Dagur - 10.01.2001, Síða 19
Framhaldið í hönd-
um heimamaima
Á Húsavík binda iiienn
vonir við samning
Heilsustofiiunar Þing-
eyinga við íslenska
erfðagreiningu. En
fiamk væmdastj órinn
segir að á jiessu stigi sé
ekkert fast í hendi með
verkefni, en möguleik-
arnir séu miklir.
Samningur Islenskrar erfðagrein-
ingar við FSA hefur fengið tölu-
verða umf]öllun en minna verið
rætt um samstarfssamninga IE við
10 aðrar smærri sjúkrastofnanir
sem undirritaðir voru samtímis
FSA samningnum.
Friðfinnur Hermannsson, fram-
kvæmdastjóri Heilsustofnunar
Þingeyinga, segir að á Húsavík
bindi ntenn miklar vonir \áð sam-
starfið við ÍE og sjái þar margvís-
lega möguleika. „Það er hins vegar
eitt að skrifa undir samninga, ann-
að að láta þá verða að einhverju.
Þetta er kannski íyrst og fremst
undir okkur komið hvernig við
nýtum þá möguleika sem felast í
samningnum. Þessi samningur er
ramminn utan um gagnagrunninn
og mál honum tengd og þar erum
við Þingeyingar þátttakendur. Við
höfum raunar stef’nt að því í mörg
ár að taka þátt í sams konar verk-
efnum sem ÍE er nú með á sinni
könnu. Og nú hefur verið gefin út
viljayfirlýsing um nokkur verkefni
sem við viljum vinna að, það er allt
að vera klárt hjá okkur til þess að
setjast niður með IE og ákvcða
hvort hafist verði handa við ákveð-
in verkefni."
Friðfinnur leggur hins vegar
áherslu á að það sé á þessu stigi
ekkert fast 1' hendi um verkefni og
í raun viti mcnn ekki hvað af þess-
urn samningi leiðir. En möguleik-
arnar séu margvíslegir og mikið
undir heimamönnum komið hvert
framhaldið verður. „En ég er allt-
ént bjartsýnn“.
Þingeymgar vitlausir???
Friðfinnur er ómyrkur f máli um
þá sem hann segir reyna að níða
skóinn af íslenskri erfðagreiningu
við hvert fótmál. „Eg er orðinn
ansi leiður á þessum „besserwdss-
erum“ sem tala um „heilbrigðis-
þjónustu í skugga Kára" og gera
grín að heilbrigðisstofnunum og
stjórnendum þeirra sem séu að
láta undan pólitískum þrýstingi og
oflieldi og skrifa undir samninga
við 1E gegn sannfæringu sinni og
sinna starfsmanna og m.a. í óþökk
lækna á viðkomandi stofnunum.
Og jafnframt séum við að vinna
gegn hagsmunum sjúklinga! Mér
finnst þetta alveg ömurlegur mál-
flutningur.
Eg get náttúrlega ekld talað fyr-
ir aðra en okkur og á minni stofn-
un ríkir algjör einhugur unt málið
Friðfinnur Hermannsson, fram-
kvæmdastjóri Heilsustofnunar
Þingeyinga, segir að á Húsavík
bindi menn miklar vonir við sam-
starfið við ÍE
og menn eru mjög spenntir og
ánægðir með að fá að vinna að
stórmerkilegum hlutum með fyrir-
tæki eins og íslenskri erfðagrein-
ingu, þar sem margir færustu vís-
indamenn þjóðarinnar starfa.
Meintir mannverndarmenn sent
allt þykjast vita best, nánast segja
það furðulegt að við séum svo vit-
lausir hér að trúa peningamönn-
um sem af tómurn drullusokks-
hætti eru að hirða af okkur genin.
Ég hef talaö við mikinn fjölda
Þingetdnga á síðustu árum um
þessi mál og ekki einn einasti hef-
ur verið neikvæður. Og það verður
þá bara að hafa það ef mann-
verndarmenn telja alla starfsmenn
Heilsustofnunar Þingeyinga og
flesta íbúa héraðsins vitlausa".
