Dagur - 13.01.2001, Blaðsíða 8
VIII- LAVGARDAGVR 13. JANVAR 2001
MINNINGAR GREINAR
Þorbjöm Krístmsson
Þorbjörn Kristinsson var fædd-
ur að Miðsitju, Blönduhlíð,
Akrahreppi í Skagafirði 17.
desember 1921. Hann lést 7.
janúar síðastliðinn. Foreldrar
hans voru hjónin Aldís Sveins-
dóttir frá Skatastöðum, Skaga-
firði f. 13. október 1890, d. 1.
nóvember 1977 og Kristinn Jó-
hannsson frá Miðsitju f. 2. des-
ember 1886, d. 4. febrúar
1941.
Þorbjörn var sá þriðji elsti af
sjö systkinum en þau voru:l)
Eiríkur, f. 24. maí 1916, d. 4.
október 1994. 2) Hjörleifur f.
12. nóvember 1918, d. 1. októ-
ber 1992. 4) Sveinn, f. 2. mars
1925. 5) Margét Jóhanna f. 24.
mars 1928, d. 26. mars 1929.
6) Marteinn Jóhann, f. 30. jan-
úar 1930, d. 22. febrúar 1930.
7) Jökull f. 28. ágúst 1935.
Árið 1923 fluttist fjölskyldan
að Hjaltastöðum og bjó þar til
1930 en flutti þá á Sauðár-
krók. Einn sonanna Hjörleifur
var tekinn í fóstur að Gils-
bakka í Austurdal og bjó þar æ
síðan. Þorbjörn stundaði
barnaskólanám sitt á Sauðár-
króki en byrjaði nám við
Laugaskóla í Þingeyjarsýslu
haustið 1942. Var hann viðloð-
andi við staðinn fyrst sem nem-
andi og síðan kennari næstu
árin og tók miklu ástfóstri við
hann. Þorbjörn lauk kennara-
námi úr Kennaraskólanum
1948 og starfaði sem barna-
skólakennari í nær 30 ár, eða
þar til hann þurfti frá að hver-
fa vegna sjúkdóms þess sem nú
varð honum að aldurtila. Aðal-
starsvettfangur hans var Gler-
árskóli á Akureyri og eru þeir
margir árgangarnir af nemend-
um sem hann hefur útskrifað
þaðan í gegnum árin.
KIRKJUSTARF
KIRKJUSTARF SUNNUDAGINN
14. JANÚAR
ÁSKIRKJA:
Barnaguðsþjónusta kl. 11:00. Guðsþjónusta
kl. 14:00. Kaffisala Safnaðarfélags Askirkju
eftir messu. Kirkjublllinn ekur. Sr. Árni Bergur
Sigurbjörnsson.
BÚSTAÐAKIRKJA:
Barnamessa kl. 11:00. Ungmennahljómsveit
leikur undir stjórn Pálma J. Sigurhjartarson-
ar. Guðsþjónusta kl. 14:00. Prestur sr. María
Ágústsdóttir.
DÓMKIRKJAN:
Kristniboðsvígsla kl. 11:00. Biskup íslands
herra Karl Sigurbjörnsson vígir Salóme Huld
Garðarsdóttur til krist'niboðsstarfa.
Sr. Jakob Ágúst Hjálmarsson, dómkirkju'-
prestur, þjónar fyrir altari.
ELLIHEIMILIÐ GRUND:
Messa kl. 14:00. Prestur sr. Lárus Halldórs-
son. Organisti Kjartan Ólafsson. Félag fyrr-
verandi sóknarpresta.
GRENSÁSKIRKJA:
Barnastarf kl. 11:00. Guðsþjónusta kl.
11:00. Kirkjukór Grensáskirkju syngur. Org-
anisti Árni Arinbjarnarson. Sr. Ólafur
Jóhannsson.
HALLGRÍMSKIRKJA:
Messa og barnastarf kl. 11:00. Umsjón
barnastarf Magnea Sverrisdóttir. Sr. Jón Dal-
bú Hróbjartsson.
LANDSPÍTALINN:
Messa kl. 10:00. Sr. Bragi Skúlason.
Árið 1956 giftist Þorbjörn
heitkonu sinni Áslaugu Jónas-
dótttur f. 14. apríl 1929. Hún
er dóttir Jónasar Sveinssonar f.
4. desember 1873 d. 29. mars
1954 frá Litla Dal í Svínadal í
Húnavatnssýslu en hann
kenndi sig við bæinn Banda-
gerði í útjaðri Akureyrar, og
konu hans Ingibjargar Hall-
grímsdóttur f. 9. maí 1888 d.
27. apríl 1984 frá Úlfsstaða-
koti í Blönduhlíð f Skagafirði.
