Dagur - 01.02.2001, Blaðsíða 5

Dagur - 01.02.2001, Blaðsíða 5
FIMMTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2001 - S Guðni hefði gefið rauttljósí aag Guðni Agústsson land- búnaðarráðherra segir að miðað við hvemig kúariðumál hafa þró- ast í heiminu að und- anfömu hefði hanii eldd veitt leyfi til inn- flutnings norskra fósturvísa í dag. Á fréttamanafundi sem Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra boðaði til í gær vegna kjötinn- flutnings og kúariðu, barst að sjálfsögðu innflutningur á norsk- um fósturvísum í tal og var Guðni spurður út í það mál. Sumir vísindamenn segja að kúariða berist með blóði kúnna og því geti fósturvísar borið með sér kúariðu. Guðni sagði að vissulega væri þessi kenning um- deild og vísindamenn væru þar ekki sammála. Frá blaðamannafundi landbúnaðarráðherra í gær. „En miðað við allt það sem gengið hefur á í heiminum varð- andi kúariðu og kúariðusmit að undanförnu og hefði ég setið enn með máli með kúariðu komna í þann farveg sem hún nú er í um allan heim, þá hefði ég sofið áfram undir feldinum. Eg hefði ekki veitt kúabændum leyfið,“ sagði Guðni Ágústsson í gær. Bændur endurskoói málið Guðni sagðist hafa legið lengur undir feldi en nokkur annar mað- ur áður en hann ákvað að gefa bændum leyfi til örlítillar tilraun- ar með norska fósturvísa. Hann sagði þá nú hafa heimild frá sér, sem væri stjórnsýsluaðgerð og ekki auðhlaupið að því að aftur- kalla það. „Auðvitað þurfa bændur, alveg eins og ég, miðað við breytta stöðu í þjóðfélaginu og þær áhyggjur sem almenningur hefur, að meta sína stöðu hvað þessa fósturvísa varðar. Eg á von á því að bændurnir sjálfir, sem finna núna þjóðina að baki sér, vilji og muni endurskoða sitt mál varð- andi fósturvísana. Þeirra vegna hef ég áhyggjur af þessu rnáli," sagði Guðni. Hann sagðist ekki hafa stjórn- sýslulega heimild til að taka af þeim leyfið sem hann veitti í haust nema þá á mjög þungum forsendum. Hann sagðist ætla að biðja kúabændur að taka sfn mál til endurskoðunar hvað þetta varðar. Hann sagði að Landssam- band kúabænda væri að kalla saman fulltrúaráðsfund og framundan væri Búnaðarþing. „Bændur munu áreiðanlega hugsa þessa stöðu upp á nýtt og ég á alveg eins von á því að þeir hætti við eða fresti því að flytja inn þessa fósturvísa," sagði Guðni Ágústsson. — S.DÓR Aukin umsvif. SBA kaupir Norðurleið Sérleyfisbílar Akureyrar hafa keypt rekstur Norðurleiðar- Landleiða hf. og verður rekstur félaganna sameinaður undir merkinu SBA-Norðurleið frá og með deginum í dag. Með þessu verður til eitt af umsvifamestu fyrirtækjum hérlendis í farþega- flutningum á landi en lyrirtækið mun frá og með morgundegin- um gera út 34 langferðabifreið- ar sem samtals rúma um 1400 farþega. „Markmiðið með kaupunum er fyrst og fremst að ná fram mun betri nýtingu á mannskap, tækjum og allri fjárfestingu, jafnhliða því að öll innkaup verða hagkvæmari og fjármagns- kostnaður á að geta minnkað," segir Gunnar M. Guðmunds- son, framkvæmdastjóri Sérleyf- isbíla Akureyrar hf. Tvísýnar kosningar Atkvæðaseðiar streyma í kjörkassa grunnskólakennara, en talið verður eft/r helgina. Kjarasamningur grunnskólakennara. Um 4 þúsund á kjör- skrá. Óánægja og óör- yggi- Atkvæðagreiðslu grunnskóla- kennara um kjarasamning þeirra við Launanefnd sveitarfélaga lauk í gær og verða atkvæði talin eftir helgina. Reiknað er með mjög tvísýnum úrslitum og þá sérstaklega í ljósi þeirrar óá- nægju sem verið hefur síðustu daga hjá kennurum um einstök atriði samningsins. Um 4 þús- und kennarar og skólastjórar eru á kjörskrá. Óöryggi Guðrún Ebba Olafsdóttir, for- maður Félags grunnskólakenn- ara, vildi í gær engu spá um úr- slitin. Hún segist hinsvegar skil- ja það vel að eitthvert óöryggi sé meðal kennara vegna þeirra breytinga sem koma til fram- kvæmda á störfum kennara á næsta skólaári samkvæmt ákvæðum kjarasamningsins. Þá hefur einnig borið á því að ein- staka kennarar hafa verið tor- tryggnir í garð samningsins og þá aðallega vegna þess hversu vel gekk við gerð hans. Hún vekur hinsvegar athygli á því að þeir kennarar sem hafa verið að bera óánægju sína á torg hafi þvf miður ekki haft fyrir því að ræða málið við forystu kenn- ara. Meðal annars hafi menn ekki mætt þótt búið væri að ákveða stað og stund til að ræða málin. Verkfall í mars? Hún telur einsýnt að einhverjir úr samninganefnd