Dagur - 03.01.2001, Blaðsíða 1

Dagur - 03.01.2001, Blaðsíða 1
1 stjóri Mýflugs harmar athurðarás- iua. Betur fór en á horfðist þegar 8 ára drengur á Patreksfirði brenndist illa eftir að flugeldur sprakk upp við andlit hans ná- lægt miðnætti á nýársnótt. Drengurinn kvaldist mjög og var óttast að hann væri alvarlega slasaður. Því var ítrekað reynt að útvega sjúkraflug til Reykjavíkur en þrátt fyrir fjölda símtala og misvísandi upplýsinga varð nið- urstaðan sú að enginn gæti sinnt fluginu þótt flugaðstæður væru góðar. För drengsins til Reykja- víkur tafðist verulega af þessum sökum og var komið vel fram á morgun þegar hann komst Ioks á Landspítalann með aðstoð þyrlu Landhelgisgæslunnar. „Það reyndist engin leið að fá sjúkraflug og þetta virtist allt í Iausi Iofti,“ segir Jónas Þór, lög- reglumaður á Patreksfirði. Flugfélagið Mýflug á að sjá um sjúkraflugið fyrir Vestfirðinga og hefur undanfarið verið með vél á Isafirði til taks. Hins vegar reyndist enginn í stakk búinn til að takast á við verkefnið á nýársnótt vegna sérstakra að- stæðna og aukinheldur rann flugrekstrarleyfi félagsins út um áramótin. Arangurslaust reyndist einnig á nýársnótt að hringja í önnur innanlandsfélög, s.s. Flugfélag Islands og LIO. Davíð Arni Guðmundsson, 8 ára Vestfjarðavíkingur, lá á barnadeild Hringsins á Landspítalanum í gær. Hann von- aðist eftir heimför sem fyrst, enda reyndust áverkar hans ekki jafnalvarlegir og talið var í fyrstu. Sagan á bak við flutning hans hefur hins vegar vakið hörð viðbrögð. Á ekki orð Guðmundur Olafur Guðmunds- son, faðir drengsins sem slasað- ist, segir allt hafa verið í ólestri þessa nótt og það sé hroðalegt að búa við svona óöryggi. Þyrlan hafi auðvitað bjargað miklu en ljóst sé að för drengsins suður hafi tafist um einhverja klukku- tíma vegna „óvissu og klúðurs". „Hann var alveg rosalega kvalinn og illa brunninn í andlitinu. Var- irnar, tungan, augun og allt var brunnið þannig að það var sér- lega mikilvægt að hann fengi bestu fáanlegu meðhöndlun sem fyrst. Sem betur fer reyndist þetta þó ekki jafnalvarlegt og talið var í fyrstu, en maður á ekki orð yfir þetta.“ Mamma drengsins, Elín Anna Jónsdóttir, segir að biðin hafi verið skelfileg og tíminn hrein- lega silast áfram. „Þetta var martröð, mínútu frá mínútu og guði sé lof að þetta reyndist ekki alvarlegra. Við erum að tala um fjóran og hálfan klukkutími bara í ferðalög," segir móðirin. Sonur hennar, Davíð Arni, var dasaður í gær en vonast er til þess að meiðsli hans séu ekki varanlég. Mjög úheppilegt Framkvæmdastjóri Mýflugs, Leifur Hallgrímsson, segist sjálf- ur taka ábyrgð í þessu máli og hann harmar að félagið hafi ekki getað sinnt fluginu þessa nótt. „Það er mjög óheppilegt að þetta skyldi gerast en mikilvægast þó að betur skyldi fara en á horfð- ist.