Dagur - 02.03.2001, Side 8
8 - FÖSTUDAGUR 2 . MARS 20 0 1
ÍÞRÓTTIR
■ SMÁTT OG STÓRT
UMSJÓN:
JÓHANNES
SIGURJÓNSSON
johannes@simnet.is
„Annars er (rað
helst um þennan
mat að segja að
hann er helvítis
óþverri og það
ætti að leggja salt-
kjötsát af ekki síð-
ar en strax.“
- Sverrir Leósson,
útgerðarmaður, um
þjóðlegar matar-
hefðir í DV.
Kók í pípiun Hamlets?
Fréttir frá Bretlandi herma að fundist hafi leifar af kókaíni í pípum sem
lágu í jörðu við meint hús skáldsins Shakespeares, sem ýmsir þekkja af
góðu. Enda skrifaði gamli Spjótaskekill margt og mikið, þó miklu meira
hafi reyndar verið skrifað um hann og hans verk. Og raunar svo mikið að
brunnurinn er fyrir löngu þurrausinn, enda hefur atvinnuleysi í stétt bók-
menntafræðinga stóraukist, því þeir hafa ekki lengur úr neinu að moða
um líf og verk Vilhjálms.
En nú hefur heldur betur hlaupið á snærið hjá fræðimönnum. Nú þarf
sem sé að lesa allt höfundarverk Sheikspírs í nýju ljósi og út frá nýju sjón-
arhorni. Stóra spurningin sem menn standa frammi fyrir nú er þessi: Var
skáldið Vilhjálmur á kókaíni og eru merki um áhrif þessa fíkniefnis að
finna í verkum hans, á sama hátt og augljós sýruáhrif má lesa út úr text-
um landa hans frá Liverpool, Bítlanna?
Er hugsanlega hægt að skýra háttalag Hamlets út frá fráhvarfseinkenn-
um fyrrverandi kókaínneytanda? Var slævandi vímuástand ástæðan fyrir
því að Othello lét plata sig svo upp úr skónum? Var Lady Macbeth stöðugt
stónd?
Hér er að mörgu að hyggja. Og verður örugglega gert.
Vargurinn er lostæti!
Það er alkunna að Mývetningar kunna öðrum Is-
lendingum betur að orða hlutina. Einu sinni voru
þeir heiðursbændur Sigurður Þórisson á Græna-
vatni og Starri í Garði að ræða margvíslega kosti
þeirrar dýrðarskepnu, mývargsins. Sigurður sagði:
„Þeir sem höfðu mývarginn svona sem krydd út
á matinn í uppvextinum þykir það þunnur þrett-
ándi að vera án hans. Andskotans lifandis ósköp
er ég búinn að éta af vargi um dagana. Það sem
maður át þegar maður var strákur úti á engjunum.
Og hann var svo góður og sætur að því trúir eng-
inn, það var alveg óþarfi að hafa sykur í kaffið."
Og Þorgrímur Starri lauk sömuleiðis lofsorði á
varginn: „Eg man það best, þegar maður fékk
svona þykkan hrísgrjónavelling, hvað hann
smurðist fallega. Hann var náttúrlega hvítur þeg-
ar maður jós honum úr fötunni, en eftir andartak
var þetta orðið alveg biksvart og þá var hæfilegt að
fara að byrja að éta. Maður vorkennir þessu unga
fólki sem aldrei hefur étið varg!“
IFÍNA Ot FRÆGA FOIKIÐ
Lopez inuii ekki bera
vltni í máli Combs
Hér má sjá þau skötuhjú Lopez
og Combes áður en samband
þeirra súrnaði.
Söng- og leikkonan kynþokkafulla, Jennifer Lopez ætl-
ar ekki að bera vitni í réttarhöldum í máli fyrrum
unnusta síns, rappkóngsins Sean „Pufíy“ Combs.
Þetta kom fram í sameiginlegri yfirlýsingu frá þeim
skötuhjúum fyrr í vikunni. I yfirlýsingunni segir
Combes að þar sem hann hyggist sjálfur bera vitni sér
til varnar telji hann enga ástæðu til að vera að draga
Lopez inn í málið líka. Og við þetta bætti Lopez að ef
Combes hins vegar eða lögmenn hans teldu að það
gæti hjálpað málinu að hún kæmi Iíka og bæri vitni,
„þá myndi hún koma undir eins og segja sannleikann."
Þessar stórstjörnur eru sem kunnugt er nýlega sldld-
ar að skiptum. Combs, sem er 31 árs gamall hefur nú
um mánaðarskeið átt í málaferlum vegna opinberrar
ákæru um að hann hafi haft ólögleg vopn undir hönd-
um og að hann hafi reynt að múta mönnum í tengsl-
um við skotbardaga sem varð utan við næturldúbb í
New York í desemer 1999.
