Dagur - 03.01.2001, Page 10

Dagur - 03.01.2001, Page 10
10 - MIÐVIKVDAGVR 3. JANÚAR 2001 Thyptr M inVIKUI) A fí V II 3 . JANIJAR 20 0 1 - 11 FRÉTTASKÝRING k. J Tjónið er uinliugsunarefiii Talsmaður lögreglu í Reykjavík segir að tjón og meiðingar vegna skotelda hljóti að velta upp spurning- uin uin aukið skipulag í þessum málum. Evr- óputilskipun um ára- mótabrennur skilar góðum árangri. Mikið annríki var hjá lögreglu í Reykjavík um áramót og segir talsmaður hjá embættinu að fórnarkostnaður frjálsrar skot- eldanotkunar almennings sé um- hugsunarefni. Brunar og skemmdarverk urðu víða á höfuð- borgarsvæðinu en í öðrum lands- hlutum fóru áramótin friðsællega fram með örfáum undantekning- um. Þar ber hæst slysið á Patreks- firði sem Iesa má um á forsfðu blaðsins. Slapp ótrúlega vel Davíð Arni Guðmundsson, 8 ára snáði, brenndist illa á Patreks- firði á gamlárskvöld þegar hann komst vfir kröftugan Ilugeld. Að sögn lögreglunnar á staðnum en þó ýmislegt óljóst um atvikið, enda voru engin vitni að því. „Þetta er ennþá svolítið óljóst, erfitt að spyrja strákinn þar sem hann er sviðinn og illa farinn í munni. Hann slapp þó alveg ótrúlega vel miðað við dúndrið sem heyrðist þegar sprengjan sprakk,“ segir Jónas Þór, lögreglu- maður á Patreksfirði. Laumaðist út Guðmundur Olafur Guðmunds- son, faðir drengsins, rekur veit- ingastaðinn Kaffi Vatneyri og hann segir að drengurinn hafi laumast út úr veitingahúsinu án þess að þess yrði vart. Sennilega hafi hann komist yfir hálfsprung- inn flugeld og náð að bera eld að honum með stjörnuljósi. Það næsta sem menn heyrðu var gríð- arleg sprenging sem lýsa má best með orðum Guðmundar: „Dúnd- rið varð svo mikið að myndirnar hrundu af veggjunum. Eins og f'ram kemur á forsfðu tóku við erfiðar stundir í bið og faðirinn segir forkastanlegt að sjúkraflugsmál séu í ólestri á gamlárskvöldi þegar slys séu hvað algengust. Hins vegar heilsast syninum vel og þótt báðar sjón- himnur séu brunnar, standa von- ir til að þær grói og hann nái sér að fullu. „Hann var virkiiega heppinn," segir Guðmundur. 700 útköll En aftur að höfuðborgarsvæðinu. Fram til klukkan sjö í gærmorgun var frá helgínni búið að færa til bókunar um 700 verkefni hjá lög- reglunni í Reykjavík. Fjöldi út- kalla varð vegna skotelda og segir Karl Steinar Valsson aðstoðaryfir- lögregluþjónn að sérlega erilsamt hafi verið annars vegar um mið- nættið á gamlárskvöld og hins vegar frá klukkan ijögur til tíu á nýársdagsmorgun. „Allar þær skemmdir og óhöpp sem tengjast notkun flugelda hljóta að fara að vekja menn til umhugsunar hvort þetta eigi að vera svona. Við erum að tala um 57 skemmdarverk sem mörg hver eru með þeim hætti að ungmenni líma skotelda við rúð- ur eða útbúa sprengjur og brjóta þær þannig. Síðan verða allir þessir smábrunar líka og Iíkams- tjón,“ segir Karl Steinar. Tjónið vegna skotelda, bæði áþreifanlegt og andlegt er umtals- vert, en vill Karl Steinar grípa til einhverra sérstakra aðgerða í þessum efnum? „Þrátt fyrir að ég verði seint einhver sérstakur tals- maður hoða og banna held ég að menn hljóti að þurfa að íhuga hvort þetta sé það fyrirkomulag sem við viljum