Dagur - 02.03.2001, Blaðsíða 6

Dagur - 02.03.2001, Blaðsíða 6
6 - FÖSTUDAGUR 2 . MARS 2 00 1 -í>agur ÞJÓÐMAL D. Útgáfufélag: Útgáfustjóri: Ritstjóri: A ðstoðarritstjóri: Skrifstofur: Simar: Netfang ritstjórnar: Áskriftargjald m. vsk.: Lausasöiuverd: Grænt númer: Netföng augiýsingadeiidar: Simar auglýsingadeildar: Simbréf auglýsingadeildar: Símbréf ritstjórnar: DAGSPRENT EYJÓLFUR SVEINSSON ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON BIRGIR GUÐMUNDSSON STRANDGÖTU 31, AKUREYRI, GARÐARSBRAUT 7, HÚSAVÍK OG ÞVERHOLTI 14, REYKJAVÍK 460 6100 OG 800 7080 ritstjori@dagur.is 1.900 KR. Á MÁNUÐI 150 KR. OG 200 KR. HELGARBLAÐ 800 7080 valdemar@dagur.is- augl@dagur.is-gestur@ff.is (REYKJAVÍK)563-1615 Ámundi Ámundason (REYKJAVÍK)563-16A2 Gestur Páli Reyniss. (AKUREYRI)A60-6192 Valdemar Valdemarsson 460 6161 460 6171CAKUREYRI) 551 6270 (REYKJAVÍK) Sannleikaim á borðið 1 fyrsta lagi Það er ein af forsendum réttarríkisins að almennir borgarar geti treyst lögreglu landsins. I því felst meðal annars skilyrðis- laus krafa um sannsögli. Ekki má gefa landsmönnum tilefni til að efast um að lögreglan segi satt og rétt frá gangi mála. Ann- ars verður trúnaðarbrestur á milli þeirra sem eiga að fram- fylgja lögum í landinu og þjóðarinnar sem setur traust sitt á heiðarleika lögregluyfirvalda. Sú harkalega deila sem upp er komin végna takmarkana á starfsemi fíkniefnalögreglunnar í fyrra í formi yfirvinnubanns grefur alvarlega undan slíku trausti. t öðru lagi Talsmaður félags lögreglumanna hefur skýrt frá því opinber- lega að á fundi 11. september í fyrra hafi starfsmönnum í fíkniefnadeild lögreglunnar í Reykjavík verið tilkynnt að yfir- vinnubann væri gengið í gildi, og að seinna hafi svipaðar til- kynningar borist fleiri deildum. Fjöldi lögreglumanna var til vitnis um þennan atburð. Þrátt fyrir þetta heldur dómsmála- ráðherra því enn fram að ekkert yfirvinnubann hafi verið sett á hjá fíkniefnadeildinni og ber fyrir sig orð yfirmanna lögregl- unnar. Almenningur hlýtur því að spyrja: Hver er að ljúga? Er það dómsmálaráðherra? Eru það æðstu yfirmenn lögreglunn- ar í Reykjavík? Eða eru það allir þessir lögreglumenn? Og krefst afdráttarlausra svara. í þriðja lagi f siðmenntuðum lýðræðisríkjum er það brotthvarfssök úr emb- ætti ráðherra að segja þjóðþinginu ósatt. I þessu máli er því líka í húfi hvort logið hafi verið að Afþingi. Sólveig Pétursdótt- ir, dómsmálaráðherra, verður að gera hreint fyrir sínum dyrum að því leyti. Hún verður að ræða við þá lögreglumenn sem bera vitni um yfirvinnubannið og játa síðan undanbragðalaust hið rétta í málinu í sölum Alþingis. Ef ráðherra fékk rangar upplýsingar og endurtók þær í þinginu, þá ber henni í það minnsta að biðja þingheim og þjóðina afsökunar. Elias Snæland Jónsson Fötluð, þeldökk kona JÓHANNES SIGURJÓNS SON skrifar EiiLkavæding og óarðbærir skankar sVaraö Valgeir Bjarnason, aðstoðar- skólameistari Hólaskóla í Skaga- firði, skrifaði athyglisverða grein í Dag í gær. Þar fjallar liann um þá ákvörðun Islandspósts hf. að loka pósthúsunum á Hofsósi og í Varmahlíð og mótmæli Skag- firðinga vegna þessa. 1 greininni segir m.a.: „Það er ljóst að með hlutafé- lagavæðingu mikilvægrar al- menningsþjónustu eins og póstsins er búinn til einhver óskapnaður sem cnginn virðist geta ráðið við, né gert kröfur til. Ákvörðunartökur fyrirtækisins virðast ekki vera á ábyrgð neins sérstaks aðila þó að yfir henni sé bæði stjórn og ráðherra sam- göngumála sem æðsti yfirmað- ur. Állt .kapp er lagt á að fyrir- tækið verði sem seljanlegast þegar einkavæðingarskrefið verður stigið til fulls. Þá er nauðsynlegt að vera húinn að losa sig við ýmsa óarðbæra skan- ka sem óvíst er um beinan pen- ingalegan hagnað af...