Dagur - 01.02.2001, Side 10
10- FIMMTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2001
FIMMTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2001 - 11
FRÉTTASKÝRING
Hæ stiréttur í pólitískri refskák?
FRIÐRIK ÞÓR
GUÐMIJNDS
SON
SKRIFAR
Hæstiréttíir hand-
bendi ríkisstjómar og
þingmeirihluta í
öryrkjamálinu?
Vanhæfur dómari
samþykkti bréfid og
túlkunina til þingfor-
seta. 7 Hæstaréttar-
dómarar ótvíræðir
sjálfstæðismenn, sum-
ir áður virkir í flokks-
starfinu. Iiinir 2
„hreinsaðir út“ árið
2003? Fær eiginkona
fv. dómsmálaráðherra
næsta stól?
Kröfur um uppsetningu sérstaks
stjórnlagadómstóls og um breytta
aðferð \dð skipan Hæstaréttar-
dómara gerast æ háværari í kjöl-
far öryrkjadómsins og bréfasend-
ingarmálsins. Tilfinning margra
er ótvírætt í þá átt, að forsætis-
ráðherra og ríkisstjórnin hafi,
með krókaleið um forsætisnefnd
Alþingis, gripið inn í dómsvaldið
með því að knýja fram túlkun á
öryrkjadómnum sér í vil. Allir þrfr
dómararnir sem mynduðu meiri-
hluta Hæstaréttar, sem dæmdi í
öryrkjamálinu gegn vilja ríkis-
stjórnarinnar, urðu í minnihluta á
dómarafundi, þar sem fimm
dómarar, sem flestir eða fjórir
höfðu hvergi nærri öryrkjamálinu
komið, tóku að sér að túlka nið-
urstöðu meirihlutans. Hæstirétt-
ur varð þar með bendlaður við
hápólitíska gjörninga og hefur að
margra mati vegna þess beðið
hnekki.
Af sömu sökum hafa háværar
kröfur komið upp um að dómar-
arnir sem stóðu að bréfasending-
unni verði taldir vanhæfir til að
dæma í málum er lúta að réttind-
um öryrkja og annarra sem leita
til dómstólanna með sambærileg
réttindamál. En lítum nánar á
Guðrún Erlendsdóttir:
Skipuð afJóni Helgasyni en er
fyrrum borgar- og bæjarfuiitrúi
D-iista.
vinnubrögð og innviði Hæstarétt-
ar.
Garðar dæmdí sem „vara-
maður“
Hinum 9 dómurum Hæstaréttar
er skipt í A-deild og B-deild eftir
starfsaldrí og eru þá jafnan
reynslumestu dómararnir valdir í
fimm og sjö manna dóma. Fimm
manna A-deild skipa nú í starfs-
aldursröð: Guðrún Erlendsdóttir,
Hrafn Bragason, Haraldur
Henrysson, Hjörtur Torfason og
Pétur Kr. Hafstein, en B-deild
þeir Garðar Gíslason, Markús
Sigurbjörnsson, Gunnlaugur
Claessen og nýliðinn Arni Kol-
beinsson. 1 öryrkjadóminum gerð-
ist það, að Hjörtur Torfason baðst
undan að dæma í málinu af per-
sónulegum ástæðum, en hann er
sem kunnugt er að hætta. I hans
stól settist „v'aramaðurinn" Garð-
ar Gíslason, forseti Hæstaréttar.
Því má bæta við að miðað við van-
hæfisákvæði laga hefði ekki verið
hægt að skipa sjö manna dóm
með núverandi dómurum, þar
sem Markús Sigurbjörnsson var
klárlega vanhæfur sökum tengsla
við vararíkislögmann, Guðrúnu
Margréti Arnadóttur (sem flutti
málið fyrir Tryggingastofnun) og
Gunnlaugur Claessen var sömu-
leiðis hæpinn dómari sem fyrrver-
andi ríkislögmaður. Hefðu þá
væntanlega sest í sjömanna dóm
þeir Árni Kolbcinsson nýliði og að
líkindum Viðar Már Matthíasson
prófessor - sá hinn sami og Jón
Steinar Gunnlaugsson vill burt úr
öðru máli, þar eð Viðar á að vera
haldinn persónulegri óvild í garð
Jóns Steinars.
