Dagur - 22.02.2001, Blaðsíða 6

Dagur - 22.02.2001, Blaðsíða 6
6 - FIMMTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2001 ÞJÓÐMÁL Útgáfufélag: DAGSPRENT Útgáfustjóri: eyjólfur sveinsson Ritstjóri: elías snæland jónsson Aðstoðarritstjóri: birgir guðmundsson Skrifstofur: strandgötu si, akureyri, GARÐARSBRAUT 7, HÚSAVÍK OG ÞVERHOLTI 14, REYKJAVÍK Símar: 460 6ioo OG 800 7080 Netfang ritstjórnar: ritstjori@dagur.is Áskriftargjald m. vsk.: i.goo KR. Á MÁNUÐI Lausasöluverð: 150 KR. OG 200 KR. helgarblað Grænt númer: soo 7080 Netföng auglýsingadeildar: valdemar@dagur.is-augl@dagur.is-gestur@ff.is Símar auglýsingadeildar: (REYKJAV(K)563-1615 Ámundi Ámundason (REYKJAVÍKJ563-1642 Gestur Páll Reyniss. CAKUREYRI)460-6191 Valdemar valdemarsson. Símbréf augiýsingadeiidar: 460 6161 Símbréf ritstjórnar: 460 617i(akureyri) 551 6270 (REYKJAV(K) Mesti viðskiptahalliim í fyrsta lagi Enn berast aðvaranir innlendra og erlenda sérfræðinga vegna þess gífurlega halla sem verið hefur á viðskiptum Islendinga við útlönd síðustu ár og er enn. I niðurstöðum sendinefndar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, sem k}Tinti sér stöðu íslenskra efna- hagsmála í síðasta mánuði, er þannig lýst sérstökum áhyggjum af því „hve viðskiptahallinn er mikill og þrálátur." Þetta ástand gaf sendinefndinni sérstaka ástæðu til að efast um að lending- in eftir þenslu síðustu ára verði mjúk og þar með þægileg fyr- ir efnahagslífið og almenning. En æðstu yfirmenn efnahags- málanna, forsætisráðherra og fjármálaráðherra, sjá auðvitað enga ástæðu til að hafa slíkar áhyggjur. í öðru lagi Einn sérfræðinga Seðlabankans hefur nýverið birt ítarlega út- tekt á viðskiptahallanum og líklegum áhrifum hans á þróun efnahagsmála. Þar kemur fram að nú stefnir í lengsta og alvar- legasta viðskiptahallatímabil í sögu lýðveldisins. Flest rök hnígi að því að halli síðustu þriggja ára hafi verið ósjálfbær, en með því er átt við viðskiptahalla sem geti ekki orðið vdðvarandi án þess að hafa í för með sér skyndilegan afturkipp eða að gengið sé á framtíðarlífskjör þegnanna. Sérfræðingur Seðla- bankans kemst að þeirri niðurstöðu að núverandi hallatímabil „geti haft veruleg eftirköst fyrir íslenskan þjóðarbúskap." í þriöja lagi Mörg undanfarin misseri hafa bæði sérfræðingar og stjórn- málamenn varað við gífurlegum og viðvarandi viðskiptahalla og hvatt til viðbragða af hálfu stjórnvalda. Formaður Samfylk- ingarinnar hefur farið á undan í þessu efni, en ávallt fengið bágt fyrir af þeim ráðherrum Sjálfstæðisflokksins sem bera ábyrgð á stjórn efnahagsmála. Sjálfstæðisráðherrarnir kjósa að loka augum og eyrum fyrir öllum aðvörunum. Langvarandi tregða þeirra til að takast á við vanda margra ára viðskipta- halla, getur kallað óþarfar efnahagslegar þrengingar yfir lands- menn á næstu árum. Elías Snæland Jónsson Pólitik pólfarans Ólafur Örn Haraldsson er greinilega kominn af Suður- pólnum! Og hann virðist enn vera þingmaður þ\d Garri sér að hann er titlaður sem slíkur í grein sem hann skrifar í Dag í gær. Og það sem meira er, maðurinn er greinilega orð- inn 1. þingmaður framsóknar í Reykjavík eftir að Finnur fór. Garri hefur verið að velta þessu með Ólaf Örn fyrir sér, og hallast helst að því að það hljóti að vera nokkrir dagar eða jafnvel vikur síðan hann kom heim. í það minnsta gaf hann kost á sér til varaformennsku flokknum um dag- inn og er nú kom- inn í hávaða rifrildi við Valgerði Sverr- isdóttur, en ekkert hefur heyrst í hon- um um margra missera skeið. Ekki einu sinni um gervihnattasíma, þannig að Garri hefur ein- faldlega gert ráð fyrir að hann