Dagur - 19.01.2001, Blaðsíða 2

Dagur - 19.01.2001, Blaðsíða 2
2 - FÖSTUDAGUR 19. JANÚAH 2001 AKUREYRI NORÐURLAND Gæruskortur ógn- ar Skiimaiðnaði Mikil vonbrigði með rekstur síðasta árs, að sögnfmmkvæmda- stjóra Skinnaiðnaðar. Jákvæð teikn sjástþó á lofti. Aðalfundur Skinnaiðnaðar hf. fyrir rekstrarárið 1999-2000 var haldinn á Akureyri í fyrra- dag og kom þar fram að óttast er að gæruskortur geti orðið fyrirtækinu vandamál. Fjár- hagsstaða fyrirtækisins er fremur veik en við því verður brugðist með lántökum. Horfur eru hins vegar ágætar í mark- aðsmálum framundan. Félagið var rekið með tæp- lega tveggja milljóna króna hagnaði á liðnu rekstrarári en inni í þeirri tölu er mikil sala eigna. Aðalfundurinn sam- þykkti tillögu stjórnar um að greiða ekki út arð til hluthafa fyrir nýliðið rekstrarár og þá voru gerðar nokkrar breytingar á samþykktum félagsins. I fyrsta lagi var stjórn félagsins heimilað að auka hlutafé fé- lagsins með útgáfu nýrra hluta í allt að kr. 200 milljónir króna og víkja frá áskriftarrétti hlut- hafa. 1 öðru lagi var stjórn fé- lagsins heimilað að taka skuldabréfalán að fjárhæð allt 60 milljónum króna er veiti lánardrottni heimild til að breyta höfuðstól þess í hlut í félaginu í síðasta lagi í ágúst 2005. Gunnar Birgisson, stjórnar- formaður, sagði m.a. í ræðu sinni að styrkur félagsins væri gott starfsfólk sem starfaði í tæknilega góðri verksmiðju. Markaður fyrir afurðir væri að styrkjast en veikleikar félagsins væru fjárhagsleg staða þess sem og framboð á hráefni. Ógn við atvinnugreinma Gunnar sagði að framboð væri takmarkað á hrágærum til vinnslu hér á landi. Hann minnti á að framboðið innan- lands væri bundið við haust- mánuði og það krefðist veru- Iegrar fjárbindingar að kaupa allar hrágærurnar í einu. „1 Ijósi innflutningshafta er það mjög alvarleg þróun og jafn- framt ógnun við íslenskan skinnaiðnað þegar sláturleyfis- hafar selja saltaðar hrágærur til útlanda. Undanfarin ár hefur orðið mjög mikil samþjöppun sláturleyfishafa á íslandi. Ef við fáum ekki hrágærur frá t.d. þremur stærstu sláturleyfishöf- unum er tilvistargrunnur okkar hrostinn. Vörn okkar hefur ver- ið að greiða heimsmarkaðsverð fyrir gærurnar og treysta því að sláturleyfishafarnir sýni þá víð- sýni að taka virðisaukandi iðn- að á íslandi fram yfir útflutn- ing á hráefni. Það er nefnilega sameiginlegt með kjöt- og gæruiðnaði, að við störfum við innflutningshöft," sagði Gunn- ar. Mikil vonbrigöi Bjarni Jónasson framkvæmda- stjóri sagði í ræðu sinni að ný- liðið rekstrarár hefði reynst fé- laginu erfitt og niðurstaðan ylli miklum vonbrigðum, enda verulega lakari en áætlanir gerðu ráð fyrir. En þrátt fyrir áföll og vonbrigði undanfar- inna missera væru jákvæð teikn á Iofti á helstu mörkuðum fé- lagsins. BÞ Páskamir að Hhigastöð- rnn seldust á 1idst. Áskell Egilsson, hefur eytt síðustu 15 páskum að lllugastöðum. Orlofshús verkalýðsfélaga að lllugastöðum í Fnjóskadal njóta mikilla rdnsælda allt árið, þó eðli- lega sé aðsóknin mest á sumrin. Að vetri er hægt að fá helgarleigu fyrir 5.000 krónur í húsum sem taka 8 manns. 