Dagur - 27.02.2001, Síða 1
Þriðjudagur 27. febrúar 2001
84. og 85. árgangur -40. tölublað
Miðlægur gagna-
gruimiir í Smára
Sérhver verslun tengd
móðurtölvu. Stjóm-
tæM íyrir húsið og
verslunina. Þarf ekki
leyfi Persónuvemdar.
Trúnaðampplýsingar
dulkóðaðar.
Áform eru um að setja upp mið-
lægan gagnagrunn á verslunarsviði
í nýju risaverslunarmiðstöðinni
sem opnar í Smáranum í Kópavogi
næsta haust. Sérhver verslun verð-
ur tengd þessum grunni en upplýs-
ingar um veltu hverrar fyrir sig
verða dulkóðaðar. Þessí gagna-
grunnur mun byggjast á íslensku
hugviti og sagt er að hann sé fyrsti
sinnar tegundar í heiminum. Ef vel
tekst til binda menn vonir við að
grunnurinn geti orðið verðmæt út-
flutningsvara.
Óttast persóniuijósnir
Skiptar skoðanir eru þetta meðal
verslunarmanna en sumir óttast
að upplýsingar
grunninum verði m.a.
notaðar sem skatt-
stofn, sía þá í burtu
sem standa sig ekki og
til annarra per-
sónunjósna um versl-
unina og viðskiptavini.
Því neitar talsmaður
Smáralindar sem segir
að grunnurinn sé
hugsaður sem stjórn-
tæki fyrir allt húsið.
Sigurður Jónsson
framkvæmdastjóri
Samtaka verslunar og
þjónustu segir að þetta mál hafi
ekki verið rætt innan stjórnarinnar
né heldur hefur það verið kynnt
fyrir samtökunum sem eru heildar-
samtök kaupmanna í smásölu. Af
þeim sökum sé erfitt að tjá sig um
þessa nýjung að svo stöddu.
Stjómtæki
Pálmi Kristinsson talsmaður
Smáralindar segir að með þessum
gagnagrunni verður hægt að fylgj-
ast með því hvenær á opunartíma
„kaupin gerast á eyr-
inni“ eins og hann
orðar það. Hins veg-
ar sé ekki ætlunin að
fylgjast með því hver
það er sem kaupir og
selur.
Hann segir að til-
gangur þessa upplýs-
ingakerfis sé m.a. til
að fylgjast með um-
ferð á bílastæðum
verslunarmiðstöðvar-
innar, fólksfjölda og
viðskiptum í húsinu.
Hann vísar því á bug
að með þessu verði fylgst með veltu
einstakra verslana og segir að upp-
lýsingar um það verði dulkóðaðar.
Þá sé þetta kerfi ekki til eftirlits
heldur hugsað sem stjórntæld.
Eltki mál Persónuvemdar
Pálmi segir að í þessum gagna-
grunni verði ekki safnað persónu-
legum upplýsingum um hagi við-
skiptavina hússins og því þarf ekki
samþykki Persónuverndar fyrir
þessum grunni. Þá reiknar Pálmi
ekki með þvf að eitthvað verði
„sýslað" með upplýsingar um veltu
og afkomu einstakra verslana í
þessum grunni, hvorki innan dyra
hjá Smáranum eða á annan hátt,
enda sé þar um trúnaðarupplýsing-
ar að ræða. Hann segir að gagna-
grunnurinn sé með upplýstu sam-
þykki verslunareigenda í húsinu og
um það sé kveðið í leigusamningi
við hvern og einn.
Til hagsbóta
Af hálfu Smáralindar er talið að
þetta sé verslunareigendum til
hagsbóta. Því til staðfestingar
bendir Pálmi á að almennar upp-
lýsingar úr grunninum geti t.d. ver-
ið á skjá hjá verslunarstjórum og
jafnvel hjá starfsmönnum. Þannig
sé hægt að fylgjast með fólksfjöld-
anurn, hvað sé að gerast hverju
sinni í húsinu og hversu heildar-
veltan sé mikil frá hverjum tíma
dagsins f\rrir sig. Það eigi síðan að
geta nýst verslunareigendum t.d. í
starfsmannahaldi með tilliti til
álagstíma og við skipulagningu.
