Dagur - 01.02.2001, Síða 17
FIMMTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2 00 1 - 17
jyagur
ERLENDAR FRÉTTIR
Gátan um Wallen-
berg enn óleyst
Leyndardómurinn um
hvarf sænska
diplómatsins Rauls
Wallenbergs er enn
eins dulaxfuQur og
hann hefur verid í rúm-
lega hálfa öld. Sameig-
inleg rannsóknamefnd
Rússa og Svía hefur
skoðað málið í níu ár
og hefur nu lokið störf-
um án þess að komast
að niðurstöðu.
Leyniþjónustumenn Stalíns hand-
tóku Wallenberg í Budapest 1945
þegar Rauði hérinn hrakti Þjóð-
verja úr borginni. Þá var hann bú-
inn að bjarga þúsundum gvðinga
frá því að lenda í gasklefum nas-
ista. Eftir að Wallenberg var hand-
tekinn var hann sendur til Rúss-
lands og hefur ekki heyrst af hon-
um síðan, svo öruggt megi telja.
Hann væri 88 ára gamall núna, ef
hann væri á lífi.
Af og til hefur komið upp kvitt-
ur um að sænski diplómatinn væri
á lífi. Fangar sem sluppu lifandi úr
gúlaginu þóttust hafa hitt hann.
En enginn hefur getað sannað
það. Þegar Sovétríkin liðu undir
lok opnuðu Rússar skjalasöfn sín
og sameiginleg rannsókn þeirra og
Svía hófst á hvarfi Wallensbergs.
Fyrir ári síðan var Svíunum hleypt
í skjalasafn Kremlar ef vera kynni
að þar fyndist eitthvað um afdrif
Wallenbergs. En gátan er enn
óráðin. Rannsóknarmenn Svía og
Rússa gátu ekki komið sér saman
um sameiginlega niðurstöðu og
skiluðu sitt hvoru álitinu um hvað
varð um Wallenberg.
Skotiim?
Rússarnir staðhæfa að Wallenberg
hafi við skotinn í höfðustöðvum
leyniþjónustunnar, Lubjankafang-
elsinu, 17. júlí 1947. Sænsku
rannsóknarmennirnir fallast ekld á
það. Ekkert dánan'ottorð finnst og
engin skjöl sem sanna meinta af-
töku. Það er ekki hægt að komast
að sannanlegri niðurstöðu um
Raoul Wallenberg. Örlög hans eru
enn leyndardómur.
Nefnd sem skipuð var
Svíiun og Rússum hafa
rannskað hvarf
diplómatsins í níu ár
án þess að komast að
niðurstöðu. Nefndin
hafði aögang að
leyniskjölum, jafnvel í
skjalasafni Kremlar.
hvað varð um Wallenberg, segja
Svíarnir.
Sænski forsætisráðherrann,
Göran Persson, segir, að á meðan
engin gögn liggja fýrir um dauða
Wallenbergs, sé ekki hægt að
ákveða að hann sé látinn.
En Vyacheslav Tuchnin, sem fór
fyrir Rússunum í rannsóknar-
nefndinni, segir engan vafa leika á
að aftakan hafi farið fram 17. júlí
1947, en þá var Wallenberg 34 ára
gamall.
Sænskir aðilar sem rannsaka
málið á eigin spýtur og fjölskylda
Wallenhergs neita að taka rússn-
esku útgáfuna gilda og segja hann
hafa verið á lífi í fangelsi allt til
1970 og jafnvel fram að níunda
áratugnúm. Þeir benda á að Rúss-
arnir hafi ekki skilað vegabréfi
Wallenbergs og persónulegúm
munum hans fyrr en 1989, og
segja að það bendi til að þá hafi
hann verið nýlátinn.
Bjargaði gyðmgum
Raoul Wallenberg byrjaði að
bjarga Gvðingum í Budapest
1944. Þar bjuggu 700 þúsund
Gyðingar og var það fjölmennasta
samfélag þeirra í E\TÓpu. Raoul
kom til borgarinnar í leynilegum
erindagerðum sem ritari sænskrar
sendinefndar. Þá voru enn um
230 þúsund Gyðingar enn á lífi.
Wallenberg dreifði sænskum vega-
bréfum til þeirra sem eftir lifðu og
er talið að allt að 20 þúsund
manns eigi honum lífa að launa.
