Dagur - 19.01.2001, Blaðsíða 15

Dagur - 19.01.2001, Blaðsíða 15
FÖSTUDAGVR 19. JANÚAR 2 00 1 - 1S Tk&pr AKUREYRI NORÐURLAND Á Dalvík erSæplast til húsa en fyrírtækið heldursig ekki bara á heimaslóðum heldur teygirþað sig um þrjár heimsálfur, Evrópu, Asíu ogAmeríku. Stjórn Sæplasts hf. hefur fjallað um rekstraráætlun félagsins fyr- ir árið 2001. Gert er ráð fyrir að tekjur verði um 2500 milljónir króna, að hagnaður fyrir af- skriftir og vexti verði rúmar 400 milljónir króna, að hagnaður eftir skatta verði um 100 millj- ónir króna og að veltufé frá rekstri verði rúmar 500 milljónir króna. Gert er ráð íyrir að hagnaður á árinu 2000 hafi orðið um 20 milljónir króna, í samræmi við það sem áður hefur verið gefið út. Sæplast var stofnað 1984 á Dalvík og hefur verið í rekstri síðan, fyrst og fremst í fram- leiðslu á hverfisteyptum vörum svo sem plastkerum og vöru- brettum. Þessar framleiðsluvör- ur eru einkum ætlaðar til notk- unar í sjávarútveginum. „Fyrstu árin vorum við eingöngu í þess- um vörum en árið 1989 samein- uðumst við Plasteinangrun á Ak- ureyri en það var félag sem framleiddi meðal annars troll- kúlur til notkunar í sjávarút- vegi,“ segir Steinþór Olafsson forstjóri fyrirtækisins. „Við höfum það einnig verið að framleiða vörur lyrir bygging- ariðnaðinn svo sem rotþrær, tanka og brunna og hafa þær vörur verið meginuppistaðan í rekstrinum þar til í byrjun árs 1999 og þar vegur langþyngst kerjaframleiðslan," segir Stein- þór. í 4000 fm. húsnæði Árið 1986 byggði Sæplast 600 fm. verksmiðjuhúsnæði á Dalvík en starax árið á eftir var það stækkað um 700 fm. og ný véla- samstæða keypt. Árið 1997 varð enn frekari stækkun eða um 1500 fm. í viðbót og þá var keypt ný hverfisteypusamstæða. Með því var afkastageta verk- smiðjunnar tvöfölduð og í dag er Sæplast í um 4000 fm. verk- smiðju- og skrifstofuhúsnæði. „I nóvember 1996 stofnuðum við fyrirtæki á Indlandi sem heitir Sæplast India. Pvt.Ltd., og er það í borg sem heitir Ahamadabad í Gujarat íylki á Indlandi, en þar framleiðum við plastker sambærileg þeim sem við framleiðum hér á Dalvík," segir Steinþór. „Þetta æxlaðist þannig að við höfðum verið að flvtja vörur inn á Asíumarkað og sáum okkur sóknarfæri þar. Launakostnaður er fremur lítill og rekstrarað- Steinþór Ólafsson forstjóri Sæplasts á Dalvík. stæður góðar á Indlandi en við höfum farið hægt að af stað og ætlum okkur að Iæra að vinna með þessum aðilum og kanna hvernig umhverfið er,“ segir Steinþór. Næst til Kanada í maí 1999 ke>pi fyrirtækið verksmiðju í eigu Dynoplast í St. John í New Brunswick í Kanada. Þetta er hverfisteypu- „Á sama tíma keyptum við verksmiðju í Salangen í Norður- Noregi af þessu samafyrirtæki en það er í svipaðri framleiðslu og við hér á Dalvík. I desember 1999 keyptum við annað félag í Álasundi í Noregi en það er verksmiðja sem framleiðir vöiur úr plasti með ýmsum aðferðum svo sem flotbelgi, björgunar- hringi, fríholt og fjölmargar aðr- utan við Álasund. Sú verksmiðja framleiddi sambærilegar vörur og var að vinna á svipuðum mörkuðum og Sæplast hefur verið á. Nú hefur sá rekstur ver- ið færður til annarra fyrirtækja Sæplasts í Noregi og hefur verksmiðjunni verið lokað. Oll- um sem störfuðu við verksmiðj- una var boðin vinna annars staðar en fáir þáðu. Tilgamans má getaþessað af 2 milljarða króna tekjum má reikna með aðum7% verði til áíslandi en93%íöðrum löndum en þótelj- um við okkurís- lensktfyrírtæki,“ segir Steinþór Ólafsson / dag er Sæplast í um 4000 fm. verksmiðju- og skrifstofuhúsnæði á Daivík. verksmiðja sem er að framleiða fjölbreyttar