Dagur - 13.01.2001, Page 7
LAUGARDAGUR 13. IANIJAR 2001 - VII
Oxgur
MINNINGARGREINAR
Jónina Brynjólfsdóttír
Jónína Brynjólfsdóttir hús-
freyja að Asvallagötu 40 í
Reykjavík áður í Traðargerði
við Húsavík fæddist 12.9. 1906
í Austurkoti á Vatnsleysu-
strönd. Hún lést í Landakots-
spítala 31.desember s.l.
Foreldrar hennar voru
Brynjólfur Sigurðsson f. að As-
múla, Holtum 10.11.1871,
bóndi í Austurkoti á Vatns-
leysuströnd, síðar verkamaður
í Reykjavík, d. 3.9. 1931 og
Geirþrúður Geirsdóttir hús-
freyja f. að Bjarnarstöðum,
Grímsnesi 13.7. 1872, d. 15.2.
1961. Jónína var yngst þriggja
systkina sem upp komust. Hin
voru Sigurður Valdimar f. 21.6.
1897 d. 30.ágúst 1984 og
Kristín f. 23.9. 1901. d. 23.1
1978
Jónína giftist Stefáni Hall-
dórssyni sjómanni 16.5. 1929
f.25.9. 1899 á Hallbjarnar-
stöðum á Tjörnesi, d. 9.11.
1940.
Jónína bjó í Traðargerði á
Húsavík frá 1929 til 1958 og
frá þeim tíma í Reykjavík.
Jónína og Stefán eignuðust
fjögur börn: 1) Bryndís hús-
freyja f. 4.7. 1930 giftist Jóni
Guðmundi Bernharðssyni f.
21.9. 1930 d. 20.8. 1998.
Börn þeirra: Jóna Björg f. 11.3
1952, Stefán Ingi f.30.10.
1954, Bernharð Smári f.3.11.
1960, Bryndís Þóra f. 13.8.
1962 og Guðrún Katrín f. 26.6.
1970. 2) Geir lögreglumaður f.
12.3. 1932 d. 7.6. 1997. Barn
með Erlu Hannesdóttur f. 4.4.
1931 Jóhanna f. 9.10.1951.
Kvæntist Ólafíu Sigurðardóttir
f. 9.8. 1932. Böm þeirra: Sig-
urður f. 16.8. 1953, Stefán
Rafn f. 16.2. 1956, ívar f.
16.2.1958 og Geirþrúður
f. 1.11. 1961. 3) Hörður stýri-
maður f. 9.3. 1936, d.
26.1.1984. 4) Stefán Örn
vélaverkfræðingur f. 15.2.
1938 kvæntur Gunnþórunni R.
Þórhallsdóttur f. 21.5 1941.
Börn þeirra: Stefán Geir f.
15.10. 1960, Halla f. 1.12.
1965, Finnur f. 14.10. 1969, og
Rebekka f.9.5. 1971.
Útför Jónínu fór fram frá
Dómkirkjunni miðvikudaginn
10. janúar s.I. kl.13.30.
Mig langar til að minnast
ömmu minnar í fáeinum orðum.
Amma Jóna var viskubrunnurinn
í fjölskyldunni. Það var svo gam-
an að hlusta á hana fara með ljóð
og málshætti og alltaf mundi hún
þá jafnvel. Þegar ég var lítil og
átti að gera málsháttaverkefni í
skólanum hringdi ég oft í ömmu
og hlustaði á hana fara með fjöl-
marga málshætti. Eg skrifaði þá
upp eftir henni og fékk alltaf tíu
fyrir verkefnin. Amma mundi
nefnilega svo marga málshætti
sem öðrum voru gleymdir. Eg
man hve oft amma talaði um La
France-rósina langþráðu og þeg-
ar ég vann í garðyrkjunni gerði ég
ófáar tilraunir til að hafa upp á
henni, en allt kom fyrir ekki. Eg
mun halda leitinni áfram og þeg-
ar hún finnst ætla ég færa ömmu
hana.
Amma kom oft í mat til okkar á
sunnudögum en það voru
ákveðnir dagar þar sem samveru-
stundir okkar voru orðnar að
ltefð sem erfitt var að rjúfa. Síð-
asti jóladagur var því fremur
óvenjulegur hjá fjölskyldu minni
því amma var ekki hjá okkur. Við
höfðum snætt saman á þessum
degi sfðustu þrettán ár og að
málsverði loknum skiptumst við
oft á ýmsum ljóðabrotum. Heim-
sókn til ömmu Jónu hefur einnig
alltaf fylgt sautjánda júní. Allt frá
því að ég man eftir mér fórum við
til ömmu í mjólk og kökur. Þegar
við systkinin vorum yngri óðum
við inn til ömmu á þessum degi
með þrjár uppblásnar gasblöðrur
sem svifu um íbúðina á meðan
við hámuðum í okkur dýrindis
veitingar. Þegar við urðum eldri
urðu heimsóknirnar fágaðri þar
sem við sátum saman og spjöll-
uðum í rólegheitunum.