1945 tóku Rússar borgina og
Nikolai Bulganin, þá varavarnar-
málaráðherra og síðar I orsætisráð-
herra Sovétríkjanna, Ivrirskipaöi
handtöku Wailenbergs, sem fór
fram 17. janúar og 6. febrúar var
hann í haldi í Moskvu sem stríðs-
fangi. Hann var ásakaður um
njósnir f\TÍr Breta, Bandaríkja-
menn og Þjóðverja. Engin skjöl
finnast um ákæru eða réttarhöld í
máli hans.
Eftir stríðið báðu Svíar um skýr-
ingu á hverfi Wallenbergs. I fyrstu
sögðu Rúsar að hann hafi fallið í
bardögunum um Budapest. Arið
1957 staðhæfði Gromyko utanrík-
isráðherra, að hann hafi látist úr
hjartalsagi í Lubjankafangelsinu
17. júlí 1947, sama daginn og
Rússarnir segja nú að hann hafi
verið skotinn.
Margsaga
I þeirri rannsókn sem nú er hætt,
kom í ljós að Rússar eru margsaga
í málinu. 1946 ræddi sænski
ambassadorinn í Moskvu við
Stalín, en gerði ekki mikið út
hvarfi starfsmanns utanríkisráðu-
nevtisins þar sem hann áleit að
hann væri látinn. En þá var hann
greinilega enn á lífi. En þrátt fýrir
að Rússarnir héldu því fram að
Svínn væri allur, sendu þeir levni-
leg skilaborð um að þeir væru
reiðubúnnir að láta hann lausan í
skiptum fýrir nokkra rúsnneska
„liðhlaupa" sem fengið höfðu hæli
í Svíþjóð. Því var samstundis hafn-
að.
Hjálparstarf beinist að heimilis- og
matarlausum
BHUJ, India - I gær hjörguðu hjálparsveitir talsvert slasaðri konu úr
rústunum sem jarðskjálftinn mikli á lndlandi skildi eftir sig. Þetta
gerðist á sjötta degi frá því að skjálftinn reið yfir og þvkir það ganga
kraftaverki næst að nokkur hafi lifað af undir rústunum svo lengi. Og
sem vonir manna um að finna fleira fólk á lífi hafa dofnað þá hefur
athvgli og áherslur björgunarmanna breyst og beinast nú að því að
sinna öllum þeini þúsundum sem eru heimilislausir og hungraðir og
standa frammi fyrir því að draga fram lífið án allra lífsbjarga. Sam-
kvæmt fréttum í gær er talið líklegt að enn um sinn verði nokkur
óvissa um það hversu margir hafa Iátist í þessum náttúruhamförum
þar til ringulreiðin í Gujarat héraði minnkar eitthvað. Tölurnar um
fjölda látinna sveifiast sem kunugt er lrá 20.000 og alveg upp í
100.000.
Annar Lýbíumannaima dæmdur
CAMP ZEIST, Hollandi - Starfsmaður
lýbísku leyniþjónustunnar var í gær
dæmdur í Iífstíðarfangelsi fyrir að vera
valdur að dauða 270 farþega, sem voru um
borð í Pan Am risaþotu yfir Lockerbie í
Skotlandi fyrir 12 árum. Lýbíumaðurinn
var dæmdur fy'rir að hafa sprengt upp vél-
ina.
Þegar þessi dómur yfir Abdel Basset al-
Meghrahi féll í gær ríkti mikil spenna í
réttarsalnum í Hollandi en félagi hans, Al-
Amin Khalifa, sem einnig hafði verið
ákærður fyrir hlutdeild í sprengingunni,
var sýknaður og látinn laus. Það voru þrír
skoskir dómarar sem dæmdu í þessu máli
og mæltu þeir með að Meghrahi myndi
ekki afplána minna en 20 ár af þessum dómi og að það yrði gert í
fangelsi í Skotlandi. Dómforsetinn sagði að dómsorðið hafi verið
mildara en ella vegna þess að hinn ákærði mvndi afplána dóminn
fjarri heimalandi sínu. Ahdel Basset al-Meghrahi hefur ákveðiðað
áfrýja dómnum.