“ Afl arósins Hér er að mörgu að hyggja. Skagfirðingar fá þarna að finna til tevatnsins hjá einka- væðingunni og ekki þeir fyrstu hér á landi eða í heiminum yfir- höfuð. Forsendur einkavæðingar hér og annars staðar eru æv- inlega þær sömu: Beksturinn er alltaf betur kom- inn í höndum hlutafélaga og einstaklinga en ríkis eða sveitar- félaga. Því hluthafar gera ávallt kröfur um hámarksarðsemi sem tryggir hagkvæmasta reksturinn og ennfremur er gróðafíknin afl þeirra hluta seni gera skal og hvetur einstaklingana til dáða. Þess vegna er alltaf byrjað á því að „losa sig við ýmsa óarð- Garri hefur það nú fyrir satt að eitt vinsælasta hugtak vandamálafræðinga í heimin- um sé nú um það bil að taka nokkrum breytingum. Kannski væri réttara að segja að orðið sem hugtakið vísar til sé í þann veginn að taka breytingum. Þannig er nefni- lega mál með vexti að þegar vandamálafræðingar heimsins eru að tala um mismunun og jafnræði þegnanna í þjóðfé- laginu og eru að benda á að minnihlutahópar séu iðulega útundan, þá beita þeir yfirleitt samtvinnuðu orðalagi. Þeir tala um að „fatl- aða, þeldökka, konan“ eigi að hafa sama rétt og „hvíti, miðaldra karlinn". Er þetta orða- lag auðvitað til komið vegna þess að fatlaðir, þeldökkir og konur eru í þeim flokki fólks sem almennt eru líklegir til að lenda í mismun- un og sá sem er allt í senn hlýtur því að vera þrefalt lík- legri til að vera útundan. Hvíti karlinn er hins vegar alltaf ofan á! Blíkiir á lofti En nú eru blikur á lofti og horfur á að „fatlaða, þeldökka, konan“ sé á útleið sem sam- nefndari fyrir öskuhuskur samfélagsins. Því miður er það þó ekki nema að hluta til vegna þess að samfélagið hef- ur bætt hag hennar. Fatlaðir, þeldökkir og konur eiga enn nokkuð í land með að standa í sömu sporum og hvíti karlinn. En það sem er að gerast er það að nýr hópur manna er að ryðja fötluðu svörtu konunni úr öskubuskusætinu. Þetta er eins konar hallarbylting á botninum! Og þessi nýi hópur befur verið að koma fram á sjónarsviðið með þó nokkrum - bæra skanka sem óvíst er um beinan peningalegan hagnað af,“ eins og Valgeir orðar það. Það er einmitt ástæðan fyrir því að jólagjafirnar lok- uðust inni bjá Is- landspósti um síð- ustu jól. Þar sparaði fyrirtækið nokkrar krónur í yfirvinnu- greiðslum en tapaði auðvitað tugum milljóna í viðskipta- vild fyrir vikið. Og ugglaust hefur hagn- aður í rekstri aukist þegar bresku járnbrautirnar voru einkavæddar, en þjónustan versnaði, slakað var á óarðbær- um öryggiskröfum og laun for- stjóranna ruku upp úr öllu valdi. Það er líka lögmál sem virðist fylgja einkavæðingu, ekki síður en aukinn hagnaður, sem vfir- leitt fer á fárra hendur fremur en að koma öllum til góða. hávaða sem er skiljanlegt, því þetta fólk heyrir afskaplega illa. Þetta eru semsé heyrnar- skertir, sérstaklega heyrnar- skert fólk sem býður eftir greiningu og heyrnartækjum. I svari við fyrirspurn Svanfríð- ar Jónasdóttur á Alþingi upp- lýsti Ingibjörg Pálma heil- brigðisráðherra að þessi hóp- ur teldi um 2000 manns og að hver um sig biði mánuðum saman eftir því að fá mælingu og heyrnartæki. Botninn Heyrnarmæling og heyrnartæki eru á Is- landi svo takmörkuð auðlind að þúsundir manna bíða mánuðum saman eftir úrlausn. Það er semsé erfitt að komast lægra í virðingar- og mannfélagsstiganum en það, að vera heyrnarskertur maður að bíða úrlausnar. Nema ef vera kynni að vera heyrnar- skertur landsbyggðarmaður að bíða úrlausnar, því í ljós hefur komið að engin þjónusta við landsbyggðarfólk er til staðar. En því miður virðist hér vera