Persónuvemdartj ömin
Friðfinnur segir að auðvitað glími
menn hér við sömu siðferðis-
spuringar og aðrir, „en við ætlum
bara að vera með í því að leysa þau
mál". Hann tekur dæmi af per-
sónuverndinni, sem hafi nánast
ekkert verið til umræðu í íslenskri
heilbrigðisþjónustu og engir haft
áhyggjur af, fyrr en Islensk erfða-
greining kom fram á sjónarsviðið.
„Þetta er eins og með Tjörnina í
Reykjavík fyrir nokkrum árum,
hún átti engan vin áður en ákveð-
ið var að reisa þar ráðhús. Ég gekk
þarna framhjá á hverjum degi í 5
ár og hugsaði alltaf með mér: Á
ekkert að fara að gera með þenn-
an ömurlega drullupoll? En eng-
inn gerði neitt fýrr en ráðhúsið átti
að rísa, þá þustu vinir Tjarnarinn-
ar í hópum fram úr skúmaskotum
og vildu bjarga henni.
Sama gilti um persónuverndina,
hún átti engan vin í heilbrigðis-
kerfinu f\Tr en 1E kom fram, þá
var hún allt í einu mál málanna.
Og sem betur fer hefur persónu-
vemdin aukist gríðarlega með til-
komu IE og öryggiskröfur verið
efldar mjög þannig að þar hcfur
tilvist ÍE þegar orðið til góðs."
J S
■ B
Þeir eru hugsanlega að ræða málefnijeppa á breiðum grundvelli, félagarnir Hreiðar Karlsson fyrrverandi kaupfélagsstjóri og Sigurjón Benediktsson,
tannlæknir og bæjarfulltrúi. En líklegra er að pólitíkin sé umræðuefnið eða þá málefni Kisiliðjunnar, en þeir sitja báðir i stjórn fyrirtækisins.
Sigurður Hallmarsson.
Diddi
krossaður
Það hlýtur að hafa glatt marga
og Þingeyinga sérstaklega að
fjöllistamaðurinn Sigurður
Hallmarsson var í hópi þeirra
sem sæmdir voru riddarakrossi
hinnar íslensku Fálkaorðu í lok
ársins.
Sigurður hefur uni áratuga-
skeið unnið á menningarakrin-
uin og lagt gjörva hönd á flest-
ar listgreinar. Og hann sat ekki
aðgerðarlaus á síðasta ári, sjö-
tugur að aldri, heldur lék, leik-
stýrði, samdi Iög, spilaði á
nikkuna við ýmis tækifæri og
lauk árinu með málverkasýn-
ingu í desember s.I.
JS
Þorra
þjófstartað
Að venju taka kvenfélagskonur
á Húsavík forskot á sæluna og
þjófstarta Þorra með sínu ár-
lega og sívinsæla blóti á Hótel
Húsavík n.k. laugardag, 13.
janúar. Þorri hcfst hins vegar
ekki formlega fyrr en á bónda-
daginn 1 9. janúar.
Á Þorrablóti Kvenfélagsins
verður að venju söngur, glens
og grín og veislustjóri verður
hinn óviðjafnanlegi Einar Ge-
org Einarsson, einnig þekktur
sem Dengsi. Og að sjálfsögðu
leika Jósi bróðir og synir Dóra
fyrir dansi.
JS
ZOITO til
Iíúsíivíkiir
Kempan Zorro er sest að á
Húsavík og hafa bæjaryfirvöld
veitt undanþágu til að þessi
rómaða frelsishetja geti dvalið
óáreitt í bænum, eins og fram
kemur í síðustu fundargerð bæj-
arráðs.
Zorro er reyndar hundur, með
aðsetur að Sólbrekku 10. Og
annar slíkur, Snari, til beimilis
að Argötu 5, hefur sömuleiðis
öðlast búsetturétt f bænum.
Fyrir hönd þeirra bæjabúa
sem fyrir eru býður Víkurblaðið
þá félaga velkontna í samfélagið.
JS