Dagur - 27.02.2001, Blaðsíða 11
Tfc^ir
ÞRIDJUDAGUR 27. FEBRÚAR 2 00 1 - 11
ERLENDAR FRÉTTIR
Eldar brenna nú bæöi í Bretlandi og fleiri Evrópuríkjum, en þar er verið brenna hræjum af dýrum sem ýmist hafa
greinst með gin- og klaufaveiki eða hafa verið flutt frá Bretlandi.
Ótti grípur um sig
á meginlandinu
Gin- og MaufaveiM
heíur fundist á níu
stöðum í Bretlandi og
víða í Evrópu er ótti
við að veiidn berist
til meginlandsins.
Eldar brenna í Evrópu. Slátrun
er hafin í stórum stíl á dýrum
sem sýkst hafa af gin- og klaufa-
veiki og eru hræin brennd jafn-
óðum.
Gin- og klaufaveiki hefur
fundist á níu stöðum á Bretlandi
frá því hún fannst fyrst í 28 svín-
um þar í landi síðastliðinn
þriðjudag. I gær hófst bæði í
Þýskalandi og Hollandi slátrun á
dýrum sem flutt höfðu verið inn
frá Bretlandi af ótta við smit.
Bæði er um svín, sauðfé og naut-
gripi að ræða, vel á þriðja þús-
und gripi í Bretlandi og þúsund-
ir dýra í Þýskalandi og Hollandi.
Mikill ótti er við að sjúkdóm-
urinn breiðist út til annarra Evr-
ópuríkja en Bretlands, sérstak-
lega eftir að staðfesting fékkst á
því síðastliðinn sunnudag að
veikin hafi fundist í dýrum á býli
í Bretlandi þar sem dýr eru rækt-
uð til útflutnings. Bændur telja
ástandið vera nánast eins slæmt
og það gæti hugsanlega orðið.
Síðast varð vart við gin- og
klaufaveiki í Bretlandi fyrir
tveimur áratugum, en árið 1967
olli gin- og klaufaveikifaraldur
miklu irafári og tjóni í Bretlandi
og þá var nærri hálfri milljón
dýra slátrað.
I Brussel þurfti lögreglan að
girða af höfuðstöðvar Evrópu-
sambandsins þar sem hundruð
bænda mættu til þess að mót-
mæla ástandinu meðan fundur
landbúnaðarráðherra ESB stóð
yfir, en frá Bretlandi kemur gin-
og klaufaveikin beint ofan í
kúariðuna sem hefur heldur bet-
ur sett strik í reikninginn hjá
bændum víða í Evrópu undan-
farin misseri.
Hundruðum dráttarvéla var
ekið inn í miðborg Brussel til
þess að stöðva eða tefja aðra um-
ferð, og reiðir bændur köstuðu
eggjum í óeirðalögregluna.
Búast má við því að Evrópurík-
in missi markaðsstöðu sína víða,
m.a. í Bandaríkjunum, vegna
sjúkdómsins. I Bandaríkjunum
er litið á Evrópusambandsríkin
sem eina heild hvað varðar sjúk-
dóma af þessu tagi og ekki gert
ráð íyrir því að mögulegt sé að
einangra útbreiðslu sjúkdómsins
við eitt ríki, þannig að önnur
Evrópusambandsríki geta hæg-
lega orðið af markaðshlutdeild í
Bandaríkjunum jafnvel þótt
sjúkdómurinn haldist í Bret-
landi.
Læknar fullyrða að gin- og
klaufaveiki sé ekki hættuleg
mönnum, en vitað er um eitt til-
felli í Bretlandi þar sem maður
smitaðist af sjúkdómnum, en
það var árið 1966.
Umhverfisráðherrar vilja
styðja Rússland
Á sameiginlegum fundi norrænu
umhverfisráðherranna á dögun-
um ræddu menn hvernig hægt
væri að betrumbæta umhverfið á
grannsvæðum Norðurlanda.
Bæði NIB, Norræni fjárfesting-
arbankinn og NEFCO, Norræna
umhverfisfjármögnunarfélagið,
styðja fjölda umhverfisverkefna í
Eystrasaltsríkjunum og Rúss-
landi. Hreinsun skólps frá Pét-
ursborg væri miklu árangursrík-
ari aðferð til að bæta Eystrasalt
en að setja enn eitt hreinsiþrepið á norrænar hreinsunarstöðvar.
Norrænu umhverfisráðherrarnir ákváðu að skrifa bréf til rússneska
umhverfisráðherrans, hr. Yatskevitj, þar sem farið yrði fram á að
Rússland notaði tækifærið á 300 ára afmæli Pétursborgar til að
leggja meira fé í að bæta umhverfi þessarar fallegu borgar, sem gæti
orðið miðpunktur samstarfs Rússlands og ESB.
Þyrlusamstarf í apríl?
Stóra norræna þyrluverkefn-
ið um sameiginleg kaup á
nær 80 þyrlum fyrir rúmlega
20 milljarða sænskra króna,
gæti orðið að veruleika í apr-
íl, segir Björn von Sydovv
sænski varnarmálaráðherr-
ann.
Ríkisstjórnir Svíþjóðar,
Noregs, Danmerkur og Finn-
lands fá, í mars, afhenta
skýrslu samnorræns vinnu-
hóps um verkefnið. Ef
ákvörðun verður tekin í apríl
um sameiginleg kaup á þess-
um tækjum til varnarmála, er
brotið blað í sögu samstarfs á
sviði innkaupa til varnarmála
á Norðurlöndum.
