Dagur - 01.02.2001, Qupperneq 4
4 — FIMMTVDAGUR 1. FEBRÚAR 2001
FRÉTTIR
Einu matvöruverslun Bakkafjarðar, Lóninu, var lokað í gær. Miki! óánægja er meðal heimamanna. - mynd: sbs
Neyðarástand
á Éakkafirði
segir oddvitinn, en vill ekki rökstyðja þau
ummæli sín frekar.
Fólksllótti?
35 km eru til Vopnaljarðar og Einar seg-
ir að oft sé þannig ástatt á vetrum að ill-
fært sé milli staða. Sú skelfilega stað-
reynd sé fyrir hendi að aðfangalaust gæti
orðið dögum saman á Bakkafirði. Sam-
kvæmt könnunum leggja Islendingar æ
meira upp úr góðri og aðgengilegri þjón-
ustu og á það ekki síst við um verslanir. I
ljósi þessa má spyrja hvort heimamenn
muni ekki hreinlega gefast upp á stöð-
unni og hugsa sér til hreyfingsr
„Eg er voðalega hræddur um það jú,
því verslun er náttúrlega frumsldlyrði fyr-
ir byggð,“ svarar Einar. Ennfremur er
óljóst með bensínafgreiðslu í þorpinu.
Oh'ufélagið hyggst hafa opið einn til tvo
klukkutíma á dag næstu daga en enginn
veit hvort það verður til frambúðar.
Einar segir að íbúar Bakkafjarðar hafi
ekki trúað því að þessi staða gæti komið
upp en nú blasi alvara málsins við. Hann
segir athugandi að haldinn verði borgara-
fundur um málið, enda þurfi að bregðast
við stöðunni. — bþ
KEA og verslimaradilax á
Þórshöfn hafa skUið eftir
sig sviðna jörð á Bakkaiirði
að mati oddvita. Hungur
kann að hlasa við þorpshú-
um eftir að einu inatvöru
verslun þorpsins hefur ver-
ið lokað.
Einar Hilmarsson, oddviti Skeggjastaða-
hrepps, er harðorður gagnvart verslunar-
aðilum á Þórshöfn og Kaupfélagi Eyfirð-
inga á Akureyri. I gærkvöld var Lóninu
lokað, einu matvöruversluninni á Bakka-
firði, en þar búa um 1 50 manns. Oddvit-
inn telur að þorpsbúar muni að óbrevttu
kunna að líða sult vegna ástandsins.
Hann óttast að fólk muni nevðast til að
flytja á brott.
Á síóasta söludegi
„Við erum á síðasta siiludegi og sjáum
fram á neyðarástand í neyslulegu tilliti,"
sagði Einar í gær og var afar þungt í hon-
um hijóðið. A fjórða tug kílómetra þarf
að fara í næstu matvörubúð sem er á
Vopnafirði og þótt litlu Iengra sé til Þórs-
hafnar hafa menn lítinn áhuga á slíkum
ferðum. „Það er alveg Ijóst að heima-
menn munu ekki sækja þjónustu á Þórs-
höfn,“ segir Einar og og eru fyrir því póli-
tískar ástæður.
Gífurleg óánægja
Upphaf þeirrar sögu má rekja til gjald-
þrots Kaupfélag Langnesinga heitins. Fé-
lagið var áður með útibú á Bakkafirði en
í kjölfar gjaldþrots var stofnað almenn-
ingshlutafélag með ráðandi aðild Þórs-
hafnarbúa utan um verslunina. Bakkfirð-
ingar fengu áfram útibú, enda lögðu þeir
sitt af mörkum að sögn oddvitans en enn
komu upp erfiðleikar og greiðslustöðvun
og þá dró tið tíðinda. „Það cr gífurleg óá-
nægja hér með framgöngu stjórnar á
Þórshöfn. Mér finnst skítt að lyrsta
ákvörðunin sem tekin var eftir greiðslu-
stöðvunina skyldi vera að loka útibúinu á
Bakkafirði. Það er alveg Ijóst að hvaða
leiðir sem menn kunna að finna þá verða
þau skref ckki stigin í „paróli" með Þórs-
höfn en fyrst og fremst er þessi þróun þó
KEA að kenna. KEA er að drepa allt
hérna eins og alls staðar annars staðar,"
Sveinn Andri.
