Dagur - 03.01.2001, Blaðsíða 15

Dagur - 03.01.2001, Blaðsíða 15
MIÐVIKUDAGV R 3. JANÚAR 2 001 - 15 WNPlNM ■mdhimui Djassinn lengi lifi Árið 2000 hófst hjá Jazzklúbbi Akur- eyrar með nýárs- djassi í Deiglunni og var það upphafið að einu líflegasta djassári í sögu klúbbsins sem tókst mjög vel að mati djass- geggjara. Það var því vel við hæfi að ljúka starfsárinu með djassveislu á næstsíðasta degi ársins á sama stað og það hófst, í Deiglunni. Fimrn manna djasshljómsveit skipuð djössurum á norðurslóð, þeim: Aladar Rádcz á píanó, Stefáni Ingólfssyni á bassa, Róbert Reynissyni á gítar, Benedikt Brynleifssyni á tronnnur og Margot Kiis sem var söngkona kvöldsins íluttu sígildar djassperlur með há- tíðlegum blæ og var stemn- ingin eftir því. í þau ár sem Jazzklúbbur Akureyrar hefur starfað, hefur áhugi djassista á að sækja mekka djassins - Akureyri heim, farið stöðugt vaxandi. Djassinn er orðinn einn sterkasti ki-aftbirtingarhljómur listalífsins á Akureyri og þang- að kemur fjöldi innlendra og erlendra djassspilara árlega, sem sækjast eftir þessari ein- stöku djassstemmningu og komast færri að en vilja. Pessu sveifluinnleggi í menningar- og listalífið ber að þakka áhugasömum stjórnend- um Jazzklúbbs Akureyrar, sem hafa lagt á sig ómælda ólaun- aða vinnu svo djassinn mætti duna í eyrum áhugasamra. s_________________________________ Valdís Viðarsdóttir Irsku drengimir og kvtaiyndaheimurinn MEÐ FULLA VASA AF GRJÓTI eftir Marie Jones. Þýðing: Guðni Kolbeinsson. Leikstjórn: Ian McEIhinney. Útfærsla leik- myndarog búninga: Elín Edda Árna- dóttir. Aðstoðarleikstjórn: Björn Gunnlaugsson. Lýsing: Ásmundur Karlsson. Frumsýnt á Smíðaverkstæð- inu 30. desember. Þjóðleikhúsið hefur nú fiskað upp írskt leikrit sem um þess- ar mundir fer milli leikhúsa í Evrópu og á leið til Ameríku. Sami maðurinn, írskur leik- húsmaður, Ian McElhinney, hefur sett það upp alls staðar þar sem það hefur verið sýnt til þessa, á írlandi, Englandi og í Svíþjóð. Og hingað er hann kominn og var vel fagn- að á frumsýningu þar sem hann mætti með höfundinum sem reyndar er eiginkona hans.Um hvað er þetta leikrit? Það gerist í ónefndu þorpi á vesturströnd írlands þar sem verið er að taka Hollywood- mynd með tilheyrandi stjörnu- gengi. Heimamenn eru notaðir sem statistar og snýst leikur- inn um tvo slika sem ganga báðir með grillur um kvimyndafrægð. Það gerði líka einn piltur enn í þorpinu, en hann missti fótanna og ánetj- aðist eiturlyfjum. í leiknum bindur hann enda á líf sitt með því að fylla vasa sína af grjóti og vaða út í á. Jake Quinn ásakar réttilega fram- leiðslulið hinna fölsku kvik- myndadrauma um að hafa fyllt huga Sean Harkin af draumórum sem tortímdu honum. Hér sjáum við alþjóð- lega samviskulausa markaðs- framleiðslu nútímans mylja saklaust mannlíf undir hæln- um í hagnaðarskyni. Það er þarna pólitískur broddur, sið- ferðilegt erindi sem vissulega er brýnt á tímum menningar- legrar „alþjóðavæðingar“. IJins vegar er athyglisvert að lesa í viðtali við leikstjórann í Morgunblaðinu, að eftir því sem frægð leiksins eykst hefur verið dregið úr pólitískum boðskap þess, eftir stendur „mannleg" saga um tvo stráka. Þannig hefnir hið al- þjóðlega afþreyingarauðvald sín, tekur boðskap sem beinist að því sjálfu, dregur úr hon- um tennurnar og gerir hann neytendavænan. Er þetta kannski ekki snjallt? Áskorun og ögnut Það er sérstakt við leikinn að tveir leikendur fara með öll hlutverkin. í fyrsta lagi fólag- ana Charlie Conlon og Jake Quinn og svo alla aðra sem við sögu þeirra koma. Þetta er gert án allra hjálparmeðala, bún- inga eða leikmyndar, og er ekki lítil áskorun fyrir leikarana. Og það sýnist mér raunar helsti kostur leiksins, að ögra hæfi- leikaríkum leikurum og kalla fram getu þeirra með þessum hætti. Því frumlegt leikverk eða meiri háttar er Með fulla vasa af grjóti ekki, þótt það sé kunn- áttusamlega gert frá höfundar- ins hendi. Sýn höfundar og efn- ismeðferð er sannast sagna býsna kunnugleg og meló- dramatísk. Og á því byggist auðvitað gengi leiksins. Báðir leikararnir í sýningu Þjóðleikhússins, Hilmir Snær Guðnason og Stefán Karl Stef- ánsson, komast með sóma frá sínu vandasama verki. Félag- arnir tveir eru býsna ólíkir. Charlie (Hilmir Snær) er meiri draumóramaður, gengur með kvikmyndahandrit upp á vas- ann sem hann ímyndar sér að einhver vilji kaupa þótt bæði honum og öðrum sé ljóst