Dagur - 13.01.2001, Qupperneq 3
LAUGARDAGUR 13. JANÚAR 2001 - IH
ISLENDINGAÞÆTTIR
Að lesa rúnir eflir spádómsgáfuna, enda var rúnaletur og merki mikið notuð tii að efla galdur og sjá inn í fram-
tíðina. Hér fyigja með galdrastafir sem talið var að fælu í sér mikinn mátt fyrir þá sem kunnu með að fara.
Gaidtrastafirnir eru teiknaðir upp í fyrstu útgáfum Þjóðsagna Jóns Árnasonar.
Innsigli Salomons konungs hafði eða hefur í sér mikinn verndarmátt og
kraft. Hér eru tvær útgáfur af innsiglinu, sem Úlafur Davíðsson hefur
varðveitt. Annað þeirra er kannski sótt í rit Jóns iærða, sem talinn er hafa
samið Krukkspá, sem getið var að nokkru í íslendingaþáttum á sínum
tíma. Hvort innsiglið er hið rétta og máttugra kemur i Ijós við notkun, ef
einhver kann formúlurnar að notkun þeirra.
Framhald afforsíðu
Nútíma spámenn nota ýmsar
aðferðir til þess að skyggnast inn
í hið ókomna og er talnaspeki,
stjörnuspeki og ýmsar gerðir
spila það helsta. Einnig er til fólk
sem hefur sérhæft sig í að lesa í
rúnir.
Hér á eftir verður farið örlítið
inn á þróun tarotspila og hvernig
best er að byrja að lesa úr þeim.
Ekki er vitað með vissu hvar
tarotspilin voru fundin upp en
þau eru ævaforn. Sumir fræði-
menn telja að rekja megi þau til
Sígauna, aðrir til Egypta. Vitað
er um kaup á spilum sem skráð
voru árið 1379 hjá hertogadæm-
inu í Brabant. Fyrstu spilin voru
að öllum líkindum máluð eða
teiknuð á skinn.
Afram héldu spilin að þróast
með misjöfnum útfærslum en þó
ótrúlega líkum meiningum.
Þrenn ítölsk spil frá fornöld eru
talin vera fyrirmynd þeirra tarot-
spila sem notuð eru í dag.
AÐ LESA í TAROTSPIL
Ef þú ert að byrjandi í tarotlestri
þarftu fyrst að komast í samband
við spilin þín. Best er að hafa
spilastokkinn á náttborðinu á
nóttunni eða bera þau á sér. Með
því draga spilin í sig persónulega
orku þína. Skoða þarf hvert spil
vel þar til þú hefur fengið tilfinn-
ingu fyrir myndunum á þeim og
þann boðskap sem hvert og eitt
spil hefur að geyma. Varastu að
snerta spilin ef þú ert í andlegu
ójafnvægi. Mundu að levfa ekki
öðru fólki að vera með spilin þín.
Það skemmir tenginguna.
Aður en þú byrjar að með-
höndla spilin ættirðu að fara úl
og horfa um stund á umhverfið
og skýjafar. Sittu í góðu sæti við
borðið sem þú ætlar að leggja
spilin á. Hafðu ekkert annað á
borðinu en spilin, leiðbeininga-
bókina, kertaljós og reykelsi. Ef
þú hefur ekki reykelsi er gott að
hafa blóm á borðinu eða á öðr-
um stað í herberginu. Aður en
þú byrjar skaltu draga andann
djúpt og lokaðu augunum á
meðan ró færist yfir hugann.
Tæmdu hugann eins og þú get-
ur. Hafðu rólegt í kringum þig.
Utvarp, umgangur og önnur
hljóð trufla einbeitinguna. Þegar
hugurinn er tæmdur getur þú
byrjað að stokka spilin.
Þú stokkar tarotspilin á annan
hátt en venjuleg spii. Þegar þau
eru stokkuð þarf hluti þeirra að
snúa öfugt, þó aldrei fleiri spil en
helmingur þeirra. Þetta er gert
vegna þess að merking spilanna
er önnur snúi þau öfugt.
Skiptu stokkunum í sem næst
tvo jafna hluta. Snúðu þynnri
stokknum í hálfhring og leggðu
hann ofan á hinn stokkinn.
Stokkaðu spilin vel, leggðu þau
frá þér í nokkrar sekúndur og
stokkaðu síðan tvisvar aftur.
Varastu að hleyjta að neikvæðum
hugsunum að á meðan þú hand-
fjatlar spilin.
Það tekur langan tíma að ná
tökum á því að lesa úr tarotspil-
um. Merking spilanna er sveigj-
anleg, en hvert og eitt spil merkir
nokkur tákn. Það þarf bæði inn-
sæi og þekkingu til að geta túlk-
að hin mörgu tákn þeirra. Sá
sem tekur að sér að lesa úr tarot-
spilum fyrir aðra þarf að fara afar
varlega í túlkun sinni. Það er
mikil ábyrgð að segja fyrir unt
óorðna hluti. Sjáir þú eitthvað í
spilunum sem talist getur vont
skaltu fara afar varlega í að túlka
það.
Tarotiesarar verða að varast að
láta sínar eigin skoðanir hafa
áhrif á hvernig lesið er úr tarot-
lögninni.
Þú verður að bera djúpa virð-
ingu fyrir spilunum, sjálfum þér
og þeim sem þú ert að lesa fyrir,
aðeins með því móti geturðu náð
árangri. Þegar þú byrjar að legg-
ja tarotspil, þarfu eftir fremsta
megni revna að þroska innsæi
þitt en hjá flestum tekur það
langan tíma.
