Dagur - 02.03.2001, Page 9

Dagur - 02.03.2001, Page 9
FÖSTUDAGVR 2. MARS 2001 - 9 ÍÞRÓTTIR Lífleg handbolta- veisla um helgina Úr Hafnarfjarðarslag Hauka og FH fyrr í vetur. Um helgina verður hoðið upp á heilmikla handboltaveislu og standa Haukarair þar í mestu stórræðunum þegar þeir mæta stór- liði Sporting Lissabon í EHF-hikar karla og FH-ingum í Hafnar- fjarðarslag NissandeHdar kvenna. Það verður mikið að gerast ( handboltanum um helgina, en þá verður bæði leikið í efstu deild karla og kvennna, auk þess sem karlalið Hauka leikur seinni leik sinn gegn Sporting Lissabon í EHF-bikarnum á morgun. Haukarnir hafa góða stöðu fyrir leikinn, eftir 21-21 jafnteflið í Lissabon í fyrri leiknum, en verða þó að ná sínu besta til að tryggja sig áfram í undanúrslit keppninnar. Sportingliðið er geysisterkt, en var alls ekki sann- færandi í Ieiknum ytra á meðan nær allt gekk upp bjá Haukun- um, ef frá eru taldar síðustu mínúturnar. Bjarni Frostason fór á kostum í leiknum og tók Ieik- menn Sporting hreinlega á taug- um með frábærri markvörslu, en hann varði alls 24 skot í leiknum. Þar verður því örugglega hart barist, enda mikið húfi, þar sem sigurvegari leiksins vinnur sér sæti í undanúrslitum keppninnar og gæti þar hugsanlega lent á inóti Magdeburg, liði Alfreðs Gíslasonar í Þýskalandi. I Nissandeild karla hefst 17. umferðin með tveimur Ieikjum í kvöld, þar sem IR-ingar fá Eyja- menn í heimsókn í Breiðholtið og FH-ingar botnlið Blika í Kaplakrika. FH-ingar sem eru í 7. sæti deildarinnar með 16 stig ættu að eiga þar sigurinn nokkuð vísan svo framarlega sem þeir detta ekki niður á Seltjarnarnes- planið, þegar þeir steinlágu gegn Gróttu/KR, eftir að hafa skorað aðeins fjögur mörk í seinni hálf- leik. I Austurbergi má búast við hörkuleik, en IBV og IR eru nú í 8. og 9. sæti deildarinnar, bæði með 14 stig, en IR-ingar með frestaðan leik gegn Haukum til góða. Á sunnudag fara síðan fram þrír leikir, þar sem Stjarnan tek- ur á móti Val í Ásgarði, Framarar heimsækja Gróttu/KR á Nesið og Afturelding tekur á móti KA í Mosfellsbæ. Fyrirfram má búast við spennandi leikjum og verður fróðlegt að fylgjast með því hvort Aftureldingu tekst að stöðva átta leikja sigurgöngu KA, en í síðasta leik lögðu Mosarnir Framara sannfærandi með þriggja marka mun, 24-21. Leikir kvöldsins: Kl. 20.00 ÍR - ÍBV Kl. 20.00 FH - Breiðablik Leikir á sunnudag Kl. 20.00 Stjarnan - Valur Kl. 20.00 Fram - Grótta/KR Kl. 20.00 UMFA - KA Nissandeild kvenna 17. umferð á morgun: Kl. 13.30 ÍR - Fram Kl. 13.30 Haukar - FH Kl. 13.30 KA/Þór - Stjarnan Kl. 13.30 Grótta KR - Víkingur Kl. 13.30 Valur - ÍBV íslandsmet hjá Magnúsi íslandsmót Iþróttasambands fatlaðra í lyftingum, bogfimi og frjálsum íþróttum innanhúss, fóru fram um síðustu helgi. Frjálsíþróttamótið fór frarn í Baldurshaga og íþróttahúsinu við Austurberg, cn hin tvö mótin í íþróttahúsi fatlaðra við Hátún. Fjöldi keppenda tók þátt í