væri enn á einhverjum þeim stað á öðrum hvorum pólnum þar sem ekki næst símasam- band. Ný pólitik En eins og oft vill verða þegar menn eru langdvölum að heiman, ekki síst pólitíkusar, þá gerist eitt og annað 1' Ijar- veru jreirra. Og á meðan Óiaf- ur Örn var á pólnum eða hvar hann hefur nú verið, þá hefur mikið gengið á í Framsóknar- flokknum. Fram eru komnar nýjar stjörnur og nýir straum- ar - og á meðan Ólafur var á pólnum hefur komið upp ný tegund stjórnmála svokölluð lögspekipólitík. Það er sú teg- und pólitíkur sem gengur út á lögskýringar og að fá lögmenn til að skila sem fjölbreyttust- unt lögfræðiálitum sem V stjórnmálamennirnir geta svo rifist um. I slíkum slag þykir sérstakur fengur fyrir þing- flokka t.d. ef þcir hafa á að skipa lögfræðingum, því þeir eru öðrum slyngari við að tjá sig um slík mál. Og framsókn gat nýlega teflt fram eigin lög- fræðingi í þessa umræðu, sem var Jónína Bjartmarz, alþing- ismaður. Abbast upp á Ólaf Og þar sem Jónína féll svona vel að hinni nýju pólitík hafa að sjálfsögðu heyrst raddir um að hún eigi mikinn frama skil- inn í flokknum. Að hún eigi jafnvel að bjóða sig fram til varaformennsku. Slíkt tal fer hins vegar illa í Ólaf sem eftir einver- una á pólnum er ekki vanur því að aðrir séu að abb- ast upp á hann og troða hon- um um tær. Það er því von- legt að Olafur bregðist illa við umræðum um framboð Jón- ínu og segi það fáheyrða móðgun að annar þingmaður kjördæmis bjóði sig fram gegn fyrsta þingmanni kjördæmis. En það virðist bara enginn taka neitt tillit til umkvartana Ólafs Arnar og flokksfélagarn- ir yppta öxlum og láta sér fátt um finnast. Skilaboð þeirra eru skýr: það eru allir í fram- boði! Garra sýnist að lærdóm- urinn sem draga má af þessu sé, að sá sem ætlar að taka þátt í pólitík verði að reikna með mannaferðum í kringum sig og jafnvel að viðkomandi verði troðið um tær. Ólafur er greinilega búinn að vera full- lengi í einsemdinni úti á ísn- -GARRI Kjósendur og hæstvirta fjórða iifl 'I æ ~ JÓHANNES SIGURJÓNS- SON skrifar Það mætti stundum ætla af um- ræðum og umfjöllun um alþing- ismenn og Alþingi að á þeim vinnustað væru oftar cn ekki fiestir sótraftar á sjó dregnir. Að á Alþingi væri saman komið úr- kastið úr samfélaginu, hratið sem fellur til við saftgerðina, all- ir vitleysingarnir sem ekki fá inni á fávitahælunum vegna pláss- leysis, eiginhagsmunaseggirnir sem ekki geta lengur mergsogið næstu nágranna heima í héraði, áhugaleikararnir sem þykja ótækir á svið í Iitla leikklúbhnum og smákóngarnir ' sem fá ekki valdalíkn sinni fuilnægt á heima- slóðum. Það er sent sé hægt að halda því fram með rökum að alþingis- menn á Islandi njóti ekld alltaf sannmælis. Þjúðarsport Málið er nefnilega að það er ein- hvers konar þjóðarsport að tala illa um alþingismenn og yfirleitt algjörlega ógrundað. Um leið og grandvarir sómamenn sem aldrei hefur verið orði á hallað, korna inn á Alþingi, þá er umsvifalaust gefið út skotleyfi á þá og alþingi götunnar úthrópar viðkontandi öðlinga sem óalandi og óferjandi idjóta. Ákvarðanir sem menn taka á Alþingi af bestu samvisku eru tor- tryggðar í bak og fýrir og þingmenn uppstyttulaust vændir um hags- munagæslu, óheið- arleika og sitthvað þaðan af verra. Sleggjudómarnir dynja daglega á þingmönnum eins og skæðadrífa og oft fátt til varnar. Auðvitað þarf að veita þingmönnum aðhald og gaumgæfa gerðir þeirra og gagn- rýna. En skítkast skítkastsins vegna er annar handleggur. Staðreyndir málsins munu reyndar einatt þær að flestir, ef ekki allir þingmenn, eru að vinna eins vel og þeir geta og með þjóðar/kjördæmishagsmuni að