Dagur - 10.01.2001, Page 20
20- MIÐVIKUDAGUR 10. JANÚAR 2001
^KU^^B^ÐIÐ
Sigtryggur Brynjarsson og Hafliði Jósteinsson meðhjálpari við kirkjuna i kirkjunni.
KLrkjunni gefín kirkja
Fyrir jól sögðum við frá hinni glæsilegu piparkökukirkju sem kokk- hótelsins fyrir jólin en fékk þá nýtt hlutverk, því Hótelið gaf Húsavík-
arnir á Hótel Húsavík, Sigtryggur Biymjarsson og Þórhallur Harðar- urkirkju piparkökukirkjuna og sú síðarnefnda var sett upp í þeirri fyr-
son, reistu í mynd Húsavíkurkirkju. Kirkjulíkanið prýddi jólahlaðborð irnefndu kirkjugestum til ánægju og yndisauka yfir hátíðarnar. JS
Gamli bærinn á Húsavík. Öll húsin sem þarna sjást hafa verið bæjarprýði bróðurpartinn afsíðustu öld. Og eru enn..
Vinstrigræiiir á ferð
Þingmenn vinstri grænna, þeir Stein-
grímur J. Sigfússon og Arni Steinar
Jóhannsson voru á ferð um kjördæmi
sitt í Norðurlandi eystra um síðustu
helgi. Þeir litu m.a. við á Hótel Húsa-
vík og þar mættu 30 manns til að ræða
við þingmennina ogskiptast á skoðun-
um. Voru í þeim hópi bæði skoðana-
bræður þeirra svo og pólitískir and-
stæðingar.
Byggðamálin og staða landsbyggðar-
innar var ekki síst mjög til umræðu frá
ýmsum sjónarhornum og var víða
komið við. M.a. samgöngumálin, mál-
efni Kísiliðjunnar og orkumálin, en
þessir málaflokkar brenna ekki síst á
Þingeyingum.
Að dómi fundarmanna var þessi
fundur gagnlegur, ekki síst fyrir þing-
mennina sem fengu þarna nasasjón af
þeim málum sem heimamenn telja sín
helstu hagsmunamál um þessar
mundir.
JS
Steingrimur og Árni Steinar skeggræða við Þingeyinga
Leikfélag
Húsavíkur
FRK.
NITOUCHE
í leikstjórn Sigurðar
Hallmarssonar
Sýningar:
Föstudag 12. jan. kl. 20.30
Laugardag 13. jan kl.
16.00ita ef
Símsvari allan
sólarhringinn
í síma 464-1129
Boðið á
100 ára
Nóbel
Húsavíkurbær á sér vinabæinn
Karlskoga í Sví|ijóð. Alfred
nokkur Nobel tengist þessum
stað og í lok maímánaðar verða
þar mikil hátíðahöld á 100 ára
afmæli nóbelsverðlaunanna.
Karlskoga befur sent bæjar-
yfirvöldum á Húsavík bréf og
boðið þeim að senda fulltrúa í
afmælið. Bæjarráð hefur
frestað afgreiðslu málsins og
stafar það fyrst og fremst af því
að menn vilja skoða kostnaðinn
við þessa heimsókn, en ekki af
því að bæjarráðsmenn hafi
neina sérstaka andúð á dýna-
miti, að sögn Reinhards Reyn-
issonar, bæjarstjóra.
JS;
Framúf
keyrsla
Borgar-
hólsskóla
Fræðslufulltrúi Húsavíkur hef-
ur lagt fram beiðni um auka-
fjárveitingu vegna kostnaðar
umfram fjárhagsáætlun s.I. árs
hjá grunnskólanum. Vegna
Borgarhólsskóla er óskað eftir
5,7 milljónum og vegna heils-
dagsskóla 550 þúsundum.
Að sögn bæjarstjóra stafare,
þessi kostnaður nánast alfarið
af skekkju í launaáætlun og
snýst um laun í báðum tilfell-
um en ekki er verið að fara
framá fjárveitingu vegna ann-
ars rekstrarkostnaðar. Bæjar-
ráð hefur óskað eftir frekari
sundurliðun á framsettum töl-
um, auk ítarlegri skýringa. „Við
viljum fyrst og fremst fá það
fram hvers vegna þessi aukni
launakostnaður hefði komið
til“, segir bæjarstjóri.
js
Bærinn
vill ekki
fflöðufell
Bæjarráð Húsavíkur hafnaði
erindi eigenda Hlöðufells um
kaup hæjarins á húsinu, en þar
hefur verið rekinn veitinga-
staður á undanförnum árum,
en húsið er ekki í notkun sem
stendur.
A sama fundi ræddi bæjarráð
við fulltrúa frá menningar-
hópnum Loka, sem er á hött-
unum eftir hentugu húsnæði
fyrir starfsemi sína. Að sögn
Reinhards Reynissonar, bæjar-
stjóra, var ekkert sérstaklega
horft til Hlöðufells í því sam-
bandi, en menn eru m.a. að
velta fyrir sér notkun á húsinu
Túni undir fjölþætta listastarf-
semi m.a. í tengslum við Fram-
haldsskólann.
js