Dagur


Dagur - 03.01.2001, Qupperneq 6

Dagur - 03.01.2001, Qupperneq 6
6 - MIDVIKUD AGU R 3. JANÚAR 2001 ÞJÓÐMÁL Útgáfufélag: dagsprent Útgáfustjúri: eyjólfur sveinsson Ritstjóri: elías snæland jónsson Aðstoðarritstjóri: birgir guðmundsson Skrifstofur: strandgötu si, akureyri, GARÐARSBRAUT 7, HÚSAVÍK OG ÞVERHOLTI 14, REYKJAVÍK Simar: 460 6ioo OG 800 7080 Netfang ritstjórnar: ritstjori@dagur.is Áskriftargjald m. vsk.: 1.900 KR. Á mánuði Lausasöiuverð: íso kr. og 200 kr. helgarblað Grænt númer: 800 7080 Netföng auglýsingadeildar: karen@dagur.is-augl@dagur.is-gestur@ff.is Simar auglýsingadeildar: (REYKJAVÍK)5B3-i6i5 Ámundi Ámundason (REYKJAVÍK)563-1642 Gestur Páll Reyniss. (AKUREYRI)460-6192 Karen Grétarsdóttir. Simbréf auglýsingadeildar: 460 6161 Simbréf ritstjórnar: 460 6171(ákureyri) 551 6270 (reykjavík) Velferð og markaðiir í fyrsta lagi Mildll munur var á ávörpum formanna stjórnarflokkanna um áramótin. Formaður Sjálfstæðisflokksins hjakkaði í sama út- jaskaða farinu og lagði ekkert nýtt til málanna. Formaður Fram- sóknarflokksins notaði hins vegar tækifærið í ávarpi sínu í Degi til að horfa til framtíðar og leggja meginlínur um það þjóðfélag sem stefna beri að á nýrri öld. Hann lagði sérstaka áherslu á hversu brýnt er að hafa eftirlit með markaðsöflunum og standa vörð um velferðarkerfi almennings. Sérstök ástæða er til að vekja athygli á þeim yfirlýsingum nú þegar mammonsdýrkun markað- arins er í hámarki. í öðru lagi „Oheftur kapitalismi er ekki það umhverfi sem við kjósum eða sættum okkur við,“ sagði formaður Framsóknarflokksins í ára- mótaávarpinu. „Um leið og við erum í auknum mæli þátttak- endur í alþjóðasamfélagi og á alþjóðamarkaði, eykst sam- keppni á okkar litla markaði hér innanlands. Samfara því veg- ur æ þyngra gildi þess að sú samkeppni sé virk og heilbrigð. Um leið verðum við að krefjast aukins eftirlits með að svo sé. Við verðum að standa vörð um raunverulega samkeppni og berjast gegn fákeppni og einokun." Almenningur á mikið und- ir að slík stefna verði virk í reynd og tryggi hagsmuni neytenda gagnvart fyrirtækjum sem ráða verulegum hluta markaðarins. í þriðja lagi „Velferðarkerfið má aldrei verða selt undir hagnaðarsjónar- rniðið," sagði Halldór Asgrímsson í áramótaávarpi sínu. „Það hefur ríkt sátt um velferðarkerfið á Islandi og þótt á hverjum tíma megi deila um hvort hagræða þurfi á einstökum sviðum þess eða þörf sé aukningar á öðrum, tel ég að grundvallarhugs- unin sem byggir á tekju og lífskjarajöfnun, samfélagshjálp og mannúð, standi óhögguð." Mikilvægt er að standa fast við slíka grundvallarstefnu í þeim átökum sem framundan eru, því markaðsöfl innan Sjálfstæðisflokksins munu í vaxandi mæli sækjast eftir að fá að græða á ríkisstyrktum einkarekstri í heil- brigðiskerfinu. Elias Snæland Jónsson ------ Maður ársins hjá RÚV Ljóst er að Garðar Sverrisson kemur sterkur til leiks á n<ju ári eftir að hann var kosinn maður ársins á Rás 2. Garðar er sá íslendingur sem hefur komist einna næst þvf að skora Davíð Oddsson á hólm póli- tískt. 1 rimmunni sem þessir tveir kappar háðu í fyrra, mátti Davíð hafa sig allan við til að halda andlitinu. Enginn annar pólitískur andstæðingur Dav- íðs hefur þorað í slíkan slag við hann, og gagnrýni stjórnarand- stæðinga á þingi eða aðhald frá samstarfsflokki í ríkisstjórn hefur nánast hljómað sem hvert annað kattar- mjálm í samanburðin- um. Á bak við krítik stjórnarandstöðunnar ómar nefnilega alltaf söngur vonarinnar um að Davíð kunni í fyll- ingu tfmans að taka viðkomandi með sér í ríkisstjórn - og því vill enginn brenna brýr að baki sér með því að móðga hinn sterka Ieiðtoga. Vinsæll foringi En öryrkjaforinginn hefur engu að tapa og lætur eldmóð hugsjóna