Dagur - 22.02.2001, Blaðsíða 9
Vgjpri
FIMMTUDAGUR 22. FF.BRÚAR 2001
9
ÍÞRÓTTIR
Ný gullold hj á Liverpool?
Seinni leiMmir í 16-
liða úrslitum UEFA-
brkarsins í knatt-
spymu fara fram í
kvöld og er beðið með
miklum spenningi eft-
ir viðureign Iiverpool
og Roma á Anfield, en
fyrri leik liðanna lauk
með 0-2 útisigri „Púl-
ara“ í Róm.
Enska liðið Liverpool, sem á fjöl-
da aðdáenda hér á landi, mætir f
kvöid ítalska liðinu AS Roma í
seinni leik liðanna í 16-liða úr-
slitum UEFA-bikarsins í knatt-
spyrnu. Fyrri leiknum, sem fram
fór á Olympíuleikvanginum í
Róm, lauk með óvæntum 0-2
sigri Liverpool og skoraði enski
landsliðsframherjinn, Michael
Owen, bæði mörkin í seinni
hálfleik. Framganga Owens í
leiknum gefur góð fyrirheit um
að hann sé nú loksins kominn á
skotskóna eftir Iangt meiðsla-
tímabil og að kappinn hafa nú
aftur öðlast sjálfstraustið sem Iít-
ið hefur farið fyrir í vetur. Það
var ekki aðeins góður leikur
Owens sem gladdi dygga stuðn-
ingsmenn Liverpool, því allt lið-
ið var að Ieika skínandi vel og
auðséð að það er nú loksins að
komast á skrið eftir niðursveiflu
síðustu ára.
Franska byltíngin að skila sér
Það virðist sem franska bylting-
in, sem Gerard Houllier, knatt-
spyrnustjóri, hóf á Anfield fyrir
tveimur árum, sé nú loksins að
skila sér, en liðinu hefur gengið
mjög vel í ensku deildinni að
undanförnu, þar sem það er í
þriðja sætinu með 45 stig eftir
26 leiki. Liðið hefur reyndar ekki
tapað Ieik síðan á annan í jólum,
þegar það tapaði 0-1 gegn Midd-
lesbrough á Riverside Stadium
og er það auk góðrar stöðu í
deildinni, komið í úrslit deildar-
bikarsins, þar sem það mætir
fyrstudeildarliði Birmingham á
sunnudaginn og í 8-liða úrslit
enska bikarsins, þar sem það
mætir Southampton í næsta
mánuði. Það þýðir að liðið er
enn í toppbaráttunni á fjórum
vígstöðvum, sem minnir á gömlu
góðu dagana þegar liðið hafði yf-
irburðastöðu í boltanum og
spurning hvort ný guliöld sé haf-
in á Anfield.
Liverpool á réttri leið
Gerard Houllier þakkar gott
gengi liðsins markvissri upp-
byggingu og segir að nú loksins
sé árangur erfiðisins að skila sér.
„Það hefur verið góður og stöð-
ugur stígandi í liðinu í vetur og
ef við hefum mætt Roma fyrir
sex vikum, þá er ég viss um að
úrslitin hefðu ekki orðið eins
góð. Nú höfum við í herbúðum
okkar leikmenn sem hugsa eins
og atvinnumönnum sæmir, sem
er mikil breyting frá því sem var,
þegar ég kom hér til starfa.
Strákarnir vita fullvel að þeir
þurfa að hafa fyrir hlutunum til
að ná árangri og því leggja þeir
mikið á sig, enda veitir ekki af
þar sem við spilum yfir 70 leiki á
tímabilinu. Eg sér framfarir hjá
liðinu með hverjum deginum,
enda er metnaðurinn mikill.
Menn vilja virkilega vinna og
ákafinn er stundum svo mikill að
ég á í vandræðmu með að ná
þeim af æfingasvæðinu. Þetta
breytta hugarfar er lykillinn að
velgengni okkar að undanförnu
og það gefur okkur góð fyrirheit
um að við séum á réttri leið,“
sagði Houllier.
Roma hyggst hefna ófaranna
frá 1984
Miðað við árangurinn í fyrri
leiknum gegn Roma, veðja flest-
ir á sigur Liverpool á Anfield í
kvöld. Það er þó Ijóst að ítalska
liðið, sem hyggst hefna ófaranna
gegn Liverpool í Evrópubikarn-
um árið 1984, náði sér aldrei á
strik í {yrri leiknum og mætir því
örugglega mun sprækara í kvöld.