viðhafa cða hvort við ættum að beina spjótum okk- ar í ríkari mælum að skipulögð- um flugeldasýningum." Siunt er gott Hins vegar telur Karl Steinar að eftirlit með börnum fari batn- andi, enda virðist sem töluvert minna hafi verið um slys á yngri börnum en t.d. í fyrra og þar kunni stóraukin notkun á hlífðar- gleraugum sem dæmi að spila inn í. Einnig sé eftirtektarvert að um áramótin hafi lítið orðið um lík- amsmeiðingar í helsta „áhættu- hópnum" þ.e.a.s. hjá íslenskum karlmönnum. Lögreglan telur það benda til þess að karlarnir hafi einbeitt sér að flugeldunum á kostnað slagsmála. „Það er svo- lítið sérstakt að við erum að tala um talsvert færri líkamsárásir en á venjulegri helgi og annað sem jákvætt má nefna er að aðeins 18 ökumenn voru teknir grunaðir um ölvun og akstur." Af öðrum málum úr borginni má nefna alvarlegt umferðarslys þegar maður hljóp í veg fyrir lög- reglubíl og brotnaði illa. „Vitlaust hjá slökkviliði64 „Það var bara vitlaust að gera," segir Knútur Halldórsson, stöðv- arstjóri hjá Slökkviliðinu í Reýkjavík. Hann segir að þurr- viðri og auð jörð hafi spilað inn í og mikið hafi verið um flugelda í umferð. Seljendur telja að svipað magn hafi selst af flugeldum í ár og í fyrra en þá varð metár. Knútur segir að 38 útköll hafi orðið á nýársnótt sem sé með því mesta hjá slökkviliðinu um ára- Davíð Árni Guðmundsson, 8 ára snáði, brenndist illa á Patreksflrði á gamlárskvöld þegar hann komst yfir kröftugan flugeld. Að sögn lögregl- unnar á staðnum en þó ýmislegt óljóst um atvikið, enda voru engin vitni að því. mót. Nefna má að flugeldur fór inn um glugga í Safamýri og olli skemmdum. Þá var kveikt í Garðaskóla og utanhúsklæðningu á Listaháskólanum. Sorpgeymsl- ur brunnu víða og ennfremur var annríki í sjúkraflutningum. Alls var farið 33 sinnum í sjúkraflutn- inga en þar var ekki við flugelda að sakast heldur tilfallandi veik- indi og fylgifiska ölvunar. Jákvæð Evróputilskiptui Evrópskar reglugerðir gilda nú um áramótabrennur íslendinga og telur Knútur að strangari regl- ur hafi skilað góðum árangri. Hann segir að óvenju lítið hafi verið um að flugeldum hafi verið skotið upp við brennurnar og mun minna en fyrr. Bannað er að vera með neitt öflugra en stjörnu- blys við brennur og flestir virtu það um þessi áramót. „Það var staöið betur að þessum málum en áður, sem er mjögjákvæð þróun." Sameining slökkviliða kom mjög til góða að sögn Knúts um áramótin. Hann nefnir sem dæmi að mannskapurinn sem starfað hafi við flugvöllinn í Reykjavík hafi veirö til reiðu þar sem flug- völlurinn var lokaður á nýársnótt. Þarna kom inn ein aukastöð sem við höfum ekki haft áður og það munar verulega um það,“ segir Knútur. „Nýja árið heilsaði ekki alls staðar vel.“ Akureyringar verða æ rólegri „Þetta gekk nokkuð vel hjá okk- ur,“ segir Olafur Asgeirsson, að- stoðar\'firlögreg!uþjónn á Akur- eyri. Töluverður erill var þó hjá lögreglu og ekki síst við að hjálpa fólki að komast leiðir sinnar. Þá voru smápústrar tíðir en engin umtalsverð óhöpp. Aðeins tveir gistu fangageymsl- ur lögreglu á nýársnótt og segir Olafur: „Þessi áramót eru undan- farið að verða sífellt rólegri. Það eru allir að skemmta sér og það skiptir töluverðu máli hvernig mcnn eru stemmdir. Til dæmis fý'llast veitingahúsin stundum af fólki sem dettur kannski inn í hálfgerðu ógáti eftir vinnu á föstudögum. Menn ætla e.t.v. að fara beint heim en enda svo á einhverjum skemmtistað og þá myndast oft öðruvísi andrúmsloft en þegar allir eru ákveðnir fyrir- fram í að fara út og skemmta sér.