Erfitt hjá Barak
JERÚSALEM - Það blæs ekki byrlega hjá
Ehud Barak þessa dagana en í nýjum
skoðanakönnunum kemur í ljós að hann
er með mun minna fylgi en menn höfðu
verið að vonast til og því skilur mun meira
á milli hans og hauksins Ariel Sharon, hel-
sta keppinauts hans um forsætisráðherra-
stólinn, í komandi kosningum.
Samkvæmt könnun Jerúsalem Post þá
er Sharon með 22 prósenta fylgi umfram
Barak og hefur aukið forskot sitt um 6
prósentustig frá þvr fyrir helgina. Barak,
sem hefur einna helst bundið vonir við að
ná upp vinsældum sínurn með þvf að ná
samkomulagi við Palestínumenn um frið, sagði í gær að Ijóst væri að
fsraelsmcnn yrðu að loka landnámsstöðvum sfnum - einkum þeim
sem væru einangraðar - til að ná fram friðsamlegri lausn við Palest-
ínumenn. Til samanhurðar má henda á að Sharon leggur gríðarlega
áherslu á að Israelsmenn haldi Austur-Jerúsalem, þar sem einkum
húa árabar, en hátt settur leiðtogi Palestínumann hefur einmitt kall-
að þessa stcfnu Sharons, „uppskrift að stríði."
Abdel Basset al-Meghrahi
fékk lífstídardóm.
■ FRÁ DEGI
FIMMTUDAGUR 1. FEBRÚAR
32. dagur ársins, 333 dagar eftir.
Sólris kl. 10.07, sólarlag kl. 17.16.
Þau fæddust 1. febrúar
• 1805 Auguste Blanqui, franskur sósf-
alisti sem sat samtals 33 ár í fangelsi.
• 1848 Valdimar Briem vígslubiskup og
sálmaskáld.
• 1895 John Ford, bandarfskur leikstjóri.
• 1918 Muriel Spark, hreskur rithöfund-
ur.
•1931 Boris Jeltsín, fyrrverandi forseti
Rússlands.
• 1949 Helgi Skúli Kjartansson sagnfræð-
ingur.
Þetta geröist 1. febrúar
• 1790 kom Hæstiréttur Bandaríkjanna
fyrst saman.
TIL DflGS
• 1904 fengu Islendingar heimastjórn og
varð Hannes Hafstein fyrsti ráðherrann.
• 1908 voru Karl I. konungur í Portúgal
og elsti sonur hans myrtir af byltingar-
sinnum.
• 1935 var áfengisbann afnumið á Islandi,
en það hafði staðið frá því 1915.
• 1942 tók Vidkun Quisling við embætti
forsætisráöherra í Noregi, sem þá var
hernuminn af Þjóðverjum.
Vísa dagsius
Þegar lánsins þorna mið
°S þrjóta vinatryggðir,
á ég veröld nian við
allar mannabyggðir.
Theodora Thoroddsen
Afmælisbam dagsins
Hundrað ár eru í dag liðin frá fæðingu
Clark Gable, sem í eina tíð var kallaður
„konungur Hollywood". Sagt er að Ad-
olf Hitler hafi verið svo hrifinn af þess-
um leikara að hann hafi boðið vel hverj-
um þeim sem hefði rænt honum og fært
sér heilan á húfi. Clark Gable lést af
völdum hjartaáfalls þann 16. nóvemher
árið 1960, aðeins tveimur vikum eftir
að tökum lauk á kvikmvndinni Misfits,
þar sem hann lék á móti Marilyn Mon-
roe. Fimm mánuðum síðar fæddist
honum sonur.
Manni ber að lifa, þótt ekki sé til annars en
að lullnægja for\’itni sinni.
Spakmæli frá Gyðingum
Heilabrot
Hvað er það sem eftirtalin þriggja stafa orð
ciga sameiginlegt: los, fis, agn, efi, kot, jór,
hræ, frú, amt og ást? Til hliðsjónar má hafa
eftirtalin orð, sem ekki eru gædd þessum
sama eiginleika: ami, arg, kol, tré, iðn, hús
og bær.
Lausn á síðustu gátu: Dagur og nótt.
Vefur dagsins
Þjóðsöngur íslendinga er á Netinu eins og
svo margt annað:
www.musik.is/Lof/lof.html