Þorbjörn og Áslaug skildu
1977. Börn þeirra eru: 1) Aldís
Skagljörð, sérkennari, f. 18.
janúar 1956. Dætur hennar
eru :Ylva Dís f. ló.september
1992 og Alexandra Rós f.
8.apríl 1999. 2) Þorbjörg
Skagfjörð f. 25. janúar 1957,
starfsstúlka á dvalarheimili.
Hennar börn eru : Arnar Þór f.
30. október 1976 og Tinna f.
21. apríl 1992. 3)JónasSkag-
Ijörð, skáld og sjúkraþjálfari, f.
18. apríl 1960. Hann er giftur
Álfheiði Hönnu Friðriksdóttur,
tónlistarmanni, f. 16. apríl
1970.Stjúpdóttir Þorbjarnar
og dóttir Áslaugar íyrir hjón-
band er Auður Jóhannesdóttir
f. 10. júlí 1948, starfsstúlka á
dvalarheimili. Hennar maki er
Ólafur Karlsson f. 15. maf
1946. Börn þeirra eru: Eirík-
ur Karl f. 9. júní 1975, Óli
Björn f. 17. júní 1976 og Ingi-
björg Harpa f. 3. maí 1978.
Börn Auðar og Trausta Berg-
Iand eru : Áslaug Helga f. 30.
mars 1965, Trausti f. 16. maí
1967 og Fjóla f. 3. maí 1968.
Útför Þorbjarnar fór fram frá
Glerárkirkju föstudaginn 12.
janúar.
HÁTEIGSKIRKJA:
Barnaguðsþjónusta kl. 11:00. Sr. Carlos A.
Ferrer, Messa kl. 14:00. Einsöngur Erla B.
Einarsdóttir. Organistl Douglas A. Brotchie.
Sr. Carlos A. Ferrer. Molasopi eftir messu.
LANGHOLTSKIRKJA:
Kirkja Guðbrands biskups. Messa kl. 11:00.
Organisti Jón Stefánsson. Prestur sr. María
Ágústsdóttir. Barnastarf I safnaðarheimilinu
á sama tíma. Umsjón Lena Rós Matthías-
dóttir.
LAUGARNESKIRKJA:
Messa og sunnudagaskóli kl. 11:00. Kór
Laugarneskirkju syngur. Organisti Gunnar
Gunnarsson. Jóna Hrönn, Halla og Andri
stýra sunnudagaskólanum. Prestur sr. Bjarni
Karlsson. Messukaffi. Messa kl. 13:00 I dag-
vistarsalnum Hátúni 12. Kvöldmessa kl.
20:30. Prestshjónin sr. Jóna Hrönn Bolla-
dóttir og sr. Bjarni Karlsson þjóna að orðinu
og borðinu.
NESKIRKJA:
Guðsþjónusta kl. 11:00. Kór eldri borgara
Neskirkju leiðir söng. Prestur sr. Halldór
Reynisson. Organisti Reynir Jónasson.
SELTJARNARNESKIRKJA:
Messa kl. 11:00. Altarisganga. Organisti
Viera Manasek. Sr. Sigurður Grétar Helga-
son. Sunnudagaskólinn á sama tíma.
ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN:
Guðsþjónusta kl. 14:00. Barnastarf á sama
tíma. Maul eftir messu.
ÁRBÆJARKIRKJA:
Guðsþjónusta kl. 11. Organisti Pavel Smid.
Kirkjukórinn syngur. Sunnudagaskólinn kl.
Elsku afi okkar !
Nú ertu farinn frá okkur í bili,
en minningin um þig mun ávallt
lifa. Þegar við fæddumst varst
þú orðinn svo veikur að við vitum
aldrei hvort þú vissir af okkur í
raun og veru. Þú spurðir alla-
vega alltaf hvað við hétum þegar
við hittumst og gast ekki munað
nöfnin okkar sem að þér fannst
svolítið undarleg. Þú varst far-
inn inn í þinn eigin heim og varst
stundum í skólanum þínum eða
að sinna kindunum þínum þegar
við komum í heimsókn og okkur
fannst það svo skrýtið því þá sast
þú bara á rúminu þínu í Hlíð, en
þar áttir þú heima síðustu árin
þín og var vel hugsað um þig þar.
Þökkum við af alhug öllu starfs-
fólkinu á Hlíð sem var þér svo
gott og nærgætið. Stundum Ieið
þér svo illa og þá var nú gott að
vita af þér í góðum höndum.
Alltaf þegar við komum sungum
við fyrir þig og oftar en ekki tókst
þú undir söngvana okkar, því þá
mundir þú þrátt fyrir allt. Færð-
ist þá gjarnan bros yfir þreytta
andlitið þitt og það Ijómaði upp.
