Dagur - 19.01.2001, Blaðsíða 10

Dagur - 19.01.2001, Blaðsíða 10
I 10 - FÖSTUDAGUR 19. JANÚAR 2001 AKUREYRI NORDURLAND Menningarstefha Akureyrarbæjar „Markmið Amtsbókasafnsins er að efla lýðræði, jafnrétti, athafnafrelsi og vel- ferð borgaranna. Þjónusta safnsins skal ná til þeirra allra, án tillits til aidurs, kyns, kynþáttar, stjórnmálaskoðana, trúar, þjóðernis eða þjóðfélagsstöðu," segir m.a. I menningarstefnu Akureyrarbæjar. Akureyrarbærsam- þykkti á dögunum sér- staka meningaryfirlýs- ingu sem unnin varupp afstaifsmönnum bæjar- ins og menningarmála- nefnd. Þessi menning- arstefna erafrakstur mikillarvinnu oghana berað skoða sem stefnu- yfirlýsingu bæjarstjóm- arinnaríþessum viða- mikla málaflokki. Yfir- lýsinginferhér á eftirí heildsinni. 1.1 Bæjarstjórn Akureyrar vill stuðla að öflugu og frjóu lista- og menningarlífi á Akureyri í sam- starfi við aðra opinbera aðila, frjáls félagasamtök og einstak- linga. Menning og listir auðga líf einstaklinganna og hafa mikla þýðingu fyrir velferð þeirra og samfélagsins í heild. Það eru sjálfsögð mannréttindi að fólk eigi þess kost að njóta lista- og menn- ingarstarfs og æskilegt að sem flestir séu þátttakendur á þeim vettvangi. Markmið menningar- stefnu Akureyrarbæjar er því að skapa sem best skilyrði fyrir varð- veislu, ræktun og miðlun hins sameiginlega menningararfs okk- ar og tryggja eftir föngum að allir geti notið menningarlífs. Enn- fremur að búa í haginn fyrir skap- andi, lifandi listastarfsemi og stuðla að sem almennastri þátt- töku íbúanna á því sviði. 1.2 Bæjarstjórn Akureyrar telur að í samfélagi örra breytinga sé enn mikilvægara en áður að leggja rækt við sköpunargáfu mannsins til þess að einstakling- um og samfélögum takist að að- laga sig síbreytilegum aðstæðum á jákvæðan hátt. Listir og menn- ing eru fyrst og fremst eftirsókn- arverð sjálfra sín vegna en tengj- ast þó með órjúfanlegum hætti öðrum sviðum mannlífsins. Þótt ekki sé hægt að kenna frumleika í hugsun er hægt að hlúa að ný- sköpun á margan hátt. I listum af öllu tagi birtist sköpunargáfa mannsins í skýrastri mynd enda er aðal þeirra að fólk glímir við veruleika sinn og tjáir með ný- stárlegum hætti. Sköpunargáfa þarf umhverfi sem örvar sjálfs- tjáningu og könnun. Þess vegna þer að styrkja skólastarf sem ýtir undir og hvetur til fijórra sam- skipta milli lista og menningar og þróunar og nýtingar á margvís- legri nýrri tækni. Sterk rök eru fyrir því að samtenging lista- og atvinnulífs geti haft mikla efna- hagslega þýðingu á nýrri öld. Því er nauðsynlegt að sem flestir eigi kost á sem fjölbreytilegustu námi í Iistgreinum á öllum skólastig- um. Mjög mikilvægt er að fastri skipan verði komið á listnám á háskólastigi á Akureyri. 1.3 Bæjarstjóm Akureyrar legg- ur höfuðáherslu á að öflugt menningarlíf er ein frumforsenda þess að landsbyggðin geti haldið sfnum hlut í þeirri óhjákvæmilegu samkeppni sem ríkir milli land- svæða um fólk og fyrirtæki. Mikill ójöfnuður í ríkisútgjöldum til menningarmála milli landsbyggð- ar og höfuðborgarsvæðis skekkir samkeppnisstöðu landsbyggðar- innar í þessu efni með óviðunandi hætti. Það er því ófrávíkjanleg krafa að hlutur Akureyrar sem höfuðmótvægis Stór-Reykjavíkur- svæðisins á landsbyggðinni verði stóraukinn í fjárframlögum til menningarmála og verði í meira hlutfallslegu samræmi við íbúa- fjöldann á svæðinu. Þess vegna er mikilvægt að unnið verði áfram að gerð heildarsamnings um sam- starf Akureyrarbæjar og nkisins um menningarmál sem taki mið af þessum forsendum. 1.4 Bæjarstjórn Akureyrar vill að þær lista- og menningarstofn- anir sem Akureyrarbær rekur eða á aðild að tengist samfélaginu á eins frjóan og Ijölbreytilegan hátt og unnt er og setji sér það mark- mið að starfsemi þeirra nái til sem flestra. Sérstakt átak verði gert til þess að veita þjónustu og örva til samstarfs þjóðfélagshópa sem á sumum sviðum hafa verið afskipt- ir í menningarstarfi. Ennfremur er mikilvægt að menningarstofn- anir auki samstarf og samráð sfn á milli til þess að gera þessi mark- mið að veruleika. Stuðla ber að sem bestu samstarfi við aðrar lista- og menningarstofnanir hér á landi og erlendis. Sérstaklega er mikilvægt að efla tengsl við ná- grannasveitarfélög Akureyrar á menningarsviðinu til hagsbóta fyrir íbúa svæðisins. 