Fyrir rúmum tveimur mánuð-
um áttum við góða stund saman.
Eg kom til hennar á spítalann.
Fyrst spjölluðum við um daginn
og veginn og þegar við höfðum
rætt hann til hlýtar þögnuðum
við báðar. Eg hvíslaði að henni að
mér finndist stundum svo gott að
sitja í þögninni og hún samsinnti
því. Við sátum því saman og nut-
um nærveru hvor annarar. Eg
mun ávallt geyma þessa minn-
ingu í hjarta mínu.
Þó svo að líkami minn hafi
brugðist við andláti ömmu með
sorginni, virðist sálin ekki hafa
meðtekið raunveruleikann. Það
er vegna þess að amma er ekki al-
farin og hún mun ávallt búa í
hjörtum og minningum þeirra er
kynntust henni. Amma hafði rætt
þessi tímamót við mig í mörg ár
og ég held við vitum báðar að
dauðinn er ekki endalok. Hann
er hluti af ferli lífsins og um leið
byrjun á öðru tilverustigi.
Sá sem eftir lifir
de)'r þeim sem deyr
en hinn dáni lifir
í hjarta og minni
manna er hans sakna.
Þeir eru himnarnir
honum }fir.
(-Hannes Pétursson)
Elsku amma mín það var alltaf
svo gott að faðma þig og knúsa.
Eg mun ávallt vera hjartakrúsin
þín
Biyndis Yngvadóttir
* * *
Það eru ljúfar minningar sem
koma upp í hugan þegar ég
minnist Jónínu (Jónu) Brynjólfs-
dóttur, sem var amma Jónu
Bjargar konu minnar.
Þær nöfnur voru alla tíð góðar
vinkonur og á milli þeirra var
sterk taug sem átti rætur frá
þeim tíma er Jóna passaði þau
Jónu Björgu og Stefán Inga bróð-
ur hennar í Traðargerði á árun-
um 1953-1958 þegar Bryndís
móðir þeirra var að vinna á
Húsavíkurspítala. Þetta tímabil
er umvafið ævintýraljóma sem
oft var tilefni til upprifjunar og
engu líkara en þar hafi verið heilt
konungsríki með víðfeðmar Iend-
ur og fjölmenna hirð þar sem
amma Jóna var drottningin.
Traðargerðisbýlið var ofan við
Húsavíkurkaupstað á fallegu
bæjarstæði.1 Þaðan var víðsýnt
yfir Skjálfanda með Kinnarfjöllin
í bakgrunni. Húsið frá 1904 var
ein hæð með risi og kjallara byggt
úr rekaviði en veggir úr torfi,
grjóti og hvalbeinum. Umhverfis
voru grösug tún og bæjarlækur
rann austan við húsið.
Jóna ólst upp á Vatnsleysu-
strönd og gekk þar í barnaskóla
og tók þátt í þeim störfum sem
tilheyrðu lífinu við sjávarsíðuna.
A unglingsárunum fór hún í
vist til Reykjavíkur þar sem hún
gætti barna hjá kaupmannsfjöi-
skyldu í Þórshamri við Templara-
sund og var sá tími henni mjög
minnisstæður.
Á árinu 1928 var hún á leið í
kaupavinnu með strandferðar-
skipi norður á Langanes og
kynnst þá ungum myndarlegum
manni, Stefáni Halldórssyni sem
var að koma af vertíð frá Suður-
nesjum. Þau felldu hugi saman
og voru ári síðar gift af séra
Bjarna Jónssyni dómkirkjupresti.
Þau fluttu til Húsavíkur og
bjuggu f Traðargerði ásamt for-
eldrum Stefáns þeim Ingibjörgu
Stefánsdóttur og Halldóri Niku-
lási Sigurjónssyni. Stefán stund-
aði hefðbundinn sauðfjárbúskap
og gerði tilraunir með silfurref-
arækt. Hann fór til Noregs til að
kynna sér slíkt eldi og einnig
verkun á saltkjöti.