félagsins muni segja af sér ef samningur- inn veröur felldur. Þá séu kenn- arar einnig komnir á byrjunarreit í sfnum samningamálum og gott betur. Ef sú staða kemur upp blasir ekkert annað við en að fara í atkvæðagreiðslu um boðun vinnustöðvunar. Það ferli tekur fimm vikur. Verði það samþykkt mundi verkfall koma til fram- kvæmda í grunnskólum landsins um miðjan næsta mánuð ef samningar hefðu ekki tekist fyrir þann tíma. — GRH Óvild Viðars Más osöimuð Hæstiréttur hafnaði í gær kröfu Jóns Steinars Gunnlaugssonar lögfræðings og bílaumboðsins Heklu, skjólstæðings hans, um að Viðar Már Matthíasson, sett- ur hæstaréttardómari, yrði látinn víkja sæti við meðferð máls gegn Heklu, sökum persónulegrar óvildar Viðars Más í garð Jóns Steinars. Hæstiréttur taldi að sögn Áslaugar Árnadóttur, skrif- stofustjóra Hæstaréttar, að þær vanhæfniskröfur sem sem born- ar voru fram væru ekki fyrir hendi, er gerðu Viðar Má óvil- hallan í garð málsaðilans. Viðar Már er meðal dómara í hæstaréttarmálinu Kristbjörn Árnason gegn Baldri Halldórs- syni og Heklu. I bréfi sem Jón Steinar sendi Hæstarétti 18.jan- úar ber hann Heklu fyrir sig í kröfunni um að Viðar Már víki. Jón Steinar rekur hvernig um- ræðan um prófessorsmálið svo- kallaða þróaðist frá Hæstarétti yfir í tjölmiðla og að ummæli hans í fjölmiðlum hafi verið kærð til siðanefndar lögfræð- inga. Þar hafi þriggja manna meirihluti sýknað hann, en tveg- gja manna minnihluti taldi að Jón Steinar hefði farið út fyrir siðferðileg mörk, en hann tók að sér að verja skjólstæðing sinn í fjölmiðlum. — FÞG Ræddu málið Fyrir hönd stjórnar Dómarafélags Islands hefur Helgi I. Jónsson, for- maður, sent blaðinu eftirfarandi athugasemd við frétt sem birtist á for- síðu blaðsinsí gær undir lyrirsögninni: „Dómarar láta Jón Steinar eiga „I fréttinni er sagt, að Dómarafélag Islands hafi íhugað aðgerðir gegn Jóni Steinari Gunnlaugsssvni hrl. vegna tilvitnunar hans í ætluð um- mæli Hrafns Bragasonar hæstaréttardómara í samtali við starfsmann nefndar sem samdi frumvarp til breytinga á almannatryggingalögum í tilefni af niðurstöðu í dómi Hæstaréttar frá 19. desember sl. í máli Or- yrkjabandalags íslands gegn Tryggingastofnun ríkisins. Til umrædds lundar hafði verið boðað fyrir helgina, en í ljósi tilvitn- unar lögmannsins í umrætt samtal í fjölmiðlum eftir fundarboð, þótti rétt að taka það mál til umfjöllunar á fundinum. Ákvað stjórnin þar, að höfðu samráði við dómarann, að aðhafast ekkert í málinu. Engar að- gerðir voru ræddar eða íhugaðar gagnvart lögmanninum. Er því rangt með farið í umræddri frétt blaðsins að þessu leyti." Athugasemd ritstjórnar: I þessari yfirlýsingu er það staðfest að stjórn Dómarafélagsins tók málið á dagskrá og ákvað „að höfðu samráði við dómarann að aðhafast ekkert í málinu." Þetta var aðalefni fréttar Dags. Nýr skólameistari við Sund Björn Bjarnason menntamálaráðherra hefur skipað Má Vilhjálmsson, sérfræðing í menntamálaráðuneytinu, í embætti skólameistara Menntaskólans við Sund til fimm ára frá 15. febrúar 2001 að telja. Fjórar umsóknir bárust um embættið sem sendar voru skólanefnd Menntaskólans við Sund til umsagnar og tillögugerðar skv. 2. mgr. 11. gr. laga um framhaldsskóla nr. 80/1996. Skólanefndin mælti í umsögn sinni til menntamálaráðherra einróma með því að Má Vilhjálmssyni yrði veitt embættið, segir í tilkynningu frá menntamálaráðaneytinu. - BÞ Ókeypis rakstur Rakarameistararnir Torfi Geirmundsson og Haraldur Davíðsson munu nk. laugardag bjóða herrum frían rakstur á Hárhorninu v/Hlemm og veita óke)y>is ráðgjöf. Takmark þeirra er að setja íslandsmet í rakstri og raka minnst 200 manns þennanlaugardag með nýrri þriggja blaða rak- vél, Gillette Mach3. Raksturinn hefst klukkan 10:00 og verður rakað þar til takmarkinu er náð, samkvæmt tilkynningu frá hagsmunaaðilum. - BÞ Hremdýradrápaxiim dæmdur Bóndinn á Jökuldal seni hreinskilnislega játaði í fyrra að hafa drepið hrcindýr í heimildarleysi hefur verið dæmdur í Héraðsdómi Auslur- lands til greiðslu 200.000 króna sektar. Hann var einnig sviptur skot- vopni sínu og var gert að greiða allan málskostnað. Bóndinn skaut tvo hreindýrstarfa á Skjöldólfsstaðaheiði í ágúst í fyrrasumar og var hann ákærður fyrir að veiða í heimildarleysi og án eftirlitsmanns og veiði- korts. - BÞ

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.