Dagur - 08.02.2001, Síða 2

Dagur - 08.02.2001, Síða 2
2- FIMMTVDAGUR 8. FEBRÚAR 2001 FRÉTTIR L. Getur veitt liðsinni í millibilsástaiidi Félagsmálaráðherra hefur heimsótt staöi þar sem áföll hafa dirnið yfir í atvinnu- lifinu að uudanförnu. < í gær var hanu á Húsavík. Ráðherra hefur þegar sótt heim Bolungarvík og Vestmannaeyjar og hefur hug á að ræða við heimamenn á Olafsfirði og jafn- vel víðar til að tékka á stöðunni. Asamt og með honum í för hefur verið Gissur Pétursson, forstjóri Vinnumálastofnunar. Þeir fund- uðu með bæjarstjórn Húsavíkur fyrir hádegi í gær og síödegis með fulltrúum verkalýðsfélag- anna á Húsavík og Kópaskeri, auk starfsmanna frá fyrirtækjum á Húsavík sem lent hafa í upp- sögnum að undanförnu. Páll tjáði Degi eftir fundina að þeir hefðu verið gagnlegir og upplýsandi. Hann lagði áherslu á að atvinnuástand almennt í landinu hefði verið betra á und- anförnum árum en í mjög langan tíma, þó nokkur áföll hefðu orð- ið upp á síðkastið á fáeinum stöðum þar sem nú væru stað- bundnir erfiðleikar í atvinnulíf- inu. „Við getum auðvitað ekki kippt atvinnulífinu í gang á þessum stöðum, en erum að benda fólki á þær leiðir sem við höfum til þess að veita liðsinni á meðan menn eru að vinna sig út úr von- andi tímabundnum vanda. Við getum m.a. komið að átaksverk- efnum, ef bæjarfélög, fyrirtæki eða samtök vilja standa að slíku og ráða fólk af atvinnuleysiskrá til starfa, þá geta viðkomandi fengið atvinnuleysisbæturnar og bætt við um 20.000 krónur á mann til þess að ná lágmarks- mánaðarlaunum. Síðan höfum við verulega peninga til starfs- menntunar. Þetta tvennt tel ég vera afar mikilvægt í millibilsá- standi eins og nú ríkir í atvinnu- málum á t.d. Húsavfk, Vest- mannaeyjum og Bolungarvík og átaksverkefni geta orðið upphaf- ið að varanlegri starfsemi ef vel tekst til“. Ratinveruleg byggðastefna Aðalsteinn Baldursson, formað- ur Verkalýðsfélags Húsavíkur sagðist telja að þetta hafi verið góður fundur og málin verið rædd af hreinskilni. „Ráðherra kynnti þær leiðir sem hann hef- ur til að koma til aðstoðar tíma- bundið, sem er góðra gjalda vert út af fyrir sig, en við lögðum áherslu á þörfina á raunverulegri byggðastefnu sem hefði fyrir- byggjandi áhrif í atvinnulífinu, í stað þess að koma til bjargar þegar skaðinn er skeður. Það þarf að skapa mönnum aðstöðu til að búa úti á landi. Það er tíl dærnis verið að loka einu búð- inni sem er á Bakkafirði, á sama tíma og verið er að setja níu milljarða í 100 verslanir á höfuð- borgarsvæðinu." Pétur Bolli Jóhannesson, sveitarstjóri. Þmgmeun á Hríseyjarftmd Þingmenn Norðurlandskjördæmis eystra halda opinn fund í félags- heimilinu Sæborg í Hrísey í kvöld, fimmtudag, þar sem farið verður yfir stöðuna í atvinnumálum Hríseyinga eftir að Snæfell hætti vinnslu í sveitarfélaginu. Boðað er til fundarins að frumkvæði sveit- arstjórnar Hríseyjarhrepps. Talið var orðið tímabært að fara yfir afleiðingar ákvörðunnar stjórnar Snæfells sem þá var í eigu KEA. Ekki er að efa að íbúa fýsir að vita hver staðan er frá bæjar- dyru m þingmanna séð og hvert þeir komi t.d. færandi hendi með ný atvinnutækifæri. Pétur Bolli Jóhannesson, sveitarstjóri, 'segir að lítið hafi gerst í uppbyggingu atvinnulífs eyjaskeggja þrátt fyrir tilraunir sem m.a. hafi komið inn á borð þingmanna. Vaxandi kurr sé í Hríseyingum og þolinmæði ntargra á þrotum. Um 30% allra atvinnubærra manna í Hrísey misstu atvinnuna þegar Snæfell hætti starfsemi, eða um 35 manns, en í dag eru um 10 manns á atvinnuleysisskrá, en margir hafa leitað að vinnu utan sveitar- félagsins. Það gangi hins vegar ekki til langframa. Pétur Bolli seg- ir sveitarstjórn vilja leita leiða til bæta atvinnuástandið, og vænti til þess stuðnings þingmanna. - gg Skrifstofustj órinn var maður út í bæ Forsætisráðuneytið sá enga ástæðu til að bera undir kjara- nefnd, hvort greiða skyldi Benedikt Bogasyni skrifstofu- stjóra dómsmálaráðuneytisins laun fyrir vinnu í þágu ör- yrkjadómsnefndar forsætis- ráðuneytisins. Skarphéðinn Steinarsson, skrifstofustjóri forsætisráðuneytisins, stað- festir í samtali við Dag að ráðuneytíð hafi ekki talið