Dagur - 03.01.2001, Side 9
MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 2001 - 9
Ð^ur-
ÍÞRÓTTIR
Man. United
að stinga af
Með 1-0 tapi gegn
Charlton á nýársdag, er
nokkuð ljóst að meist-
aradraumar Arsenal
eru úr sögunni, en
United hefur nú ellefu
stiga forskot á Lund-
únaliðið á toppi ensku
úrvalsdeildarinnar, eft-
ir 3-1 sigur á West
Ham í fyrrakvöld.
Sunderland komið upp
að Arsenal í þriðja sæt-
ið eftir 41 stórsigur á
Ipswich á nýársdag.
Möguleikar Arsenal á að ná
Manchester United að stigum í
ensku úrvalsdeildinni minnkuðu
til muna um áramótin, þegar
Lundúnaliðið tapaði 1-0 gegn
Charlton á „The Valley“ á nýárs-
dag. Það var markahrókurinn
Jonatan Johansson sem skoraði
sigurmark Charlton á 39. mínútu
fyrri hálfleiks, þegar hann skallaði
inn fyrirgjöf Graham Stuart. Þetta
var þriðja mark Johansson í síð-
ustu tveimur leikjum, en hann
gerði tvö mörk í 1 -4 sigri Charlton
gegn Manchester City á laugar-
daginn.
Arsene Wenger, stjóri Arsenal,
stillti upp hálfgerðu varaliði gegn
Charlton, en þeir Thierry Henry,
Tony Adams, Martin Keown,
Dennis Bergkamp, Sylvain Wíltord
og David Seaman, voru allir frá
vegna meiðsla og munar um
minna. Lundúnaliðið fékk gott
tækifæri til að jafna þegar langt var
liðið á leikinn, en þá gerði Dean
Kiely, markvörður Charlton, sér
lftið fyrir og varði vftaspymu frá
Nelson Vivas. Með sigrinum
komst Charlton í áttunda sæti
deildarinnar með 31 stig og er til
alls Iíklegt á nýju ári.
Enn skorar Solskjær
Eftir tap Arsenal gegn Charlton,
fékk Manchester United upplagt
tældfæri til að auka forskotið á
toppi deildarinnar í ellefu stig,
þegar Iiðið fékk West Ham í heim-
sókn á Old Trafford í fyrrakvöld.
Það tækifæri nýttu leikmenn
United sér til fulls, þar sem þeir
léku lið West Ham lengst af sund-
ur og saman og unnu 3-1 sigur, þar
sem Ole Gunnar Solskjær skoraði
sitt fjórða mark fyrir United í síð-
ustu þremur leikjum. Til þess
þurfti kappinn aðeins tæpar þrjár
mínútur, þegar hann náði 1 -0 for-
ystu fyrir meistarana, eftir varnar-
mistök Rigoberts Song. United
sótti stíft eftir markið og eftir
mikla pressu varð Stuart Pearce
varnarmaður West Ham fyrir því
óhappi að senda boltann í eigið
mark eftir fyrirgjöf Phill Neville og
staðan því orðin 2-0 fyrir United í
leikhléi. Það var síðan Dwight Yor-
ke sem bætti við þriðja markinu
fyrir United á 38. mínútu, þegar
hann skallaði glæsilega inn frá-
bæra fvrirgjöf Roy Keane. Frederic
Kanoute minnkaði muninn fyrir
Wcst Ham í 3-1, þegar 18 mínútur
voru til leiksloka.
David Beckham var langbestur í
liði United, auk þess sem þeir
Brown og Bartez áttu mjög góðan
leik og áttu þessir þrír öðrum
fremur heiðurinn að því að tryggja
United fimmtánda sigurinn í
deildinni í vetur. Liðið hefur þar
með náð fimmtíu stigum og eins
og áður sagði ellefu stiga forskoti í
deildinni, sem að öllu eðlilegu ætti
að duga liðinu til að veija meist-
aratitilinn í vor.
Gleðilegt nýár hjá
Sunderland
Nýja árið virðist ætla að verða
Sunderland happadrjúgt, því liðið
vann 4-1 stórsigur á spútnikliði
Ipswich á nýársdag og er þar með
komið upp að hlið Arsenal í öðru
sæti deildarinnar með 39 stig.
Leikurinn byrjaði þó ekki vel fyrir
Sunderland, því strax á fimmtu
mínútu náði Marcus Stewart 0-1
forystu fyrir Ipswich, með sínu
þriðja marki í jafnmörgum leikjum
og leit lengst af fyrri hálfleiksins út
fyrir að Sunderland yrði næsta
fórnarlamb Hermanns Hreiðars-
sonar og félaga í Ipswich. Leik-
menn Sunderland voru þó á öðru
máli og rétt fyrir leikhlé tókst
Argentínumanninum Julio Arca að
jafna leikinn í 1 -1 með marki beint
úr aukaspyrnu. I seinni hálfleikn-
um tóku leikmenn Sunderland
síðan öll völd á vellinum, með
markahrókinn Kevin Phillips í
droddi fylkingar og náði hann for-
ystunni fyrir Sunderland á 57.
mínútu. Þetta var hans fimmta
mark í síðustu Ijórum leikjum og á
hann öðrum fremur heiðurinn að
þeim tíu stigum sem Iiðið hefur
innbyrt yfir hátíðarnar.
