Dagur - 13.01.2001, Qupperneq 6
VI- LAUGARDAGUR 13. JANÚAR 2001
MINNINGARGREINAR
L.
Sturla Þór Friðnksson
Elsku Stulli. Ég sakna þín alveg
rosalega mikið. Þú varst svo stór
þáttur í lífi mínu. Eg veit að þú
ert hjá okkur, bara svífandi í loft-
inu og passar okkur.
Þú varst algjör engill, svo góð-
ur og skemmtilegur strákur og ég
þakka guði fyrir að hafa fengið að
kynnast þér. Ég hefði ekki viljað
missa af því. Þú gerðir líf mitt
miklu betra og þú varst alltaf svo
góður við mig.
Eg sendi þér ljóð sem mér
finnst svo fallegt og það lýsir þér
svo vel.
Stjarnan [Sturla], sliært hún sktn
og sendir geisla hjarta,
þannig var ætið ævi þín,
þú verndar okkar hjarta.
(Haraldur Agústsson/
Tara Pétursdóttir.)
Þú lifir alltaf í hjarta mínu og
minningu.
Kveðjur frá hjartanu.
Sólveig Heiða.
**#
Sturla...
Það er sorglegt að sitja hérna
og skrifa þessa grein sem við
héldum og vonuðum að hægt
væri að fresta um tugi ára. Allt
gekk svo vel í byrjun og útlit var
fyrir að guð hefði gefið okkur
eina stærstu gjöf sem hægt er að
gefa. En nú er þessu erfiða stríði
lokið og þjónustu þinnar greini-
lega óskað annarstaðar. Nú vit-
um við að einhver fjarlægur stað-
ur fær að njóta þess ijóss og hlýju
sem við nutum um stund sem í
alla staði hefði mátt vera lengri.
Þótt það sé stutt sfðan við
kynntumst fengum við engu að
sfður að kynnast þér til hlítar og
sjá þessa yndislegu persónu sem
þú varst. Lífsgleðin og orkan sem
geislaði af þér fyllti líf okkar gleði
og hamingju. Þegar við komum
nýir inn í vinahópinn, sem við
eigum enn þann dag í dag, sást
þú til þess að okkur væri tekið vel
og það er gjöf sem við verðum
alltaf þakklátir fyrir.
Ætli þú hafir ekki verið Iéleg-
astur í því að eignast ó\dni og
hvar sem við vorum virtist öllum
líka mjög vel við þig og það skilja
allir sem hafa fengið að njóta
nærveru þinnar. Svo ótal margar
góðar minningar sem við eigum
saman gleymast aldrei þar sem
alltaf var hægt að treysta á þig
með góða skapið. Uppátæki þín
og húmor voru sem gleði beint í
æð og munu verða sögur sem
ávallt verður skemmtilegt að
hlusta á. Feimni virtist aldrei há
þér að neinu leyti og það hefur
líklega gert það að verkum að
flestir kynntust þér mjög náið
mjög fljótt. Öll þessi skemmti-
legu fíflalæti gerðu vináttu okkar
sérstaka og hvernig okkur tókst
að breyta t.d. venjulegum þriðju-
dagsrigningarkvöldum í ódauð-
Iegar minningar.
Nú þegar þú ert farinn er stór
hluti af lífi okkar einnig farinn,
það er svo dauflegt að gera án
þín hluti sem okkur þótti svo
skemmtilegir. Það vantar eitt-
hvað stórt í lffið. Eftir sitjum við
og finnum ekkert sem gæti rétt-
lætt það sem gerst hefur. Þinnar
sérstöðu er greinilega þörf annar-
staðar og sjálfkrafa röðumst við
upp í Ianga biðröð í að fá að hitta
þig aftur á endanum því dauðinn
er jú víst óumflýjanlegur.
Okkur óraði ekki fyrir því hver-
su mikils virði vinir okkar eru og
það er Ieiðinlegt að svona atburð
hafi þurft til að augu okkar opn-
uðust fyrir því. Þú kenndir okkur
margt en við erum enn ungir og
eigum enn margt eftir ólært.
Þú verður alltaf besti vinur
okkar.
„Það hesta sem guð hefur skap-
að er nýr dagur. “
(Sigur Rós.)