Það þarf mikla æfingu til að
geta lesið úr spilunum og ef
spvrjandinn finnur að hann hef-
ur hitt góðan tarotlcsara getur
þú verið viss um að hann eða
hún á eftir að fara inn á þau mál
sem þyngst liggja á hjarta hverju
sinni. Þá er afar áríðandi að
hlusta vel og ekki er ólíklegt að
þú getir á eftir aðstoðað við að
finna lausn mála. Sá sem Ieitar
til þin verður að vera viss um
trúnað þinn. Þú mátt aldrei láta
það henda að bregðast trúnaði.
Hafðu það að markmiði að eng-
inn fari daprari af þínum fundi
en hann kom.
Hér á eftir er sýnd einfaldasta
lögn tarotspila sem þú getur
byrjað að æfa þig á fyrir þig eða
vini þína. Byrjaðu á að hugleiða
þau mál sem þú vilt fá upplýsing-
ar um.
Leggðu síðan þrjú spil á borð-
ið frá vinstri.
Dæmi:
1) fortíð, konungur í stöfum.
2) nútíð, átta í stöfum.
3) framtíð, átta í skildingum.
Konungur í stöfum táknar að
spyrjandinn hafi verið undir
ströngum aga af ákveðnum og
siðavöndum uppalanda. Líklega
hefur spyrjandinn ekki geta not-
ið hugmynda sinna eins og hann
hefði óskað sér. Tafir á þroska-
braut vegna ofverndar.
Atta í stöfum táknar að núna
sé tírni til þess að gera breyting-
ar í lífi sínu og snúa sér að nýjum
verkefnum. Þetta spil merkir
hreyfingu, ferðalög, miklar ann-
ir, góð tíðindi á ieiðinni. Einnig
getur spilið þýtt að í nánd sé ást-
arævintýri.
Átta í skildingum er hæfileika-
spil. Spyrjandinn mun í framtíð-
inni þroska með sér hæfileika
sína. Breyting á vinnustað eða
annað starf. Spilið felur í sér ver-
aldlegan ávinning, góð laun og
meiri menntun sem mun nýtast í
framtíðinni. Spyrjandinn þarf
samt að varast að beina athygli
sinni að málum sem iitlu varða.
Hægt er að kaupa tarotspil og
einfaldar leiðsögubækur í flest-
um bókabúðum, sem eru góðar
fyrir byrjendur.
Brúðkaup
Sigríótir Atitia
oglón Guðmundur
Gefin voru saman f heilagt
hjónaband í Dómkirkjunni í
Reykjavík þann 29. septem-
ber á sl. ári, afsr. Eðvarð
Ingólfssyni, þau Sigríður
Anna Harðardóttir og Jón
Guðmundur Ottóson. Heimili
þeirra er að Klapparstíg 7 /'
Reykjavik. [Ljósm:
Sigríður Bachman.J
---------rrFwrro. iaaa
Sólveig Kristbjörg
og Ólafur
Gefin voru saman i heilagt
hjónaband i Víðistaðakirkju í
Hafnarfirði þann 2. desem-
ber á sl. ári, afsr. Ægi Fr.
Sigurgeirssyni þau Sólveig
Kristbjörg Vagnsdóttir og
Úlafur Þórðarson. Þau eru til
heimilis að Breiðvangi 3 í
Hafnarfirði. [Ljósm.st. MYND
í Hafnarfirði.J
?41 .* .í .1 CA il J & &
Hólmfríóur
og Tryggvi
Gefin voru saman í heilagt
hjónaband i Dalvíkurkirkju
þann 19. ágúst á sl. ári, af
séra Magnús Gamalíel
Gunnarssyni, þau Hólmfríður
Skúladóttir og Tryggvi Krist-
jánsson. Heimili þeirra er að
Bögggvisbraut 19 á Dalvík.
[Ljósm: Norðurmynd,
Ásgrímur.)
Jóna
og Sveinn
Gefin voru saman i heilagt
hjónaband í Reykholtskirkju i
Borgarfirði þann 26. ágúst á
sl. ári, afséra Geir Waage,
þau Jóna £ Kristjánsdóttir
og Sveinn M. Andrésson.
Heimili þeirra er að
Árbergi 1 í Reykholti.
[Ljósm: Nýja mynda-
smiðjan.)
i.:v f I' "i'T- * » «•
Margrét
og Axel Hrafn
Gefin voru saman í heilagt
hjónaband í Frikirkjunni í
Hafnarfirði þann 19. ágúst á
sl. ári, afsér Einari Eyjólfs-
syni, þau Margrét Þorleifs-
dóttir og Axel Hrafn Helga-
son. Þau eru til heimilis að
Miðvangi 4 i Hafnarfirði.
[Ljósm.st. MYND
í HafnarfirðiJ
- . ' >—TP----------—
Kristnm
og Guðlaugur
Gefin voru saman í heilagt
hjónaband í Stóra-Lauga-
dalskirkju við Tálknafjörð, af
Svelni Valgeirssyni, þann 24.
júní á sl. ári, þau Kristrún
Aðalbjörg Guðjónsdóttir og
Guðlaugur Jónsson. Heimil
þelrra er að Túngötu 31 á
Tálknafirði. [Ljósm.st. MYND
i HafnarfirðiJ