Fimm mínútum eftir markið
slapp Phillips í gegnum vörn
Ipswich, hægra megin og gaf góða
sendingu á Daniele Dichio, sem
skoraði örugglega, 3-1. Stephan
Schwartz bætti síðan við fjórða
marki Sunderland þegar um það
bil tvær mínútur voru til leiksloka.
Úrslit leikja um áramótin:
Laugard. 30. des.:
Arsenal - Sunderland 2-2
Vieira (5), Dixon (40) -
Phillips (víti 53), McCann (83)
Aston Villa - Leicester (frestað)
Bradfortl - Liverpool (frestað)
Everton - Leeds (frestað)
I]iswich - Tottenham 3-0
Stewart (9), A Armstrong (62),
Clapham (88)
Man. City - Charlton í Iuckerby (víti 90) - Johansson 1-4
(26,37), Stuart (víti 79), Jensen (89)
Middlesbr. - Coventry Boksic (86) - Whelan (sm. 41) 1-1
Newcastle - Man. United Glass (81) - Beckham (víti 25) 1-1
Southampton - Derby Beattie (73) 1-0
West Ham - Chelsea (frestað) Nýársdagur:
Charlton - Arsenal Johansson (39) 1-0
Chelsea - Aston Villa Hasselbaink (45) 1-0
Coventry - Man. City Edworthy (72) - Wanchope (54) 1-1
Derby - Everton Burton (20) 1-0
Leeds - Middlesbrough Kcane (víti 55) - Boksic (27) 1-1
Leicester - Bradford 1-2
Izzet (víti 38) - Jess (25), Jacobs (30)
Liverpool - Southampton 2-1
Gerrard (12), Babbel (86) -
Soltvedt (20)
Man. United - West Ham 3-1
Solskjaer (3), Pearce (sm. 33),
Yorke (58) - Kanoute (72)
Sunderland - Ipswich 4-1
Stewart (5) -Arca (25),
Phillips (57), Ðichio (63),
Schwarz (88)
Staðan eftir áramótaleiMna:
Man. Utd. 22 15 5 2 51:16 50
Arsenal 22 11 6 5 38:22 39
Sunderland 22 11 6 5 29:22 39
Ipswich 22 11 4 7 33:26 37
Liverpool 21 11 3 7 39:26 36
Leicester 21 10 5 6 24:23 35
Newcastle 21 9 4 8 23:26 31
Charlton 22 9 4 9 31:36 31
Chelsea 21 8 6 7 38:27 30
West Ham 21 7 8 6 31:24 29
Aston Villa 20 7 8 5 23:19 29
Southampt. 22 7 6 9 28:34 27
Leeds 20 7 5 8 27:28 26
Tottenham 21 7 5 9 26:32 26
Derby 22 5 8 9 24:36 23
Everton 21 6 4 11 21:33 22
Coventrv' 22 5 6 11 21:37 21
Middlesbr. 22 4 8 10 23:30 20
Man. City 22 5 5 12 27:38 20
Bradford 21 3 6 12 16:38 15
(í gærkvöldi fór fram leikur
Tottenham gegn Newcastle á
White Hart Lane og höfðu úrslit
ekki borist þegar blaðið fór í prent-
un.)
Stefán Ágúst Hafsteinsson kemur fyrstur í mark í 25. Gamlárshlaupi ÍR.
Stefán sigraði í
Gamlárshlaupmu
Gamlárshlaup IR, það 25. í röð-
inni, fór að venju fram á gamlárs-
dag og voru alls 275 þátttakendur
skráðir til keppni. Það er næst
mesta þátttaka frá upphafi, en
flestir hlupu fyrir tveimur árum,
eða 286. Hlaupið, sem er 10 km,
hófst við Ráðhús Reykjavíkur og
Iétu frískir hlaupagikkir, sem sum-
ir mættu í furðuflíkum, bítandi
frostið ekki aftra sér þátttöku. Þar
á meðal voru nokkrir jólasveinar,
sem komu færandi hendi fyrir
hlaupið, en fótfráastur þeirra var
auðvitað sjálfur Giljagaur sem
lcnti í 47. sætinu og vakti hlaupa-
stíll hans mikla athygli.
I karlaflokki sigraði Stefán
Agúst Hafsteinsson, IR, á tíman-
um 36:29 mínutum, eftir harða
keppni við Arna Má Jónsson úr
FH, sem varð í öðru sæti á tíman-
um 36:48 mín. I þriðji sæti varð
Daði Rúnar Jónsson, FH, á tíman-
um 36:55 mín.
