Dagur


Dagur - 03.01.2001, Qupperneq 5

Dagur - 03.01.2001, Qupperneq 5
M 7 D VIKVDA GU R 3 . JA\VAR 2 00 1 - S FRÉTTIR L FroststífLur í nýju húsunum Margir íbúar nýju bráðabirgðahúsanna á skjálftasvæðuimm hafa þurft að berjast við froststífluð niður- fdU úr vöskum og kló- settum um jól og ára- mót. Það virðist ekki eiga af þeim að ganga sem misstu húsin sín í jarðskjálftunum í sumar. Loks- ins komnir í ný hráðabirgðahús eftir margra mánaða hrakninga máttu margir þeirra sæta því að berjast við froststífluð niðurföll úr eldhúsvöskum og klósettum núna milli jóla og nýárs og um áramótin. Sökum lélegs frá- gangs hefur frosið í frárennslis- lögnum margra húsanna. Að sögn Magnúsar Olafssonar eftir- litsmanns hjá Framkvæmdasýslu ríkisins er verktakinn, sem er frá Akranesi, væntanlegur á svæðið nú í dag, til að ganga betur frá lögnunum í öllum þeim 20-30 húsum sem hann reisti, væntan- lega þó fyrst hjá þeim sem átt hafa í mestum vandræðum. Þoldu ekki 10 gráðu frost „Það mátti svo sem bú- ast við þessu, þegar frostið fór niður fyrir 10 gráður. Það er gengið frá þessum hús- um á stólpum og ekki keyrt að þeim, þannig að lagnirnar eru alveg opnar. En þetta er ekkert stóralvarlegt," sagði Sigurður Rúnar Jónsson, einn þeirra sem missti hús sitt á Hellu og hefur staðið í að þfða frosin rör að undanförnu. „Maður verður vonandi ekki svo lengi þarna að maður þurfi að láta þetta fara mikið í taug- arnar á sér,“ sagði Sigðurður Rúnar, sem væntir þess að verða á ný kominn í sitt eigið hús fyrir næsta vetur. Hann sagði vinnufé- laga sinn, Sveinbjörn, Eftirköst jardskjálftanna í sumar eru enn að koma fram og nú með þeim hætti að lagnir í nýju bráðabirgðahúsunum hafa frosið. hafa flutt í nýtt eigið hús unt viku fyrir jól. Tví- og þrísett í sum húsin Sveitarstjórinn á Hellu, Guð- mundur lngi Gunnlaugsson, vissi heldur ekki til þess að fólk hafi þurft að flytja úr húsum sín- um sökum þessara froststíflna, sem hann hafði heyrt af f nokk- uð mörgurn þessara bráðabirgða- húsa milli jóla og nýárs. En greinilegt sé að það þurfi að ganga betur frá þessum Iögnum en gert hafi verið. Vatnslagnirn- ar muni hins vegar hafa verið frostvarðar með rafmagni. Guðmundur Ingi sagði alla sem voru í brýnustu þörfinni fyr- ir húsnæði hafa komist í nýtt húsnæði fyrir jólin. A Hellu séu þó fleiri fjölskyldur sem bíða. „En þær geta beðið, þ.e. þær geta tímasett viðgerðir á húsum sínum þannig að þeim dugar að komast í bráðabirgðahús f vor eða sumar. En þá verða ein- hverjir þeirra fyrstu búnir og fluttir aftur í sín eigin hús." Þannig verði tví- og jafnvel þrí- sett í einhvern hluta húsanna, allavega þeirra 16 íbúða sem eru á Hellu. - hei Eggert Haukdal. Eggerts- mal aftur í hérað Aðalmeðferð verður fyrir Hér- aðsdómi Suðurlands á fimmtu- dag og föstudag í máli ákæru- valdsins gegn Eggert Haukdal, fv. alþingismanns og oddvita Vestur-Landeyjahrepps. Mál þetta fór í gegnum dómskerfið á síðasta ári, en Eggert var ákærð- ur fyrir meint umboðssvik og brot í opinberu starfi svo sem að hafa dregið sér fé úr sveitarsjóði. Hæstiréttur úrskurðaði í málinu sl. haust og vísaði málinu aftur heim í hérað vegna formgalla. Nýir dómarar taka nú við mál- inu, þau Olafur Rörkur Þor- valdsson og Ingveldur Einars- dóttir héraðdómarar og með- dómari með þeim er Geir Geirs- son endurskoðandi. — SBS Fjórtán fá fálkaorðima Forseti Is/ands sæmdi 14 íslendinga fálkaorðu á nýársdag. Þetta eru Elín Helga Hallgrímsdótttir, Elísa Wium, Ellert B. Schram, Gunnar Egilsson, Hörður Ágústsson, Jónína Guðmundsdóttir, Júlíus Hafstein, Kristín Rós Hákonar- dóttir, Kristleifur Þorsteinsson, Páll Pálsson, Sigurður Hallmarsson, Sveinn Áki Lúðvíksson, Unnur Jónasdóttir og Vala Flosadóttir. Kaupþmg stækkar Forsvarsmeim Kaup- þings segja of snemmt að segja til um hvaða fyrirkomulag verði á rekstri Frjálsa fjárfest- ingabankans