Dagur - 22.02.2001, Síða 2

Dagur - 22.02.2001, Síða 2
2 - FIMMTUDAGUR 22 . FEBRTÚAR 2 00 1 Dagur FRÉTTIR Bara 11% settu ódýrt efst á lista Hær helmingiir þjóðar- iirnar heldur að garð- yrkjuhændur njóti framleiðslustyrkja sem er alls ekki. Hlut- ur þeirra í smásölu- verðiuu fer lækkaudi. Hlutur grænmetisframleiðenda í smásöluverðinu sem neytendur sjá úti í búð hefur lækkað úr 50% áður niður í 40% um þessar mundir, þannig að álagning er komin í 110-120%, auk síðan 14% vsk. Algengt er að blóma- kaupandi þurfi að borga 100- 150% hærra verð en blómabónd- in fær í sinn hlut, þrátt fyrir að af- föllin lendi að mestu á honum, samkvæmt upplýsingum forsvars- manna Sambands garðyrkju- bænda. „ódýrt“ neðarlega á listanimi Að neytendur setja ferskleika og bragðgæði miklu ofar á lista en verðið við kaup á grænmeti var eitt af því sem garðyrkjubændum kom á óvart af niðurstöðum könnunar sem Gallup gerði íyrir þá. Spurðir um það mikilvægasta og næst mikilvægasta merktu 50% við „nýtt og ferskt", 23% við Formaður og framkvæmdastjóri Sambands garðyrkjubænda Kjartan Ólafsson kynnir niðurstöðurnar á fréttamannafundi i gær. „bragðgott", 16% við „íslenskt" en aðeins 11% við „ódýrt“. Um 85%. töldu íslenskt grænmeti hafa ein- hverja kosti fram yfir innflutt (oft- ast ferskleika, bragðgæði og án varnarefna) en 32% töldu innflutt hafa kosti fram yfir íslenskt (flest- ir þá að það væri ódýrara og fjöl- hreyttara). Um 55% svarenda sögðust borða grænmeti daglega eða oftar og innan við þriðjungur sjaldnar en ljórum sinnum í viku. Svo dæmi sé nefnt hefur sala á ís- lenskum agúrkum nær tvöfaldast frá 1995. Borga hátt orkuverð og fá enga styrM Og að 44% Iandsmanna skuli halda að garðyrkjubændur njóti ríkisstyrkja var annað sem þeim kom illilega á óvart, þar sem þeir fái enga ríkisstyrki. Þeir fá held- ur ekki raforkuna á lágu verði, eins og fjórðungur svarenda hélt. Hátt orkuverð (3,60 kr. á kílóvattsstund sem er 2-3 fait hærra en í Noregi og Kanada) sé þvert á móti það sem veldur þeim hvað mestum erfiðleikum. Garð- yrkjubændur segja orkukostnað um 30% af framleiðslukostnaði þeirra agúrkna og rósa sem séu að koma á markaðinn þessa dagana, en um 20-25% af rekstrarkostn- aði á ársgrundvelli, eða hærri en launakostnaðinn. En tollvernd- in? Jú lagður sé tollur á grænmeti sem flutt er inn á tímabilinu frá 15. mars til 1. nóvember, til verndar íslenskri framleiðslu. En tolltekjurnar, um 160 milljónir á ári, renna hins vegar allar í ríkis- sjóð. Framleiðsluverðmæti garð- yrkjubænda er um 1,5 milljarðar á ári og störf í greihinni um 1.500 talsins. Um 3/4 kaupa bara blóm til gjafa Við kaup á afskornum blómum finnst fólki líka mikilvægast að þau séu ný og fersk og standi lengi, en aðeins 11% töldu lágt verð mikilvægast. Enda kom í ljós að 75% sögðust bara kaupa blóm til að gefa öðrum, um 22% keyptu bæði fyrir sjálfa sig og aðra og 4% bara handa sér sjálfum. Um 3/4 kaupa blómin oftast í blómabúðum og karlar kaupa oft- ar blóm til gjafa en konur. Við