Umrædd vanhæfisákvæði 5.
greinar Iaga um meðferð einka-
mála innihalda sjö skilyrði. Dóm-
ari, þar á meðal meðdómsmaður,
er vanhæfur til að fara með mál
ef, samkvæmt d-lið „hann er eða
hefur verið maki aðila, skyldur
eða mægður aðila í beinan legg
eða að öðrum Iið til hliðar eða
tengdur aðila með sama hætti
vegna ættleiðingar" og samkvæmt
e-lið „hann tengist eða hefur
tengst fyrirsvarsmanni eða mál-
flytjánda aðila með þeim hætti
sem segir í d-Iið". Þá má nefna
„opna" ákvæðið, g-lið, þar sem
dómari telst vanhæfur ef „fyrir
hendi cru önnur atvik eða að-
stæður sem eru fallnar til þess að
draga óhlutdrægni hans með
réttu í efa". A þessu opna ákvæði
byggir Jón Steinar kröfu sína
gagnvart Viðari Má.
Hrafn Bragason:
Kratinn sem lenti í mulningsvél
Vaihaiiar Hann hættir væntaniega
árið 2003.
Borgar- og bæjarfuUtrúi
Sj áífstæðisflokksins
Sjálfstæðisflokkurinn hefur skip-
að meirihluta núverandi hæsta-
réttardómara, eða fimm af níu,
þar af eru fjórir skipaðir af Þor-
steini Pálssyni og einn af Sól-
veigu Pétursdóttur. Þeir hafa
enda sumir verið virkir í flokks-
starfi Sjálfstæðisflokksins. I
þennan hóp má síðan flokka tvo
dómara, sem skipaðir voru af ráð-
herrum annarra flokka, en teljast
ótvírætt sjálfstæðismenn (Guð-
rún Erlendsdóttir og Hjörtur
Torfason). Einungis Haraldur
Henrysson og Hrafn Bragason
geta talist lausir við flokksstimpil-
inn frá Valhöll - og senn kemur
að útafskiptingu hjá þeim. Skoð-
um feril og stöðu núverandi
hæstaréttardómara nánar.
Guðrún Erlendsdóttir, 64 ára,
er af alþýðuættum á Suðurlandi.
Var settur Hæstaréttardómari
1982-83 og skipuð 1986 af fram-
sóknarmanninum Jóni Helgasyni.
Hún er hins vegar klárlega flokk-
uð með sjálfstæðismönnum. Var
enda varaborgarfulltrúi fyrir
Sjálfstæðisflokkinn 1962-66,
varahreppsnefndarmaður í
Garðabæ 1970-72 og hrepps-
nefndar- og bæjarfulltrúi 1972-
78, allt fvrir saina stjórnmála-
aflið. Hún rak málflutningsskrif-
stofu í Reykjavík ásamt eigin-
manni sínum, Erni Clausen hrl.
frá júní 1961 til 1978. Hún þarf
oft að íhuga vanhæfi sitt hafi eig-
inmaðurinn komið nálægt mál-
um, sem hann gerir oft í sakamál-
um. Guðrún hefur unnið að
mörgum jafnréttismálum og var
m.a. formaður Jafnréttisráðs um
skeið. Sat og í kristnihátíðar-
nefnd til að undirbúa hátíð árið
2000 í tilefni kristnitöku árið
1000. Meðal ritstarfa er „Frum-
kvæðis- og fordæmisskylda lög-
gjafans, Fjölskyldan í frjálsu sam-
félagi", útgefið af Hvöt, Lands-
sambandi sjálfstæðiskvenna. Var í
meirihluta í öryrkjadómnum og á
móti bréfasendingunni.
Kratiim og „hannibalistiiin“
Hrafn Bragason, 62 ára, er Norð-
lendingur, sonur Braga Sigur-
jónssonar |)ingmanns Alþýðu-
flokks og ráðherra. Afi hans, Sig-
urjón Friðjónsson, sat einnig á
þingi um skeið, fvrir Heima-
stjórnarílokk Hannesar Hafstein.
Hrafn vann við rannsóknir í Evr-
ópurétti og mannréttindum i'
september til nóvember 1998.
Hann var borgardómari frá 1972
Haraldur Henrysson:
„Hannibalisti" sem hafði viðkomu
í Samtökum frjálslyndra og vinstri
manna.
lagafrumvarpa, ekki síst um
skatta og kvótamál, sem kann að
þrengja nokkuð að hæfi hans.
