Dagur - 13.01.2001, Page 5
LAVGARDAGUR 13. J ANÚAR 200 1 -V
Dagur_
MINNINGARGREINAR
Fallegi frændi minn
fljiígðu ekki burt.
Vertu hér kyrr.
Megi stjörnurnar allar
tunglið, sólin og Guð
gæta þín.
(Sigríður Ólafsdótlir.)
Enn á ný stöndum við frammi
fyrir einni grundvallarspurningu
|iessa jarðlífs okkar: Hvers vegna
alla þessa þjáningu? Hvers vegna
þessa dökku lamandi skugga þeg-
ar sólin virðist skína sem skær-
ast? Trúarbrögðin og heimspek-
ingar allra tíma hafa hent okkur á
að lífið allt sé okkur sá skóli þar
sem okkur er ætlað að ráða þessa
gátu að einhverju leyti eða í það
minnsta vera því viðbúin þegar
lífi okkar hér er lokið að upp-
götva þá hinn æðsta sannleik,
hin æðstu rök. En til þess að öðl-
ast hið sanna ljós viskunnar er
okkur sagt að við verðum einnig
að reyna hina dekkstu skugga,
hina miklu þjáningu.
Víst er um það að nú þegar
Sturla Þór er okkur horfinn héð-
an úr þessu jarðlífi stöndum við
öll sem ráðþrota fávís börn með
allar þessar stóru spurningar á
vörunum. Hvers vegna? Hver er
tilgangurinn? 1 sjónhendingu sjá-
um við fallegan og sviphreinan
dreng á leið til fullþroska manns
breiða út faðminn mót sumrinu
nú í maí síðastliðnum þar sem
hann kemur hrosandi og brun-
andi - öruggur og talsvert ögran-
di - niður Túngötuna á hjóla-
brettinu sínu, stæltan og fjaður-
magnaðan. Hann kallar á frænku
sína sem þetta skrifar, aftur og
aftur, sem skilur ekkert hver kall-
ar nafn hennar og hættir ekki
fyrr en hún heyrir. Þá stansar
hann í hópi vina sinna og gengur
til hennar, kyssir hana og segir:
„Gleðilegt surnar frænka." Og
frænkan var talsvert upp með sér
að svo ungum og glæsilegum
manni skyldi ekki finnast þessi
„gamla“ frænka vera ímynd hans
til skammar nieðal vinanna. En
þannig var hann Sturla Þór,
hreinskiptinn og heilsteyptur
persónuleiki, Ijúfur drengur.
Seinna fékk hin sama frænka
miklu merkilegri koss frá Sturlu
þegar hann var nývaknaður eftir
margra vikna svefn eftir slysið
hörmulega. Hann horfði vökul-
um augum á umhverfið og nær-
stadda og þegar við kvöddum
sagði faðir hans: „Kysstu nú Ola
og Gróu frænku." Við beygðum
okkur niður og fengum þá bestu
kossa á kinn sem við höfum
nokkru sinni fengið og fyllti okk-
ur bjartsýni og aðdáun yfir hinu
ótrúlega þreki og styrk sem hann
sýndi jafn fárveikur og slasaður
og hann var þá. Síðan leið tíminn
og Sturla hélt áfram að styrkjast
jafnframt því sem hann gekk í
gegnum ótrúlegar raunir og
hindranir sem okkur þótti nær
ofurmannlegar að takast á við.
Þeir sigrar sem Sturla vann þá
sýndu best þvílíkan ógnarvilja og
styrk þessi drengur hafði til að
bera.
Að lokum var eins og sagt væri
„ekki rneir, ekki meir“. Líkami
hans, sem hafði virst gerður úr
efni sem ekki væri af þessum
heimi, gafst upp að lokum og
baðst hvíldar, líkt og Sturla Þór
sjálfur sem er nú Iaus undan allri
þjáningu og ótta. Eftir sitja for-
eldrar hans og bróðir sem fylgdu
honum á aðdáunarverðan hátt
dag og nótt í fimm mánaða bar-
áttu hans, auðug af mikilli
revnslu og djúpri. Hann vaknaði
aftur til þeirra og lífsins um
stund sem var þeim öllum dýr-
mæt og var nýtt til hins ýtrasta.
Þau glöddust yfir hverju hans
framfaraspori, öllum hans sigr-
um og þótlust um skeið sjá sólina
lýsa upp myrkrið sem fór í hönd.
Loks hrönnuðust skýin þó upp og
ljósið þeirra slokknaði.
En þótt myrkrið grúfi yfir okk-
ur nú eigum við þó minningu um
mikla og sterka birtu sem stafaði
frá Sturlu Þór. Við trúum og biðj-
um að sú birta muni smám sam-
an veita okkur skilning og svör,
og víst er að hún mun ylja okkur
um ókomna tíð og gera okkur að
betri manneskjum.