Þá vissum við að þú hafðir ekki
13:00. Fræðsla, söngur og sögur. Allir eru
velkomnir, ungir sem aldnir. Sóknarprestur.
BREIÐHOLTSKIRKJA:
Barnaguðsþjónusta kl. 11. Guðsþjónusta kl.
11. Sr. Sigurjón Árni Eyjólfsson messar.
DIGRANESKIRKJA:
Messa kl. 11. Prestur sr. Magnús B. Björns-
son. Organisti: Kjartan Sigurjónsson. Kór
Digraneskirkju B hópur. Sunnudagaskóli á
sama tíma. Leiðbeinendur: Þórunn,
sr. Gunnar og Þóra. Léttur málsverður í
safnaðarsal að lokinni messu og sunnu-
dagaskóla
FELLA- OG HÓLAKIRKJA:
Guðsþjónusta kl. 11. Prestursr. Guðmund-
ur Karl Ágústsson. Organisti Lenka
Mátéová. Barnaguðsþjónusta á sama tíma í
safnaðarheimilinu í umsjón Margrétar Ó.
Magnúsdóttir. Prestarnir.
GRAFARVOGSKIRKJA:
Guðsþjónusta kl. 11:00. Sr. Sigurður Arnar-
son prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Graf-
arvogskirkju syngur. Organisti Hörður
Bragason. Barnaguðsþjónusta kl. 11:00 í
Grafarvogskirkju. Prestur sr. Anna Sigríður
Pálsdóttir. Barnaguðsþjónusta I Engjaskóla.
Prestur sr. Anna Sigríður Pálsdóttir.
HJALLAKIRKJA:
Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11. Barn boriðtil
skírnar. Salka E. Hjálmarsdóttir og Sandra
Ó. Kristbjarnardóttir leika á trompet. Félag-
ar úr kór kirkjunnar syngja og leiða safnað-
arsöng. Organisti: Jón Ólafur Sigurðsson.
Barnaguðsþjónusta í Lindaskóla kl. 11 og í
kirkjunni kl. 13. Við minnum á bæna- og
kyrrðarstund á þriðjudag kl. 18. Prestarnir.
alltaf verið svona veikur og svona
innilokaður í heiminum þínum,
sem engin annar sá. Við þökkum
þér þessar stundir þótt þær hafi
verið alltof fáar og við hefðum
víst þurft að fæðast miklu fyrr til
að kynnast þér virkilega eins og
þú varst. Mömmur okkar sögðu
að einu sinni hefðir þú verið stór
og stæltur, hrókur alls fagnaðar á
mannamótum og kveðið betur en
nokkur annar. Þessa hlið sáum
við glimta í á „söngstundunum"
okkar í herberginu þínu í Hlfð.
Það er sorglegt að þú sért dá-
inn, en nú ert þú laus við þján-
ingar þær sem Parkinsonsjúk-
dómurinn lagði á þig og hugur
þinn og lfkami frjáls.
Því að hvað er það að deyja
annað en að standa nakinn t
hlænmn og hverfa inn í sólskinið?
Og hvað er að hætta að draga
andann annað en að frelsa hann
frá friðlausum öldnm lífsins,
si'o að hann geti risið upp í mætti
stmim og ófjötraður leitað á
fund guðs síns ?
(Kahil Gibran, Spámaðurinn)
Við vitum að á leið þinni upp
til langömmu og langafa, systk-
ina þinna og ástvina sem horfin
eru sjónum hefur þú örugglega
staldrað við á Laugum í Þingeyj-
arsýslu, en sá staður var þér
ávallt ofarlega í hjarta, þar sem
þú dvaldir ungur. Einnig er ör-
uggt að þú hefur komið við í firð-
inum sem var þér kærastur allra,
svo kær að þú skýrðir börnin þín
í höfuðið á honum. Skagafjörð-
urinn jrinn og þú voruð eitt, þó
svo að þið væruð fjarri hvor öðr-
um stærstan hluta lífs þíns.
Elsku besti afi við biðjum að
heilsa öllum ástvinum okkarog
við reynum að vera ánægðar með
brottför þína af því við vitum að
KÓPAVOGSKIRKJA:
Barnastarf í safnaðarheimilinu Borgum kl.
11:00. Guðsþjónusta kl. 11:00. Kór Kópa-
vogskirkju syngur og leiðir safnaðarsöng.
Organisti: Julian Hewlett. Sr. Ægir Fr. Sig-
urgeirsson.
SELJAKIRKJA:
Krakkaguðsþjónusta kl. 11:00. Mikill söngur
og nýr límmiði. Guðsþjónusta kl. 11:00. Sr.
Ágúst Einarsson prédikar. Anna Margrét
Óskarsdóttir syngur einsöng. Organisti er
Gróa Hreinsdóttir. Ath. guðsþjónustunni
verður útvarpað. Guðsþjónusta kl. 14:00.