Hann var meðal annars formaður
ráðgjafanefndar sem mótaði til-
lögur til laga um stjórn fiskveiða á
árinu 1988 og 1990.ÝÁrni er
kvæntur Sigríði Thorlacius, hdl.,
deildarstjóra hjá VIS. Samkvæmt
gagnrýnisröddum var Árni valinn
fyrst og fremst með í huga vörn
fyrir kvótakerfið og sægreifana.
Svanfríður Jónasdóttir þingmaður
segir Árna þannig sérfræðing „í
viðhorfi LIÚ til laganna um stjórn
fiskveiða". Þessi kenning líður þó
fyrir þá staðreynd að Árni er klár-
lega vanhæfur til að fjalla um
kvótalögin. Árni tók ekki þátt í ör-
yrkjadómnum, en samþykkti
bréfið.
„Hremsimin mikla“
árið 2003
Á næstunni bíður síðan Sólveigar
Pétursdóttur að skipa hæstarétt-
ardómara í stað Hjartar Torfason-
ar. Sjö sækja um stöðuna; Dögg
Pálsdóttir, Sigurður G. Guðjóns-
son, Sigríður Ingvarsdóttir og
Ingibjörg Þ. Rafnar og héraðs-
dómararnir Hjördís Björk Hákon-
ardóttir, Ingibjörg Benediktsdóttir
og Sigríður Ingvarsdóttir. Talið er
fulha'st að kona verði fvrir valinu,
vegna umdeilda valsins á Árna
síðast og vegna þess að það stytt-
ist í að Guðrún Erlendsdóttir
hættir sökum aldurs, en hún
verður 65 ára nú í maí. Freistandi
er að bóka val á Ingibjörgu Rafn-
ar, eiginkonu sjálfs Þorsteins
Pálssonar fyrrum dómsmálaráð-
herra og formanns Sjálfstæðis-
flokksins. Líklegast er þó að einn
héraðsdómaranna verði valinn,
þó ekki Hjördi's Hákonardóttir,
sem varð fyrir því „júrístíska
óláni" að flokkast með krötum,
þegar Vilmundur Gylfason
skipaði hana sýslumann árið
1980.
Næsta verk dómsmálaráðherra
Sjálfstæðisflokksins verður síðan
að finna eftirmann Guðrúnar Er-
lcndsdóttur síðar á árinu. Loks
má nefna að þingkosningaárið
2003 verða tveir dómarar 65 ára,
Haraldur Henrysson í febrúar og
Hrafn Bragáson í júní. Að líkind-
um verða báðir eftirmenn þeirra
valdir af dómsmálaráðherra Sjálf-
stæðisflokksins og má reikna með
að þær raddir ntuni heyrast að þar
með verði hvorki tangur né tetur
eftir að hæstaréttardómurum,
sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur
ekki sérstaka velþóknun á.
ús var meðal annars árið 1992
skipaður af Þorsteini í nefnd til
að gera tillögur um hvort taka
ætti Mannréttindasáttmála Evr-
ópu í lög hér á landi. Markús er
þrígiftur þrátt fyrir ungan aldur
og eru tvær síðari konur hans lög-
fræðingar, þær Guðrún Margrét
Árnadóttir vararíkislögmaður,
sem talaði máli ríkisins gegn Or-
yrkjabandalaginu, og Björg
Thorarensen, skrifstofustjóri í
dóms- og kirkjumálaráðuneytinu.
Tengdamóðir Markúsar, móðir
Bjargar, var Sigurlaug Bjarnadótt-
ir, alþingismaður Sjálfstæðis-
flokksins. Markús tók ekki þátt í
öryrkjadómnum, en samþykkti
bréfið.
Vökustaur og kvótaverji
Gunnlaugur Claessen, 54 ára, er
af frægurn ættum, faðir hans var
Haukur Arentsson Claessen vara-
flugmálastjóri og afi hans var
Arent Claessen, stórkaupmaður,
forstjóri, aðalræðismaður og for-
ystumaður í Frímúrarareglunni.