garðplöntukaupin fannst fólki mikilvægast að þær séu harðgerðar og fallegar en bara 8% nefndu „ódýrar" sem höfuðkost- inn. -HEI Fiskafli í janúar var mun minni en í janúar í fyrra Samdráttur í flskafla Fiskaflinn í janúarmánuði sl. var 160.465 tonn. Fiskaflinn f janúar- mánuði árið 2000 var lil saman- burðar 206.688 tonn. Munar þar nrestu um samdrátt í loðnuafla, en hann fór úr 153.003 tonnum íjan- úarmánuði árið 2000 í 115.552 tonn síðastliðinn janúarmánuð. Botnfisksaflinn síðastliðinn jan- úarmánuð var 27.376 tonn og dregst saman um 4.935 tonn mið- að við janúarmánuð 2000, er hann var 34.190 tonn. Mestur er sam- drátturinn í veiðum á þorski, 4.934 tonn, fer úr 22.079 tonnum 2000 í 17.145 tonn 2001, eða 22%. Skel- og krabbadýraaflinn síðastlið- inn janúarmánuð nam 2.426 tonn- um sem er nokkru minni afli en í janúarmánuði árið 2000. Síldarafl- inn nam 15.080 tonnum sem er heldur minni afli en í janúarmán- uði árið 2000. Meira en helmingi fiskaflans í janúar var landað í höfnum á Austljörðum. Alls var landað 89.345 tonnum af fiski á Austurlandi. Þar vegur loðnuaflinn þyngst en alls var landað rúmlega 80.500 tonnum af loðnu í höfnum á Austfjörðum í janúarmánuði, eða um 70% heildaraflans. -GG Okurláiiiim otað að íslendingum? Flestir geta með einu símtali fengið yfir- dráttarheimHdir á ávísaiiareikiiingiim. Þessa okurlánastefnu gagnvart einstakling- nm verður að stöðva, að mati þingmanns Samfylkingar. 1 svari viðskiptaráðherra við lyrir- spurn á Alþingi í gær kom fram að yfirdráttarlán einstaklinga hafa vaxið á einu ári úr 38 millj- örðum í 60 milljarða króna eða um 58% frá desember 1999 til descmber 2000. Þessi yfirdrátt- arlán bera 22-23% vexti og hafa vaxið miklu hraðar en verðtryggð skuldabréfalán einstaklinga sem bera rúmlega 14% vexti en þau hafa á sama tímabili vaxið um 1 7%. Gengisbundin skuldabréfa- lán fyrirtækja hafa tvöfaldast á Jóhanna Sigurðardóttir. einu ári og þrefaldast til einstak- linga. Þetta kemur fram í svari viðskiptaráðherra á Alþingi í dag. Jóhanna Sigurðardóttir alþing- ismaður segir mjög alvarlegt hve yfirdráttarlán einstaklinga hafa vaxið ört. „Af 60 milljarða yfir- dráttarlánum einstaklinga eru vextir á einu ári um 13.2 millj- arðar króna meðan vextir á einu ári af 60 milljarða verðtryggðu skuldabréfaláni eru 8.6 milljarð- ar króna. Þessum okurlánum er greinilega otað ótæpilega að ein- staklingum og virðast flestir geta bara með einu símtali fengið yf- irdráttarheimildir á ávísanareikn- ing sinn. Þessa okurlánastefnu gagnvart einstaklingum verður að stöðva," segir Jóhanna. Þingmaðurinn segist sjálfur hafa kannað að á árinu 1995 hafi yfirdráttarlán einstaklinga ver- iðll.5 milljarðar króná eða 13.7 milljarðar á núgildandi verðlagi á móti liðlega 60 milljörðum í des. s.l. „Þannig hafa okurlánin til einstaklinga gert gott betur en að fjórfaldast á fimm ára tímabili. Þessi okurlán er nú um 10% af heildarskuldum heimilanna sem voru um 600 milljarðar í desem- ber s.l. Skuldir heimilanna höfðu þá