á ferðinni gríðarlegt verkfræði- legt vandamál, (sem er auðvit- að miklu flóknara en að láta þá sem þurfa fá gleraugu?) að mæla alla heyrnarskerta og láta þá fá heyrnartæki sem aftur gera þeim kleift að njóta sjálfsagðra lífsgæða. Það er því miður annars konar verk- fræði sem þarf í þetta en t.d. endurhönnun Þjóðmenning- arhúss eða Þingvallabæjarins. En góðu fréttirnar eru þó auð- vitað þær að nú fær fatlaða þeldökka konan, sem er búin að vera á stöðugum þeytingi árum saman örlitla hvíld, en við keflinu tckur heyrnarskerti landsbyggðarmaðurinn. GARRl Haldlitlir samningar Það er alveg öruggt að einka- væðing Islandspósts og Land- símans á eftir að bitna á fleirum en Skagfirðingum þegar menn fara að losa sig við hina óarð- bæru skanka víða um land. Og það er auðvitað óskhyggja að það verði hægt að gulltryggja einhverja grunnþjónustu í samningum, eins og sumir stjórnmálamenn virðast halda. Þegar ófrávíkjanleg arðsemis- krafan ríkir ein, þá verða allir óarðbærir skankar af skornir með tíð og tíma, hvort sem mönnum líkar betur eða verr og hvað svo sem allir samningar segja. Það hefur verið farið í kringum samninga áður. Og þó menn t.d. telji sig geta tryggt með samningum jafnan aðgang allra að grunnneti Landssímans eftir einkavæð- ingu, þá kann reynslan að verða önnur þegar upp er staðið. Er rétt að leggja gjald á tölvudisklinga og tölvu- búnaðtil að tryggja greiðslur fyrir höfundar- rétt? Aðalsteinn Ásberg Sigurðss. tónlistarmaðiirogformaðurRith.sainb. íslands. „Slfkt er rétt því stafræn upptöku- tækni er m.a. not- uð til að afrita vernduð verk höf- unda. Með þeirri reglugerð sem sett er nú má í raun segja að verið sé að uppfæra eldri reglur, sem ekki tóku yfir þá nútímatækni sem er komin til sögunnar og víða notuð. Mörg ár eru liðin síðan fyrst var farið að tala um nauðsyn þess að breyta reglum með tilliti til nýrrar tækni, þannig að menn eru í raun vonum seinna á ferðinni í þessum efnum." Gunnar Salvarsson upplýsingastjóri Tæknivals. „Eg skil reiði þeir- ra sem mótmæla gjaldtökunni. Hún nemur tugum pró- senta af útsölu- verði geymslu- miðla auk þess sem höfundarréttarsamtökin fá greiðslur óháð því hvort efnið sem afritað er nýtur höfundarréttar eða ekki. Þá vekur gjaldtakan upp réttmæta reiði því sönnunarbyrði er snúið við og allir kaupendur af- ritunarbúnaðar eru í raun þjóf- kenndir. Islenskir tónlistarmenn fá stóran skerf að þessu fé - en halda menn virkilega að þeir sem á annað borð afrita tónlist á geisladiska séu fyrst og fremst á höttunum eftir íslenskri tónlist? Og þar sem svarið er nei - er þá ekki nærtækast að spyrja: hver er þá að ræna hvern?“ Karl Pétux Jónsson sétfr. í álmannatengslum. „Mér finnst það í raun fáránlegt. Listamenn vcrða að nota aðrar leið- ir til að brauðfæða sig en neyða fólk til þess að borga sér peninga fyrir afurðir sem það notar ekki. Það er fráleitt að borga þurfi tónlistarmönnum fyr- ir þá geisladiska sem notaðir eru t.d. til að brenna fjölskyldumynd- irnar eða afrit af gögnum inná. Jafnvel þótt upphæðin í hvert skipti sé ekki tiltakanlega há.“ Tinna Gunnlaugsdóttir fornt. Baudalags ísi. listamanna. „Gjald á tóma geisladiska er sjálfsagt skref lög- gjafans til að rétta hlut höfunda og annarra sem þurfa að sæta því að verk þeirra séu afrituð og jafnvel fjölfölduð í hagnaðarskyni, án þess að til þeirra komi lögbundið gjald. Slíka sjóræningjastarfsemi er ekki hægt að stöðva, þar sem tæknin til að afrita er alltaf að verða fullkomnari og aðgengi- legri almenningi. Alagning á tóma geisladiska er sjálfsögð viðleitni til að bæta þennan skaða.“

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.