í nánustu framtíð. Að lokinni kostgæfnisathugun á næstu vikum mun Kaupþing kaupa um 75% hlutafjár í Frjálsa fjárfestíngabankanum á genginu 3,8. Heildarmarkaðsvirði Frjálsa fjárfestingabankans er um 4,6 milljarðar króna og því er Kaup- þing að greiða allt að 3,5 milljörð- um króna. Seljendur bréfanna eru VÍS, Traustfang, Olíufélagið, Isoport, Hafliði Þórsson og Sam- vinnulífeyrissjóðurinn. Markmið Kaupþings með því að festa kaup á meirihluta bréfa í Frjálsa fjárfest- ingabankanum er að stuðla að endurskipulagningu og hagræð- ingu á fjármálamarkaði. Frjálsi fjárfestingabankinn hefur verið umsvifamikill í eignastýringu, fjár- vörslu og lánastarfsemi að undan- förnu og rekur einnig Frjálsa líf- eyrissjóðinn. Forsvarsmenn Kaupþings segja of snemmt að segja til um hvaða fyrirkomulag verði á rekstri Frjálsa fjárfestingabankans í nánustu framtíð. Á næstu vikum verður mótuð stefna um möguleika á samnýtingu, s.s. í tölvukerfi og markaðsstarfi. Hjá Frjálsa fjárfest- ingabanlianum eru um 60 stöðu- gildi en hjá Kaupþingi starfa 260 manns á Islandi og á sex starfs- stöðvum erlendis. Sigurður Einarsson, forstjóri Kaupþings, var spurður að því hvort Frjálsi fjárfestingabankinn hefði verið orðinn Kaupþingi óþægur Ijár í þúfu. „Nei, nei, en þetta er mjög at- hyglisverð spurning því Frjálsi fjár- festingabankinn er hörkusam- keppnisaðili og því er Kaupþing til- búið til að borga hátt verð fyrir hann. Eg hef það ekki á takteinum hver var velta þessara fyrirtækja en Frjálsi fjárfestingabankinn var með eignastýringu upp á 20 milljarða en Kaupþing um 200 milljarða króna.“ — GG Öll starfsemi SÍF á sama stað SIF hf. hefur Hutt aðalstöðvar fyrirtækisins úr Fjarðargötu að Fornubúð- um 5 í Hafnarfirði, þar sem innkaupa- og sölustarfsemi fyrirtækisins á ls- landi, SÍF-Island, er til húsa. Að Fornubúðum verða því undir einu þaki skrifstofur móðurfélags SÍF, skrifstofur og vörugeymsla tyrir rekstrareininguna SÍF ísland sem og skrifstofur dótturfyrirtækjanna Saltkaup og Saltskip. Við þessa flutninga munu um 120 starfsmenn fý'rirtækisins á íslandi starfa undir sama þaki, sem án efa mun efla upplýsingamiðlun, samræmingu og samstöðu starfs- manna á íslandi. Þá skapast með flutningunum nokkur hagræðing við rekstur húseigna. SÍF hefur gengið frá sölu á hluta af húseign fýrirtæk- isins við Fjarðargötu 13-15, en til stendur til að selja eða leigja alla hús- eignina. Hjá SÍF-samstæðunni starfa samtals um 1700 starfsmenn sem stað- settir eru í fimmtán löndum \ið fullvinnslu, markaðssetningu og sölu sjávarafurða til yfir 60 Ianda um heim allan. — GG Nýr bílaleigusanuimgur Nýr rammasamningur um bílaleigubíla, sem er einn af mest notuðu rammasamningum innan rammasamningakerfis Ríkiskaupa, var undir- ritaður hjá Ríkiskaupum hinn 29 desember síðastliðinn. Þessi samning- ur er að því leyti frábrugðinn eldri samningi að samið var við tvo aðila: Bílaleigu Flugleiða Hertz, og Auto Reykjavík Avis. Þessi samningur hef- ur í för með sér umtalsverða lækkun frá eldri samningi og mest er lækk- unin í þeim flokkum bifreiða sem mest eru notaðir af ríkinu. Með því að semja við tvo aðila er verið að gefa ríkisstofnunum kost um val á milli þjónustuaðila, enda ber ríkisstofnunum að fara eftir þeim rammasamn- ingum sem í gildi eru. Þessi samningur hefur velt um og yfir 30 m. kr á ári undanfarin ár og er notaður af fjölda stofnana og fyrirtækja innan rík- isins sem þurfa á þessari tegund þjónustu að halda. Löggusund í kuldauum Árlegt sjósund Sjósundfé- lags lögreglumanna fór fram í Reykjavákurhöfn við Ægis- garð á nýársdag. Fimm lög- reglumenn, þar af ein kona sjTitu um 100 metra leið í ísköldum sjónum. Þetta voru f.v. Arnþór Davíðsson, Jón Otti Gíslason, Ingibjörg Sigurðardótir, Skúli Þorvaldsson og Kristinn Einarsson. - MYND: KK

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.