og hagsmunagæslu fyrir sitt fólk ráða för frekar en óljósa pólitfska framtíðarhags- muni einhvers flokks. Fyrir vik- ið aflar hann sér vinsælda og öryrkjafjöldinn hringir inn á ríkisrásina og kýs hann mann ársins. Raunar berast lfka frétt- ir af þvf að samfylkingarmenn og vinstri grænir hafi lagst í símahernað líka í þessu skyni, sem aftur sýnir að þar á bæ hafa menn viðurkennt póli- tíska forystu Garðars öryrkja- leiðtoga. Það að hann skuli kosinn maður ársins fer að sjálfsögðu þversum ofan í stjórnvöld, sérstaklega forsæt- isráðherra, því í slíkri kosn- ingu felst ekkert annað en van- traust á málatilbúnað þeirra. Það liggur í þjóðareðlinu að taka afstöðu með lítilmagnan- um gagnvart kerfinu og hinum valdamildu yfirstéttum - og það er því erfitt hlutskipti fýrir Davíð Oddsson að vera skil- greindur sem stjórnmálamað- urinn sem herst gegn öryrkj- um! Slíka skilgreiningu getur enginn stjórnmálamaður búið við til lengdar. Ad styrkja Hæstarétt Enda fær Garri ekki betur séð en að Davíð veigri sér við að taka slaginn við ör- yrkjana beint. Hann er hins vegar búinn að boða breytingu á Hæstarétti, enda situr í Hæstarétti fullfrískt fólk sem meira að segja er sjálft hluti af kerfinu. En vegna þess að rétturinn dæmdi móti Davíð telur forstætisráðherra eðlilegt að gera á honum breytingar „til að koma í veg fyrir að slíkt slys endurtaki sig“ eins og hann orðaði það í útvarpsviðtali á gamlársdag. Síðan er spurning hvort Davíð getur ekki tekið á fleiri svona slysum sem orðið hafa að undanförnu, eins og t.d. því að öryrkjaleiðtoginn var kosinn maður ársins á ríkis- rásinni Rás 2. Garri leggur til að Davíð varpi því nú fram að brýnt sé að „styrkja Rás 2“ rétt eins og það er brýnt að styrkja Hæstarétt. Það mætti t.d. gera með því að selja rásina eða setja ábyrgara fólk þar inn, fólk sem léti ekki slík slys gerast að maður sem skorar sjálfan for- sætisráðherra á pólitískan hólm, sé kosinn maður ársins. GARRI Áramótamerai IT^li ODDUR JIÓLAFSSON Komið er í Ijós hverjir eru konur og menn ársins sem var að líða og þeim raðað á palla eftir verðleik- um í vinsældakeppninni miklu. Leikreglurnar í svona könnunum eru heldur óljósar, eins og raunar allt hetjutal ríkisrekinna fjölmiðl- unga sem standa fyrir svona upp- ákomum. Sama má segja um starfshætti orðunefndar, sem fæstir botna neitt í og láta sér nið- urstöður hennar í léttu rúmi ligg- ja, enda er allt þetta saldaust grín, sem kann að skemmta einhverj- um. Lítið fer fyrir andans mönnum á afrekaskrám þeim sem könnuð- ir vinna upp úr heimatilbúnum spurningum um hvernig raða skal á lista um menn og konur ársins. Leiðtogar og stjórnmálamenn sjást þar varla enda eru athafnir þeirra sjaldnast bendlaðar við af- rek eða hetjutilburði eins og þeir- ra sem tekið hafa upp á að endur- vekja heræfingar Spartveija og gert að keppnisgreinum, sem er gert hærra undir höfði á fjolmiðla- öld en flestum öðrum greinum mannlífsins. Samt fer ærið mikið fyrir málglöðum foringjum flokka og samtaka í þeim fréttaskömmtum sem örfáir fjölmiðlamenn hafa vald til að velja handa almenningi. Að vísu komst einn leiðtogi í efsta sæti vinsældakönnunar, en honum auðnað- ist að gera garð sinn frægan á sama tíma og könnun var gerð. Sá vann sína keppni með því að Ótafur fara í taugarnar á Ragnar. forsætisráðherra og munnhöggvast við hann í þeim Ijölmiðlum sem eru undir yfirstjórn nienntamálaráð- herra, en hann hefur sorglega lítil áhrif á. Lof og dýrð Hafi einhverjir búist við að þeir skörungar sem veljast til forystu hefðu eitthvað til mála að Ieggja í áramótaávörpum sínum hafa þeir orðið lýrir vonbrigðum. Forsætis- ráðherra og forseti voru sléttmálg- ir og báru mikið lof á þjóðir sínar og bjartar