I kvennaflokki sigraði Fríða
Rún Þórðardóttir, ÍR, á tímanum
41:13 mín., en í öðru sæti varð
Rannveig Oddsdóttir, Lang-
hlauparafélagi Reykjavíkur, á tím-
anum 41:18 mín. Þriðja varð
Gerður Rún Guðlaugsdóttir, IR, á
tímanum 41:33 mínútum.
Úrslit
Tuttugufirstu karlamir í heildar-
úrslitum:
1. Stefán Ág. Hafsteinsson, 36:29
2. Árni Már Jónsson, 36:48
3. Daði Rúnar Jónsson, 36:55
4. Bjartmar Birgisson, 36:59
5. Örnólfur Oddsson, 38:02
6. Sigurjón Sigurbjörnsson, 38:21
7. Jón Jóhannesson, 39:10
8. Guðmann Elísson. 39:24
9. Jóhann B. Kristjánsson, 39:33
10. Ólafur Margeirsson, 39:53
1 1. Sigurður Ingvarsson, 39:55
12. Stefán Örn Einarsson, 40:06
13. Þórlindur R. Þórólfsson, 40:21
14. Stefán Már Ágústsson, 40:28
15. Guðjón Marteinsson, 40:29
16. Þórhallur Jóhannesson, 40:33
17. Dagur Björn Egonsson, 40:39
18. Hjálmtýr Hafsteinsson, 40:46
19. Þorlákur Jónsson, 40:51
20. Valdimar Bjarnason, 41:08
Tíu fyrstu lionumar t heildarúr-
slitum:
22. Fríða Rún Þórðardóttir, 41:13
23. Rannveig Oddsdóttirm, 41:18
25. Gerður Rún Guðlaugsd., 41:33
30. Una Hlín Valtýsdóttir, 42:24
53. Helga Björnsclóttir, 44:42
77. Ingibjörg Kjartansdóttir, 47:02
79. Elínborg Lilja Ólafsdóttir, 47:15
83. Ebba Kristín Baldvánsd., 47:26
9.3. María Björk Gunnarsd., 48:06
94. Erla Gunnarsdóttir, 48:15
Verdlaunahafar eflir aldursflokh-
um:
Karlar 18 ára og yngri
1. Daði Rúnar Jónsson, .36:55
Fríða Rún Þórðardóttir varð fyrst í
kvennaflokki.
2. Olafur Margeirsson, 39:53
3. Þórlindur R. Þórólfsson, 40:21
Karlar 19 til 39 ára
1. Stefán Ág. Hafsteinsson, 36:29
2. Árni Már Jónsson, 36:48
3. Bjartmar Birgisson, 36:59
Karlar 40 til 44 ára
1. Ömólfur Oddsson, 38:02
2. Jón Jóhannesson, 39:10
3. Guðmann Elísson, 39:24
Karlar 45 til 49 ára
1. Siguijón Sigurbjörnsson, 38:21
2. Jóhann B Kristjánsson, 39:33
3. Þórhallur Jóhannesson, 40:33
Karlar 50 til 54 ára
1. Olav Ómar Kristjánsson, 43:35
2. Lárus H. Blöndal, 44:29
3. Örn Þorsteinsson, 45:36
Karlar 55 til 59 ára
1. Birgir Sveinsson, 44:32
2. Jóhann H. Jóhannsson, 44:40
3. Sigurður Kr. Jóhannsson, 45:06
Karlar 60 ára og eldri
1. Eysteinn Þorv'aldsson, 51:08
2. Ingólfur Sveinsson, 53:58
3. Berghreinn G. Þorsteinss., 53:58
Konur 18 ára og yngri
1. María Björk Gunnarsdóttir, 48:06
2. Sigurlaug Lilja Jónasdóttir, 61:10
3. Harpa Jóhannsdóttir, 64:26
Konur 19 til 39 ára
1. Fríða Rún Þórðardóttir, 41:13
2. Rannveig Oddsdóttir, 41:18
3. Gerður Rún Guðlaugsdóttir, 41:33
Konur 40 til 44 ára
1. Elísabet Jóna Sólbergsdóttir, 49:27
2. Sigurlaug Hilmarsdóttir, 50:19
3. Guðrún Geirsdóttir, 51:03
Konur 45 til 49 ára
1. Helga Björnsdóttir, 44:42
2. Gunnur lnga Einarsdóttir, 49:51
3. Guðný Þöll Aðalsteinsdóttir, 51:22
Konur 50 til 54 ára
1. Margrét Jónsdóttir, 56:40
2. Ragnheiður Valdimarsdóttir, 64:04
3. Sesselja Snævarr, 64:13
Konur 55 dl 59 ára
1. Svava Kristín Jónsd Valfells, 58:53
2. Ágústa G Sigfúsdóttir, 62:20