að það er einskis nýtt. Jake (Stef- án Karl) er raunsærri, það er hann sem skynjar harmleikinn í lífi Seans og hvern þátt inn- rás kvikmyndauðvaldsins í þorpið á í honum. Og það er hann sem bendir Charlie á raunverulega leið: að byggja á því lífi sem þeir þekkja í stað þess að gleypa froðu frá Hollywood. Liðleg þýðing Hér er ekki unnt að gera grein fyrir öllum þeim mörgu karakterum sem þeir Hilmir Snær og Stefán Karl bregða upp, yfirleitt af miklu öryggi. Þeir leika öldunga, og var þar gamli aukaleikarinn Mickey sem Stefán leikur ljóslifandi. Hilmir Snær var einkum skemmtilegur í lilutverki Caroline Giovanni, stjörnunn- ar sem leikur sér að Jake sem „spennandi innfæddum“. í þessari skopgervingu sem um leið er tragísk, sýndi Hilmir Snær vel hve snjall leikari hann er. Hann þurfti heldur ekki mikið fyrir að hafa að sýna þursinn Joe Campbell, öryggisvörð Caroline, aðeins nokkrar likamshreyfingar. Leikstjórarnir sem hér koma fram eru skemmtilega ólíkir heimamönnum og auðvitað allsendis hirðulausir um til- finningar þeirra. Færni Hilmis og fjölhæfni er löngu kunn, en Stefán Karl hefur ekki fyrr tekist á við svo kreijandi verk- efni að ég hygg, hann er ber- sýnilega vaxandi leikari. Þýðing Guðna Kolbeinssonar var einkar liðleg og vel orðuð sem vænta mátti af svo vönum manni. Leiknum var ágætlega tekið á frumsýningu og ekki ástæða til að ætla annað en hann geti gengið vel hér eins og annars staðar. LEIKLIST skrifar Garðar jaki Á fundi hér á ritstjórn Dags í fyrravor settumst við blaðamenn- irriir niður og ræddum um hvaða kempur kæmu helst til greina í helgarviðtalinu. Þetta var í vik- unni fyrir 1. maí og því þótti okk- ur tilhlýðilegt að fenghm yrði ein- hver úr ranni verkalýðshreyfing- arinnar til þess að segja sína meiningu. Við vildum endilega fá einhvern sem þekktur er fyrir að hafa munninn fyrir neðan nefið og þá datt okkur helst í hug Gvendur jaki. Sem að vísu er dá- inn fyrir nokkrum árum. MENNINGAR VAKTIN Sigunðui* Bogi Sævarsson skrifar Talaðhitaíhúsin Af þessari litlu sögu má ályktanir draga og spyrja hvar séu í dag hinir miklu leiðtogar alþýðunnar á íslandi sem geta með stíl og áherslum talað hitann í heilu húsin og með trúnni flutt fjöll. Kjaftað ríkisstjórnirnar til og frá og sett þjóðfélagið í gíslingu, ef því er að skipta. Undarlega fáir slíkir menn eru lengur við lýði, enda við ofurefli að etja. Eða slíku trúa menn og gefast því upp á rólunum í baráttunni. Það er því ánægjulegt og ágætt frávik frá þessari lognmollu að á leiksviði lífsins standi einstaka kempur sem þora að láta til sín heyra. Á síðasta degi ársins 2000 var kunngert að Garðar Sverris- son formaður Öryrkjabandalags hefði verið kjörinn maður ársins meðal hlustenda Rásar 2. Óhætt er að segja að pilturinn sé að nokkru leyti arftaki manna eins og Jakans. Al- þýðuhetja. í fylkingarbrjósti hefur Garðar staðið síðustu mánuði í burt- reiðum við ráðherra, nú síðast í kjölfar hæstaréttardóms. I þeirri gjörningahríð hefur Garðar staðið keikur og staðið fast við sinn málstað. Garðar Sverrisson. „Það er því ánægjulegt og ágætt frávik frá þessari lognmollu að á leik- sviði lífsins standi einstaka kempur sem þora að láta til sín heyra." Við þurfumjaka Hver sem málstaðurinn er stendur óhaggað að alltaf er þörf fyrir menn sem geta barist. Reyndar hafa stéttaátök blessunarlega minnkað á síðustu áratug- um, sem helgast af því að lífskjör alls þorra almennings eru stórum betri og jafnari en var. Engu að síður er það skoðun þess sem hér situr við lyklaborð að á komandi árum eigi lífskjarajöfnun á sem breiðustum grundvelli að vera baráttumál stjórnmálamanna, hvort sem þeir velja sér vettvang innan eða utan hefðbundinna flokkastjórnmála. Hitt málið sem líkast til mun verða áberandi nú á fyi'stu árum nýrrar aldar eru um- hverfismál. Fólk er að verða sér meðvit- að um mikilvægt þess að fara að öllu með gát, svo meiriháttar slys í umhverf- ismálum verði ekki. Vísast eru málin sem brenna munu á þjóðinni á komandi tíð stórum fleiri. Fæstir geta sagt til um framtíðina svo vel sé, þegar litið er til baka. En ævinlega þarf þó fólk sem ryður brautina og skap- ar nýjan veruleika í þjóðfélaginu, svo sem í málum þeirra sem höllum fæti standa. Við þurfum jaka, sem standa af sér brotsjói og ryðja nýjar brautir - ekki síst hugarfarslegar. sigurdur@dagur.is

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.