Pólitískir refir telja sig
vita aUt um þaó hver sé
fléttan varðandi skipan
næsta hæstaréttardómara,
en þar vakti að sjálfsögðu
mesta athygli að Ingibjörg Rafnar, sendiráðsfrú í
London, var meðal umsækjenda. Einn þcirra sem
þckkir vcl til innanbúðar í Sjálfstæöisflokknum
spáði því í heita pottinum að Ingibjörg myndi að
sjálfsögðu hneppa Imossið - hún liefði ckki sótt um
neina hafa vissu fyrir því. Ef til þess kemur þá mun
hún flytja Þorstcin Pálsson með sér hehn (il Jslands
á ný. og magnast þá á ný kjaftasögur um að hans
bíði ritstjórastóll á Morgunblaðinu...
Svehm Andri Sveinsson, lögmað-
ur í Reykjavík og íyrrum borgara-
fulltrúi Sjálfstæðisflokks, var í
viðtali á Rás 2 í fyrradag. Þar
varði Sveinn Andri Hæstarétt
eins og aðrir góðir og gegnir sjálf-
stæðismenn undanfarið en cinn-
ig féllu ummæU scm pottvcrjar
telja óheppileg fvrir löginannhm. Sveinn sagði
nefnilega aó það væru „billcgir" stjómmálamenn
sem licfðu gagmýnt Hæstarétt undanfariö og með
því þykir pottverjum sem foringinn Davíö, hafl ver-
iö verðfelldur af eigin manni. Varla eru menn strax
húnir að glcyma fyrri ádrepmn forsætisráðherrans
á þcnnan æðsta dómstól landsins...
Hcrmt er að fyrir skemmstu hafl íslensk kona verið
gestkomaudi í Kaupmannahöfn og lent i samkvæmi
með hehnamönnum. Þar voru m.a. homir sarnari
siðir hvers lands og einhverra hluta vegna ákvaö
konan að tjá sig um íslenska bolludaginn. Hún var
hins vegar ekki allt of sleip í dönskunni og ákvað að
þýða orðiö bara beint, þ.e.a.s fabúlera fram og afíur
uin den islandske bolledag. Danina setti liljóða en
gainanið kárnaði fyrst fyrir alvöru þegar konan
hyrjaði að lýsa því hvemig dagurinn byrjaði á þvi að
bömin „bollede forældrene“ áður en þeir kæmust
úr rúminu og svo bollcde foreldrarnir börnin og
maöur ætti að reyna að geta scin oftast - þctta væri
svo svakalega skeinmtilegt. Konan mun hafa verið
mjög hrifhi af því hve Danimir sýndu sögunni
inikla athygli en þaö var ekki fyrr en nokkrum dög-
um síðar sem einhver upplýsti hvað sögnin „bolle“
þýddi á dönsku. Hermt er að konan liafl látið lítið
fara fyrirsér síðan...
Gudmundur
Bjarnason
framkvæmdastjóriíbúðalánasjóðs
Þráttfyrir spamadaráæilanir
fór rekstrarkostnaöuríbúða-
lánasjóðs 10% fram úrfjár-
lögum. Næstu nýjungamar
em rafræn húsbréf, sem verða
því ekki lengurbréf, og nýtt
síma- ogþjónustuver, sem
verðuropnað á Sauðárrkóki
meðvorinu.
