Dagur - 08.02.2001, Side 17

Dagur - 08.02.2001, Side 17
Xfc^wr FIMMTUDAGUR 8. FEBRÚAR 2001 - 17 ERLENDAR FRÉTTIR Fyrsta verkefm Sharons er að Mða ísraela Þrátt fyrir hástemmd- ar yfMýsingar og hót- anir eiga Palestínu- menn og ísraelar ekki annarra kosta völ en að ná samkomulagi um að húa saman í sæmilegum Mði Nærri tveir af hverjum þremur þeirra Israela sem tóku þátt í for- sætisráðherrakosningunum á þriðjudag kusu Ariel Sharon. En kjörsókn var minni en nokkru sinni áður j sögu Israelsríkis. Að- eins 62 % Israela neyttu atkvæð- isréttar síns, en þegar Barak var kosinn 1999 var kjörsókn nær 79%. Þetta sýnir að hvorugur frambjóðenda eða flokkar þeirra njóta óskorðaðs trausts. Friðarviðleitni Baraks nýtur auðsjáanléga ekki fylgis megin- þorra Israela, sem nú flykkja sér að baki harðlínumannsins Shar- ons, sem boðar frið og öryggi án þess að gefa neitt eftir í samn- ingaviðræðum við Palestínu- menn. Astandið er því lævi blandið. Þegar sigurvegarinn ávarpaði áhangendur sína hróp- uðu þeir, að Oslóarsamkomulag- ið sé liðin tíð. Áhangendur Ham- as-samtakanna, sem eru herská- ir Palestínumenn, sögðu að Ara- fat ætti að gleyma öllu friðarhjali en einbeita sér að því að ráðast á Israel. Stjórnendur eiga að losna við þetta skítuga Oslóarsam- komulag en taka upp harðari mótspyrnu gegn Israel. Blöð í Arabaríkjum ráðast harkalega á verðandi forsætis- ráðherra og kalla hann stríðs- glæpamann, hryðjuverkamann, kynþáttakúgara og spara hvergi stóru orðin. í ísrael er stjórnmálaástandið vægast sagt ótryggt eftir að úrslit urðu ljós. Barak hefur sagt af sér formennsku í Verkamanna- flokknum og þingmennsku. Sjálfur er flokkurinn í sárum og klofinn í afstöðu til þeirra sem líklegir eru til að taka að sér for- ystu. En telja má sennilegt, að Simon Peres íyrrverandi forsæt- HEIMURINN isráðherra verði kosinn formað- ur og taki að sér forystuna til bráðabirgða. Sharon á ekki margra kosta völ. Flokkur hans, Likudbanda- lagið, verður að styðjast við fylgi Verkamannaflokksins ef takast á að koma saman starfliæfri meiri- hlutastjórn. En verðandi forsæt- isráðherra býður upp á þjóð- stjórn. Auk þessara stóru flokka eru margir smáflokkar sem eiga fulltrúa í Knesset, en þeir eru ýmist strangtrúaðir og bókstafs- fastir flokkar eða samtök lengst til hægri, nema hvort tveggja sé. Það munu ekki vera sérlega góð- ir kostir fyrir ríkisstjórn að reiða sig á stuðning þingmanna af þeim sauðahúsum. Sharon hefur um sex vikur til stefnu að koma saman starf- hæfri ríkisstjórn, en fjárlög verð- ur að afgreiða fy'rir lok marsmán- aðar. Stóru flokkarnir eiga báðir við svipaða erfiðleika að stríða. Fyrir kosningar var Ijóst, að Pcres naut meira fý'lgis en Barak og var líklegri til að bera sigurorð af Sharon. En Barak neitaði að víkja. Sem stendur er Netanyahu fyrrvernadi forsætisráðherra vin- sælasti stjórnmálamaður ísraels, en er að öðru leyti áhrifalaus. Þeir Sharon og Barak eru engan veginn óskabörn þjóðarinnar og er það líkleg skýring á fádæma lélegri kjörsókn í forsætisráð- herrakosningunum. Það sýnist augljóst að neiti Verkamannaflokkurinn að taka þátt í þjóðstjórn með Sharon og Likudbandalaginu verður kjör- inn forsætisráðherra að fá þing- menn smáflokkanna til fý'lgis við sig, sem ekki kvað vera fýsilegur kostur. Yasser Arafat sagði að óhjá- kvæmilegt sé að halda áfram friðarumleitunum og reyna að komast að samkomulagi við Sharon. En hann leggur áherslu á að það séu ekki aðeins Palest- ínumenn sem þurfi gera upp sakir við hann, heldur einnig Lí- banir og Sýrlendingar ef skapa á ný Mið-Austurlönd. Arafat legg- ur á það áherslu að friðarferlið haldi áfrani og að Sharon taki þar við sem Barak endaði. Það mun gamli hershöfðinginn ekki taka í mál. Ohjákvæmlega munu friðar- umleitanir halda áfram. Hvorki lsraelar né Palestínumenn eiga annarra kosta völ. Leiðtogarnir kæra sig ekki um styrjöld og ná- grannarnir eru ekki fúsir að leggja Palestínumönnum Jrað lið, að þeir eigi nokkra von á móti herstyrk Israela. Hvort Sharon verður eins her- skár í gjörðum sem orðum verð- ur tíminn að leiða í ljós. Mubarak forseti Egyptalands heldur ró sinni þótt stjórnar- skipti verði í Israel. Eftir