Ieiðarljósi, hver með sínum hætti raunar og í samræmi við mis- munandi skilgreiningu á þjóðar- hag. Auraiisíur Þingmenn eru sem sé upp til hópa afar frambærilegt fólk sem væru ekki þarna inni nema þeir teldu sig geta unnið þjóð sinni (og kjördæmi) gagn. Það er til dæmis al- veg Ijóst að gróða- hugsjónin rekur engan inn á þing, því víða í þjóð- félaginu er feitari gelti að flá í þeim efnum en inni á Alþingi. Og annað sem menn vcrða að hafa í huga. I fjölmennum ríkj- um kýs almenningur undantekn- ingarlítið stjórnmálamenn án þess að þekkja haus né sporð á viðkomandi, nema úr velsnyrtum sjónvarpsviðtölum. Á Islandi aft- ur á móti þekkja kjósendur fram- bjóðendur yfirleitt í einhverjum mæli, ef ekki persónulega sem oft er, þá af orðspori í gegnum ættingja og kunningja sem þekk- ja mann sem þekkir mann sem þekkir þingmannscfnið. Kjósendur hafa |iví nokkuð til að byggja á þegar að kosninguin kemur. Þingmenn endurspegla því þjóðarviljann betur á íslandi en í flestum öðrum löndum. Og það þýðir einfaldlega að ef hæst- virtur fjórði þingmaður kjör- dæmisins er fífl, þá eru fíflin giska mörg heima í héraði, sem sé allir sem kusu hæstvirta Ijórða fíll kjördæmisins. Þetta ættu menn að hafa í huga áður en þeir fara að ausa þingmenn órökstuddum auri, (ef aur af því taginu er þá til). Eru endalohASÍ í augsýn ? (Þessu spáir Guðmundur Gunn- arsson formaður RSI og segir forystumenn VR og Trésm.fél. Reykjavíkur hafa hrakið Ara Skúlason úr starfi framkvæmda- stjóra ASI.) Hervar Giumarsson, fonnadur Verlealýðsfélags Akraness. „Að mínu mati stendur og fellur framtíð ASÍ ekki með því hvort ein- staka starfsmenn eða kjörnir full- trúar hætti störf- um. Það er eðlilegt að menn hafi ólíkar skoðanir á hlutunum, eins og virðist vera í þessu máli. Mér koni á óvart þegar ég las frétt um þetta mál í Degi að eitthvað þurfi að deila um brotthvarf Ara, maðurinn sótti um starf hjá Afl- vaka og fékk - en fréttin segir mér allt annað." Aðalsteinn Á. Baldursson, fomi. Verkalýðsfél. Húsavíkur. „Endalok ASÍ eru ekki í augsýn, heldur er almenn- ur vilji til þess meðal liðsmanna aðildarfélaga að byggja það upp. Það er best að Guðmundur svari því sjálfur hvers vegna hann er þessarar skoðunar, en sjálfur tel ég að sjaldan hafi verið meiri þörf á því en nú að öflug hcildar- samtök launafólks í landinu séu til.“ Jón Ingi Kristjánsson, fonnaðurAlþýðusamb.Austurlaiids. „Að mínu mati hefði verið skyn- samlegast hjá Ara að hætta störfum hjá ASI strax að loknu þingi ASI í fyrra. Þar tapaði Ari með miklum mun fyrir Grét- ari, en áður hafði Ari sagt að myndi hann bíða lægri hlut myndi hann ganga út af skrif- stofu ASÍ strax og stór hluti skrifstofufólksins með honum. Þetta gerðist eldd. Úr því sem komið var hefði ég talið eðlilegt að Ari og Grétar hefðu gert þetta mál upp sín á milli. Eg held að framtíð ASÍ sé trygg, alltaf kem- ur maður í manns í stað.“ Pétur Sigurðsson, fomtaðurAlþýðusamb. Vestfjarða. „I gegnum árin hefur úrvalsfólk starláð hjá ASI, en svo hafa menn horfið til annarra starfa eins og geng- ur. Ari hefur haft sínar meiningar á samninga- og efnahagsmálum sem ekki hafa alltaf fallið öllum í geð, en það er ekki þar með sagt að þeir menn sem sitja á friðarstóli sé þeir bestu. Með því að fara í umdeilt framboð við sitjandi forseta á þingi ASl sl. haust skapaöi Ari sér erfiða stöðu, og því er ekki skrýtið að hann hafi nú þegið áhugavert starf á öðrum vettvangi þegar það bauðst. Ef ekld kemur maður manns í stað hjá ASI erum við í vondum málum, þó ég hafi ekld trú á að slíkt gerist."

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.