Hann er talinn gallharður sjálf-
stæðismaður. Hann var í stjórn
Vöku, félags lýðræðissinnaðra
stúdenta, 1967-68, í stjórn Sam-
taka um vestræna samvinnu
1984-86 og í stjórn Slippstöðvar-
innar á Akureyri 1975-88. Gunn-
laugur starfaði um árabil í fjár-
málaráðuneytinu og kom að
samningu fjölda lagafrumvarpa.
Hann var Ríldslögmaður frá 1984
þar til Þorsteinn Pálsson skipaði
hann dómara við Hæstarétt frá 1.
september 1994. Hann er nú for-
maður „nefndar um dómara-
störf". Gunnlaugur tók ekki þátt í
öryrkjadómnum en samþykkti
bréfasendinguna.
Árni Kolbeinsson, 53 ára, var
valinn af Sólveigu Pétursdóttur í
Hæstarétt á síðasta ári gegn há-
værum mótmælum þeirra sem
töldu minnst þrjár konur eiga
meira tilkall til stólsins. Árni hef-
ur ekkert stóreflis ættarveldi að
baki sér, en afi hans var þó út-
vegsbóndi og símstöðvarstjóri á
Hjaltevri í Eyjafirði. Árni var hins
vegar mikill námshestur og dúx-
aði á flestum sviðum. Hann var
fulltrúi í fjármálaráðuneytinu
1973-76, deildarstjóri þar frá
1977 og skrifstofustjóri frá 1984.
Hann var skipaður ráðuneytis-
stjóri í sjávarútvegsráðunevtinu
frá 1. maí 1985 og síðan ráðu-
neytisstjóri í fjármálaráðuneytinu
frá 1. janúar 1999 þar til hann
settist í Hæstarétt. Árni hefur
komið að samningu mikils fjölda
Hæstiréttur. Að drjúgum meirihluta skipaður sjálfstæðismönnum. Kratinn og Framsóknarmaðurinn verða 65 ára árið 2003, rétt fyrir væntanlegar þingkosningar og ríkisstjórnarskipti.
þar til hann var skipaður Hæsta-
réttardómari 1987 af Jóni Sig-
urðssyni og er enda talinn krati.
Var m.a. lögfræðingur Neytenda-
samtakanna, formaður Amnesty
Islandsdeildar og formaður Rétt-
arfarsnefndar um skeið. Er sá
dómaranna sem sjálfstæðismenn
herja mest á og þá væntanlega
sökum pólitísks bakgrunns. Var í
meirihluta í öryrkjadómnum og á
móti bréfasendingunni.
Haraldur Henrj'sson, 62 ára,
var skipaður hæstaréttardómari
1989 af Halldóri Ásgrímssyni og
talinn „hannibalisti". Haraldur
sat á Alþingi sem varaþingmaður
fyrir I - lista, (Hannibals Valdi-
marssonar) 1968 og fy rir Samtök
frjálslyndra og vinstri manna
1971. Sat í framkvæmdastjórn
SFV frá stofnun 1969-74. Hann
sat í pólitískt skipuðu bankaráði
Utvegsbankans 1973-76. Hefur
mikið komið að öryggismálum
sjómanna og var gerður að heið-
ursfélaga Slysavarnafélags Is-
lands 1990. Hann var fulltrúi hjá
bæjarfógetanum í Kópavogi
1964-73, en frá þeim tíma saka-
dómari í Reykjavík, þar til bann
fór í Hæstarétt.
Haraldur var í meirihluta í ör-
yrkjadómnum og á móti bréfa-
sendingunni.
Holdgervingur gömlu ættar-
veldanna
Hjörtur Torfason, 65 ára, er að
hætta og staðan hans auglýst laus
til umsóknar. Hann var skipaður
hæstaréttardómari 1990 af Ola
Þ. Guðbjartssyni, Borgaraflokki,
fyrr Sjálfstæðisflokki. Hjörtur er
sonur Torfa Hjartarsonar ríkis-
sáttasemjara, sem aftur var sonur
Hjartar Snorrasonar búnaðar-
skólastjóra og alþingismanns
SjálfstæðislJokksins eldri. Hjört-
ur hóf lögmannsstörf undir
handleiðslu Geirs Hallgrímssonar
og Eyjólfs Konráðs Jónssonar og
var um árabil lögfræðilegur ráðu-
nautur Landsxarkjunar og Rarik.
