Dagur - 13.01.2001, Síða 4
IV- LAUGARDAGUR 13. JANÚAR 2001
MINNINGARGREINAR
k-7
TPagMf-
Sturla Þór Friðríksson
Sturla Þór Friðriksson fæddist
í Reykjavík 10. maí 1983.
Hann andaðist á gjörgæslu-
deild Landspítalans í Fossvogi
að kveldi nýársdags, eftir nær
fimm mánaða hetjulega bar-
áttu við afleiðingar áverka er
hann hlaut í flugslysinu í
Skerjafirði 7. ágúst 2000. For-
eldrar hans eru Kristín Dýr-
fjörð, lektor í leikskólafræðum,
f. 28.6. 1961, og Friðrik Þór
Guðmundsson, blaðamaður, f.
22.9. 1956. Bróðir Sturlu Þórs
er Trausti Þór Friðriksson,
nemi, f. 13.11. 1979. Unnusta
Trausta Þórs er Karólína Jó-
hannesdóttir, nemi, f. 2.5.
1980. Móðuramma Sturlu
Þórs er Kristín A. Viggósdóttir,
sjúkraliði, f. 6.1. 1939. Hennar
foreldrar voru Viggó Loftsson,
kokkur, og Kristín Þorsteins-
dóttir (sem lifir barnabarna-
barn sitt). Móðurafi Sturlu
Þórs er Birgir Dýrljörð, raf-
virkjameistari, f. 26.10. 1935.
Hans foreldrar voru Kristján
Dýrljörð, rafvirki, og Þorfinna
Sigfúsdóttir, matráðskona.
Föðuramma Sturlu Þórs er
Guðrún Sigurveig Jónsdóttir,
húsmóðir, f. 12.7. 1934. Henn-
ar forelclrar voru Jón Guð-
mundsson, yfirtollvörður, og
Jóna Kristrún Jónsdóttir, hús-
móðir. Föðurafi Sturlu Þórs
var Guðmundur Trausti Frið-
riksson, rafmagnsverkfræðing-
ur, f. 11.6. 1920, d. 28.9.
1997. Hans foreldrar voru
Friðrik Þorvaldsson, fram-
kvæmdastjóri Akraborgarinnar,
og Helga Guðrún Olafsdóttir,
húsmóðir.
Sturla Þór lauk grunnskóla-
námi í Hagaskóla. Eftir hlé í
námi og störf hjá verktökufyrir-
tækinu Heimi og Þorgeiri og
hjá P. Samúelsson (Toyota)
skráði hann sig í Fjölbrauta-
skólann við Armúla, þar sem
hann hugðist hefja framhalds-
nám sl. haust. Þær fyrirætlanir
urðu hins vegar að engu 7.
ágúst sl., er hann slasaðist al-
varlega í flugslysinu í Skerja-
firði. Háði hann síðan kröftuga
baráttu fyrir Iífi sínu næstu
mánuði og vann þá margar erf-
iðar orrustur, með hjálp frá-
bærs heilbrigðisstarfsfólks, að-
standenda og traustra vina.
Stríðinu lauk hins vegar með
ósigri að kveldi íyrsta dags fyrs-
ta árs nýrrar aldar.
* * *
Elsku besti drengurinn minn.
Ösköp munaði litlu að þetta tæk-
ist hjá okkur.
Styrkur þinn og dugnaður kom
mér ekki á óvart; þú varst oft og
fyrir löngu búinn að auðsýna
þessa eiginleika. Bæði andlega og
líkamlega. Nær fimm mánaða
þrotlaus barátta við afleiðingar
flugslyssins er að baki; þar
vannstu ótal orrustur með aðdá-
anlegum árangri. Hvað eftir ann-
að hristir þú af þér erfiðleikana,
þannig að jafnvel bjartsýnasta
heilbrigðisstarfsfólkið gapti af
undrun. I liðlega tvo mánuði
héldum við að sigur hefði unnist,
en þá hófst lokahrina, sem
reyndist þér um megn. O hve
sárt ég sakna þín, Stubburinn
minn. Mikil reiðinnar býsn hvað
þetta er bitur niðurstaða.
Hefðbundin huggunarorð
duga skammt. Það léttir hins
vegar sorgina hversu mikill friður
og fegurð var yfir ásjónu þinni
eftir að baráttunni var lokið. Þú
virtist sáttur og þá verð ég að vera
það líka.