framtíðarhorfur. I flest- um greinuni eru þeir sammála og minntust með mikilli ánægju ferðalaga og hátíð- arhalda síðasta sumars og hins mikla ávinnings sem þau boðuðu. Það er helst að þá greini á um efnahagshorfur, en Davíð. þá aðeins til skemmri tíma litið. Forsætisráðherra sér hvergi votta fýr- ir skýhnoðra á heiðríkju góðæris- ins og lofar áframhaldandi efna- hagsbata um ókomna tíð. Forseti aftur á móti hefur áhyggjur að hlutabréfamarkaði og þátttöku al- mennings í honum. Hann telur að einhverjir kunni af fara illa út úr þeim fjármálaævintýrum og telur þá til sem slegið hafa lán og veð- sett eigur sínar til að kaupa bréf, sem allt í einu eru farin að hafa tilhneigingu til að lækka að verð- gildi þrátt fyrir allar glæsispár sér- fræðinganna fyrr á árinu. Samsíilltir hugtr Það er annars aðdáunarvert hve sammála þeir eru, forseti og for- sætisráðherra, um atgervi ís- lensku þjóðarinnar, hugmynda- auðgi hennar, menntunarstig og frumkvöðlanáttúru. Afskaplega er ánægjulegt þegar tveir einstaklingar sem gegna mik- ilsverðustu embættum í þágu þjóða sinna stilla hugi sína svona fallega saman og ávarpa fólk með þeim orðum sem það vill helst heyra á tímamótum þegar drukknir sem allsgáðir fagna ára- mótum með braki og brestum og nokkur hundruð milljóna króna eldglæringum. Þótt engum detti í hug að kjósa þá sem menn ársins eru þeir óefað menn áramótanna og alls þess fagurgala sem þeim -Ðaqpr Hveming fannst þér áramótaskaup Sjónvarpsins? Hallgrímur Helgason rithöfundur. „Þetta er örugg- lega lélegasta ára- mótaskaup sem ég hef séð og fór langt með að eyði- leggja kvöldið fyrir fólki. Það er langt gengið þegar fréttaannáll Stöðvar 2 er fyndnari. „Dancer in the Dark“- atriðið var það eina sem var fýmdið. Er 68 kynslóðin að missa húmorinn? Ég meina það. Skaupið hefði getað verið frá 1983. Svo er þetta alltaf svo ein- litt. Vinstra genginu og borgar- stjóranum er alltaf hlíft. Það er menntahroki í þessu venjulega gríni um „unga og ótalandi" þátta- gerðarfólkið, sem hefur þó aldrei gert svona lélegt sjónvarpsefni eins og skaupið var að þessu sinni. Mér fannst líka illa gert að skrifa „íslensku þjóðina'1 íýrir handrit- inu. Hún hefur nú meiri húmor en þetta.“ Árnl Þór Vigfússon sjónvarpsstjóri. „Þetta var gott áramótaskaup, mér fannst þáttur Sigurðar Sigur- jónssonar til dæmis vera góður þar sem hann var einn liðsmanna í söngtríói. Svo vorum \ið á Skjá einum tekin fýr- ir í skaupinu, sem segir okkur að við séum á réttri leið og að efni okkar sé að vekja eftirtekt. Jú, auðvitað hafa komið upp hug- myndir hér á Skjá einum að vera með áramótaskaup og hver veit nema sú verði raunin að ári.“ Flosi Ólafsson leikari. „Mér fannst skaupið frábært, en hins vegar virð- ist mér íslending- ar ekki vera í stakk búnir til að skilja það þegar hlutim- ir eru settir í spaugilegt ljós með tvíræðnum hætti. Þórhildur leik- stýrði skaupinu með ágætum og hvergi voru dauðir punktar eins og oft váll verða. Af framlagi ein- stakra leikara þá nefni ég sérstak- Iega Halldóru Geirharðsdóttur, þar sem við sáuni í raun svart á hvítu hvernig íslenskt sjtinvarp er að verða.“ Helga Vala Helgadóttir leihari og útvarpsmaður a Bylgjnnni. „Þetta voru ára- mótin þar sem ég furðaði mig á því hvernig fólk nen- nir að æsa sig yfir áramótaskaupi. Ég horfði á þetta og stökk ekki bros og gat ekki staðið meira á sama. Sjáífsagt er ég svona hamingjusöm að ég hef öðlast jafnaðargeð og læt ekki eitt áramótaskaup koma mér úr jafn- vægi, þótt lélegt sé. Þuluatriðin voru of mörg og fyrir neðan allar hellur. Það besta var hins vegar stæling Eggert Þorleifssonar á Friðrik Þór; þegar það birtist jaðr- aði við að ég brosti.“

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.