vörur úr plasti með megináherslu á einangruð ker og plastbretti fyrir fisk og annan matvælaiðnað. Meðal annarra afurða verskmiðjunnar má nefna sérstaka palla fyrir flugvélar, frystigáma fyrir kjúklingaiðnað- inn, ýmsar kerrur og vagna til nota í matvælaiðnaði, flotbryggj- ur, vatnstanka og margt fleira. ar vörur sem tengjast sjávarút- vegi og siglingum. Þessi verk- smiðja er heldur stærri en sú- verksmiðja sem er hér á Dalvík," segir Steinþór Ólafsson. Veltan tveir milljarðar Ekki var látið þar við sitja því í mars keypti Sæplast þriðja félag- ið í Noregi, Nordic Supply Containers sem er í Skodje, rétt „Þann 1. júlí sl. keyptum við félag í Vestmannaeyjum, Atlant- ic Island ehf. en það hefur verið í framleiðslu á kúlurn og hefur verið á svipuðum mörkuðum og við. Síðan höfum við verið að vinna að sameiningu þessara tveggja félaga, Sæplasts og Atl- antic Island. í dag hefur fyrir- tækið um það bil 250 starfs- menn i þremur heimsálfum, Ameríku, Evrópu og Asi'u og rek- ur fimm verksmiðjur. Veltan á árinu 2000 er áætluð um tveir milljarðar og er það talsverð aukning frá fyrsta árinu þegar veltan var 1 5 milljónir króna og starfsmenn 15 að tölu." Mörg tækifæri eftir „Við erum einn af stærri \innu- veitendum á Dalvík, með um 40 starfsmenn og má segja aö þar sé kjarnamannskapur á ferðinni sem staðið hefur vel á bak við þessu miklu breytingar sem við erum búnir að fara í gegnum og ekki er enn lokið. Þessa dagana erum við aö einbeita okkur ða því að ná tökum á rekstrinum og höfum sett stefnuna á að vaxa enn frekar í þessum geira. Við erum að sjá ýmsa möguleika í framtíðinni til aðhagræða í rekstrinum því við erum ekki búnir að, langt því frá. Hingað til höfum við verið að eiga við þau vandamál sem upp hafa komið við að ná utanum allan þenna rekstur og er í mörg horn að líta í því sambandi. Það skap- ast ýmis tækifæri með að milli- færa þær vörur sem við fram- leiðum á milli heimsálfa og ýms- ar staðbundnar þarfir sem við sáum ekki áður eru nú að koma í ljós þegar við erum komnir svona nær mörkuðunum. Við erum einnig að gera okkur sýni- legri á þessum markaði og erum komnir með fleiri stoðir undir reksturinn og getum farið að framleiða ýmsar aðrar vörur fyrir matvælaiðnaðinn en þar njótum við m.a. reynslu frá verkmsmiðj- unni í Kanada," segir Steinþór. Aðeins 7% veltiumar íslensk „Til gamans má geta þess að af 2 milljarða króna tekjum má reikna með að um 7% verði til á lslandi en 93% í öðrum lönduni en þó teljum við okkur íslenskt fvrirtæki og raunar vera að ná þessum markmiðum okkar fyrst og fremst vegna þess að við lifum í krölu- hörðu samfélagi og erum í sam- bandi við kaupendur hér á landi sem \'ita hvað þeir \ilja og gjör- þekkja sjávarútveginnn. Þessi ís- Ienski markaður er okkur því mik- ilvægur og ekki síst vegna þess að fslenskur sjávarútvegur er þekktur að gæðum. Við finnum f\'rir því að gott er að vera nálægt viðskiptavininum hvar sem hann er í heiminum og því er hggkvæmt fyrir okl<ur að vera í þessum þremur heimsálf- um.En þó svo f\TÍrtækið hafí vax- ið svo á þessum fáu árum er ánægjulegt að geta þess að starfs- menn og yfirmenn hafa náð að halda mjög vel utan um starfsem- ina og þó þeir hafi ekki verið van- ir því að vinna í öðrum löndum þá hefur það gengið vel að inn- vikla okkur inn í þessa starfsemi alla, hvar sem hún hefur verið og viö höfum náð góðu samstarfi við erlenda starfsmenn okkar hvort heldur það er í Canada, Noregi eða á Indjandi," segir Steinþór Ólafsson framkvæmdastjóri Sæplasts. -VS

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.