Við biðjum góðan guð og allar
góðar vættir að styrkja ykkur,
elsku Lilló, Stína og Trausti, og
alla ykkar stóru og góðu fjöl-
skvldu og vini. Megi sú nýárssól
sem Sturla Þór hvarf til lina ykk-
ar miklu sorg og lýsa skammdeg-
isveginn framundan.
Gróa og Ólafur.
* * *
Sturla Þór er dáinn. Litli fræn-
di minn sem var orðinn svo stór,
myndarlegur og sterkur. Það er
svo sárt að hann skyldi ekki fá að
Iifa lengur, hann sem átti allt líf-
ið framundan. I fimm mánuði
barðist hann fyrir
lífi sínu, en eftir
margar aðgerðir
og alla læknis-
fræðilega kunn-
áttu og frábæra
umönnun gafst
líkarni hans upp.
Foreldrar hans og
bróðir eru búin
að vera hjá hon-
um svo að segja
daga og nætur
allan tímann. Það
er húið að vera
mikið álag á þau
öll, en þau hafa
verið svo sterk í
gegnum þessa
raun að það er al-
veg ótrúlegt.
Alltaf héldum við
í vonina fram á
síðasta dag um að
hann fengi að
lifa. Allar þær heimsóknir, hugs-
anir og bænir sem hann fékk
sýndu hve vinmargur hann var
orðinn á sinni stuttu ævi. Við
biðjum guð að vera hjá og styrkja
elsku Lilló, Kristínu og Trausta
og aðra aðstandendur.
Elsa og Ósliar.
* * *
Enn einn er Iátinn eftir hörmu-
lega flugslysið sem varð í byrjun
ágúst sl. í Skerjafirði. Afleiðingar
þess snerta fjölmarga svo djúpt.
Það er óbærilega sárt og erfitt að
þurfa að sætta sig við þá stað-
reynd að Sturla Þór er ekki leng-
ur hjá okkur. Undanfarna fímm
mánuði hefur hugur okkar ætt-
ingja hans verið hjá honum og
íjölskvldu hans alla daga. Allan
þennan tíma höfum við l'undið
mikla samkennd og samúð með
Sturlu, Jóni Berki, sem einn lifir
af slysið, og aðstandendum þeir-
ra, frá vinum, vinnuíelögum og
ljölmörgum öðrum.
Sturla sýndi aðdáunarverðan
baráttuvilja og ótrúlega þraut-
seigju í þessari löngu baráttu fyr-
ir lífi sínu. Það var ekki að
ástæðulausu sem starfsfólk gjör-
gæslunnar, sem horfir upp á slíka
baráttu alla daga, kallaði hann
undradrenginn, vegna þess hve
oft hann kom þeim á óvart með
sigrum sínum. Hann átti aðdáun
okkar allra. Sturla Þór átti ekki
langt að sækja þennan baráttu-
vilja, því oftast voru það foreldrar
hans og bróðir sem gáfu af sínum
ótrúlega styrk þeim sem komu í
heimsókn á spítalann. Það var
aðdáunai'vert að sjá samheldni
og trvggð hinna fjölmörgu ungu
vina hans sem hcimsóttu hann á
spítalann allan þennan tíma. Oll
vonuðumst við eftir því að krafta-
verkin héldu áfram og að hann
myndi sigra að lokum.
Elsku Lilló, Kristín, Trausti og
aðrir aðstandendur, váð v'Ottum
ykkur okkar dýpstu samúð.
Blessuð sé minnig Sturlu Þórs.
Helga, Rósa, Friðrih (Fijfó)
og Ósltar (Deddi)
ogfjölskyldur.
* * *
Kæri Sturla minn. Eg veit að
nú líður þér betur. Hvar sem þú
ert þá veit ég að nú getur þú
hlaupið um og hlegið án þess að
finna til, án sársauka. En þrátt
fyrir það er sárt. Sárt að vita að
ég á aldrei aftur eftir að sjá þig,
aldrei aftur eftir að sitja með þér
við jólaborðiö hjá Lóló ömmu og
Bigga afa á jóladag og borða jóla-
mat. Alltaf þegar ég lít til baka á
allar minningarnar get ég ekki
annað en grátið, því þá var svo
gaman og þú svo ánægður með
lífið. Ein minning stendur alltaf
upp úr og alltaf þegar ég hugsa
um hana er ég með bros á vör.
