Dagur - 19.01.2001, Blaðsíða 7

Dagur - 19.01.2001, Blaðsíða 7
FÖSTUDAGUR 19. JANVAR 2001 -7 AKUREYRI NORÐURLAND Sjáðu heiminn í nýju ljósi! ListamennfráAkureyri í bland við nýja erlenda strauma og sögulegarís- lenskarrætureinkenn- andijyrirdagskrá Lista- safnsins árið 2001. Hannes Sigurðsson, forstöðu- maður Listasafnsins á Akureyri segir að verkefnaval á dagskrá Listasafnsins á næsta ári sé ekki hægt að skoða sem beint svar við þeirri umræðu sem varð í bænum á síðasta ári. Þá sætti Listasafnið mikilli gagnrýni fyrir að hleypa ekki „heimamönnum" með sýn- ingar inn á safnið, jafnvel hunsa þá, og spunnust um það miklar ritdeilur og umræður, m.a. hér í Degi, en listamenn frá Akureyri eru mjög áberandi í dagskránni í ár. Hannes segir það þrátt fyrir allt staðreynd að listamenn ýmist búsettir á Akureyri og írá Akureyri hafi verið áberandi í sýningum safnsins í fyrra eins og raunar allt frá stofnun safnsins árið 1993. Hins vegar segir hann að árið í fyrra hafi að ýmsu leyti verið óvenjulegt því það hafi verið menningarborgarár, sem hafi svona í víðara samhengi ein- kennst af stærri verkefnum sem Listasafhið hafi viljað taka þátt í. I ár sé hins vegar tækifæri til að bæta aðeins hlut heimamanna og sýna ýmsa listamenn eins og „Kristinn (G. Jóhannsson) og Ola (G. Jóhannsson) og Jónas Viðar, sem er löngu tímabært að sýna í safninu. Það má kannski segja að þetta sé heldur í meira lagi miðað við venjulegt árferði en á móti kemur að dagskráin er mjög fjöl- breytt - hún er bæði staðbundin og alþjóðleg og ég held að við náum utan um nánast allt litrófið á þessu ári,“ segir Hannes. Hann segir hlutverk safnsins í raun þrí- skipt og dagskráin miðist við að sinna öllum þáttunum þrem. I fyrsta lagið á það að þjóna lista- gyðjunni óháð öllu öðru. I öðru- lagi á það að þjóna bæjarbúum og sýna þeim hvað er að gerast í heimslistinni. Og í þriðja lagi á safnið að styðja við listamenn á staðnum með sýningarhaldi. Hannes telur að sú dagsrá sem ákveðin hefur verið fyrir þetta ár uppfylli þessi markmið eftir því sem hægt sé, og vonast til að menn komi og nýti sér safnið. I því sambandi bendír hann á að safnið sé nú búið að taka upp nýtt slagorð sem segi kannski það sem segja þarf, en slagorðið er svona: Líttu inn í safnið og sjáðu heiminn í óvæntu ljósi! Dagskrá Iistasafns Akureyrar árið 2001 20. ianúar - 2. mars Detox / Farandsýntngarráð Nor- egs, Riksutstillinger Farandsýningin Detox er eitt stærsta verkefhi á sviði rafrænnar myndlistar sem ráðist hefur verið í á Norðurlöndum. Sýningin kemur á vegum Farandsýningar- ráðs Noregs, Riksutstillinger, til Listasafnsins á Akureyri þar sem för hennar lýkur. Á sýningunni er veruleiki nútímans túlkaður með margvíslegum tólum og tækjum sem virkja áhorfendur til þátt- töku, en alls unnu sextán norskir listamenn að gerð verkanna í samvinnu við ýmsa tölvufræðinga og tæknimenn. Tilgangurinn með þessari listrænu tæknifijóvgun er að kanna möguleika gagnvirkrar miðlunar í því skyni að ná betur til áhorfenda og brúa þannig bilið milli listaheimsins og upplýsinga- og neyslusamfélagsins. Nafnið Detox þýðir afeitrun og vísar til þess að hér er ekki einungis verið að leika sér, heldur er þetta einnig alvörugefin úttekt á þeim vandamálum sem fylgja tölvu- samfélaginu - vandamálum sem við erum rétt að byrja að átta okk- ur á. Sýningin vegur rúmlega átta tonn í flutningi. 