Þórir og Logi.
#*#
Sturla, manstu þegar við vor-
um li'til ég, þú, Bergdís ogTrausti
og gistum oft heima hjá ömmu
og afa í Skeifunni öll saman,
amma hafði mikiö lý'rir því að
búa um okkur í einu af herbergj-
unum uppi á lofti. Oft gistum við
heima hjá ykkur og þið hjá okkur
og alltaf skcmmtum við okkur
jafnvel.
Ég veit að þú ert kominn á
betri stað núna og þér líður bet-
ur. Þetta var búin að vera erfið
barátta fýrir þig sem endaði á
ósanngjarnan hátt, því þú varst
farinn að ná góðum bata. Nú
ertu kominn til Guðmundar afa
þíns og Viggós afa og ég veit að
þeir munu taka vel á móti þér og
passa þig. IVlegi guð varðveita
þíg-
Þin frænka, Hrafnhildur.
* * *
Stórt skarð hefur verið höggvið
í vinahópinn. Á fyrsta degi nýrrar
aldar dó vinur okkar StuIIi af
völdum áverka, sem hann hlaut í
flugslysi í sumar.
Fyrir okkur félagana gátum við
ekki hugsað okkur verri byrjun á
nýrri öld. Af hverju, af hverju
hugsuðum við. Hvernig gat guð
gert þetta eftir allan þennan erf-
iða tíma sem hann hafði gengið í
gegnum eftir slysið? Eftir að hafa
séð hann hressan og kátan trúði
enginn okkar að hann mundi
fara frá okkur. Þrátt fyrir hetju-
lega baráttu vannst þessi Ieikur
ekki. Það er erfitt fyrir okkur
sautján ára félagana að sætta
okkur við fráfall hans. Eftir að
hafa átt góðar stundir með hon-
um í gegnum árin er erfitt að
trúa því að þær verði ekki fleiri.
Það var aðdáunarvert að fylgjast
með baráttu hans við að ná bata
og þeim mikla árangri sem við
sáum jafnan þegar við heimsótt-
um hann. Hann stóð sig eins og
hetja í veikindunum og var aldrei
á því að gefast upp. Stulli var ein-
stakur. Hann var gæddur sérstök-
um persónutöfrum, hafði fjörugt
og frumlegt ímyndunarafl og
framkvæmdi allt sem honum datt
í hug, sama hversu flippað það
var. Hann var alltaf í góðu skapi
og kom okkur ætíð til að hlæja og
þess eigum við eftir að sakna
mest. Enginn okkar átti jafn auð-
velt með að eignast vini og hann
og erum við vissir um að hann
verður áreiðanlega hrókur alls
fagnaðar á þeim stað sem hann
er nú. Einhvern tímann eigum
við eftir að hittast á ný og þá
verður þráðurinn tekinn upp að
nýju.Við sendum Kristínu, Frið-
riki og Trausta okkar innilegustu
samúðarkveðjur og biðjum guð
að gefa þeim styrk til takast á við
lífið án Stulla.
Takk fyrir allar góðu stundirn-
ar Stulli.
Þinir vinir, Atli, Guðmundur
Öm og Steinar Bjarki.
Nií samvist þinni ég sviptur er,
- ég sé þig aldrei meirl
Ástvinir, sem ann ég hér,
svo allirfara þeir.
Égfelli tár, en hví ég græt?
því heimskingi ég erl
Þin minning hún er sæl og sæt,
og sömu leið égfer.
Já, sömu leið! En hvert fer þú?
þig hylja sé ég gröf;
Þar mun ég eitt sinn eiga hii
um ævi svifin höf.
En er þin sála sigri kætt
og sæla húin þér?
Eg veit það ekki! - sofðu sætt!
- en sömu leið égfer.
(Kristján Jónsson.)
f ORÐ PAGSIBIS J 462 184Q
íslendingaþættir birtast
í Degi alla laugardaga
Skilafrestur vegna minningargreina er til þriðjudagskvölds.
Reynt er að birta allar greinar eins fljótt og verða má en
ákveðnum birtingardögum er ekki lofað.
Æskilegt er að minningargreinum sé skilað á tölvutæku formi.
x___________________thiémr'_
ISLENDINGAÞÆTTIR