Dagur - 08.02.2001, Side 13

Dagur - 08.02.2001, Side 13
FIMMTUDAGUR 8. FEBRÚAR 2001 - 13 FRÉTTIR Brýnt að samræma talstöóvarkerfiii! Að Almannavarnir, björgunarsveitir, lögregla og slökkvilið nota hvert sitt talstöðvarkerfi en ekki eitt samræmt kerfi getur valdið vanda í samskiptum þessara lykilaðila þegar mest á reynir. Sameinuð almaima- vamarsamtök Reykja- víkur og nærsveita hafa gert tillögur um aðgerðir til að auka öryggi og samræma hjörguuarkerfi. Að Almannavarnir, björgunar- sveitir, lögregla og slökkvilið nota hvert sitt talstöðvarkerfi en ekki eitt samræmt kerfi getur valdið vanda í samskiptum þessara lyk- ilaðila þegar mest á reynir, svo koma ætti á einu samræmdu kerfi. Meta ætti þörf á varaafli íyrir umferðarljós á höfuðborgar- svæðinu, þar sem rafmagnsleysi í kjölfar náttúruhamfara, sem gerði götuljós og götulýsingu óvirka gæti skapað alvarlegt um- ferðarástand. Þetta er meðal þeirra atriða sem tekin voru fyr- ir af starfshópi sem falin var und- irbúningur að framkvæmd áhættumats í framhaldi af sam- einingu almannavarnarnefnda fjögurra sveitarfélaga, Kjósar, Mosfellsbæjar, Reykjavíkur, Sel- tjarnarness, og endurskoðunar ýmissa þátta í almannavarnar- sldpulagi A - KMRS. Kallað eftir neyðarskipulagi I niðurstöðum eru tillögur að út- færslu á hlutverki A-KMRS sem samræmingaraðila á neyðar- skipulagi stofnana og fyrirtækja innan sveitarfélaganna, og tillög- ur að ákveðnum verkefnum og forgangsröðun þeirra. Meðal annars er lagt til að kallað verði eftir áhættumati og neyðarskipu- lagi frá til dæmis orku- og vatns- veitum, fyrirtækjum í fjarskiptum og olíudreifingu, vinnueftirliti, heilsugæslu, heilbrigðisþjónustu og svo framvegis. Og þeim sem bera ábyrgð á stöðum eins og t.d. flugvöllurn, hafnarsvæðum, Örfirisey, Áburðai-verksmiðju og þannig má áfram telja. Við mat á áhættu er miðað við atburði sem valdið geta almanna- varnarástandi. Þó umfangsmiklar rannsóknir á jarðskjálftavá í vinnslu telur hópurinn að meta þurfi og kortleggja legu jarð- skjálftasprungna á svæði A- KMRS með tilliti til byggðar í ná- grenni þeirrra og sömuleiðis af- leiðingar jarðskjálfta á mann- virki, meðal annars samgöngu- og veitumannvirki innan svæðis- ins. Rannsaka þarí eldsumbrota- söguna Olíklegt þykir að eldgos geti orð- ið innan höfuðborgarsvæðisins en eldgos í nágrenni þess gæti valdið margs konar áhættu fyrir íbúana. Ræði beinni hættu sam- fara hraunrennsli og eða ösku- falli og óbeinni vegna eldsum- brota við aðfærsluæðar til og frá svæðinu. Rannsaka þurfi eldsumbrotasögu og tíðni og um- fang öskufalls á svæðinu og í ná- grenni þess og meta afkastagetu núverandi flutningskerfa. Olík- legt er talið að almenn hætta geti skapast af völdum efnaslysa eða mengunaróhappa. Hvað ef S0% „lykHfóDís“ smitast? Varðandi hugsanlegar fjöldasýk- ingar og farsóttir þarf meðal ann- ars að meta hvaða afleiðingar það hefði á samfélagið og starfsemi mikilvægra stofnana og fyrir- tækja ef t.d. 20-50% starfandi fólks sýktist af farsótt og hvaða neyðaráætlanir almannavarnar- nefnd þurfi að hafa tiltæka vegna farsótta. Þótt litlar líkur þykja á sjávar- flóðum á svæðinu og sjaldgæft að vindur nái þeim styrk að fólki sé veruleg hætta búin innandyra ætti að draga fram hagnýtar upp- lýsingar úr þeim gögnum sem til eru um veður og taka