“ Ólafur kvartar þó undan þvf hve Akureyringar fari seint út á skemmtistaðina. Þeir voru opnir til klukkan scx um morguninn og var töluvert um að menn nýttu sér þann tíma. Slökkviliðið á Akureyri átti náð- ug áramót og kann að hafa hjálpað að veðrið var heldur leiðinlegt og snjór yfir öllu. Ein terta sprakk inni f bílskúr og olli sniávægilegum skemmdum en að öðru leyti hefur hvorki lögregla né slökkvilið spurnir af alvarlegum tilvikum s.s. augnsköðum eða brunum. „Við erum mjög ánægðir með þessa helgi. Ef þær verða allar svona, lof- ar það góðu með árið,“ segir Olaf- ur. Ófærð á Egilsstöðuin Á Austurlandi fóru áraniót einnig vel fram að sögn varðstjóra en þar var vitlaust veður og mikil ófærð. Skyggni var ekkert til að njóta flug- elda og var því litlu skotið upp. „Menn verða að bæta sér það upp á þrettándanum," segir Jón Þórar- insson varðstjóri á Egilsstöðum. Á Austurlandi þurfti lögregla víða að aðstoða fólk sem var fast í snjósköflum en allt gekk vel fyrir sig miðað við aðstæður að sögn Jóns. „Menn tóku þessum erfið- leikum vel,“ segir hann. Blóðnasir á ísafirði Á ísafirði var engin ófærð en líkt og hjá kollegunum á Austurlandi og á Akurcyri eru lögreglumenn ánægðir með áramótin. Ein lík- amsárás í heimahúsi var þó kærð á nýársdagsmorgun en kærandi reyndist lftið meiddur. Þetta mál er það eina sem liggur á okkar borði eftir áramótin. Þetta var mjög ró- legt og friðsælt," segir Oddur Árnason aðalvarðstjóri á lsafirði. Fyrsti Akureyringur ársins, stúlka sem fædd var á nýársdag á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri klukkan 19.10, ásamt foreldrum sinum Erlu Elfsabetu Sigurðardóttur og Steingrími Hannessyni. Fyrsta bam árs- ins Skagamaður Fyrsta barn ársins á Islandi (og aldarinnar?) er drengur sem býr á Akranesi. Hann fæddist tvær mínútur yfir sex um morguninn á Sjúkrahúsinu á Akranesi, en hann átti að koma í þennan heim 30. desember. Foreldrar hans eru Lára Elín Guðbrandsdóttir og Gunnar Bergmann Steingríms- son og hann á eldri systur, Al- exöndru Hlíf Jóelsdóttur. Skaga- maðurínn var 14 merkur og 52 centimetrar. Aðeins mínútu síðar fæddist annar drengur, en hann fæddist á Fæðingardeildinni í Reykjavfk. Hann var 16 merkur og 52 senti- metrar. Foreldrar hans eru Silja Rún Gunnlaugsdóttir og Friðrik Sturluson sem búa í Reykjavík. Næsta barn fæddist svo á Sjúkrahúsinu á Selfossi kl. 13.42. Það var stúlka sem er dóttir Helgu Kolbeinsdóttur og Lofts Erlingssonar á Sandlæk í Gnúpverjahreppi. Klukkan 19.10 fæddist svo íjórða barnið á nýjársdag. Það var stúlka sem fæddist á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri, dóttir Erlu Elísabetar Sigurðardóttur og Steingríms Hannessonar á Akureyri. Engin börn höfðu fæðst á þessari öld á sjúkrahúsunum á