Stefán var sjómaður og var
stundum leitað til hans þegar
vélamann vantaði á sjó. Haustið
1940 tók hann að sér þrjá róðra
með opnum vélbáti. Þegar kom
að þriðja róðrinum var farið út í
blíðskapar veðri, sem breyttist
eins og hendi væri veifað í grenj-
andi stórhríð og mikið brim. I
sjóferð þessari drukknaði Stefán
en tveir bátsfélagar hans komust
Iífs af. Nú stóð jóna ein uppi
með fjögur ung börn og þarf ekki
að orðlengja að lífsbaráttan hefur
verið hörð. Segja má að með
þrautseigju og mikillri vinnu hafi
henni tekist að halda fjölskyld-
unni saman. Hún hélt búrekstr-
inum áfram með kindur, kýr og
hænur og seldi m.a. mjólk til
Húsavíkurspítala.
Haustið 1958 brá hún búi og
flutti ásamt Bryndísi og hennar
börnum til Reykjavíkur. Eftir
komuna suður vann hún um
tíma á Hrafnistu og síðan tók
hún að sér ummönnun á heimil-
um tveggja aldraðra kvenna.
Hún bjó ýmist ein eða með Herði
syni sínum og síðasta aldarfjórð-
unginn að Ásvallagötu 40.
Fáum hef ég kynnst á lífsleið-
inni með jafn gott minni og Jóna
hafði og átti það jafnt við um vís-
ur, málshætti, frásagnir, síma-
númer og afmælisdaga. Það var
margur fróðleiksmolinn sem ég
nam í ökuferðum á milli Skóla-
gerðis og Ásvallagötu. Þá naut ég
þess að leiða tal okkar til gamla
tímans og fræddist m.a. um dag-
leg líf við Vatnsleysuströnd í byrj-
un aldarinnar, um þjóðleiðina
milli Reykjavíkur og Suðurnesja
og margt fleira sem var mér til
gagns og gamans.
Ekki verður Jónu minnst án
þess að rifja upp áhuga hennar á
blómum og bókalestri. Þar skal
sérstaklega nefna La France rós-
ina sem hún taldi fegurst rósa
með stóran bleikan blómknúpp
og yndislegan ilm. Þessi rós átti
hug hennar lrá því að hún á
fimmtánda ári fékk afskorna rós
að gjöf. Seinna eignaðist hún
rósina í potti sem glataðist þegar
Jóna lá á Akureyrarspítala 1954.
Fyrir nokkrum árum tókst mér að
útvega stikling úr Grasagarðin-
um, sem virtist ætla að koma til
en náði því miður ekki að festa
rætur. Eftir það voru gerðar fleiri
tilraunir og La France rósin var
óþrjótandi umræðuefni. Bóka-
lestur var ein helsta ástríða Jónu
og ræddum við oft lesefni henn-
ar sem spann all vítt svið frá róm-
antískum ástarsögum til sagn-
fræðilegs fróðleiks. Þegar sjónin
fór að daprast komst hún upp á
lag með að hagnýta sér hljóð-
spóluþjónustu Blindra-bóka-
safnsins sem vikulega færði
henni nýjar bækur sem stytti
henni stundirnar. Jóna bjó á
Ásvallagötunni fram á s.l. sumar
og kunni því sjálfstæði vel. Hún
hefði ekki getað búið ein svo
lengi nema til hefði komið hjálp-
arhönd þeirra Stefáns Arnars og
Gunnþórunnar sem sinntu henni
eins og best var á kosið.
Að lokum vil ég þakka Jónu
þann hlýhug og vináttu sem hún
ávallt sýndi mér, Jónu Björgu og
börnunum. Minningar um ótal-
margar ljúfar samverustundir
munu Iifa með okkur um ókom-
inn tíma.
Yngvi Þór Loflsson
Elskuleg móðir mín
Bjargey Ólafsdóttir
frá Brekku Glerárhverfi
lést á Dvalarheimilinu Hlið Akureyri 8. janúar.
Jarðsett verður frá Glerárkirkju mánudaginn
15. janúar kl.14.00
Fyrir hönd ættingja
Ólafur Gunnarsson.
Akureyri
Vinátta ykkar og einstakur hlýhugur hafa verið okkur
ómetanlegur styrkur í erfiðum sporum lífsins.
Guð blessi ykkur öll.
Ragnhildur Thoroddsen
Ólafur Björn og Siguröur Árni Svanbergssynir
Fanney Svanbergsdóttir
Útfararskreytingar
kistuskreytingar,
krossar, kransar,
blómaskreytingar,
blómvendir,
Sími 461 5444
Glerárgata 28. Akureyri
Býflugan og blómið
— EHF
www.visir.is
FÝRSTUR með fréttirnar
jt' 4