Þjónustuver opnað á
- Af hverju stóðusl ekki spcimaðaráætlanir uninni í betra umhverfi og gera hana þannig
Ibúðalánasjóðs? aðgengilegri og þjónustuvænni, en hún var
„Það er rétt að við fórum 10% fram yfir Ijár-
lög, eða um 60 m.kr. Eigi að síður vorum við
með raunlækkun frá árinu áður. En væntingar
okkar um að árið 2000 mundi draga úr þeirri
gífurlegu spennu sem var árinu áður, og þar
með kostnaði, gengu ekki eftir. Spennan hélst
nánast út allt árið 2000. Þar á ofan fengum við
á okkur háa ófyrirséða kostnaðarliði, eins og
60% hækkun bankanna á millibankagjöldum,
úr 47 í 75 kr., sem við ráðum ekkert við, en
þetta kostaði okkur 21,4 viðbótarmilljónir á ár-
inu. Póstburðargjöld hækkuðu líka verulega
umfram verðlag, eða um 3,6 milljónir frá áætl-
un. Þessir tveir stóru óvæntu liöir slaga því
hátt í helming umframkostnaðarins."
- Átti ekki m.a. að spara með sölti á hús-
ttæði sjóðsins ogflutningi i leigti í Borgartún-
ittit?
„Það var nú kannski ekki meginprinsipp
þeirra flutninga. Frentur sú röksemdafærsla,
að ríldsstofnanir eigi ekki standa í húsnæðis-
rekstri heldur Ieigja sér húsnæði, sem geti m.a.
dregið úr viðhaldskostnaði og ýmsum öðrum
kostnaði. Ég er sammála þessu viðhorfi. En við
vorum einnig mcð það í huga að koma stofn-
áður á 3. og 4. hæð.“ Breyting á húsnæði er
heldur ekki stóra talan í þessu, nema að það að
flytja kostar auðvitað sitt.“
- Á utnrædd hagræðingin þá eftir að nást
einhvem tíma?
„Eg tel að það eigi eftir að sýna sig að við
erum að búa til einfaldara og skilvirkara kerfi,
m.a. með aukinni upplýsingatækni. Til að
bvrja með kostar tölvuvæðingin peninga, þó
hún eigi síðan eltir að spara til lengri tíma."
- Hver er húsaleigan?
„Það er misjafnt. Jarðhæðin er dýrust, 1.265
kr./m2 á mánuði, efri hæðirnar ódýrari, eða
um 960 kr./m2 og geymsiurnar ódýrastar um
800 kr./m2.
- Hefur flutningur innheimtunnar til
Sauðárkróks þá skilað því settt að var stefnt?
„Skuldabréfin eru á Sauðárkróki og öll um-
sýsla um þau, m.a. útsending greiðsluáskorana
og beiðnir um nauðungarsölur og fleira, sem
allt hefur gengið samkvæmt væntingum. Við
höfum heldur verið að st\Tkja starfsemina þar
og vonurn t.d. að við getum opnað sérstakt
síma- og þjónustuver á Sauðárkróki núna á
vormánuðum. En þurfi að innheimta með
Króknum
uppboðum er það lögfræðideildin hér, 3 inn-
heimtulögfræðingar, sein sem annast það. Uti
á landi höfum við samið við lögfræðinga að
annast þetta fyrir okkur, en þar var þessi þjón-
usta boðin út.“
- Eru vanskil að aukast?
„Ég hef ekki tölur yfir það, en lögfræðing-
arnir segja mér að eitthvað meira sé um upp-
boðsbeiðnir núna í janúar, en mikið al þeim er
líka afturkallað. Og uppboöin eru ekki að okk-
ar óskum - |)ví skil við Ibúðalánasjóð erum
mög góð - heldur vegna annarra vanskila íbúð-
areigenda."
- Fleiri breytingar framundan?
„Þær stærstu eru rafræn skráning allra hús-
bréfa, svo þau verða ekki lengur í pappírs-
forini, sem við tökum upp núna í febrúar eða
mars. Þetta einfaldar öll samskipti við við-
skiptavini. I stað allra þessara pappírsskipta fá
þeir |)á bara tilkynningu um að þeir eigi and-
virði húsbréfanna inni á reikningi sínum hjá
Verðbréfaskráningu íslands. Þetta mun draga
mjög úr þörf fólks að koma hingað í afgreiðsl-
una. Auðvitað kemur fólk líka mikið hingað til
að spyrjast fyrir og afla sér gagna, en mörg
þeirra mun það líka gcta aflað sér á netinu
framvegis. — HEI
*