kosn- ingasigur Sharons sagði hann við fréttamenn: „ Við verðum að bíða og sjá hvaða stefnu Sharon tekur. Mun |iað verða stefna friðar eða valdbeitingar." — oó Sirven mætir PARIS - Alfred Ariel Sharon verður að fá Verkamannaflokkinn til samstarfs ef koma á saman starfhaefri stjórn. En flokkurinn er í sárum, stjórnlaus og án leiðtoga. Sirven, olíufor- stjóri og lykil- maður í ein- hverju umfangs- mesta spilling- armáli sem upp hefur komið í Frakklandi kom f\ rir rétt í gær, í skamma stund, eftir að sjálfur dómsmálaráðherra landsins hafði hvatt hann til að leysa frá skjóðunni um allt sem hann vissi um skjalafais og mútur hjá háttsettum embættismönnum í landinu. Ekki var málinu Jró haldið áfram í gær heldur frestað um sinn. Alfred Sirven kemur í dóm- sal Tjöld og teppi WASHINGTON - Bandaríkja- stjórn sagðist í gær hafa í undir- búningi áætlun um að fljúga með tjöld og teppi til Afganistan og Pakistan handa flóttafólki sem Jiar hefur safnast saman. Fólkið er að flýja tveggja ára þurrka og tuttugu ára stríð og er illa haldið vegna kulda og vos- búðar. Líbýiunaður áfrýjar EDINBORG - Líbýski leyni- þjónustumaðurinn, Abdel Bas- set al - Megrahi, sem nýlega var dæmdur iyrir að hafa sprengt upp farþegajiotu frá Pan Am flugfélaginu yfir skoska bænum Lockerbie árið 1988 tilkynnti í gær að hann ætlaði að áfrýja dóminum. Ódýr AIDS lyf BOMBAY/LONDON - Ind- verskt lyfjafyrirtæki Cipla Ltd., sagðist í gær geta útvegað lyfja- blöndu gegn ÁIDS til þróunar- landa þar sem blandan gæti gagnast þeim fátækustu í heimi. Verðið sem fyrirtækið vill fá f\7r- ir lyfin nerna 1 dollara á dag íý'r- ir hvern mann. Reynist þetta til- boð raunbæft er fyrirtækið að undirbjóða verulega öll helstu lyfjafyrirtæki í heiminum. ■ FRfl DEGI TIL DAGS FIMMTUDAGUR 8. FEBRÚAR 39. dagur ársins, 326 dagar eftir. Sólris kl. 9.45, sólarlag kl. 17.39. Þau fæddust 8. febrúar • I 828 Jules Verne, franskur rithöfundur. • 1878 Martin Buber, þýskur guðfræðing- ur og heimspekingur. • 1894 King Vidor, bandarfskur kvik- myndaleikstjóri. • 1920 Lana Turner, bandarfsk leikkona. • 1925 Jack Lemmon, bandarískur Ieik- ari. • 1941 Nick Nolte, bandarfskur leikari. • 1956 Halldór Guðmundsson útgáfu- stjóri Máls og menningar. • 1963 Jóhann Hjartarson skákmeistari. Þetta gerðist 8. febrúar • 1925 fórust tveir togarar og vélbátur á Halamiðum í Halaveðrinu svonefnda, en með þeim fórust samtals 73 menn. • 1980 tók ríkisstjórn Gunnars Thorodd- sen við völdum. • 1992 var kvikmyndin Ingaló í leikstjórn Ásdísar Thoroddsen frumsýnd. • 1587 var María Skotadrottning háls- höggvin í Englandi fyrir þátt sinn í sam- særi um að myrða Elísabetu I. Eng- landsdrottningu. • 1725 lést Pétur rnikli Rússakeisari. • 1904 hófst stríð milli Rússa og Japana. Vísa dagsins Fangelsið ber ég Ifkt og Ijón, enfastarj ú rng rindu r fo rlaganna fjörið, viljinn og kraftur manna megna þær ekki að mola í spón. Páll Ólafsson Afmælisbam dagsins Bandaríski leikarinn James Dean hefði orðið sjötugur í dag, fæddur þann 8. febrúar árið 1931, cn hann lést sem frægt var í bílslysi í Kaliforníu þann 30. september árið 1955. Hann nam leiklist í tvö ár og starfaði sem leiksviðsleikari í New York þangað til honum buðust hlutverk í kvikmyndum. Myndirnar urðu þó ekki fleiri en þrjár, East of Eden (1955), Rebel Without a Cause (1955) og Giant (1956). Hagsýnn maður lætur ekki geit sína sjá um garðyrkjuna. Ungverskt spákmæli Heilabrot Að þessu sinni fá lesendur talnaþraut að glfma við. Nota skal tölustafina frá 1 og ‘upp í 9, í réttri röð, en það má skella þeim saman í stærri tölur að vild (t.d. 12, 345, 678, 9 eða 1, 23, 4567, 89). Á milli taln- anna má nota + eða -, og samtals ekki nema þrisvar sinnum, þ.e. tveir plúsar og einn mfnus eða einn plús og tveir mínusar. Þrautin er sú, að búa til reikningsdæmi úr þessu þar sem útkoman verður 100. Síðasta gáta: Ef hægt væri að fara með klukku til sólarinnar, hvað væri |iá klukkan Jrar? Svar: Bráðinn málmur og bráðið gler, sem mælir ekki nokkurn skapaðan hlut... Vefur dagsins Bandaríska flogaveikistofnunin er með vandaðar og efnismiklar síður um floga- veiki á w\\rw.efa.org

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.