- GRH
Sigurður Jónsson fram-
kvæmdastjór/ Samtaka versl-
unar og þjónustu
16% aukning
í sæðissölu
Samkvæmt upplýsingum frá
Nautastöð Landssambands kúa-
bænda voru í fyrra seldir 2.400
sæðisskammtar úr holdanauta-
stofnunum Angus og Limósín,
sem er 16,1% fleiri skammtar en
árið á undan. Ástæða aukning-
arinnar er sögð sú að samkeppn-
in á kjötmarkaði fer harðnandi
ár frá ári. „Kúabændur hafa því
þurft að leita allra leiða til að
framleiða nautakjötið með hag-
kvæmari hætti og er það fyrst og
fremst ástæðan fyrír því að æ
fleiri bændur nota sæði úr þess-
um nýju stofnum við kjötfram-
leiðslu sína, enda vaxtarhraði og
fóðurnýting þeirra mun betri en
íslenskra nauta,“ segir Snorri
Sigurðsson, framkvæmdastjóri
Nautastöðvar LK.
I ár eru liðin fjögur ár frá því
að fyrst var farið að bjóða ís-
lenskum kúabændum upp á
sæði úr þessum holdastofnum.
-BÞ
Túkall. Neyslumenning þjóðarinnar tekur hamskiptum þessa dagana. í gær voru það bollur afýmsum toga. Salt-
kjöt og baunir eru á matseðli sprengidagsins sem er í dag. Á morgun verður svo níðst á köttum í tunnu samfara
gríðarlegu sælgætisáti. - mynd brink
Ari Skú/ason. Ekki frágangssök.
Mati á forsend-
umsemkar
Ovíst er hvort sameiginleg nefnd
ASI og Samtaka atvinnulífsins um
endurskoðun kjarasamninga
kemst að niðurstöðu í þessum
mánuði um hvort forsendur þeirra
í verðlags- og launaþróun halda
eða ekki. Ástæðan er sögð tímafrek
vinna við að meta aðra samninga
og komast að niðurstöðu
Ari Edwald framkvæmdastjóri
Samtaka atvinnulífsins segir að í
starfi nefndarinnar hafi menn ekki
bundið sig við einhvern dag til að
skila af sér. Undir það tekur Ari
Skúlason fráfarandi framkvæmda-
stjóri ASÍ sem er annar af tveimur
fulltrúum sambandsins í nefnd-
inni. Hann segir að ekki frágangs-
sök þó nefndin Ijúki vinnu sinni í
byrjun næsta mánaðar.
Til þessa helur verið skilningur
margra að endurskoðun á forsend-
um kjarasanininga eigi að liggja
fyrir í febrúar ár hvert á samnings-
tímanum. I þessu ákvæði er þó
sleginn sá varnagli að niðurstöðu
geti seinkað ef aðstæður á vinnu-
markaði gefa tilefni til þess. Pétur
Sigurðsson formaður Alþýðusam-
bands Vestljarða segist ekki sjá að
neinar aðstæður sem réttlæta
þessa seinkun.
EkMsamningsbrot
Halldór Björnsson starfandi forseti
ASÍ segir að ef niðurstaða fáist
ekki á þeim fáu dögum sem eftir
eru af mánuðinum þýðir það ekki
að menn hafi „glatað lestinni".
Hann segir að það vera sameigin-
legan skilning að það sé ekki
samningsbrot þó nefndin skili ekki
af sér fyrr en í rnars vegna þess hve
viðamikil endurskoðun sé. Halldór
segir að miðað við þróunina í verð-
lags- og launamálum eigi menn
erfitt með að trúa því að ekki hefði
verið samið útfyrir þann launa-
ramma sem markaður var með
samningunum í fyrra. Sé svo blas-
ir við að nefndin komist að sam-
eiginlegri niðurstöðu um einhverja
kauphækkun eða að félög segi upp
samningum með þriggja mánaða
fyrirvara. -GRH