
Staðan á Dagslistanum:
o---------- o--------
Alexander Petersons, Gr./KR
o
Savukynas Gintaras, UMFA
0
Einar Örn Jónsson, Haukum
Roland Eradze, Val
Róbert Gunnarsson, Fram
o
Andreas Stelmokas, KA
Bjarki Sigurðsson, UMFA
Guðjón Valur Sigurðss., KA
Gunnar Berg Viktorss., Fram
Halldór Ingólfsson, Haukum
Heimir Örn Arnason, KA
Hilmar Þórlindsson, Gr./KR
Páll Þórólfsson, UMFA
Valdimar Grímsson, Val
Þorv. Tjörvi Ólafsson, Hauk.
Dagsliðið
10. umferð
Nissandeild
karla
Alexander
Petersons
Gróttu/KR
Savukynas
Gintaras
UMFA
▼
Andreas
Stelmokas
KA ▼
Hilmar
Þórlindsson
Gróttu/KR
Valdimar
Grímsson
Val
Davíð
Ólafsson
róttu/KR
Alexander Arnarson, HK
Aliaksandr Shamcuts, Hauk.
Arnar Pétursson, Stjörnunni
Bergsveinn Bergsveinss., FH
Birkir Ivar Guðmundss., Stj.
Bjarki Sigurðsson, Val
Bjarni Fritzson, ÍR
Bjarni Frostason, Haukum
Bjarni Gunnarsson, Stjörn.
Davíð Ólafsson, Gróttu/KR
Eduard Moskalenko, Stjörn.
Erlendur Stefánsson, IR
Galkauskas Gintas, UMFA
Gísli Guðmundsson, IBV
Hálfdán Þórðarson, FH
Hlynur Morthens, Gró./KR
Hörður Flóki Ólafsson, KA
Ingimundur Ingimundars., IR
Jón Andri Finnsson, IBV
Magnús M. Þórðars., UMFA
Maxim Fedioukine, Fram
Ólafur Sigurjónsson, IR
Óskar Armannsson, Haukum
Sebastían Alexanderss. Fram
Snorri Guðjónsson, Val
Sverrir Björnsson, HK
Valgarð Thoroddsen, Val
Viktor Guðmundsson, FH
Zoltan Belányi. Breiðablik
Staðan eftir félögum:
Haukar................. 11
Afturelding............ 11
Grótta/KR.............. 10
Valur................... 8
Fram.................... 7
KA...................... 7
ÍR...................... 4
Stiarnan................ 4
FH...................... 3
ÍBV ................... 2
HK...................... 2
Breiðablik.............. 1
Jafntefli gegn Spánverjum
íslenska 18-ára landslið í kvennaknattspyrnu gerði í fyrradag rnarka-
laust jafntefli gegn Spánverjum í milliriðli Evrópumóts 18-ára lands-
liða, en keppni í riðlinum fer þessa dagana fram í Sevilla á Spáni. I
riðlinum leika auk Islands og Spáns lið Hollendinga og Pólverja og
tapaði íslenska liðið fyrsta leiknum gegn Hollendingum á mánudag-
inn 0-1. Tvö lið komast áfram úr riðlinum í úrslitakeppni mótsins, en
Hollendingar sem unnu Pólverja 2-0 í fyrradag, eru í efsta sæti rið-
iisins fyrir síðustu umferðina sem fram fer í dag. Þar verður íslenska
liðið að vinna sætan sigur á Pólverjum til að eiga möguleika á öðru
sætinu og um leið að treysta á hagstæð úrslit úr leik HoIIendinga
gegn Spánverjum.
Kjartan áfram formaður dómara-
nefndar
Kjartan Steinbach, sem undanfarin ár hefur gengt stöðu formanns
dómaranefndar alþjóða handknattleikssambandsins, IHF, var endur-
kjörinn formaður nefndarinnar á þingi sambandsins sem fram fór í
Portúgal fyrr í vikunni. Kjartan, sem reyndar var einn í kjöri, þykir
hafa staðið sig fræbærlega vel í þessu mikilvæga starfi og hlaut bann
fyrir það mikið lof þingfulltrúa, sem hvöttu hann eindregið til að
halda áfram.
Egyptinn, Hassan Mustafa, sem undanfarin ár hefur gengt for-
mennsku í tækninefnd IHF, var á þinginu kjörinn nýr formaður IHF
og tekur hann við af Austurríkismanninum Erwin Lanch, sem gengt
hefur formennsku s.l. sextán ár, eða frá árinu 1984. Lanch hafði
ákveðið að gefa kost á sér áfram, en dró framboð sitt óvænt til baka
eftir að hafa koinist að þeirri niðurstöðu að hann ætti enga mögu-
leika gegn Mustafa, sem var einn þriggja mótframbjóðenda hans.