“ Leifur bendir líka á að félag- ið hafi verið búið að standa vakt- ina allan desember en aðeins eitt flug hafi komið upp á í mánuðin- um. Hann telur að félagið geti áfram sinnt sjúkraflugi þrátt fyr- ir að félagið hafi ekki rekstrar- Ieyfi. „Við munum ekki láta neitt neyðarástand koma upp á Vest- fjörðum þótt okkur vanti þetta flugrekendaskírteini." Leiguflug Isleifs Ottesen mun samkvæmt útboði í fyrra sjá um sjúkraflug fyrir Vestfirði í fram- tíðinni en ekki er búið að ganga formlega frá samningunum milli ráðuneytis og félagsins. Sömu sögu er að segja um fleiri svæði samkvæmt upplýsingum frá heil- brigðisráðuneytinu. — BÞ Sjá meira um múlið i miðopnu og allt um áramótin víða um land. Máttu þola mar- tröð á nýársnótt Öngþveiti og óvissa á Vestfjörðiun þegar árangurslaust reyndist að fá sjnkra- flug fyrir slasað bam. Framkvæmda- Banaslys á Reykjanesbraut Karlmaður á sextugsaldri beið bana á Reykjanesbraut í Garða- bæ skömmu eftir klukkan eitt í gær, skammt norðan Kaplakrika, er bifreið hans skall framan á gámaflutningabíl. Talið er að hann hafi látist samstundis, en hann var einn í bílnum. Öku- mann gámaflutningabílsins sak- aði ekki. Alls létust 32 í 23 umferðarslysum árið 2000, og því miður virðist þessi slysaalda halda áfram á árinu 2001. Að sögn lögreglunnar í Hafn- arfirði fór fólksbifreiðin yfir á gagnstæðan vegarhelming og skall framan á vinstra framhorni gámabílsins, fór síðan aftur með honum þannig að olíutankur gámaflutningabílsins rifnaði af og gerði hann óökufæran. Fólks- bíllinn er ónýtur eftir óhappið og þurfti því að fjarlægja báða bíla af slysstað með kranabíl. — GG Orkuveita Reykjavtkur fær jarð- vinnu fyrir 1/3 af kostnaðaráætlun vegna þess að grjótið úr grunnin- um reynist tuga milljóna virði. Griót orðið gims í gildi Sex tilboð sem Orkuveita Reykja- vi'kur fékk í jarðvinnu við nýjar höfuðstöðvar voru öll á bilinu 1/3 til rúmlega helmingur af rúmlega 44 milljóna kostnaðaráætlun, sem er nýtt að sjá á þessum síðustu og bestu þenslutímum. Óskað hefur verið samþvkkis Borgaráðs að gengið verði til samninga við lægstbjóðanda, Háfell ehf. sem vill vinna verkið fyrir 14,9 milljónir króna, eða nær 30 milljónum und- ir kostnaðaráætlun. Boð Istaks var þó litlu hærra. Hæsta boð, um 25 milljónir, áttu tslenskir aðalverk- takar, sem líka voru nær 20 millj- ónir undir kostnaðaráætlun. Kunna menn skýringar á svo lág- um boðum yfir línuna? „Það eru kannski nokkrar samverkandi skýr- ingar,“ sagði Guðmundur Þór- oddsson forstjóri Orkuv'eitunnar. Stærstu skýringuna sagði hann þá, að af þeim 29 milljónum sem munaði á lægsta tilboðinu og kostnaðaráætluninni, væru 23 í klapþarvinnunni; að sprengja og Ijarlægja klöpp. „Það þýðir það að verktakarnir hafa haft markað fyrir klöppina - þeir hafa getað selt klöppina einhverjum öðrurn. Þannig að við borgum nánast ekk- ert, eða einungis 2 milljónir, fyrir klapparvinnuna, sem reiknuð var á um 25 milljónir í kostnaðaráætl- uninni." En kostnaðaráætlunin gekk út á þann kostnað sem fælist í því að sprengja klöppina og fjar- lægja. Tíminn auk þess góðux og nægur í annan stað sagði Guðmundur; „erum við þarna að bjóða út verk í desember, sem gefinn er mjög góð- ur tími til að vinna í janúar-mars, sem sagt yfir hávetrartímann, svo þar með eru jarðvinnuverktakar tilbúnir að fara mjög neðarlega, því það er dauður tími hjá þeim.“ Og í þriðja lagi hafi kostnaðaráætlunin verið fremur rúm. Ur því klöpp úr þessum hús- grunni er þegar tugmilljóna virði má geta sér til að hann eigi enn eftir að aukast fari menn út í flug- vallargerð á Lönguskerjum? „Þá verður stór markaður fyrir klöpp, og lengi,“ sagði Guðmundur. - HEI

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.