Þyrluverkefninu hefur
seinkað vegna þess að ríkin
fjögur hafa haft ólíkar kröfur
um getu og útlit þyrlanna. En þessi vandamál eru nú úr sögunni seg-
ir sænski varnarmálaráðherrann.
Björn von Sydow.
Geta karlar?
Stöðugt fleiri karlar á Norðurlöndum sýna áhuga á að hugsa um börn
og bú, en samt ekki nógu margir. „Stuðningsúrræði í Noregi hafa
haft þau áhrif að hlutverk karla hefur minnkað. Urræðið hefur í för
með sér að stuðningur við styttri vinnutíma foreldra til að vera heima
hjá börnum, er eingöngu nýttur af mæðrum", segir ýystein GullvÁg
Holter sem rannsakar hlutverk karla hjá Stofnun um kvenna- og
kynjarannsóknir í Osló. Landssamtökin í Noregi afhentu norsku rík-
isstjórninni skýrsluna „Geta karlar?“ nýverið, en í henni eru tillögur
um umbætur á jafnrétti karla. Þar er m.a. lagt til að verkalýðsfélög
og atvinnurekendur á Norðurlöndum auki menntun um karla, hlut-
verk karla og umönnun. (Norðurlönd í vikunni)
■ FRÁ DEGI TIL DAGS
ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR
58. dagur ársins, 307 dagar eftir.
Sólris kl. 8.42, sólaralag kl. 18.40.
Þau fæddust 27. febrúar
• 1873 Enrico Caruso, ítalskur tenórsöngvari.
•1881 Sveinn Björnsson, fýrsti forseti ís-
lands.
• 1888 Lotte Lehman, þýsk sópransöngkona.
• 1902 John Steinbeck, bandarískur rithöf-
undur.
•1913 Paul Ricoeur, franskur heimspekingur.
• 1914 Ási í Bæ.
• 1923 Dexter Gordon, bandarískur saxofón-
leikari.
• 1932 Elizabeth Taylor leikkona.
• 1934 Ralph Nader, bandarískur neytenda-
frömuður.
Þetta gerðist 27. febrúar
• 1897 viourkenndu Bretar forræði Banda-
ríkjanna yfir Vesturálfu.
• 1922 staðfesti Hæstiréttur Bandaríkjanna
að stjórnarskrárbreyting um kosningarétt
kvenna standist stjórnarskrána.
• 1927 var kolakraninn í Reykjavík tekinn í
notkun, en hann var þá fullkomnasta tæki
sinnar tegundar á Norðurlöndum.
• 1928 strandaði togarinn Jón forseti við Staf-
nes.
• 1933 brann Ríkisþinghúsið í Berlín, en í því
var kveikt að frumkvæði Adolfs Hitlers sem
sakaði síðan kommúnista um ódæðið.
• 1941 fórst togarinn Gullfoss út af Snæfells-
nesi.
Vísa dagsins
Eitthvaö tvennt á hné ég hef,
heitir annað Sttna;
hún er að láta litið bréf
í litlu llösina sína. Sveinbjörn Egilsson
Vefur dagsins
Þegar séra Bondevik var prestur í Noregi, fvr-
ir fáeinum misserum, setti hann á laggirnar
nefnd sem fékk það hlutverk að finna lausn-
ir á siðferðisvanda nútímans, a.m.k. að því er
sá vandi snertir Norðmenn. Nefndin er með
gagnmerka heimasíðu þar sem lesa má um
ýmsar tilraunir hennar til að gera þessu verld
skil: ww'w.verdikommisjonen.no
Afmælisbam dagsins
Leikarinn og leikstjórinn Baltasar Kor-
mákur er 35 ára í dag, en hann hlaut í sfð-
ustu viku Menningarverðlaun DV fyrir
kvikmynd sína 101 Reykjavík. Þetta er
fyrsta kvikmyndin sem hann Ieikstýrir, en
örugglega ekki sú síðasta, og síðustu tíu
árin hefur hann leikstýrt fjölmörgum leik-
sýningum, m.a. viö Þjóðleikhúsið og í
Loftkastalanum, sem hann stofnaði sjálf-
ur, auk þess að hafa leikið bæði á sviði og
í kvikmyndum við góðan orðstír og miklar
vinsældir.
Ofsanum skyldi enginn beita.
Grímur Thomsen
Heilabrot
Hvernig er hægt að skipta tólf í tvo jafna
hluta þannig að rétt útkoma verði sjö?
Síðasta gáta endurbirt: Sex nemendur voru
að taka próf í Islandssögu með þremur spurn-
ingum og voru svör þeirra sem hér segir:
Árni svaraði: 1) Jón Sigurðsson, 2) Jón Sig-
urðsson, 3) Jónas Hallgrímsson.
Bjarni svaraði: 1) Jónas Hallgrímsson, 2)
Jónas Hallgrímsson, 3) Jón Sigurðsson.
Davíð svaraði: 1) Hannes Hafstein, 2)
Hannes Hafstein, 3) Jón Sigurðsson.
Einar svaraði: 1) Jónas Hallgrímsson, 2)
Jón Sigurðsson, 3) Hannes Hafstein.
Finnur svaraði: 1) Hannes Hafstein, 2)
Jónas Hallgrímsson, 3) Jónas Hallgrímsson.
Gunnar svaraði: 1) Jónas Hallgrímsson, 2)
I lannes Hafstein, 3) Hannes Hafstein.
Allir svöruðu þeir a.m.k. einni spurningu
rétt. Hver eru þá réttu svörin?
Lausn: 1) Jónas Hallgrímsson, 2) Hannes
Hafstein, 3) Jónas Hallgrímsson.