Eitt af því sem einkenndi þig
hvað mest í lifanda lífi var rík
réttlætiskennd. Augljóslega er
sanngirninni ekki alltaf fy'rir að
fara í jarðlífinu. Ég vona að rétt-
lætið sé þér að skapi hinum meg-
in. Fallegur líkami þinn fær að
hvíla milli Guðmundar afa þíns
og Jóns langafa, með viðeigandi
útsýni yfir Skerjafjörðinn og
Borgarspítalann. Eg bið að heilsa
öllurn ættingjum ogvinum sem á
undan þér fóru. Faðmaðu þau að
þér og sömuleiðis það unga fólk
sem flugslysið hörmulega svipti
lífi. Af ykkur er Jón Börkur nú
einn á h'fi og er vonin um góðan
bata hans okkur nú enn mikil-
vægari en fyrr.
Elsku besti Stulli minn.
Hversu órækur vitnisburður um
persónu þína felst í ástúðlegri og
einlægri framkomu og framnti-
stöðu þíns stóra vinahóps undan-
farna mánuði. Þau hafa veitt
okkur ómælanlegan styrk, sem
við erum djúpt snortin yfir og ei-
líflega þakklát fyrir. Einnig er
faglegur og persónulegur metn-
aður starfsfólks Borgarspítalans í
þína þágu okkur ógleymanlegur.
Eg er þess fullviss að þú ert
áfram í góðum höndum og byrj-
aður að setja mark þitt á lífið hin-
um megin. Þú segir ntér allt um
það þegar við hittumst aftur síð-
ar.
Pabbt
* * *
Eg þakka öllum þeim sem
komu nálægt björgun Sturlu, og
þá sérstaklega hjúkrunarfólkinu
og Hirti lækni, því allt þetta fólk
gerði allt sem það mögulega gat
til að hjálpa honunt. Síðustu
fintm mánuðir hafa verið enda-
Iaust erfiðir, en þeir hafa Iíka ver-
ið rosalega dýrmætir, því að þú,
Sturla minn, fékkst að vita það
hversu mikið allir í kringum þig
elska þig.
Þótt ég væri ekki búinn að
segja bless við þig get ég sætt mig
við það að þú vissir hversu mikið
ég elska þig og mun ætíð gera.
Sturla minn, það verður erfitt
að gleyma fyrstu nóttinni eftir
slysið, það er nokkuð sem ég
óska engum manni að þurfa að
upplifa.
Þú gerðir hvert kraftaverkið á
fætur öðru og varst alltaf að
koma læknunum á óvart með því
að yfirstíga hvert áfallið á fætur
öðru, en í Iokin, fimm mánuðum
seinna, varstu búinn með alla þá
orku sem til var og meira en það.
Svona lífsreynsla kennir manni
að meta það sem maður á. Ég
vildi óska þess að ég hefði lært
það með öðrum hætti, en svona
vildi guð hafa þetta og því er ekki
hægt að breyta. Ég á örugglega
aldrei eftir að sætta mig við
þetta, en maður verður að læra
að Iifa með þessu.
Sturla minn, við höfum deilt
saman herbergi meirihluta ævi
okkar. Ég þekkti þig út í gegn og
vissi nánast allt um þig og þú allt
um mig. Það er ekki fyrr en ný-
lega sem ég áttaði mig á því að þú
hefur alltaf verið besti vinur
minn.
Þessa dagana hafa minning-
arnar unt þig verið að streyma
um huga ntinn. Það er sérstak-
lega ein sem er hvað sterkust, en
það er hvernig þú brostir, þú átt-
ir svo fallegt bros; svona bros
sem smitaði út frá sér og fékk
aðra til að brosa með. Þegar þú
varst yngri var það enn sterkara
því þá voru framtennurnar pínu-
lítið skakkar. Þrátt fy'rir öll veik-
indin þín náðir þú að brosa á ný,
þú náðir að vera þú sjálfur og það
er sú minning sem ég mun mest
halda upp á þegar ég hugsa um
þig-
Fyrir þá sem þekkja ekki brosið
þitt er nóg að skoða myndina
sem fy'lgir greininni og sjá hvern-
ig þú brosir með öllu andlitinu.
Dauði þinn varð til þess að
minna mig á það sem ég á, því
stundum veit maður ekki hvað
maður á fyrr en rnaður hefur
misst það. Ég bið að heilsa afa og
langafa. Takk, Sturla minn, fyrir
allar þær minningar sem ég á um
þig-
Takkfyrir allt.
Þinn bróðir að eilífn,Trausti.
* * *
Með þessum orðum kveðjum
við þig í bili, elsku Sturla Þór.