Hann var fulltrúi íslands í nefnd
Evrópuráðsins „um lýðræði með
lögum" (Feneyjanefnd). Hann var
lengi fulltrúi Sjálfstæðisflokksins
í yfirkjörstjórn Reykjavíkur. Hjört-
ur tók hvorki þátt í öryrkjadómn-
um né kom að sendingu bréfsins
umdeilda, þar sem f hans sæti
settist setudómarinn Viðar Már
Matthíasson, en sá samþykkti
bréfasendinguna.
Pétur Kr. Hafstein, 51 árs, get-
ur talist holdgervingur gömlu ætt-
arveldanna hjá „íhaldinu", sam-
bland af Hafstein og Thors. Son-
ur Jóhanns Hafsteins fyrrum for-
sætisráðherra og formanns Sjálf-
stæðisflokksins. Tengdafaðir hans
var einn af umfangsmestu apó-
tekurum landsins, Birgir Einars-
son. Pétur var formaður hægrifé-
lagsins Vöku á háskólaárunum.
Hann sat í nefnd sem samdi
frumvarp að lögum um aðskilnað
dómsvalds og umhoðsvalds í hér-
aði 1987-88. Skrifaði um hand-
hafa forsetavalds í Tímariti lög-
fræðinga 1990. Bauð sig fram til
forseta 1996 og var þá m.a.
studdur af öllum helstu forkólf-
um Sjálfstæðisflokksins en tap-
aði. Pétur var fyrsta hæstaréttar-
dómaraval Þorsteins Pálssonar
árið 1991. Pétur var í minnihluta
í öryrkjadómnum, en sýndi það
prinsipp að leggjast gegn bréfa-
sendingunni.
Ættii forsetans
Garðar Kristjánsson Gíslason,
forseti Hæstaréttar, er 58 ára
heildsalasonur og frændgarður
lians er með öflugra móti. Pabbi
hans var Kristján G. Gíslason,
bróðir Garðars G. Gíslasonar.
Systir þeirra er Margrét, kona
Halldórs 11. „Stjórnarformanns
Islands" Jónssonar heitins, þau
foreldrar Garðars Halldórssonar,
húsameistara og bræðra hans.
Ættin hefur alla tíð verið innar-
lega í valdakjarna Sjálfstæðis-
llokksins og Kolkrabbans, meðal
annars í gegnum „hermang" Sam-
einaðra verktaka og íslenskra að-
alverktaka. Garðar var í minni-
hluta í örvrkjadómnum, en samdi
svarið og samþykkti bréfasending-
una til forsætisnef ndar Alþingis.
Markús Sigurbjörnsson, 46 ára,
er sonur Sigurbjörns Þorbjörns-
sonar fyrrum ríkisskattstjóra, en
móðir hans, BettyAnn Huffman,
er dóttir ofursta í Iandher Banda-
ríkjanna. Hann er ótvírætt talinn
með sjálfstæðismönnum. Markús
var borgarfógeti 1985-92, er emb-
ættið var lagt niður. Prófessor í
lögfræði frá 1988 og skipaður
Hæstaréttardómari frá 1. júlí
1994 af Þorsteini Pálssyni. Mark-
Hjörtur Torfason:
Lengi fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í
yfirkjörstjórn Reykjavíkur og sam-
starfsmaður Geirs Hallgrímssonar.
Pétur Kr. Hafstein:
Sambland af Hafstein og Thors, for-
maður Vöku og forsetaframbjóð-
andi sem oft var tengdur Sjálfstæð-
isflokknum í kosningabaráttunni.
Garðar Kr. Gíslason:
Ætt hans hefur verið innarlega í
valdakjarna Sjálfstæðisflokksins og
„Kolkrabbans."
Markús Sigurbjörnsson:
Bullandi vanhæfur í öllu er laut að
öryrkjadóminum vegna tengsla við
vararíkislögmann.
Gunnlaugur Claessen:
Aföflugum fésýsluættum. Var I
stjórn Vöku og Samtaka um vest-
ræna samvinnu.
Árni Kolbeinsson:
Valinn afSólveigu. Kallaður „sér-
fræðingur í viðborfi LÍÚ" og
kvótaverjandi.
Ingibjörg Rafnar:
Velur Sólveig eiginkonu fyrrum
dómsmálaráðherra og formanns
Sjálfstæðisflokksins?