Sr. Valgeir Ástráðsson prédikar. Organisti er
Gróa Hreinsdóttir.
LÁGAFELLSKIRKJA, Mosfellsbæ.
Guðsþjónusta kl. 14:00. Prestur sr. Kristján
Valur Ingólfsson. Athugið að kirkjudagur
Karlakórsins Stefnis verður síðar, en ekki
þennan dag einsog auglýst var I einu bæjar-
blaða. Barnaguðsþjónustan I safnaðarheim-
ilinu kl. 11:15. Sr. Jón Þorsteinsson.
AKUREYRARARKIRKJA:
Guðþjónusta kl. 11:00. Séra Jóna Lísa Þor-
steinsdóttir. Fundur Æskulýðsfélagsins kl.
17:00 i kapellu.
GLERÁRKIRKJA.
Barnasamkoma og guðsþjónustan kl. 11:00.
Ath. sameiginlegt upphaf. Foreldrar eru
hvattir til að mæta með börnunum. Sr.
Hannes Örn Blandon þjónar.
PÉTURSKIRKJAN - AKUREYRI.
Laugardaga, messa kl. 18:00. Sunnudaga,
messa kl. 11:00.
nú ert þú ánægður. Amma okkar
reyndist þér hin besta stoð og
stytta öll erfiðu árin þín, þrátt
fyrir að þið væruð löngu skilin og
var hún hjá þér og hugsaði um
þig þegar þú kvaddir. Færum við
henni okkar kærustu þakkir fyrir
hvernig hún reyndist þér í öllum
þínum Iangvarandi veikind-
urn.Við endum þetta litla kveöju-
bréf til þín á Ijóði sem er úr ljóða-
bók þinni „Á valdi minninganna“,
sem þú gafst út ásamt tveimur
öðrum bókum þegar þú varst far-
inn að reskjast. Að hafa þessar
bækur eru okkur dýrmæt gjöf frá
þér og gefa okkur færi á að kynn-
ast þér betur.
HINSTA LJÓÐIÐ
( Lag: Þú sæla heimsins svala lind. )-
Eg lagði itpp með léttan mal
og h'tinn óskastein.
Ferðaðist umfjöll og dal
semfugl í leit að grein.
Og aldrei gat ég hyggt mér hæ,
st't hyrði varð að kvöl.
Flafnaði við svalan sæ
og settist að á möl.
Lengi fyrst ég var t vöm,
en varttir fáar kann.
Að lokinn reyndust hltðlynd hörn
það besta, sem égfantt.
Bráðum héðan burt égfer,
því hátur minn er klár.
Bið svo gttð að bjarga mér
og hrosi gegnum tár.
( borbjörn Kristinsson )
Hafðu þökk fyrir allt og allt og
friður sé með þér elsku afi.
Góða ferð!
Þtnar afastelpur !
Ylva Dís, Alexattdra Rós og
Tinna.
HVÍTASUNNUKIKRJAN Á AKUREYRI:
Kl. 20:30 er sunnudagaskóli fjölskyldunnar.
Aldursskipt kennsla, þar sem allir fá eitthvað
við sitt hæfi. G. Thódór Birgisson sér um
kennsluna. Kl. 16:30 verður verður vakning-
arsamkoma. Þar verður flutt lofgjörðartónlist
og Yngvi Rafn Yngason mun predika. Fyrir-
bænaþjónusta og parnapössun. Allir eru
hjartanlega velkomnir.
HJÁLPRÆÐISHERINN, Akureyri.
Sunnudag kl. 11:00, Sunnudagaskóli. Kl.
19:30. Bæn. Kl. 20:00. Almenn samkoma.
AGLOW. AGLOW, kristileg samtök kvenna,
halda fund mánudagskvöldið 15. janúar kl.
20:00 í Félagsmiðstöðinni að Víðilundi 22 á
Akureyri. Hrefna Brynja Gísladóttir flytur
ræðu kvöldsins. Söngur, lofgjörð og fyrir-
bænaþjónusta. Kaffihlaðborð. Þátttökugjald.
kr. 450. Allir eru hjartanlega velkomnir.
Stjórnin.
MÖÐRUVALLAKLAUSTURSPRESTAKALL:
Messa verður fyrir allt prestakallið í Möðru-
vallakirkju sunnudaginn 14. janúar kl. 14:00.
Mætum öll og njótum samveru í húsi Guðs.
Sóknarprestur.
EYRABAKKAPRESTAKALL:
Eyrarbakkakirkja: Barnaguðsþjónusta kl.
11:00: Stokkseyrarkirkja. Messa kl. 14:00.
Sóknarprestur.
J
\
ORÐ DAGSINS 462 1840