10. mars - 1S. april Kristinn G. Jóhannsson / Garðljóð Kristinn G. Jóhannsson (f. 1936) nam myndlist á Akureyri, í Reykjavík og Edinborg og hélt sína fyrstu málverkasýningu 1954, aðeins sautján ára að aldri. Allar götur síðan hefur Kristinn verið virkur á sýningarvettvangi jafnframt því að starfa sem skóla- stjóri, ritstjóri og pistlahöfundur. Hann leitar fanga í fíngerðar líf- æðar náttúrunnar milli þess sem hann dregur upp svipmiklar myndir af mannlífinu og húsun- um í bænum. Undanfarið hefur bilið minnkað milli þessara ólíku sjónarhorna, nálægðar og fjar- lægðar, þau kallast æ meira á, þannig að skynja má hvort tveggja í senn, hvikulan gróður jarðarinn- ar og óravfddir blámóðunnar sem speglast í lögmálum myndflatar- ins. Yrkisefni Kristins eru tré, runnar, loft og vindar á heima- slóðum hans. Á sýningunni er einnig hægt að kjnnast ýmsum tilraunum á þróunarferli lista- mannsins. Vestursalur / Jóiuts Viðar Landslagsmálarinn Jónas Viðar (f. 1962) tilheyrir þeirri kynslóð ís- lenskra myndlistarmanna sem tekið hefur tölvutæknina í sína þjónustu. Jafnframt því að reyna á þanþol hefðarinnar sækist hann eftir að beisla þær samfélagslegu aðstæður sem við búum við. I öðrum klefa vestursalarins verður að finna vinnustofu Jónasar eins og hún Ieggur sig og geta áhorf- endur spjallað við listamanninn um leið og þeir virða fyrir sér verk hans. 21. apríl 3. imii Henri Cartier-Bresson / Vtð Signubahka Líklega hefur enginn átt meiri þátt í því að gera Ijósmyndun að viðurkenndri listgrein en Frakk- inn Henri Cartier-Bresson (f. 1908) sem oft er kallaður meist- ari augnabliksins. A síðustu ára- tugum hefur skapast meiri goð- sögn um hann en nokkurn annan Ijósmyndara. Cartier-Bresson, sem kominn er á tíræðisaldurinn, hóf og endaði feril sinn sem list- málari. Árið 1947 stofnaði hann við þriðja mann hina alþjóðlegu samsteypu Magnum Photos sem hafði afgerandi áhrif á frétta- og tímaritaljósmyndun. Þrátt fyrir mikil ferðalög lagði Cartier- Bresson aðallega rækt við sitt eig- ið þjóðfélag, en segja má að hann sé einn af sköpurum þeirrar ímyndar sem almenningur hefur um Frakkland. A sýningunni er að finna myndir frá mannlífi Par- ísarborgar sem teknar voru á ár- unum 1950-70 og er sýningin unnin í samstarfi við Magnum Photos í París. Vestursalur / Áhugaljósmynd- arahlúbbur Akureyrar Sýningin „Akureyri, bærinn okkar“ byggist á völdum myndum úr sam- nefndri bók sem Ahugaljósmynd- araklúbbur Akureyrar (ALKA) gaf nýlega út í tilefni af tíu ára af- mæli félagsins. Sýningin bregður ljósi á mannlíf og atvinnuhætti á árinu 2000 í sögu Akureyrar. Markmið félagsins er að virkja áhugafólk um Ijósmyndun, skapa því aðstöðu til vinnslu mynda og vettvang til að koma verkurn sín- urn á framfæri. 9. jiíní - 29. jiílí Akureyri í myndlist / Samsýn- ing sextán myndlistantumtta Akureyri hefur fest sig í sessi sem mennta- og menningarbær en þangað eiga margir okkar virtustu myndlistarmenn ættir sínar að rekja. A þessari samsýningu er að finna verk eftir sextán myndlistar- menn sem eiga það sameiginlegt að búa og starfa á Akureyri. Hér gefst áhorfendum tækifæri að kynnast þeirri grósku sem á sér stað í akureyrskri myndlist við upphaf nýrrar aldar. Þrátt fyrir ólíka miðla og þann aldursmun sem skilur að yngstu og elstu þátttakendur er bærinn viðfangs- efni þeirra allra. Listmennirnir sem verk eiga á sýningunni eru: Aðalsteinn Svanur Sigfússon, Anna María Guðmann, Arna Valsdóttir, Einar Helgason, Er- lingur Jón Valgarðsson, Guð- mundur Armann Sigurjónsson, Guðný Kristmannsdóttir, Gunnar Kr. Jónasson, Jónborg Sigurðar- dóttir, Kristinn G. Jóhannsson, Laufey Pálsdóttir, Margrét Jóns- dóttir, Nói (Jóhann Ingimarsson), Oli G. Jóhannsson, Stefán Jóns- son og Sveinbjörg Hallgrímsdóttir. 