Dagur - 27.02.2001, Page 20
20- PRIBJVDAGU K 27. FEBRÚAR 200 1
Akureyri-Norðurland
Ttegtír
Ný húsakyimi tekin í notkun í
H.A. í gær. Ný deild hefur
starfsemi í haust. Um 70%
nemenda Háskólans á Akur-
eyri koma af nærliggjandi
svæðum.
Háskólinn á Akureyri opnaði dymar á nýju
húsnæði að Sólborg upp á gátt fvrir gestum og
gangandi síðastliðinn laugardag. Fleiri hund-
ruð manns heimsóttu skólann og skoðuðu
húsakynnin, þáðu veitingar, hlýddu á ívrirlestra
og nutu leiðsagnar nemenda um deildir skól-
ans: Heilbrigðis-, kennara-, rekstrar-, og sjáv-
arútvegsdeild sem koma til með að hafa aðset-
ur í hinu nýja húsnæði. Einnig var kvnnt ný
deild, upplýsingatæknideild. sem mun hefja
starfsemi haustið 2001 og er stofnuð í sam-
vinnu við Islenska erfðagreiningu og verður
byggt sérstaklega utan um hana.
Nýir stúdentagardar
Það er fastur liður í starfsemi H.A. að
standa fyrir Opnu húsi á ári hverju, þar
sem boðið er upp á íjölbreytta dagskrá
og áhugverðar kynningar á starfseminni
og sjá nemendur alfarið um kynninguna
með aðstoð námsráðgjafa og kvnningar-
fulltrúa H.A. Jóna Jónsdóttir er nemandi
á siðasta ári í Rekstrardeild H.A. og var
það hluti af hennar námi að setja upp
kynninguna að Opnu húsi. „Tilgangur-
inn með Opnu húsi Háskólans á Akur-
eyri er fyrst og fremst að kynna starfsemi
hans fyrir áhugasömum krökkum sem
hafa áhuga á að fara í háskóla, en við
erum einnig að sinna skyldum okkar við
Jóna Jónsdóttir nemandi á sfðasta ári í Rekstrar-
deildar H.A., var ein afþeim sem stóðu fyrir kynn-
ingunni að Opnu húsi H.A. sl. iaugardag. Hún
ásamt öðrum nemendum á markaðssviði hafa auk
þess unnið að því i vetur að endurnýja allt kynn-
ingarefni skólans, sem lá frammi þennan dag.
hlutföllunum úr VMA. Það er nýlega búið að
taka í notkun stúdentagarða í Drekagili sem er
skammt frá háskólasvæðinu að Sólborg. Það
ætti því enginn sem hefur hug á að stunda nám
við Háskóann á Akureyri að þurfa að setja hús-
næðisskort fyrir sig“, segir Jóna að lokum.
samfélagið svo almenn-
ingur fái tækifæri á að
fylgjast með. Svo lyftum
við okkur líka upp og
fengum að þessu sinni
hljómsveitina 200.000
þúsund naglbíta til að
koma og spila fyrir gesti",
segir Jóna.
-Hvaðan koma nem-
endur í H.A. aðallega?
„Um 70% nemenda
koma héðan af svæðinu
restin úr öðrurn lands-
hlutum, aðallega af Stór-
Reykjavíkursvæðinu.
Helmingurinn kemur úr
VMA og einn fjórði úr
MA. Markmið okkar er
að auka hlutföll nem-
enda úr MA, okku r lýst
svo vel á þau, en jafn-
framt viljum við halda
200.000 þúsund naglbítar sáu um að lyfta fólki upp í hæstu hæðir í nýju
húsnæði H.A., sem formlega var tekið i notkun í gær.
Stígamót
komatíl
Akurcyrar
Stígamót, samtök sem sérhæfa
sig í viðbrögðum við kynferðis-
legu ofbeldi eru að færa þjónustu
sína út um landið og munu í dag
helja starfsemi á Akureyri. Sam-
tökin munu bjóða upp á viðtöl
einu sinn í viku, á þriðjudögum,
auk þess sem stefnt er að því að
hrinda af stað svokölluðum sjálfs-
hjálparhópum. Mikil þörf er tv rir
starfsemi af þessu tagi á Evja-
fjarðarsvæðinu og Norðurlandi,
ekld síður en á höfuðborgarsvæð-
inu. Umfangsmikið ráðgjafarstarf
hefur farið og fer fram í gegnum
síma, og hefur það einkum verið
fólk á landsbyggðinni, sem not-
færir sér þessa leið, hæði þolend-
ur, aðstandendur þeirra, fólk í
barnaverndarnefndum, svo og
kennarar og lcikskólakennarar,
sem hafa grun um að barn í þeir-
ra umsjá kunni að hafa verið beitt
kynferöisofbeldi.
Fundiir um
skólamál
Nefnd á vegum Héraðsnefndar
Eyjafjarðar sem skipuð var til að
koma á auknu samstarfi milli
skóla og skólastiga á Eyjafjarðar-
svæðinu hefur skipulagt sam-
ráðsfund fyrir grunn- og frarn-
haldsskóla á Eyjafjarðarsvæðinu
2. mars n.k. kl. 14:00 í Gryfj-
unni í VMA. A fundinum verður
fjallað um valkvætt nám í 9. og
10. bekk grunnskóla, Eltir fram-
söguerindi fara fram umræður í
hópum. Fundurinn er opinn öll-
um sem áhuga hafa á að kynna
sér þessi mál.