20 hús af 31 eru til leigu í vetur og hafa verið til leigu 2-3 hús um helgar, og stund- um meira. I vetur er verið að vinna við rafmagn í nokkrum húsanna, og jafnvel skipta um sum eistu húsin, en þau risu að Illugastöðum árið 1967. Húsin eru í eigu verkalýðsfélaga en nokkur eignabreyting hefur orðið á síðustu árum, fyrst og fremst hefur Eining-Iðja á Ak- ureyri kejqrt nokkur hús af landssamtökum. Síðustu 1 5 árin hefur ævin- lega verið slegist um húsin um páskana og eru þess dæmi að sumar fjölskyldur hafi verið þar samfellt síðustu 15 páska. Hægt var að hringja að llluga- stöðum 2. janúar sl. og panta hús og voru þau öll frátekin fyrir klukkan 9, eða á innan við klukkutíma. Áskell Egils- son á Akureyri hefur verið þarna síðustu 1 5 ár með sinni fjölskyldu og hann segist hreinlega ekki geta hugsað sér betri aðferð til þess að vera með fjölskyldunni um pásk- ana. Aðrir Ijölskyldumeðlimir reikni einfaldlega með að eyða a.m.k. hluta páskanna á 111- ugastöðum. GG KyiuiLngarfimdlr und- anfari sameiningar Þrjú sveitarfélög í Suður-Þing- eyjarsýslu, Hálshreppur, Ljósa- vatnshreppur og Bárðdæla- hreppur, hafa gefið jákvætt svar um það að efnt verði til kosn- inga um sameiningu þessara sveitarfélaga. Jón Oskarsson, oddviti Hálshrepps og formaður sameiningarnefndar, segist reikna með að Reykdælahreppur verði einnig með en formlegt svar hafi ekki borist þaðan. „Það þarf að ákveða fljótlega hvort og þá hvenær menn vilja láta ganga til kosninga um þcssi sveitarfélög, en það stendur kannski á því hvernig menn vilja kynna þetta í sveitarfélögunum. Það stendur til að halda kynn- ingarfundi í ölluny sveitarfélög- unum um sameiningarmálin og þá verða lleiri mál tekin með. Ef undirtektir verða neikvæðar verður sjálfsagt ekkert af þessu. Sumum finnst að við séum að fara of langt austur með því að ætla að hafa Reykdælahrepp með og vilja frekar að við horf- um meira til sveitarfélaga við Eyjafjörð eins og Svalbarðs- strandarhrepps og Grýtubakka- hrepps og jafnvel með samein- ingu við Ákureyri í huga. En ég held að þessu máli ljúki aldrei nema með kosningum þannig að úr þessu máli verði skorið hjá öllum sveitarfélögunum. I kosningum yrði nóg að íhúar eins sveitarfélags felldu sam- eininguna til þess að hún yrði ekki. En þá er hugsanlegt að kosið yrði aftur hjá þeim sem samþykktu í upphafi," segir Jón Öskarsson. GG Þiiú fíknlefnamál Rannsóknarlögreglan á Akureyri hefur nýlega upplýst tvö eitur- lyfjamál. Fyrra málið kom upp fýrir helgi en þar fór fram bæði sala og neysla á fíkniefnum í Eyjafjarðarsveit. Lögreglan hand- tók aðila sem var að koma frá húsinu, og það leiddi til þess að grunsemdir styrklust. Handteknir voru 3 karlar og 1 kona og við leit inni fundust svo um 100 grömm af hassi, 15 grömm af amfetamíni og 1 5 grömm af kókaíni og vog sem greinilega var ætluð til að vigta í neysluskammta. Fólkinu var sleppt eftir yfirheyrslur. Á sunnudeginum bárust til- kynningar um að í húsi á Ár- skógssandi ætti sér stað neysla og sala fíkniefna. Þar voru hand- teknir fimm aðilar og við leit fundust 20 grömm af hassi og tól til fíkniefnaneyslu. Fólkið var allt fært til Akureyrar og gisti fanga- geymslur aðfaranótt mánudags. Málið skýrðist eftir yhrheyTslu og aðilum var sleppt. Lögreglan handtók svo einn í gær ofan við bæinn þar sem hann sat í bfl sín- um og neytti fíkniefna og var komin í „huggulegt" ástand. Hann hefur áður komið við sögu vegna fíkniefna. Lögreglan hefur hætt að hafa síma opinn þar sem áður var hægt að hringja inn upplýsingar, en í stað þess geta þeir sem vilja leggja henni lið með upplýsingum um ólöglega sölu eða neyslu fíkniefna sent henni tölvupóst á netföngin dsnotra@tind.is eða bergurjonsson@tmd.is. GG

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.