Dagur - 08.02.2001, Page 1

Dagur - 08.02.2001, Page 1
Verð ílausasölu 150 kr. 84. og 85. árgangur - 27. tölublað Endurskoðim kvótalaga óviss því að hægt verði að taka lögin um stjórn fiskveiða til endur- skoðunar og afgreiða málið f'yrir vorið. En það eru heldur ekki hundrað í hættunni þótt ekki ná- ist að afgreiða málið fyrir vorið. Það frestast þá bara um eitt ár,“ sagði Arni M. Mathiesen sjávar- litvegsráðherra í samtali við Dag í gær. Hann segist þó vilja ljúka þessu máli sem fyrst vegna þess að það séu mörg önnur mál sem þarf að fara í til að bæta hag greinarinnar, sem erfitt er að vinna meðan niðurstaða endur- skoðunarnefndarinnar liggur ekki fyrir. „En maður setur ekki þumal- skrúfur á menn sem eru að reyna að vinna að lausn í málinu. Þeir þurfa að fá sinn tíma enda er hér um gríðarlega stórt og þýðingar mikið mál að ræða eins og allir vita og þverpólitískt þegar til kastanna kemur á Alþingi,“ sagði Árni M. Mathiesen. — S.DÓR Ekkert samkomulag í enduxskoðuuamefnd- inni. Minni lýkur á að málið verði afgreitt í vor eftir J)ví sem starf nefndarinnar dregst á langinn. Vildi helst ljúka málinu í vor segir sjávarútvegsráð- herra. Samkvæmt heimildum, sem Dagur telur áreiðanlegar, virðist samkomulag í „kvótanefnd" sjávarútvegsráðherra vera jafn- vel enn fjær nú en það var fyrir nokkrum vikum, eftir að átaka- línur skýrðust á fundi nefndar- innar í gær. Þannig er talinn leika fullkominn vafi á um hvort nefndin nái að skila tillögum sín- um til ráðherra nægilega snemma til þess að hægt verði að taka endurskoð- un laganna um stjórn fiskveiða fyrir á þessu vori og ljúka því a AI- þingi. Eins og Dagur skýrði frá fyrir skömmu er ekk- ert samkomulag í augsýn hjá end- urskoðunar- nefndinni, sem sjávarútvegsráð- herra skipaði til að gera tillögur um endurskoð- un á lögunum um stjórn fisk- veiða. Líkur á samkomulagi hafa semsé enn minnkað, en nefndin stefndi að því að skila af sér í janúar sl. og nú alveg óvíst hvenær hún lýkur störfum. Samkvæmt heimildum Dags halda ákveðnir aðilar í nefndinni því mjög til streitu að nauð- synlegt sé að auka enn á hag- ræðingu í útgerð og fiskvinnslu, jafnvel þó það þýði að það yrðu einungis efir fjögur til fimm stór útgerðar- og fiskvinnslufyrir- tæki. Lands- byggðarþing- menn margir eru á annarri skoðun og má segja að í rauninni sé þetta mál orðið þver- pólitískt áður en það kemur til kasta Alþingis. Þverpólitískt mál „Eg veit ekki til þess að starf nefndarinnar sé farið að stranda á neinu enn þá en eftir því sem lengra líður minnka líkurnar á Lýst eftir atvumustefnu Miðstjórn ASI sendi frá sér ályktun eftir fund sinn í gær þar sem lýst er áhyggjum af upp- sögnum fiskverkafólks og þeim áhrifum sem verkefnaskortur í landvinnslu hefur á aðrar starfs- greinar, atvinnustigið almennt og framtíð fjölda hyggðarlaga í landinu. Miðstjórn ASÍ bendir á að ekki sé hægt að kenna langtímaþróun í atvinnugreininni um þau áföll sem dunið hafa yfir fiskverkafólk og sjávarbyggðir að undanförnu. I ályktuninni segir síðan: „Sá bráðavandi sem landvinnslan stendur nú frammi fyrir víða um land er annars eðlis og snýst öðru fremur um að tryggja líf- vænlegum fyrirtækjum, sem skapa bæði atvinnu og verðmæti, aðgang að hráefni til vinnslu. Þau rékstrarskilyrði sem land- vinnslan hýr við eru ákvörðuð með lögum og stjórnvaldsaðgerð- um“. ASl segir ekki hjá því kom- ist að spyrja um atvinnu- og byggðastefnu stjórnvalda? Mengunarslys varð v/ð Hólmaslóð I Úrfirisey í Reykjavík, þegar á bilinu 2.000 til 5.000 lítrar af seigfljótandi olíu láku úr olíutanki þar. I gærkvöld unnu á milli 20 og 30 manns við hreinsun og þrír dælubílar við verkið. Ekki er talið að olían hafi lekið I sjó eða í holræsakerfi borgarinnar og þykir það vera lán í óláni. - mynd: ingó vmmmmmmmmmmmmmmmmmmmammmmmmmmmmm^mmmmmmmmmmmmmmmmii^mmmmmm Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra. 160 milljarða framkvæmd Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- ráðherra, ávarpaði málþing um áhrif og þátttöku austfirskra fyr- irtækja á Egilsstöðum í gær. Markmið málþingsins var m.a. að vekja athygli á margvíslegum áhrifum og tækifærum tengdum stórframkvæmdum, s.s. Kára- hnjúkavirkjun og álvers á Reyð- arfirði. Valgerður sagðist sann- færð um að starfsemi álversins mundi breikka verulega grund- völlinn fyrir austfirskt atvinnulíf og fjölga þannig atvinnutækifær- um íbúanna. Síðan sagði iðnaðarráðherra m.a.: „Gert er ráð fyrir að öflun gagna, undirbúningur og gerð matsskýrslna fyrir Kárahnjúka- virkjun komi til með að kosta um 250 milljónir króna en um 100 milljónir vegna álversins. Sam- anlagður kostnaður Reyðaráls og Landsvirkjunar mun því nema um 350 milljónum króna. Gert er ráð fyrir að um 25-30 aðilar, innlendir og erlendir komi að gerð heggja skýrslnanna. Heild- arfjárfesting fyrir Kárahnjúka- virkun nemur um 70 til 80 millj- örðum króna á framkvæmdatím- anum á árunum 2002 til 2006. Alls er áætlað að um 3000 árs- verk þurfi við gerð virkjunarinn- ar og að allt að 900 manns starfi þar á mesta álagstíma. Áætlað er að heildarfjárfesting vegna byggingar álversins geti numið um 80 til 85 milljörðum króna. Ársverk viö byggingu ál- versins eru áætluð um 2.000 með um 1.400 manns starfandi á byggingarstað þegar mest á reynir. Framkvæmdir við álverið verða á árabilinu 2003 til 2006. Auk þess er gert ráð fyrir að bygging hafnar við álverið kosti um einn milljarð króna og fram- kvæmdir við að gera lóðina und- ir álverið byggingarhæfa um 1,5 milljarður króna,“ sagði iðnaðar- ráðherra í gær. — GG

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.