Þetta var þegar ég átti heima í
Kjarrhólmanum. Eg, þú og Karó
vinkona mín vorum að horfa á
sjónvarpið. Þegar við litum út um
gluggann sáum við okkur til mik-
illar gleði að byrjað var að snjóa.
Við stukkum í skó og hlupum út
á peysunum. Allt var hvítt úti og
engin spor voru í snjónum. Það
var svo fallegt. Við fórum í snjó-
kast og það var þvílíkt stuð hjá
okkur. Svo lögöumst við í snjóinn
og lágum þar heillengi og bjugg-
um til engla. Aldrei datt mér þá í
hug að þú ættir eftir að verða
engill svona fíjótt. Allar minning-
arnar eru mér svo dýrmætar. Eg
er svo ánægð að eiga þær, ánægð
fyrir að hafa þekkt þig. En minn
kæri Sturla, þú verður ávallt til í
hjarta mínu.
Elsku Kristin, Lilló og Trausti,
guð blessi ykkur.
Þei, þei og ró.
Þögn breiðist yfir allt.
Hnigin er sól í sjó.
Sof þú í blíðri ró.
Við höfum vakað nóg.
Værðar þii njóta skalt.
Þei, þei og ró.
Þögn breiðist yfir allt.
Þín frænka, Bergdt's.
***
Við frétt af hræðilegu slvsi eins
og flugslysinu í Skerjafirði grípur
mann hrollur setn varir þó stutt.
Aftur á móti situr sá hrollur leng-
ur í manni þegar einn af hestu
vinum manns sat í vélinni.
Það var erfitt að vera ekki ná-
lægur þegar slysið átti sér stað.
Eg var staddur á Akureyri og
heyrði fréttir af flugslysi í sjón-
varpinu. Stuttu seinna fæ ég
upphringingu og þær fregnir að
Stulli og Jón Börkur hafi verið í
flugvélinni. Nánari fregnir fékk
ég ekki um sinn nema það litla
sem krakkarnir, vinir okkar, gátu
sagt mér gegnum símann. Ekkert
annað komst fyrir í höfðinu á
mér fyrr en ég var kominn í bæ-
inn og sat við rúmið hjá Stulla.
Ég efaðist aldrei um að hann
berðist af alefli og vissi að hann
gæfist ekki upp fyrr en í fulla
hnefana. Enda barðist Stulli eins
og hetja en undir lokin var við of-
urefli að etja.
Þegar ég hugsa til baka eru
þær ófáar minningarnar sem ég á
um Stulla og ýmislegt brall okkar
strákanna saman. Eitt er víst að
það var aldrei nein lognmolla
kringum Stulla. Hann hafði ótrú-
lega líísgleði og lífsorku sem við
félagarnir nutum góðs af með
honum. Hann var alltaf til í allt
og ekkert óx honum í augum. Ég
minnist þess
þegar við
strákarnir fór-
um í skíðaferð
og Stulli með.
Við vorum allir
reyndir snjó-
brettamenn
nema Stulli
sem var að fara
í fyrsta skipti.
Hann átti eng-
ar snjóbuxur
svo hann
skellti sér bara
í joggingbuxur
og fór í gall-
buxurnar sínar
utan yfír. Við
fórum í fjallið
og eins og
skiljanlegt er
voru gallabux-
urnar hans
orðnar einn
snjóklumpur stuttu síðar. Stulli
lét það ekki aftra sér og með
þrjóskunni hélt hann í við okkur
allan tímann, sem verður að telj-
ast mikið afrek. Já, Stulli stóð
alltaf fast á sínu og fylgdi skoð-
unum sínum út í ystu æsar.
Hann lét engan troða á sér né
okkur vinum sínum. Við gátum
allir treyst á hans hjálp í hverri
raun. Það mætti segja að hann
hafi verið stóri bróðirinn í hópn-
um. Því er missir okkar mik-
ilI.Þegar ég stóð yfir Stulla líf-
vana í sjúkrarúminu á nýársdag
þutu allar samverustundir okkar
gegnum kollinn á mér og ég
hugsaði líka um allt sem við
hefðum gert í framtíðinni. Að
missa vin, sautján ára gamlan,
með allt lífið framundan er þraut
sem ég vona að fáir þurfi að
ganga í gegn um. Eg veit að hann
myndi segja okkur að harka af
okkur og Iifa Iífinu áfram og það
er víst það eina sem vit er í.
Stulli gleymist seint. Minning-
in um hann mun lifa áfram hjá
öllum þeim sem hann þekktu.
Þessi fáu en góðu ár sem við átt-
um með honum verða okkur
ávallt dýrmæt og kær. Fyrir mína
hönd og Mána vinar okkar þakka
ég honum fyrir þau og vináttuna
sem hann gaf okkur.
Árni Egill Örnólfsson.