Þar munar mestu að Francesco
Totti er nú aftur mættur til leiks
eftir veikindi og Iíklegt að
Gabriel Batistuta verði einnig
með, en hann átti við meiðsli að
stríða fyrir fyrri leikinn og gat að-
eins leikið síðustu 20 mínúturn-
ar. Batistuta hefur þó ekki alveg
náð sér af meiðslunum og spurn-
ing hvort Fabio Capello, þjálfari
Roma, spari hann fyrir átökin í
ítölsku deildinni um helgina, en
Roma er þar í toppsætinu með
sex stiga forystu.
Houllier hefur varað sína
menn váð bjartsýni og segir að
bardaginn sé aðeins hálfnaður.
„Sigurinn á Italíu var bara fyrsta
skrefið og við verðum að spila
okkar besta Ieik til að sigra. Við
megum alls ekki vanmeta þá og
verðum að gæta okkar," sagði
Houllier.
Leikir kvöldsins:
(Urslit fyrri lciksins í sviga)
Kaiserslaut. -Slavia Prague (0-0)
Parma - PSV Eindhoven (1-2)
Barcelona - AEK (1-0)
Celta Vigo - Stuttgart (0-0)
lnter Milan - Alaves (3-3)
Bordeaux - Rayo (1-4)
Nantes - Porto (1-3)
Liverpool - Roma (2-0)
Porto með góða stöðu
Sigurvegararnir úr viðureign
Liverpool og Roma munu mæta
sigurvegurunum úr leik Porto og
Nantes í 8-liða úrslitunum, en
seinni viðureign þeirra síðar-
nefndu fer fram í Frakldandi í
kvöld. Porto vann fyrri leikinn
heima, 3-1 og ætlar sér ekkert
annað en sigur í seinni leiknum
samkvæmt því sem þjálfari
Porto, Fernando Santos, segir.
„Við förum til Frakklands til að
sanna að við eru ekki síður sterk-
ir á útivelli,“ sagði Santos fullur
sjálfstrausts, þrátt fyrir að mið-
vörðurinn sterki, Jorge Costa,
verði ekki með.
Þrátt fyrir 0-1 sigur Barcelona
gegn gríska liðinu AEK Aþenu í
fyrri leik liðanna, voru áhang-
endur Iiðsins langt frá því að
vera ánægðir með frammistöðu
sinna manna í Ieiknum. Spænsk-
ir áhangendur eru reyndar alltaf
mjög kröfuharðir og því kemur
ekkert annað en stórsigur liðsins
til greina á Nou Camp í kvöld og
er Luis Enrique, sem skoraði
markið í fyrri leiknum, þar undir
mikilli pressu, þar sem áhang-
endur liðsins heimta markasúpu.
Sigri Börsungar í viðureign-
inni við AEK, mæta þeir sigur-
vegurunum úr leik Celta Vigo og
Stuttgart í 8-liða úrslitum. Fyrri
leikur liðanna sem fram fór í
Stutlgart, endaði með marka-
lausu jafntefli og veðja flestir á
sigur Spánverjanna í seinni
leiknum í kvöld.
Alaves gæti koxnið á óvart
Italska liðið Inter Milan, sem
eins og Barcelona var slegið út
úr Meistaradeild Evrópu í riðia-
keppninni fyrr í vetur, mætir
spænska liðinu Alaves í seinni
leik liðanna á San Siro leikvang-
inum í Mílanó í kvöld. Fyrri
leiknum lauk með 3-3 jafntefli á
Spáni og eftir 0-1 tapið gegn
Napoli í ítölsku deildinni á
sunnudaginn, mæta leikmenn
Inter í sárum til leiks í kvöld.
Marco Tardelli, þjálfari lnter,
mun þó gera allt til að stappa
stálinu í sfna menn, en lið hans
hefur alls ekki verið sannfærandi
í vetur og því gæti Alaves komið
á óvart.
Sigurvegararnir úr viðureign
Inter og Alaves munu mæta sig-
urvegurunum úr viðreign Rayo
Vallecano og Bordeaux, en liðin
mætast f seinni Ieiknum í Frakk-
landi í kvöld. A brattann verður
að sækja hjá franska liðinu, því
þeir töpuðu fyrri leiknum, 4-1, í
Vallecano á Spáni. Þrjú mörk í
pokahorninu ættu að duga
spænska liðinu og ólíklegt að
Frökkunum takist að vinna upp
markamuninn. Varnarjaxlinn,
Alain Roche hjá Bordeaux, er þó
á öðru máli og segir að með góð-
um leik sé allt mögulegt í spilun-
um. „Það yrði hneisa fyrir okkur
að láta Rayo, sem varla telst til
sterkustu liða í Evrópu, slá okk-
ur út úr keppninni," sagði
Roche.