1.5 Bæjarstjórn Akureyrar vill að þær lista- og menningarstofn- anir sem Akureyrarbær rekur eða á aðild að njóti eins mikils sjálf- stæðis í störfum sínum og kostur er innan þeirra starfsáætlana og fjárhagsramma sem þeim er sett- ur hverju sinni. Skipulag innra starfs menningarstofnana er ein- göngu á verksviði stjórnenda þeirra og starfsmanna og þeir eiga að setja stofnunum sfnum skýr markmið í samræmi við þau verk- efni sem þeim er ætlað að sinna og samkvæmt menningarstefnu bæjarstjórnar Akureyrar. Menn- ingarstofnanir eiga hver á sínu sviði að móta aðferðir til að meta árangur starfs síns og gæði þeirrar þjónustu sem þær veita. 1.6 Bæjarstjórn Akureyrar mun leitast við að styðja og efla lista- og menningarstarf frjálsra félaga- samtaka og einstaklinga með styrkjum úr Menningarsjóði Akur- eyrar og Húsverndarsjóði Akur- eyrar, samkvæmt almennum regl- um þar um. Æskilegt er að gera samninga við einstök félög um til- tekin verkefni með það að mark- miði að stuðla að sem fjölbreytta- stri þátttöku almennings um framkvæmd ýmissa menningar- mála. Efla ber eftir því sem kostur er staðbundna fjölmiðla sem gegna veigamiklu hlutverki fyrir lýðræðislega skoðanamyndun og efla staðarvitund og samkennd íbúanna. I samræmi við menning- arstefnu bæjarstjórnar Akureyrar ber menningarstofnunum bæjar- ins að vinna að eftirfarandi meg- inmarkmiðum: Amtsbókasafnið á Akureyri 1.1 Markmið Amtsbókasafnsins er að efla lýðræði, jafnrétti, at- hafnafrelsi og velferð borgaranna. Þjónusta safnsins skal ná til þeirra allra, án tillits til aldurs, kyns, kynþáttar, stjórnmálaskoð- ana, trúar, þjóðernis eða þjóðfé- lagsstöðu 1.2 Markmið Amtsbókasafns- ins er að auðga skilning á ís- lenskri tungu, bókmenntum og menningararfi, hvetja til lesturs, styðja nám og símenntun. 1.3 Markmið Amtsbókasafns- ins er að jafha aðgang að upplýs- ingum, þekkingu og afþreyingu og koma þar með í veg fyrir ójöfn- uð meðal borgaranna. 2. Héraðsskjalasafnið áAkureyri 2.1 Héraðsskjalasafnið á Akureyri stuðlar að varðveislu þess menn- ingararfs, sem fólginn er í skjöl- um og gögnum um sögu héraðs- ins. Stefha safnsins er söfnun og varðveisla skjala og annarra skráðra heimilda héraðssögunnar til notkunar fyrir stjórnendur, stofnanir og einstaklinga. Héraðs- skjalasafnið á Akureyri er undir forystu Þjóðskjalasafns Islands einn hlekkur í keðju héraðsskjala- safna umhverfis landið. 2.2 Stefna safnsins er að öll skjöl sem náð hafa 30 ára aldri og eiga skv. Iögum að koma á safnið séu þar aðgengileg, þ.e. tölvu- skráð og frágengin í viðeigandi umbúðir. 2.3 Safnið skal vera miðstöð rannsókna og vísinda í sagnfræði, þjóðfélagsfræði, ættfræði o.fl. sííkum greinum, jafnframt því að vera sá staður þar sem almenn- ingur getur sinnt sínum áhuga- málum og notið þess að lesa og fræðast um fyrri tíma. Stefna safnsins er að veita skjóta og góða þjónustu. Þjónustan skal ná jafnt til allra, án tillits til aldurs, kyns, kynþáttar, stjórnmálaskoðana, trúar, þjóðemis eða þjóðfélags- stöðu. Safnið hafi opinn lestrarsal fyrir safngesti og upplýsingar um safnkost séu aðgengilegar not- endum og stefnt að því að koma þeim í sameiginlegan gagnagrunn skjalasafna í landinu. 3. Hús skáldsins 3.1 Markmið „Húss skáldsins: Sigurhæða-Davíðshúss" er að efla íslenska orðlist á allan hátt og styrkja þannig sjálfsvitund fólks og samfélags. 3.2 Þessu markmiði leitist stofnunin við að ná meðal annars með því að greiða orðlistarmönn- um leið til skapandi starfs með vel búinni starfsaðstöðu, næði og vekjandi umhverfi og með því að koma verkum þeirra á framfæri við almenning. Einnig með því að auðvelda almenningi að njóta orðlistar, fornrar og nýrrar og að halda á lofti verkum og minningu góðskálda með sýningum, dag- skrám, námskeiðum, fyrirlestrum og öðru fræðslustarfi og hvers konar kynningum. 