á einu ári frá desember 1999 til desember 2000 vaxið um 100 milljarða króna," segir Jóhanna. -BÞ Vg fordæmir loftárásir Þingflokkur Vinstrihreyfingar- innar - græns framboðs hefur samþykkt ályktun þar sem loft- árásir Breta og Bandaríkja- manna á Irak 1 6. febrúar sl. eru fordæmdar. „Með árásunum á Baghdad hafa þessi tvö ríki tek- ið sér vald sem engin stoð er fyr- ir í alþjóðalögum því aðeins Sameinuðu þjóðirnar geta ákveðið hvernig vopnahlésskil- málunum frá 1991 verði fylgt eftir," segir í ályktuninni. Þing- flokkurinn vekur líka á því at- hygli að fjöldi rfkja, þar á meðal Frakkland, hafi fordæmt þcssar loftárásir og skorar á íslensk stjórnvöld að gera slíkt hið sama. Jafnframt ítrekar þinjg- flokkurinn þá afstöðu sfna að Is- lendingum beri að beita sér fyr- ir þvf að framkvæmd viðskipta- bannsins á Irak verði endur- skoðuð nú þegar. Einstrengingslegt útvarpsrád Framkvæmdastjórn Sambands ungra framsóknarmanna (SUF) harmar þá“einstrengingslegu ákvörðun útvarpsráðs að skylda þátt- takendur Islands í söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva til að syngja á íslensku og hefta með því frelsi listamannanna til tjáningar á verkum sínum." Svo segir í ályktun frá ungliðunum og lýsir stjórnin einnig yfir full- um stuðningi við Gissur Pétursson, fulltrúa framsóknarmanna í út- varpsráði, en hann var eini fulltrúinn í ráðinu sem lagðist gegn þess- ari ákvörðun. Jafnframt fer framkvæmdastjórn SUF fram á að útvarpsráð dragi þessa ákvörðun sína til baka og leyfi íslensku keppendunum að njóta jafnréttis á við keppendur annarra þjóða. -BÞ Flugleiðir selja þrjú hótel Gengiðvar í gær frá samningi milli Flugleiðahótela hf og Kaupfélags Árnesinga um kaup á Flughótelinu í Keflavík, Hótel Flúðum og Hót- el Kirkjubæjarklaustri. Samningurinn tekur gildi frá og með 1. mars. Hótelin verða áfram rekin undir merkjum Icelandair Hotels og KA mun hafa aðgang að bókunarkerfi félagsins. Þetta er liður í áherslu- breytingu í rekstri Flugleiðahótelanna, þar sem aukin áhersla verður lögð á uppbyggingu í Reykjavík og rekstur sumarhótela, en beinn rekstur heilsárshótela á landsbyggðinni dregst saman. Auk sölunnar á rekstri hótelanna þriggja til KA hefur Flugleiðahótelið á Höfn í Hornafirði verið selt til heimamanna þar. -sbs Spurt um minnisblað Davíðs Ögmundur Jónasson, þingmaður vinstri grænna, Bryndís Hlöðversdóttir, Samfylkingunni og Guð- jón A. Kristjánsson, Frjálslynda flokknum, hafa lagt fram á Álþingi fyrirspurn til Davíðs Oddsson- ar forsætisráðherra um minnisblað til starfsnefnd- ar ríkisstjórnarinnar í öryrkjamálinu, þ.e. nefndar- innar sem Jón Steinar Gunnlaugsson hæstaréttar- lögmaður veitti forystu. Fyrirspurnin cr einföld og skýr: „Hvernig hljóð- aði minnisblað sem vísað er til í erindisbréfi sem starfsnefnd ríkisstjórnarinnar í öryrkjamálinu fékk - frá forsætisráðherra eða ríkisstjórninni í kjölfar Ogmun ur dóms Hæstaréttar frá 19. desember sl.?“ - fþg Jónasson

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.