Neskaupstað, Egilsstöðum, Húsavík, Isafirði né Reykjanesbæ síðdegis f gær, en í Reykjanesbæ var líklegt að barn fæddist síðdegis eða um kvöldið og á Isafirði voru nokkrar konur skráðar inn. Ljósmæður á áðurnefndum stöðum töldu lík- legt að óvenjumargar barnsfæð- ingar yrðu á fyrstu vikum ársins miðað við árin þar á undan. Töluverðar brevtingar urðu á lögum um fæðingarorlof í byrjun ársins 2001. Fæðingarorlof feðra verður hálfur mánuður á þessu ári, lengist í 2 mánuði á árinu 2002 og í 3 mánuði á árinu 2003. Fæðingarorlof móður verður áfram 6 mánuðir, en sú breyting verður á þessu ári að hún getur ráðstafað 3 mánuðum af sfnu fæðingarorlofi til föður- ins. - GG Rarnisókn Isfélags- bruna haldið áfram Mörgum Vestmannaey- ingum finnst óþægi- legt að hugsanlegur brennuvargur skuli ekki finnast en einnig telur fjöldi Vest- mannaeyinga það best að málið upplýsist aldrei, aðallega vegna fjölskyldu viðkomandi Rannsókn stendur enn vfir á ástæðum þess að það kviknaði í fnstihúsi Isfélags Vestmannae\ja 9. desember sl. Enn er talið lang- líklegast að kveikt hafi verið í, en rannsóknarlögreglan vill ekki gefa upp af hverju og er rneginá- stæða þess að til er fólk sem vill játa á sig ýmsa glæpi, en játning- in ein dugar ekki sem sönnun ef lýsing á aðstæðum samræmist ekki ákveðnum staðrevndum, s.s. hvernig viðkomandi fór að því að kveikja í, og hvar. , , , , , Enginn játað Enginn hefur játað á sig íkveikju enn sem komið er. Meðan málið er enn ekki talið fullrannsakað heldur rannsókn áfram. Mörgum Vestmannaeyingum finnst óþægi- legt að hugsanlegur brennuvarg- ur skuli ekki finnast en einnig telur fjöldi Vestmannaeyinga það best að málið upplýsist aldrei, að- allega vegna fjölskyldu viðkom- andi, hvort sem þetta hefur verið gert af börnum eða fullorðnum, og hvort kveikt hafi verið í af ásetningi eða slvsni. Dæmi eru þess að brennuvargar kikni und- an álaginu og leiti til læknis eða sálfræðings, og þá er aldeilis óvíst að þær upplýsingar berist lögregl- unni. Rannsóknarlögreglan í Vestmannaeyjum kannast við þann orðróm að kveikt hafi verið í aí einstaklingi sem hafi verið sagt upp vinnu í Isfélaginu sköm- mu áður, og haft á orði að best væri að kveikja í „þessu drasli". Við yfirheyrslu gat viðkomandi gert grein fyrir sínum ferðum á laugardagskvöldinu. 101 á atvinnuleysisskrá Nú í ársbyrjun er 101 starfsmað- ur lsfélags Vestmannaeyja á at- vinnuleysisskrá en alls 165 í V'estmannaeyjLim. Nokkrir fengu vinnu við hreinsun og málningu, en þeirri vinnu er nánast Iokið. I gær voru 10 starfsmenn við end- urmat á fiskafurðum sem voru í frystigeymslum ísfélagsins. Jakob Bjarnason hjá KER, eignarhaldsfy'rirtæki Olíufélags- ins, og nýkjörinn stjórnarformað- ur Vinnslustöðvarinnar, segir engar viðræður hafa verið eða séu fyrirhugaðar um sameiningu Vinnslustöðvarinnar og lsfélags- ins, en margir telja eðlilegt að þær séu tcknar upp aftur áður en til endurbvggingar Isfélagsins kemur. Viðræðum var slitið sl. sumar þar sem stjórn Isfélagsins vildi ekki framlengja frest sem Vinnslustöðin hafði til að svara ýmsum þáttum málsins. - GG

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.