Eftir skotbardagann hurfu
Combs og samferðamenn
hans - þar á meðal Lopez -
burt af vettvangi og Ientu í
eltingaleik við lögreglu.
Combs gæti átt yfir höfði sér
allt að i 5 ára fangelsi ef hann
er fundinn sekur, en hann er
mikill viðskiptajöfur og sá
stærsti í „hip-hop“ tónlistinni.
Hann rekur plötufyrirtækið
Bad Boy og hann á vörumerk-
ið Sean John sem er frægt í
tískuatnaði.
Hin glæsilega Lopez kveðst vera
tilbúin að bera vitni ef í Ijos
kemurað þess verði þörf.
-T>x$ur
Stelpurnar úr Tindastóli stóðu sig vel á mótinu.
S00 keppendur
á simdmóti KR
Unglingamót KR í sundi, það
sautjánda í röðinni, var haldið í
Sundhöll Reykjavíkur um síðustu
helgi. Mjög góð þátttaka var á
mótinu og voru skráðir keppend-
ur um fimm hundruð og skrán-
ingar um 2000 í 54 keppnisgrein-
um. Sundmótið hefur fyrir löngu
fest sig í sessi sem eitt helsta og
fjölmennasta sundmótið hérlend-
is og koma keppendur alls staðar
að af landinu. Keppt var í sex
flokkum, hnokka og hnáta (10 ára
og yngri), sveina og meyja (12 ára
og yngri), drengja og telpna (14
ára og yngri) og pilta og stúlkna
(17 ára og yngri).
Arangur á mótinu var nokkuð
góður, þó ekki hafi verið slegin
nein aldursflokkamet og voru
margir að ná sínu besta. Arangur
Hannibals Hafbergs úr Vestra á
Isafirði vakti mikla athygli á mót-
inu, en hann sigraði í öllum fjór-
um greinunum í hnokkaflokki.
Ingibjörg Olafsdóttir, SH, sigraði
einnig í fjórum greinum í meyja-
flokki og þau Þór Sveinsson,
Vestra (drengjaflokki), Berglind
Ósk Bárðardóttir, SI4 (stúlkna-
flokki) og Ágúst Júlíusson, IA
(sveinaflokki) í þremur greinum.
Berglind Ósk Bárðardóttir, SH,
varð stigahæsti kcppandi mótsins,
hlaut samtals 1876 stig og Erla
Dögg Haraldsdóttir, UNFN, varð
næst með 1876 stig.
Keppendur Sundfélags Hafnar-
fjarðar sigruðu í flestum greinum
á mótinu, eða alls fimmtán, en
Skagamenn komu næstir með níu
sigra og Isfirðingar þar næstir
með sjö. Ánægjulegt var að sjá
vaxandi styrk félaganna af lands-
byggðinni og auðséð að félög eins
og til dæmis Vestri frá Isafirði og
Óðinn frá Akureyri eru að byggja
upp sterkar sundsveitir. Breiddin
er líka að aukast og gaman að sjá
hvað keppendur frá félögum eins
og til dæmis Tindastóli, Dalvík og
UMF Tálknaljaröar eru að sækja í
sig veðrið.
A mótinu voru veitt sérstök af-
reksverðlaun fyrir besta stigaár-
angurinn í þremur elstu flokkun-
um og hlutu eftirtaldir keppendur
verðlaunin:
Meyiar:
Ingibjörg Ólafsdóttir SH 1357
Sveinar:
Ágúst Júlíusson, ÍA 872
Telpiir:
Erla Dögg Haraldsd., UNFN
1876
Drengir:
Þór Sveinsson, Vestra 1526
Stúlkur:
Berglind Ósk Bárðard., SH 1967
Piltar:
Helgi H. Óskarsson, UMFN
1632
í stigakeppni félaga hlaut
Sundfélag Hafnarfjarðar flest
stig, eða alls 633. Njarðvíking-
ar urðu í öðru sæti með 306
stig og Ægiringar með 298 stig. í því þriðjr
Stigastaða félaga:
SH 633
UMFN 306
Ægir 298
ÍA 289
KR 233
Vestri 150
Óðinn 118
Keflavík 109
Ármann 86
Bolungarvík 58
Tálknafjörður 53
Tindastóll 50
Rán, Dalvík 45
ÍBV 41
UMSB 29
HSÞ 22
UMFA 15
Selfoss 14
Reynir Sandg. 4
Jóhannes Benediktsson, form. sunddeildar KR ásamt verðlaunahöfum í 50
m baksundi hnokka. Talið f.v.: Jóhannes EgiH Þórðarson, SH [2. sætij,
Hannibal Hafberg, Vestra [1. sætij og Þórir 1/algeirsson, Úðni [3. sætij.
Hannibal Hafberg sigraði í fjórum gre/num á mótinu.