4. Leikfélag Akuxeyrar 4.1 Leikfélag Akureyrar stefnir að því að bjóða áhorfendum sínum upp á fjölbreytta, metnaðarfulla og vandaða dagskrá og fjölga verkefnum á næstu leikárum. 4.2 Stefnt er að því að koma betur til móts við áhorfendur, m.a. með því að bjóða ferða-leik- sýningar sem hægt er að koma með og setja upp í skólum, sam- komuhúsum og íþróttahúsum á öllu Norðurlandi. 4.3 Með samvinnu við öflug at- vinnuleikhús í Reykjavík um upp- setningu á verkefnum er mein- ingin að ná fram verulegri hag- kvæmni í rekstri og lækka umtals- vert uppsetningarkostnað. Einnig auka fjölbreytni í verkefnavali og ná að bjóða áhorfendum á Akur- eyri og Norðurlandi að kynnast á sviði mun fleiri listamönnum en annars væri unnt. 5. Listasafnið á Akureyri 5.1 Stefna Listasafnsins á Akur- eyri er að fylgjast með nýjungum í listaheiminum og kynna þær fyrir sýningargestum. Fjölbreytni er lykilorð til að laða að ólíka gesti. Listasafnið á að vera miðpunktur og sameiningartákn Listamið- stöðvar í Grófargili. Það á að sinna fjölþættu hlutverki, m.a. hafa umsjón með listaverkasafni Akureyrarbæjar, sjá um skráningu á því, viðhaldi og nýjum innkaup- um. Safnið mun leitast við að setja upp árlega nokkrar metnað- arfullar sýningar til að efla menn- ingarlíf bæjarins, auka við þekk- ingu og efla skilning á sjónlistum. Listasafnið leggur áherslu á fjöl- breytni sýninga þar sem jafnt er- lend sem innlend myndlist er kynnt. 5.2 Stefna Listasafnsins er að bjóða grunn- og framhaldsskóla- nemendum safnfræðslu um sýn- ingar. Listasafnið leggur áherslu á að virkja sem flesta til þátttöku, að fræða almenning um sjónlistir og efla umræðu um samfélagið, menningu og listir þar sem safn- kennsla og fyrirlestrahald skipar stóran sess. 5.3 Listasafnið á Akureyri veitir þjónustu við bæjarbúa og lista- menn. Með samstarfi við inn- lenda sem og erlenda aðila á ýms- um vettvangi sjónlista er hægt að ná til breiðari hóps. 6. Minjasafnið á Akureyri 6.1 Markmið Minjasafnsins er að safna, varðveita og rannsaka menningarsögulegar minjar, eink- um þær sem eru lýsandi fyrir dag- legt líf og átvinnuvegi í Eyjafirði. Safninu ber í sýningum sínum að gefa góða innsýn í sögu og menn- ingu héraðsins, og skal það veita almenningi og nemendum skóla í héraðinu fræðslu. 6.2 Með starfi sínu leitast Minjasafnið á Akureyri við að auka þekkingu íbúa í Eyjafirði á sögu þeirra og uppruna. Minja- safnið stuðlar að því að gera Eyja- Ijörð eftirsóknarverðan til búsetu og fyrir ferðamenn. 6.3 Minjasafnið starfar eftir þjóðminjalögum no 88/1989. Það er varanleg stofnun, opin öllum almenningi, sem ekki er rekin í hagnaðarskyni heldur í þágu þjóðfélags og framþróunar, stofn- un sem safnar áþreifanlegum heimildum um manninn og um- hverfi hans, verndar þær, stuðlar að rannsóknum á þeim, miðlar upplýsingum um þær og hefur þær til sýnis. 7. Sinfóníuhljómsveit Norðurlands 7.1 Sinfóníuhljómsveit Norður- lands stefnir að því, áfram sem hingað til, að bjóða áheyrendum sínum um allt Norðurland upp á fjölbreytta, metnaðarfulla og vandaða tónleika. 7.2 A næstu árum er stefnt að því að fjölga hljómsveitartónleik- um, kammer- og skólatónleikum og bjóða upp á tónleika á fleiri stöðum á Norðurlandi en verið hefur. 7.3 Stefnt verður að því að auka fjölbreytni í starfi hljóm- sveitarinnar með auknu samstarfi við aðra aðila, m.a. um flutning á óperutónlist. Húsvemdarsjóður Akureyrar Tilgangur sjóðsins er að vinna að verndun húsa innan lögsagnar- umdæmis Akureyrar, m.a. með því að stuðla að varðveislu þeirra með viðurkenningum og/eða framlögum eftir nánari ákvörðun sjóðsstjórnar. Menuingarsj óður Akureyrar Hlutverk sjóðsins er að að styðja listastarfsemi og aðra menningar- starfsemi á Akureyri með því að veita styrki til félaga, stofnana og einstakra listamanna og fræði- manna vegna verkefna á lista- og menningarsviði eftir nánari ákvörðun sjóðsstjórnar.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.