* * *
Elsku vinur. Eg á erfitt með að
trúa því að þú sért dáinn. Það er
allt svo tómlegt án þín. Eg sakna
þín mjög mikið. Eg elskaði þig og
var óskaplega stoltur af því að
vera vinur þinn.
Eg er alltaf að hugsa um þegar
við vorum litlir að leika okkur
saman í Miðstrætinu. Eg mun
geyma minningarnar um allt sem
við gerðum saman á góðum stað í
hjarta mínu.Þú varst svo lífsglað-
ur strákur og það var gott að vera
nálægt þér. Uppátækin þín voru
skemmtileg og það var gaman að
vera með þér. Eg hef þekkt þig í
meira en ellefu ár og þú varst stór
hluti af lífi mínu. Þú varst góður
vinur.
Eg vildi óska þess að þú værir
hér enn og að þú hefðir ekki lent
í þessu slysi. Eg skil ekki af hver-
ju þú og Jón Börkur þurftuð að
lenda í þessu.
Eg veit að þú ert að gera eitt-
hvað gott þar seni þú ert núna og
ég veit að ég get hugsað til þín og
fengið styrk frá þér þegar mér líð-
ur illa. Eg ætla að vera duglegur
að passa Jón Börk okkar hérna
niðri og ég veit að þú passar hann
ofan úr himninum.
Elsku Kristín, Lilló, Trausti,
amma og afi Sturlu og allir sem
eiga um sárt að binda. Ég sendi
ykkur mínar innilegustu samúð-
arkveðjur og bið guð að gefa ykk-
ur styrk.
Ástarkveðjur.
Þinn vinur, Hiltttar Pétur.
* * *
Elsku hjartans Sturla okkar.
Það er svo sárt að hugsa til þess
að eiga ekki eftir að bitta þig aft-
ur í þessu lífi, finna fyrir þinni
sterku nærveru, lífskrafti og þrót-
ti. Síðustu fimm mánuðir hafa í
senn verið ótrúlega erfiðir og
yndislegir fyrir þig og alla þína.
Líkamleg meiðsl þín voru mikil
en lífsviljinn og krafturinn höfðu
betur um stund. Við gátum sagt
þér hve við elskuðum þig rnikið
og þú sagðir okkur frá væntum-
þykju þinni. Takk fyrir, vinur.
Elsku Sturla okkar. Við verðum
alltaf þakklát fyrir hve heppinn
sonur okkar Hilrnar Pétur var að
eignast þig, Baldur og Jón Börk
fyrir vini. Frá unga aldri voruð
þið fjórir bestu vinir og það hefur
verið s\'o ljúft að fylgjast með vkk-
ur standa saman í gegnum árin.
Þú varst stór hluti af lífi okkar í
yfir tíu ár og munum við alltaf
þakka fyrir þann tíma. Það var
heiður að fá tækifæri til að taka
þátt í lífi þínu. Takk fyrir, vinur.
Elsku Sturla okkar. Þú varst
sérstaklega duglegur, Ijúfur, góð-
ur, skemmtilegur og hlýr drengur
og snertir alla sem kvnntust þér.
Við þökkum fyrir tímann sem við
fengum með þér; tímann sem átti
að vera svo miklu lengri. Takk fyr-
ir, vinur.
Elsku Slurla okkar. Við vitum
að við þurfum ekki að biðja þig
um að passa Jón Börk okkar. Við
vitum að þú munt vaka yfir hon-
um, styrkja hann og vernda eins
og þú gerðir fyrir Hilmar Pétur
okkar. Þú varst og verður alltaf
sannur vinur. Við elskum þig.
Takk fyrir, elsku vinur, og guð
varðveiti þig.
[Hann] mun ekki eldast eins og
við,
sem látin eru eldast.
Aldur mun ekki hrjá [hann]
og árin munu ekki þjá [hann].
Við sólsetur og að morgni dags
munutn við minnast [hans].
(Þýð. Hilmar Foss.)
Elsku Kristín og Lilló, Trausti
og Karó, Lóló og Birgir og aðrir
aðstandendur. Guð styrki ykkur í
sorginni. Minningin um góðan
dreng mun ætíð lifa í hjarta okk-
ar. Astarkveðjur,
Rósa og Hilmar.
Frá útför Sturlu Þórs Friðrikssortar t vikurmi ert hartrt iést eftir langa bar-
áttu við meiðsli sem hann hlaut í flugslysi í Skerjafirði i ágúst. Fjölmargir
vinir Sturlu vottuðu honum virðingu stna og sjást nokkrir þeirra bera
kransa undan kistunni. Einnig lék hljómsveit/n Sigur Rós þrjú lög.