TeUaiistofur sameiuaðar
Frá síðastliðnu hausti hefur Árni
Olafsson, arkitekt og fyrrverandi
skipulagsstjóri Akureyrarbæjar,
rekið vinnustofu á Akureyri í
samstarfi við Teiknistofu Gylfa
Guðjónssonar, arkitekts í
Reykjavík. I ársbyrjun voru
teiknistofurnar sameinaðar í
einu fyrirtæki, Teiknistofa arki-
tekta, Gylfi Guðjónsson og fé-
lagar ehf. með vinnustofum
bæði í Reykjavík og á Akureyri.
Eigendur fyrirtækisins eru auk
þeirra Gylfa og Árna arkitekt-
arnir Arnfríður Sigurðardóttir og
Sigurður J. Jóhannsson.
Teiknistofa Gylfa Guðjónsson-
ar á að baki rúmlega 20 ára far-
sælan feril. Teiknistofan hefur
unnið að fjölþættum verkefnum
á nær öllum sviðum skipulags-
og byggingamála og hefur á að
skipa starfsfólki með fjölbreytta
reynslu af hönnun, skipulags-
vinnu, áætlanagerð og verkefna-
stjórn. Nýja fyrirtækið byggir því
á gömlum merg og áratuga
reynslu á sínu sviði.
Eigendur teiknistofunnar: Gylfi Guðjónsson, Árni Úlafsson, Arnfríður Sig-
urðardóttir og Sigurður J. Jóhannsson.
Vinnustofurnar eru tölvuvædd-
ar og hafa yfir að ráða öflugum
vélbúnaði og hugbúnaði fyrir
hönnunar- og skipulagsvinnu.
Teiknistofan getur því boðið
sveitarfélögum, byggingaaðilum
og einstaldingum alhliða þjón-
ustu, sem byggir á Iangri reynslu
og staðgóðri þekkingu. Vinnu-
stofur fyrirtækisins eru að Klapp-
arstíg 16, Reykjavík og Kaupangi
við Mýrarveg, Ákureyri.
SKODANIR BRYNJÓLFS
Borgarpólitúaisar
Sú þráhyggja sem kemur
stöðugt fram í fréttum af
áformum um byggð í Vatnsmýr-
inni vekur mér stöðuga undrun.
Ekki er að sjá af umræðunni að
þeir hafi tekið eftir því sem vís-
indamenn segja um láglendið í
heiminum og framtíð þess. Eg
hefi áður látið þessa undrun
mína í ljós og svo skemmtilega
vildi til að daginn sem Dagur
birti þann pistil eftir mig kom
bráðfallegur jarðfræðingur á
skjáinn sem er gift þingmanni
og upplýsti um þessa framtíðar-
sýn um hækkun sjávar og
hvernig fara mun um þá staði
sem standa lágt yfir sjó. Á sama
tíma kom þessi frétt frá vísinda
mönnum á vegum Sameiðuöu
þjóðanna um að hiti á jörðinni
muni hækka um sex gráður.
Samt vaða þessi byggingará-
form uppi í umræðunni. Eg sé
fyrir mér byggð sem muni fara
undir sjó og verður erfitt að
eiga veð í þeirri byggð.
Dómarar með
síðustu ferð
sem féll niður
Forysta Handknattleikssam-
bands Islands hefur oft á tíð-
um legið undir gagnrýni fyrir
framkvæmd móta, dómaramál,
útbreiðslu og fleira. Því miður
á sú gagnrýni oft við rök að
styðjast. Valur átti að leika við
KA í Nissan-deildinni í hand-
bolta á sunnudagskvöld, og
tók Valslið flug úr Reykjavík
kl. 14.00, en ekki dómarar
leiksins þrátt fyrir að veður-
horfur væri ekki góðar. Þeir
áttu svo flug kl. 17.00, en þá
var orðið ófært. Reynt var að
fljúga norður á sunnudag og
fór vél norður en varð að snúa
við yfir Eyjafirði. Þá hafði leik-
urinn verið settur á kl. 21.45,
þrátt fyrir mótmæli heima-
manna, KA. Ekkert varð af
leiknum á sunnudag og var
honum því fresta þar til í gær-
kvöld, mánudag kl. 20:00.
Árni Freysteinsson, formað-
ur handknattleiksdeildar KA,
segir þessa framkomu móta-
nefndar HSl forkastanlega, og
Ijóst að bæði lið tapi á svona
klúðri. Sé t.d. miðað við að
leikurinn farið fram kl. 20.00
sé Ijóst að tap handknattleiks-
deildar KA sé ekki undir 300
þúsund krónum, Valsliðið sé
andstæðingur sem ævinlega
dragi að sér fjölda áhorfenda,
en t.d. börn og unglingar mæti
ekki á leiki sem ekki er Iokið
fyrr en undir miðnætti. Tap
Valsmanna sé einnig umtals-
vert, þeir þurfi að dvelja á Ak-
ureyri í einn aukasólarhring
og halda liðinu uppi, og þá er
ekki reiknað með tapi ein-
stakra Ieikmanna vegna vinnu-
taps.
Jón Hermannsson, formað-
ur mótanefndar HSÍ, segir
regluna þá að dómarar fari
alltaf með liðinu þegar fljúga
þurfi í leiki, og hann viti ekki
ástæðu þess að það hafi ekki
gerst í gær, sem full ástæða
hafi verið til vegna veðurútlits.
„Liðin hafa meira að segja
gefið eftir sæti í flugvélum ef
svo ber undir, eins og t.d. í
leiguflugi. Þetta eru mistök,
og ekki vinnulag sem er notað
enda hefur þetta kostnað í för
með sér fyrir bæði lið, og jafn-
vel tekjutap fyrir KA, þar sem
börn og unglingar fá ekki að
mæta í leiki seint að kvöldi
þegar mæta þarf í skóla næsta
morgun. En menn voru að
reyna að vinna sig út úr vand-
anum á sunnudagskvöldið,"
segir formaður mótanefndar
HSÍ.
GG