Svíinn Staffan Holmqvist, núverandi forseti evrópska handknatt-
leikssambandsins, EHF, var kjörinn varaforseti IHF.
Fyrir þinginu lá að ákveða hvar úrslitakeppni HM karla 2003 fari
fram, en bæði Rússar og Portúgalir höfðu sótt um að halda keppn-
ina. I atkvæðagreiðslu höfðu Portúgalir betur, fengu 87 atkvæði á
móti 25 atkvæðum Rússa. Einnig var ákveðið að næsta úrslitakeppni
HM kvenna fari fram í Hollandi.
Sundhöllin glæsilega í Valensía þar
sem EM i sundi fer fram.
Tveir íslenskir keppendur á EM í
sundi
Þessa dagana stendur yfir undir-
búningur landsliðshópanna í
sundi sem seinna í mánuðinum
taka þátt í tveimur stórkeppnum
erlendis. Mótin sem um er að
ræða eru Norðurlandamót ung-
linga sem fram fer í Fredrikstad
í Noregi helgina 9. - 10. desem-
ber og Evrópumeistaramótið í
25 m laug, sem fram fer í Val-
ensía á Spáni dagana 14. - 17. desember. Sex ungmenni taka þátt í
Norðurlandamótinu í Fredrikstad, en það eru þau Anja Ríkeyjakobs-
dóttir, SH, Berglind Ósk Bárðardóttir, SH, Gunnar Steinþórsson,
Ægi, Hafdís Erla Hafsteinsdóttir, Ægi, Hjörtur Már Reynisson, Ægi
og Jón Oddur Sigurðsson, UMFN, en þau hafa öll náð lágmörkum
SSI fyrir mótið. Þjálfarar hópsins eru þau Bodo Wermelkirchen og
Þuríður Einarsdóttir.
Aðeins tveir íslenskir sundmenn munu taka þátt í Evrópumeistara-
mótinu í Valensía, en það eru frændurnir Örn Arnarson og Ómar
Snævar Friðriksson úr SH. Það er mikil fækkun frá því á síðasta Evr-
ópumóti sem fram fór í Lissabon í fyrra, en þar voru íslensku kepp-
endurnir alls sjö. Að sögn Brians Marshall, landsliðsþjálfara, hefði
verið hægt að senda muri fleiri keppendur. „Allur Sydneyhópurinn
hafði náð tilsettum lágmörkum, en SSI ákvað að senda aðeins þá
sem héldu óslitið áfram æfingum eftir ólympíuleikana. Ólympíuhóp-
urinn var búinn að vera undir miklu álagi og eðlilegt að krakkarnir
vildu taka sér frí. Þess vegna eru þeir Örn og Ómar einu keppend-
urnir að þessu sinni, en Örn hefur tvo Evróputitla að verja og því
eðlilegt að hann fari út. Enda hefur hann ekki slegið slöku við æfing-
arnar og er nú í mjög góðu formi eins og hann hefur sannað í síðustu
mótum. Ómar hefur einnig æft á fullu og er að komast í toppform,
en hann mun keppa í 200 m fjórsundi, 400 m skriðsundi og annað
hvort 200 m skriðsundi og 400 m fjórsundi, eftir því hverning grein-
ar raðast niður. Örn keppir í 50, 100 og 200 m baksundi, en hann
er núverandi Evrópumeistari í tveimur síðarnefndu greinunum.
Skólagolfi GSÍ ýtt úr vör
Skólagolf nefnist samstarfsverkefni Golfsambands íslands og Æsku-
línu Búnaðarbanka Islands, sem miðar að því að efla kynningu og
kennslu í golfíþróttinni í grunnskólum landsins. Atakinu hefur þeg-
ar verið ýtt úr vör og er kennsluefni á myndbandi og bæklingi nú
dreift til skólanna. Jón Karlsson íþróttakennari og Magnús Birgisson
þroskaþjálfi eru höfundar kennsluefnis og stóðu að gerð þess, en
báðir eru þeir starfandi golfkennarar.
I bæklingnum og á myndbandinu er farið í uppsetningu á ýmsum
æfingum sem mögulegt er að framkvæma í íþróttahúsum með sér-
stökum kennslubúnaði sem fæst keyptur hjá golfsambandinu. Um er
að ræða sérstakar Skólagolfs-töskur með kylfum og öðrurn búnaði til
kennslu á golfi innanhúss. I hverri tösku eru fjórtán kylfur af þrem-
ur gerðurn og einnig gervigrasmottur, golfboltar af mjúkri gerð, inni-
holur og fleira.