í öðrum leikjum seinni um-
ferðarinnar tekur ítalska liðið
Parma á móti hollenska liðinu
PSV Eindhoven á Ítalíu og þýska
liðið Kaiserslautern tekur á móti
tékkneska liðinu Slavia Prag.
Fyrri leik Parma og PSV lauk
með 2-1 sigri hollenska liðsins í
Hollandi og líklegt að Italirnir
hyggi á hefndir þegar liðin mæt-
ast á Italíu í kvöld. Fyrri leik
Kaiserslautern og Slavia lauk
með markalausu jafntefli í Prag
og stefnir því í spennandi viður-
eign liðanna í kvöld, en sigurveg-
ararnir mæta sigurvegurunum úr
viðureign Parma og PSV.
United skrefi nær 8-liða úrslitunum
Wes Brown, miðvördur Manchester United, sem skoraði sjálfsmark gegn
Vaiencia, stöðvar hér Norðmanninn John Carew, framherja Vaiencia.
Ensku meistararnir Manchester
United eru skrefi nær 8-liða úr-
slitum Meistaradeildar Evrópu
eftir leiki fjórðu umferðar á A og
B-riðli sem fram'fóru í fyrra-
kvöld. United náði þó aðeins 1-1
jafntefli gegn Valencia á Old
Trafford, sem dugði liðinu til að
halda toppsætinu og tveggja
stiga forskoti í A-riðlium. Andy
Cole kom United yfir strax á tólf-
tu mínútu leiksins, þegar hann
skoraði af stuttu færi eftir fyrir-
gjöf Ryans Giggs. Leikmenn Val-
encia sótt mjög í sig veðrið þegar
leið á hálfleikinn og sóttu þá stíft
að marki United, en tókst þó
ekki að skora framhjá frábærum
markverði United, Fabien
Barthez. Leikmenn United náðu
svo aftur tökum á Ieiknum í scin-
ni hálfeiknum og var það helst
fyrir innkomu Ola Gunnars Sol-
skjær, sem var sprækur í sókn-
inni. Á móti beittu leikmenn Val-
encia skyndisóknum og eftir eina
slíka sem endaði með horn-
spyrnu, þegar aðeins um tvær
mínútur voru eftir af venjulegum
leiktíma, gaf Vicente Rodriguez
fasta sendingu fyrir markið, þar
sem Wes Brown, miðvörðurinn
ungi hjá United, tevgði tána í
boltann og stýrði honum í mark-
hornið framhjá Bartez. Brown
hafði staðið sig vel í leiknum og
var þétta sorglegur endir fyrir
þennan frábæra leikmann, sem
cr að verða einn besti varnar-
maðurinn í enska boltanum.
Alex Ferguson sagði eftir leik-
inn að vissulega hefðu þetta ver-
ið vonbrigði. „En svona atvik
koma oft fyrir í boltanum og við
því er ekkert að gera. I þessu til-
viki var öll vörnin of sein til og
þess vegna fengum við á okkur
markið. Það er ekki viö Brown
einan að sakast," sagði Ferguson.
1 hinum leik riðilsins vann
spútniklið Sturm Graz óvæntan
1-2 útisigur á gríska liðinu Pan-
athinaikos og er liðið þar með
komið með sex stig eftir fjóra
leiki, eða jafnmörg og Valencia.
I B-riðli vann spænska liðið
Dcportivo La Coruna 2-0 heima-
sigur á tvrkneska Iiðinu
Galatasaray á sama tíma og Par-
ísarliðið St. Germain gerði I -1
jafntefli gegn MC Milan í París.
Þrátt fyrir tapið heldur
Galatasaray toppsætinu í riðlin-
um, en AC Milan og Deportivo
deilda 2.-3. sætinu með 6 stig.
I gærkvöldi var leikið í C og D-
riðli og höfðu úrslit ekki borist
þegar blaðið fór í prentun.
Staðan í A og B-ridli
A-riðill:
Man. Utd. 4 2 2 0 6:2 8
Valencia 4 1 3 0 3:1 6
Sturm Graz 4 2 0 2 4:5 6
Panathinaikos 4 B-riðiII: 0 1 3 2:7 1
Galatasaray 4 2 1 1 4:4 7
Deport. C. 4 2 0 2 5:3 6
AC Milan 4 1 3 0 5:4 6
PS Germain 4 0 2 2 3:6 2