Baráttunni þinni er lokið og þú
ert kominn til afa sem elskaði þig
mjög mikið. Mikið er sárt fyrir
okkur að missa þig á þessum
unga aldri en við viljum þakka
guði fyrir þann tíma sem við átt-
um saman. Þú varst yndislegur
ungur maður sem allir voru stolt-
ir af og það hcfði verið heiður að
kynnast þér betur.
Drottinn er minn hirðir,
ntig mun ekkert bresta.
A grænum grundum lætur hann
mig hvílast,
leiðir mig að vötnum,
þar sem ég má næðis njóta.
Hann hressir sál mína,
leiðir mig um rétta vegu fyrir
sakir nafns síns.
Jafnvel þótl égfari um dimman
dal,
óttast ég ekkert illt,
því að þú ert hjá mér
spmti þinn og stafur httgga mig.
(23. Davíðssálmur.)
Ég leitaði drottins og hann
svaraði ntér, frelsaði mig frá öllu
því er ég hræddist.
Jón (Ottni), Pétur (Diddó),
Rúna og amma Guðrún
(Búdda).
* * *
„O/í deyr í haga rauðust rós."
Elsku Sturla minn, minn
elskulegi langömmudrengur. Nú
er búið þitt langa hetjustríð og
okkar allra sem höfum beðið og
vonað. Allt var gert til að heimta
þig úr helju. Læknar og hjúkrun-
arlið, sem ég bið guð að blessa og
vera ætíð með í starfi, gerðu allt
sem hægt var.
Þú átt alla þá ást sem mamma
þín og pabbi veittu þér og allt þitt
fólk sem þjáðist með þér í þessari
baráttu. Ég bið að guð gefi okkur
öllum styrk.
Tíminn linar sársaukann cn
læknar hann ekki. Við gleymum
þér aldrei. Ég man alltaf þegar
mamma þín og pabbi komu til
okkar afa þíns í heimsókn með
þig nokkurra daga gamlan, svo
stolt og hamingjusöm. Þau létu
okkur setjast í stól og settu litla
prinsinn í fangið á okkur og
pabbi þinn tók mynd, þú í fang-
inu á mér og afi horfði brosandi
á þig. Og nú vona ég að elskan
hann afi Viggó og afi Guðmund-
ur hafi tekið ástúðlega á móti
þér.
Það er svo margt sem sækir á
hugann. Allar þær stundir sem
við höfum kornið saman, skírnin
þegar þið bræðurnir voruð skírð-
ir saman, allar mörgu stundirnar
hjá Lóló ömmu og Bigga afa, fyr-
ir utan öll jólaboðin. Seinast sem
ég sá þig frískan var á 87 ára af-
mælisdaginn minn sem haldið
var upp á í fallega garðinum
hennar Lólóar önimu. Þú og vin-
ur þinn Jón Börkur komuð seint
því að þið höfðuð verið að vinna.
Þú komst með þínu venjulega
hraði og kysstir ömmu gömlu
þfnum sérstaka smellkossi á
kinnina og óskaðir mér heilla.
Svo leið tfminn. Vegir guðs eru
órannsakanlegir. Við verðunt að
trúa því að okkur sé búinn betri
heimur.
Elsku Sturla minn, það eru
margir sem syrgja þig. Ég er búin
að kveðja þig þar sem þú lást svo
fallegur í rúminu, þú svafst vær-
um svefni, búinn að loka brúnu
augunum þínum og friður yfir
ásjónu þinni. Elsku ungi
langömmudrengurinn minn, far
þú í friði, góður guð þig blessi.
Hafðu ástar þökk fyrir allt og allt.
Elsku Kristín, Friðrik og
Trausti minn, Lóló amma og
Biggi afi, Guðrún amrna, ég bið
góðan guð að styrkja okkur öll.
Gott og blessað nýtt ár.
Þin langamma t Möðró,
Kristín.
H- H- H-
Elsku Sturla minn.
Þegar ég settist hér niður til að
skrifa minningar mínar um þig
vissi ég ekki á hverju ég ætti að
byrja, það er svo ótalmargt sem
'kemur mér í hug. Hvort eitthvað
eitt er öðru merkilegra get ég
ekki dæmt um því það sem áður
var sjálfgefið er í dag tengt minn-
ingunni unt þig og allt sem þér
viðkemur minnir á þig.
Ég man vel þegar jtú fæddist
og hversu fyrirferðarmikill þú
gast verið sem krakki. Þegar ég
var fenginn til að passa ykkur
bræðurna klikkaði það alclrei að
þú vaknaðir alltaf stuttu eftir að
foreldrar þínir fóru út og þurfti
ég annaðhvort að ganga með þig
um gólf eða leika við þig langt
fram eftir nóttu. Þetta eltist sem
betur fer fljótt af þér og seinna,
þegar þú varst orðinn sjö eða átta
ára gamall, fékkstu kraftadellu og
varst endalaust að rembast við að
ganga með mig um gólf.