mið af þeim \dð skipulagningu íbúða- hverfa. Viðbragðsmörk björgun- araðila vegna óveðurs er 40 metr- ar á sekúntu. Viðbragðsáætlun gegn hryðjuverkum „Hryðjuverk s.s. flugrán, sprengjuárásir, sprengjuhótanir eða styrjaldarátök geta valdið al- mannavarnarástandi. Einnig er mögulegt að óeirðir eða átök milli hópa manna geri það nauð- synlegt að virkja almannavarnar- kerfið til bjargar mannslífum og verðmætum," segir hópurinn. Þar sem skipulag á þessu sviði sé á verksviði lögregluyfirvalda þurfi þau að meta og setja í viðbragðs- áætlun hvernig almannavömum verði helst beitt vegna óeirða og hryðjuverka. - HEI Mega sto£na ný apótek - en ekkl kaupa gomul Lyfja og Apótek mega sameinast ef þau selja 5 afsínum 74 apótekum. Sameinuð Lyfja má stofna ný apótek en ekki kaupa apótek í rekstri. Samkeppnisráð setti þau skilyrði fyrir sam- runa Lyfju hf. og Lyfjabúða hf. að þau seldu 5 af sínum 14 apótekum. Lyfja má síðan stofna ný apó- tek en ekki kaupa gömul. Samkeppnisráð komst að þeirri niðurstöðu að samruni Lyfju hf. og Lyfjabúða hf. (undir nafni Lyfju hf.) myndi að óbreyttu leiða til óviðunandi samþjöppun- ar á lyfsölumarkaðnum, yfir 50% markaðshlutdeild, og mikla röskun á samkeppni til tjóns fyr- ir neytendur. Að óskum Lyfju settu samkeppnisyfirvöld skilyrði fyrir samrunanum sem eiga að eyða hinum skaðlegu áhrifum á samkeppnina á markaðnum og hefur Lyfja fallist á að selja í einu lagi fimm tilgreind apótek af þeim fjórtán sem hún starfrækir nú á höfuðborgarsvæðinu. Að mati samkeppnisyfirvalda myndi markaðshlutdeild Lyfju minnka úr 52-53% niður í 37-38% við söluna. Mega vaxa og dafna En er nokkuð sem bannar LyQu að auka aftur hlut sinn með því að kaupa önnur apótek í staðin eða stofna ný? „Þeir mega auð- vitað, eins og önnur fyrirtæki, vaxa og dafna af eigin verðleikum og stofna ný apótek. Eina form- ið sem amast er við er ef það er í formi yfirtöku eða samruna. I ákvörðunarorðum samkeppnis- ráðs er kveðið á um það að fyrir- tækið megi ekki kaupa starfandi apótek nema að upplýsa okkur um það,“ sagði Guðmundur Sig- urðsson skrifstofustjóri Sam- keppnisstofnunar. Lyf og heilsa með liðlega fjórðung Hvort um sig voru Lyfja og Apó- tekið (Lyfjabúðir hf.) með 26- 27% markaðshlutdeild, eða 52- 53% til samans. Að mati sam- keppnisráðs mundi svo há mark- aðshlutdeild auk fleiri þátta, gera sameinaða Lyfju markaðsráðandi í lyfsölu á höfuðborgarsvæðinu, þar sem aðeins er einn annar stór aðili; Lyf og heilsa, með 26-27% markaðshlut. En aðrir keppi- nautar með aðeins 1-3% hlut. Sala eyðir skaðlegum áhrifum Samkvæmt samkeppnislögum getur Samkeppnisráð ógilt sam- runa eða sett honum skilyrði. Viðræður milli samkeppnisyfir- valda og forsvarsmanna Lyfju lei- ddu til þess að fyrirtækið féllst á að selja eftirtalin fimm apótek: I Mosfellsbæ, Smiðjuvegi 2 í Kópavogi, Suðurströnd 2 á Sel- tjarnarnesi, Fjarðargötu 13-15 í Hafnarfirði og Lyfju í Hamraborg 11 í Kópavogi. Markaðshlutdeild þessara apóteka er um 14-15% af lyfsölu á höfuðborgarsvæðinu. Stefnt skal að því að þau verði seld í einu lagi til keppinautar sem er óháður Lyfju eða félögum því tengdu, sem að mati Sam- keppnisráðs nægir til að eyða þeim skaðlegu áhrifum sem sam- runinn hefði annars í för með sér. - HEI

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.