Dagur


Dagur - 08.02.2001, Qupperneq 6

Dagur - 08.02.2001, Qupperneq 6
6 - FIMMTUDAGUR 8. FEBRÚAR 2001 -D&jur- ÞJÓÐMÁL Utgáfufélag: Útgáfustjóri: Ritstjóri: A ðstoðarritstjóri: Skrifstofur: Símar: Netfang ritstjórnar: Áskriftargjald m. vsk.: Lausasöluverð: Grænt númer: Netföng augiýsingadeiidar: Símar auglýsingadeildar: Símbréf auglýsingadeildar: Simbréf ritstjórnar: DAGSPRENT EYJÓLFUR SVEINSSON ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON BIRGIR GUÐMUNDSSON STRANDGÖTU 31, AKUREYRl, GARÐARSBRAUT 7, HÚSAVÍK OG ÞVERHOLTI 14, REYKJAVÍK 460 6100 OG 800 7080 ritstjori@dagur.is 1.900 KR. Á MÁNUÐI 150 KR. OG 200 KR. HELGARBLAÐ 800 7080 valdemar@dagur.is- augl@dagur.is-gestur@ff.is (REYKJAVÍK)563-1615 Ámundi Ámundason (REYKJAVÍK)563-16A2 Gestur Páll Reyniss. (AKUREYRIJ460-6192 Valdemar Valdemarsson 460 6161 460 617KAKUREYR!) 551 6270 (REYKJAVlK) Sigur Sharons- hvað nú? í fyrsta lagi Stórsigur Ariel Sharon í ísraelsku forsætisráðherrakosningun- um er verulegt áfall fyrir friðarferlið fyrir botni Miðjarðarhafs. Hins vegar er niðurstaðan fengin í lýðræðislegum kosningum og því augljóst að Sharon hefur afgerandi umboð þegna sinna til að halda til streitu herskárri stefnu í samskiptum sínum við Palestínumenn. Það ásamt þeirri staðreynd að Sharon hefur áunnið sér verðskuldað hatur Palestínumanna og annarra Araba - bæði með framgangi sínum í Líbanon á sínum tíma og eins með heimsókn sinni á Musterishæðina s.l. haust - mun torvelda mjög uppbyggingu trúnaðar milli aðila sem er for- senda árangurs í samningum. í öðru lagi Það vill raunar svo til að Sharon er nokkuð þröngur pólitískur stakkur skorinn varðandi stjórnarmyndun og möguleika til að koma málum sínum fram. Af þeim sökum má búast við að temprandi áhrif Verkamannaflokksins verði meiri en ella. Sharon var yfirlýsingaglaður í aðdraganda kosninganna og þó hann þurfi ugglaust að leita verulegra málamiðlana, er Ijóst að hann er líka bundinn af kosningayfirlýsingum sínum. Enda heldur hann sig t.d. stíft við að Jerúsalem verði óskipt og að fullu undir yfirráðum Israelsmanna. Slíkt er þó auðvitað óhugsandi ef friðarferlið á að halda áfram. í þriðja lagi Sjálfsagt er að gefa Sharon tækifæri til að taka upp þráðinn þar sem frá var horfið í friðarmálum. Komi hins vegar í ljós - sem fastlega má búast við - að óbilgirni og stífni spilli veru- lega fyrir friðarferlinu, þá hlýtur þolinmæði heimsins gagnvart Israel að vera á þrotum. Nóg hefur þanþolið verið samt. Al- þjóðasamfélagið getur beitt Israel ýmis konar ytri þrýstingi, rétt eins og menn hafa gert þegar yfirgangur annarra ríkja hef- ur gengið út í öfgar. Island mun að vísu varla ráða úrslitum í slíkum aðgerðum, en á okkar rödd er hlustað meðal áhrifaríkra bandamanna okkar, og þar eigum við að láta hana heyrast. Birgir Guðmimdsson Kj amorkuvopna- laus pistlahöfundur Það er rétt að hefja þennan pistil á sérstakri tilkynningu frá Garra. Tilkvnningin er þessi: Garri hefur lýst sig kjarnorkuvopnalausan pistla- höfund. Hann tók ákvörðun um þetta í gær eftir að hann hleraði það innanhúss á Degi að bæjarfélagið Akureyri hafi gert sérstaka samþykkt á bæj- arstjórnarfundi í vikunni um að það væri „kjarorkuvopna- laust sveitarfélag". Að vísu hefur þessi sam- þykkt Akureyringanna ekki farið Iiátt enn sem komið er, en hins vegar má reikna með að þessi tímamótaákvörðun sökkvi sér von bráðar inn í þjóðarvitundina. Akureyri verður semsé ekki lengur bara „bær með brag“ eins og sagði í einhverri auglýsingaherferðinni, heldur er hærinn orðinn fyrsta ís- lenska kjarnorkuvopnalausa sveitarfélagið. Engin