4. ágúst -1 fi. septemher Per Kirkeby Daninn Per Kirkeby (f. 1938) er langþekktasti núlifandi listamað- ur Norðurlanda og býr hann yfir óvenjulega yfirgripsmikilli sjón- þekldngu. Á undanförnum þrjátíu og fimm árum hefur honum tek- ist að auðga verk sín ineð reynslu sinni á ólíkum sviðum sem jarð- fræðingur, landkönnuður, kvik- myndagerðarmaður, Iistmálari og myndhöggvari. Utkoman er ein- stæð blanda af stórskorinni, forn- eskjulegri tjáningu og fáguðu menningarlegu innsæi. I málverki eftir Kirkeby má samtímis finna andblæ hjarðmannasælu, váleg veðrabrigði og Iotningu fyrir nátt- úrunni. Samt er þessum einkenn- um hvergi brugðið upp með aug- ljósum hætti. Þetta er fyrsta einkasýning Per Kirkeby á ís- landi, en sýningin er sett upp í samvinnu við Michael Werner- galleríið í Köfn og samanstendur af málverkum, einþrykkjum og höggmyndum. Vestursalur t Verðlaunahaji Listasjóðs Penttans A sýningunni kynnumst við verk- um nýjasta verðlaunahafa Lista- sjóðs Pennans, Heklu Daggar Jónsdóttur (f. 1969). Listasjóður Pennans var stofnaður 1992 og er markmið hans að styrkja unga og efnilega myndlistarmenn sem sýnt hafa góðan árangur. I upp- hafi hvers árs tilnefnir stjórn Listasjóðsins einn verðlaunahafa sem hlýtur styrk og kaupir sjóður- inn að auki verk af tveimur öðr- um myndlistarmönnum í viður- kenningarskyni. 22. septemher - 4. nrívemhpr Fmmhetjar í bytjun 20. aldar Sýningin er sú fyrsta af fjórum sem sett verður upp í samvinnu við Listasafn Islands á næstu árum, en markmiðið með þeim er að gefa samandregið yfirlit yfir íslenska myndlist á 20. öld. Á sýningunni gefur að líta verk eftir Þórarinn B. Þorláksson, As- grfm Jónsson, Jón Stefánsson og Jóhannes Kjarval. Þessir málarar hófu allir listamannsferil sinn á fyrstu áratugum síðustu aldar og lögðu þar með grunn að nútfma- myndlist hér á landi. Náttúra landsins var í hugum aldamóta- manna tákn þess sem íslenskt v- ar og höfuðviðfangsefni fyrstu kynslóðar íslenskra listamanna. í elstu myndunum er landið oft sveipað kyrrð sumarnæturinnar og dregin er fram hrikaleg feg- urð snæviþaktra tinda. Með Kjarval urðu þáttaskil upp úr 1930 þegar hann tók að heina sjónum að hrjóstrugum jarðveg- inum, hrauni og mosa. A þann hátt varð náttúra landsins, nafn- laus og óstaðbundin, miðill til að tjá nýjar hugmyndir. 10. nóvember - lfi. desemher Óli G. Jóhannsson / Andstreymis Óli G. Jóhannsson (f. 1945) er sjálfmenntaður myndlistarmað- ur sem hélt sína fyrstu einkasýn- ingu árið 1973 á Akureyri. A átt- unda áratugnum varð mikil vakning í myndiist f höfuðstað Norðurlands, stofnað var til Myndlistarfélags Akureyrar og undir merkjum þess var unnið ötult brautryðjendastarf. ÓIi G. var um tíma formaður félagsins og beitti hann sér ásamt nokkrum öðrum fyrir stofnun Myndsmiðjunnar, sem var for- veri Myndlistaskólans á Akur- evri. Um árabil rak hann Gallerí Háhól sem markaði tímamót í sögu myndlistar á Akureyri, í fyrsta sinn voru reglulegar myndlistarsýningar haldnar norðan heiða. Myndverk Óla eru óhlutbundin en grunnurinn er nánasta umhverfi og síbreyti- leg skaphöfn listamannsins. Vestursalur / Kristján Daviðssott Kristján Davíðsson (f. 1917) hef- ur oft verið kallaður einn af stóru einförunum í fslenskri myndlist. Hann á heiðurinn af því að vera fyrstur íslenskra mál- ara til að gera svokallaðar ljóð- rænar abstraktmyndir eða „slettumyndir". Til þess notaði hann bílalakk og sýndi afrakstur- inn á tveimur einkasýningum ár- ið 1957. Síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar og tísku- sveiflur risið og hnigið í mynd- listinni, en Kristján Davíðsson hefur samt alltaf haldið sfnu einstaka striki og slettu.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.