þörf á því. Dagur greindi frá því að Benedikt hefði vegna ritara- starfa fyrir umrædda nefnd, undir forsæti Jóns Steinars Gunnlaugssonar, tekið við þóknun þrátt fyrir skýr ákvæði í reglum kjaranefndar, sem tekur til skrifstofustjórans, um bann við slíkum greiðslum nema að undangengnum úrskurði. „greiða slíkar þóknanir nema kjaranefnd hafi úrskurðað að um aukastörf hafi verið að ræða, þ.e.a.s. störf sem ekki falla innan marka aðalstarfa viðkomandi". Forsætisráðuneytið bar málið ekki undir kjaranefnd. Skarphéðinn segir að ráðu- neytið teldi öruggt að um aukastörf væri að ræða. „Það eru mjög skýrar reglur um launagreiðslur manna sem falla undir kjaranefnd, varð- andi hvað telst falla undir að- alstarf þeirra og hvað ekki. Nefndin Ieitaði til Benedikts sem einstaklings og lögfræð- ings. Störf hans fyrir nefndina höfðu ekkert með veru hans í dómsmálaráðuneytinu að gera,“ segir Skarphéðinn. — FÞG Forsætisráðuneytið taldi öruggt að um auka- störf væri að ræða Emstaklinguriim Benedikt Staðfesti Guðrún Zoega, for- maður kjaranefndar, að skrif- stofustjórinn félli undir verksvið kjaranefndar og að ekki mætti Lngibjörg í Hæstarétt Forseti Islands hefur hefur að tillögu Sólveigar Pétursdóttur dómsmálaráðherra ákveðið að skipa Ingibjörgu Benediktsdótt- ur í stöðu hæstaréttardómara, í stað Hjartar Torfasonar, sem læt- ur af störfum sökum aldurs. Alls sjö sóttu um stöðuna. Ingibjörg Benediktsdóttir er 52 ára. Hún starfaði sem fulltrúi hjá yfirsakadómaranum í Reykja- vík 1975-83 og var aðalfuíltrúi við embættið 1983-84. Hún var sakadómari 1984-92 og hefur verið héraðsdómari frá 1992. Næsta hæstaréttardómara- staða losnar síðar á þessu ári, eftir að Guðrún Erlendsdóttir verður 65 ára. Heimildarmenn blaðsins telja sennilegt, að í raun hafi Ingibjörg Rafnar verið að „stimpla sig inn“ varðandi þá stöðu, en að ætlunin hafi verið að hún fengi skipun að þessu sinni. — FÞG Heinzspaghettí í tómat innkaUað Vegna tvöfalds Ieyfilegs hámarksmagns af tini í niðursoðnu spaghettí í tómatsósu frá Heinz hefur Hollustuvernd ríldsins og Heílbrigðiseftirlit Reykjavíkur íyrirskipað innköllun þessarar vörutegundar. Jafnframt er því beint til almennings að neyta ekki umræddrar vöru úr dósum merkt- um MSLD (hluti af lotunúmeri á botni dósarinnar) heldur skila þeirn í búðina sem hún var kevpt í. Neysla vörunnar geti hugsanlega valdið óþægindum eins og þreytu, höfuðverk, niðurgangi, ógleði eða uppköst- um. Ahrifin eru þó ekki talin Iangvarandi eða skaðleg. Vitneskjan um hið mikla tininnihald vörunnar barst Hollustuvernd með tilkynningu frá Bretlandi. Samkvæmt henni greindist að meðaltali 292 mg af tini í kílói af umræddu spaghettíi, eða nær tvöfalt hámarksgildi tins í matvælum sem er 150 mg/kg, samkvæmt reglugerð um aðskotaefni. - HEl ESSO styrkir Aiidrésar andarleíka og KA-mót Olíufélagið hefur gengio frá nýjum sam- starfssamningi við framkvæmdanefnd Andrésar andarleikanna sem fram fara ár- lega í Hlíðarfjalli við Akureyri fyrir 6 til 12 ára börn. Undirritun fór fram í Strýtu. Samstarfssamningurinn felst m.a. í því að Andrésarandarieikarnir fara Olíufélagið kaupir alla verðlaunagripi fram áriega i Hlíðarfjalli við sem veittir eru á leikunum. Akureyri. Olíufélagið hefur undanfarin ár verið í mildu samstarfi \ ið helstu skíðalélög landsins og m.a. sett upp vefmynda- vélar á helstu skíðasvæðum landsins og má sjá það á heimasíðu lélags- ins, www.esso.is. Olíufélagið selur einnig dagskort á skíðasvæði höfuð- borgarbúa á Essostöðvunum. Olíufélagið hefur einnig undirritað fimm ára samstarfssamning við unglingaráð knattspyrnudeildar KA. Samstarfssamníngurinn snýst um ESSO-mót KA sem er knattspymumót sem fram fer í byrjun júlímánað- ar ár hvert fyrir 11 til 12 ára drengi í 5. flokki. Næsta mót verður það 1 5. sem félögin halda saman og hefur mótið skipað sér fastan sess í hugum ntargra þar sem um 1.000 drengir af öllu landinu koma saman og leika knattspyrnu. Samningar þessir eru liður í þeirri áherslu sem Olíufélagið leggur á uppbyggingu íþrótta- og æskulýðsstarfs í landinu. — GG

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.