kjama- vopn heima ög pegar sveitarstjórnarmenn taka svona grundvallarákvarð- anir er ekki nema eðlilegt að einstaklingar um land allt íyl- list eldmóði - eins og Garri - og lýsi sig líka kjarnorkuvopna- lausa einstaklinga. Það felst í yfirlýsingu Garra um að hann sé kjarnorkuvopnalaus pistla- höfundur, að hann skuldbind- ur sig til að geyma ekki né heimila umferð kjarnorku- vopna um heimili sitt og skrif- borðsbás á ritstjórnarskrifstof- um Dags. Tekur þetta bann til allra kjarnavopna, hvort heldur sem eru langdrægar, meðal- drægar, eða skammdrægar flaugar. Einnig nær skuldbind- ingin til varnarflauga sem ætl- Akureyri -kjarn- orkuvopnalaust sveitarfélag! að er að granda lang-, meðal-, eða skammdrægum flaugum, ef varnarflaugarnar eru búnar kjarnaoddi. Hins vegar áskilur Garri sér að sjálfsögðu rétt til að heimila umferð eða stað- setningu varnarflauga á heirn- ili sínu eða skrifborði ef ekki eru kjarnaoddar í slíkum flaug- um. Friöur á jörð Tilgangur Garra með sessari yfirlýsingu sinni og skuldbind- ingu er sá sami og til- gangur bæjarstjórnar ....Akureyrar: Að stuðla að friði í heiminum og knýja fram virkari ákvæði í alþjóðasamn- ingum um útbreiðslu kjarnavopna. Þannig er Garri nokkuö sannfærður um að ráðamenn í Indlandi, Pakistan, ísrael og jafnvel Irak, löndum sem þróað hafa kjarnavopn eða eru að reyna það, muni sjá að sér þegar þeir frétta af þessari útvíkkun kjarnorkuvopnalausra svæða og heimila í veröldinni. Garri sér fyrir sér hvernig friðarboð- skapurinn mun blómstra og hver einstaklingurinn og hvert sveitarfélagið af öðru mun lýsa sig kjarnorkuvopnalaust. Þannig er Garri þegar farinn að ræða við aðra pistlahöfunda á þessari síðu um að lýsa sig kjarnorkuvopnalausa með það að markmiði að öll leiðarasíða Dags verði á endanum lýst kjarnorkuvopnalaust svæði! Bæjarstjórn Akureyrar á heiður skilinn fyrir frumkvæði sitt og Garri mun hiklaust senda inn tilnefningu til Nóbelsnefndar- innar í Osló á næsta ári, því friðarverðlaunin eiga auðvitað að fara norður! GARRI í Degi í gær birtist grein sem all- ir ættu að lesa. Greinina skrifar Friðrik Þór Guðmundsson, blaðamaður og faðir eins fórnar- lamba Ilugslyssins í Skerjafirði fyrir 6 mánuðum, og birtir þar hugleiðingar sínar um rannsókn málsins og margvíslegar upplýs- ingar sem hann byggir ekki síst á eigin gagnaöflun. Þetta cr um margt óþægileg lesning. Ekki síst fyrir þá sem hafa kannski um árabil staðið í þeirri trú að hvergi væri öryggis- eftirlit í samgöngum og fólks- flutningum strangara en í flugi. Að í hvert skipti sem maður hef- ur stigið upp í flugvélar af ýms- um stærðum og gerðum, þá hafi mátt ganga að því vísu að allt sem ítrustu lög og regiur um flugöryggi kveða á um, hafi ver- ið framkvæmt. Samkvæmt grein Friðriks Þórs eru því miður margvíslegir pott- ar brotnir í þessum efnum og eftirliti á ýmsum sviðum ábóta- vant, svo ekki sé fastar að orðið kveðið. Og ekki annað séð en að á stundum hafi menn flogið sof- andi að feigðarósi og jafnvel í bókstaflegri merkingu. Eftirlit brást I grein Friðriks Þórs eru tínd til mýmörg dæmi um meintar (a.m.k. á þessu stigi) brotalamir í flugör- yggismálum á Is- landi og tengjast margar flugvélinni sem fór híð örlaga- ríka flug frá Vestmannaeyjum til Beykjavíkur um verslunar- mannahelgina síðustu og lauk með brotlendingu í Skerjafirði með þeim hörmulegum afleið- ingum sem öllum eru kunnar. Upplýsingar um viðhaldsmál flugvélarinar virðast hafa verið af skornum skammti og margt bendir til að gögn um forsögu hennar og viðhald hjá fyrri eig- endum hafi ckki verið fyrirliggj- andi. Þessi