Seinna eftir að ég kynntist
Nínu og eignaðist sjálfur börn
gátum við alltaf leitað til jtín eft-
ir hjálp við hvað sem var. Man ég
sérstaklega vel eftir því jtegar |iú
varst ellefu ára og við vorum ný-
búin að kaupa okkar fyrstu íbúð.
Þá hringdir þú f okkur og spurðir
hvort jiú mættir ekki koma og
hjálpa okkur við að ntála og ég
man hvað við vorum undrandi
yfir því hversu afkastamikill jiu
varst við að pússa gluggakarmana
og hversu vel þú gerðir það.
Reyndar varstu orðinn drullu-
skítugur í framan, á bolnum og
neitaðir að taka þér pásu fyrr en
þú varst búinn að klára alla
gluggana í íbúðinni.
Síðar þegar |)ú varst farinn að
passa fyrir okkur voru strákarnir
okkar farnir að biðja okkur að
fara eitthvað út svo að })ú og
Trausti gætuð komið að passa þá
og oftar en ekki kom annar ykkar
eða báðir. Svo þegar við komum
heim var það ósjaldan sem við
sátum á kjaftagangi við ykkur
fram á nótt. Strákarnir okkar litu
mjög upp til ykkar bræðranna
sem kom sér vel fyrir okkur þar
sem þið hafið verið góðar fyrir-
myndir og erum við þakklát fy'rir
það.
Síðastliðna daga höfum við
verið að ræða við strákana okkar
urn ])ig og þá hefur minningin
um J)ig oftast tengst jiessum
stundum þegar þú passaðir þá.
Allar stundirnar uppi í Skeifu,
þegar j)ið bjugguð til snjóhús,
útilegan í Hraunsfirðinum, flutn-
ingarnir niður á Mel þar sem J)ið
báruð með okkur alla búslóðina
og nú síðast undanfarnir mánuð-
ir J)ar sem þú barðist fyrir lífi
þínu og ætlaðir þér sigur.
Þó svo að þessir síðustu mán-
uðir hafi verið þér og okkur öll-
um erfiðir erura við innilega
þakklát fyrir að hafa fengið tæki-
færi til að sýna þér hversu vænt
okkur þykir um þig og fá að tala
við þig. Við söknum þín öll sárt
og mikið en eigum |)ó góðar
minningar um Ijúfan og kraft-
mikinn dreng sem aldrei munu
gleymast.
Megi algóður guð styrkja okkur
öll í þessari miklu sorg en þó sér-
staklega Kristínu, Lilló og
Trausta.
Hvíl í friði elsku vinur og
frændi.
Tjörvi Dýrfjörð, Nína Hröntt,
Sindri Björtt,
Daniel Leó og Óliver Goði.
* * *
Elsku Sturla, ég á erfitt með að
skrifa mín hinstu orð til þín - ég
veit að ])ú ert farinn og við mun-
um ekki sjá ])ig aftur á meðal
okkar, en þú munt alltaf, Sturla,
lifa í minningunni og þannig vera
áfram hjá okkur.
Ég á ekki eftir að smella kossi á
ungan dreng sem var að verða að
fullorðnum manni, ég á ekki eft-
ir að rökræða við þig framar en
ég mun minnast ])eirra stunda í
eldhúsinu í Miðstrætinu þegar
])ú varst að uppgötva kraft rök-
ræðna og hvernig ])ú oftast hafð-
ir betur. Þú varst með eindæm-
um ákveðinn drengur svo að jaðr-
aði við þrjósku. Þetta voru eigin-
leikar sem fljótt komu í ljós í fari
þínu og við þökkuðum öll lyrir þá
þegar þú barðist fyrir lífi þínu.
Þú barðist af mikilli hetjudáð og
þér tókst að koma til okkar aftur
og gafst okkur enn fleiri dýrmæt-
ar stundir með þér. Með sterkum
persónuleika þínum hafðir þú
áhrif á alla sem \arkilega kynnt-
ust þér og þrátt fyrir að þú sért
nú farinn á annan stað, annað
plan, aðra vfdd muntu áfram
hafa áhrif á líf okkar og styrkja
þau böncl sem þú þegar hafðir
bundið. Ég er stolt af þér og því
að hafa þekkt góðan dreng. Þá,
núna og alltaf.
Þín móðursystir, Gerður.