vél og raunar fleiri voru notaðar til farþegaflutn- inga í sjónflugi án þess að hafa til þess tilskilin leyfi. Flugmenn hafi verið komnir fram yfir leyfi- legan vakttíma vegna mikilla anna. Og fjölmargt fleira vafasamt dregur Friðrik fram í dagsljósið sem bendir til þess að eftirlit hafi brugðist og öryggi flugfar- þega þar með verið stefnt í hættu. Og maður hlýtur að spyrja sig: Er þetta einsdæmi, eða hefur þetta gengið svona lengi, t.d. á há- annaflugtímum um verslunar- mannahelgar? Híð sanna komi í ljós Nú er beöið eftir niðurstöðum úr rannsóknum Rannnsóknar- nefndar flugslysa og rannsókn- ardeild Lögreglustjórans í Revkjavík. Friðrik Þór Guð- mundson segir í lok greinar sinnar að niðurstöðurnar verði að vera trúverðugar og réttlætið verði að sigra - „þvf annars fara líf fórnarlambanna fyrir li'tið." Undir þetta er auðvelt að taka. Og niðurstöður rannsókn- anna verða ekki síst að taka á og svara með fullnægjandi hætti öllum þeim athugasemdum, ályktunum og spurningum sem fram koma í grein Friðriks Þórs. Það er hreinlega ekki ásættan- legt að láta mörgum spurning- um ósvarað um þessi mál. Til- gangur rannsóknanna hlýtur að vera sá einn að komast að því sanna í málinu og nota síðan niðurstöðurnar til þess að byrgja brunninn og gera allt sem í mannlegu valdi stcndur til að auka flugöryggi og draga úr lík- um á að slys eins og það sem varð í Skerjafirði fyrir 6 mánuð- um endurtaki sig. "f - JÓHAIVNES SIGURJÓNS ílogið sofandi að \ ' - ! SON skrifar Mgðarðsi? Er kúariðuumræðan komin út í öfgar? Guðbrandur Sigurðsson matvælafræðingur ogforstjóri ÚA. „Kúariðumálið sýnir í hnot- skurn hve fólk í Evrópu er orðið meðvitað um hvað það borðar og ein- nig að krafa dagsins er heilnæm vara. Það eru Iitlar líkur á því að fólk sýkist af Creutzfelt-Jakob sjúkdómn- um, en á hinn bóginn er það sið- ferðisleg krafa stjórnvalda - og allra annarra - að koma í veg fyr- ir kúariðu og þann hræðilega sjúkdóm sem hún leiðir af sér." Ami Gunnarsson franikvæmdastjóri HcHsnstofvnnar NLFÍ í Hveragerði. „Verslunar- keðjur hafa orðið allt vald um verðlagn- ingu neyslu- vara og við því hafa framleið- endur brugðist með þv'í að auka framleiðslu og lækka kostnað. Til þess nota þeir meðul sem ekki hafa reynst holl. Kjötframleiðendur pumpa dýrin full af hormónum og lyfjum til að auka vaxtarhraða, þeir byrja að nota nýjar fóðurtegundir eins og t.d. kjötmjöl - og afleiðingin óhollari vara. Dæmin sanna að gengið er á náttúrulegan vöxt og viðgang, svo nú blasa við alvar- legir sjúkdómar og kvillar. Vel þess virði er að hugleiða hvort við eigum ekki að greiða heldur hærra verð fyrir gæðavöru og spara mismuninn með því að borða ofurlítið minna. Umræðan er ekki komin út í öfgar, og nú er hið stóra tækifæri íslensk land- búnaðar runnið upp. „ Hraimar B. Amarson borgarfulltnii ogform. heilbrigðis- r. „Umræðan hefur verið bæði þörf og brýn. En ég get líka tekið undir að hún hefur á ýmsan hátt þróast í undar- Iegar áttir. Aðalatriðið frá mínu sjónarhorni er að neytendur geti treyst því að á borðum þeirra séu hættulaus matvæli. Hvort þau koma frá innlendum eða erlend- um seljendum er hins vegar aukaatriði. Að inínu mati hafa hins vegar ýmsir reynt að gera það að aðalatriði - og það er mið- Sólveig Eiríksdóttir veitingamaðurá Grænumkosti í Reykjavík. „I öllu þessu kúariðu- kjaftæði er ég ofboðslega feg- in því að borða ekki kjöt. Öll mál geta farið út í öfgar, rétt einsog kúariðuumræðan hefur gert síðustu daga. Hún hefur helgast af yfirgripsmikilli van- þekkingu."

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.