mót- unum, en flestir í frjálsíþrótta- .mótinu, þar sem keppendur voru frá tíu félögum, víðs vegar að af landinu. Eitt Islandsmet leit dagsins ljós, en það setti Magnús Guðjónsson, ÍFR, í lyftingum, þegar hann lyfti 125 kg. í bekk- pressu og hlaut fyrir það 81.5375 stig. Eftirtaldir urðu íslands- meistarar: Lyftingar: Flolikur hreyfihamlaðra Magnús Guðjónsson, ÍFR 81.5375 stig (Islandsmet) Flokkur þroskaheftra Þorbergur S. Stefánsson, IFR 60.1145 stig Bogfimi: Flokkur fatlaðra karla 1. Jón M. Árnason, ÍFR 943 stig Flokkur ófatlaðra karla I. Þröstur Steinþórsson, ÍFR 1014 stig Flokkur kvenna 1. Ester Finnsdóttir, ÍFR 985 stig Flokkur unglinga 1. Gunnar Jónsson, iFR 902 stig Frjálsar íþróttir: 60 m hlaup ka. (flokkur aflim.) Geir Sverrisson, Breiðabl. 7,5 sek 60 m hlaup ka. (blindir/sjónsk.) Lindberg M. Scott, Þjóti 9,1 sek 60 m hlaup ka. (hreyfihaml.) Haukur Gunnarsson, Árm. 8,8 sek 60 m hlaup ka. (þroskah.) 1. fl. Arnar M. Ingibjörnsson, Nes 60 m hlaup ka. (þroskah.), 2. fl. Andri Jónsson, Þjóti 60 m hlaup kv. (þroskah.), 1. fl. Helga Helgadóttir, Akri 60 m hlaup kv. (þroskah.), 2. fl. Sigríður Ásgeirsdóttir, Nes Hástökk kv. (þroskah.) Helga Helgadóttir, Akri Hástökk ka. (þroskah.) Arnar Már Ingibjörnsson, Nes Langstökk kv. (þroskah.), 1. fl. Helga Helgadóttir, Akri Langstökk kv. (þroskah.), 2 .fl. Sigríður Ásgeirsdóttir, Nes Langstökk ka. (hreyfihaml.) Flaukur Gunnarsson, Árm. Langstökk ka. (þroskah.), 1. fl. Guðm. I. Einarsson, Kveldúlfi Langst. ka. (þroskah.), 2. fl. Lindberg M. Scott, Þjóti Langst.kv. án atr.(þroskah.), 1. fl. Hclga Helgadóttir, Akri Langst.kv. án atr.(þroskah.), 2. fl. Sigríður Ásgeirsdóttir, Nes Langst.ka. án atr.(þroskah.) 1. fl. Þórir Gunnarsson, Osp Langst.ka. án atr.(þroskah.) 2. fl. Lindberg M. Scott, Þjóti Kúluvarp kv. (þroskah) 1. fl. Sigríður Ásgeirsdóttir, Nes Kúluvarp kv. (þroskah) 2. fl. Sigrún Benediktsdóttir, Nes Kúluvarp ka. (hreyfíhaml.) 4. fl. Pálmar Guðmundsson, FH Kúluvarp ka. (þroskah.) 1. fl. Arnar M. Ingibjörnsson, Nes Eriksson byrjar vel Englendingar unnu 3-0 sigur á Spánverjum þegar þjóðirnar mættust f vináttulandsleik á Villa Park í Birmingham í fyrrakvöld. OIl enska þjóðin beið leiksins með mikilli spennu, því um var að ræða fyrsta leik landsliðsins undir stjórn nýja þjálfarans Svens-Göran Eriksson, en ráðn- ing hans hefur verið mjög umdeild í Englandi. Byrjunarlið Englands: James, P. Nevill, Sol Campbell, Ferdinand, Powell, Beckham, Butt, Scholes, Barmby, Cole og Owen. Þessi fyrsti leikur Erikssons reyndi lítið á enska liðið, þar sem mótherjarnir voru hreint út sagt lélegir og fátt um fína drætti. Enda liðu 38 markalausar mín- útur áður en Nick Barmby náði að skora fyrsta markið eftir sendingu frá Michael Owen og var staðan 1-0 í leikhléi. Eriksson gerði sjö breytingar á liðinu í hálfleik og kom Martyn í markið fvrir Jantes, Ehiogu fyrir Ferdinand, Lampard fý'rir Butt, Ball fvrir Powell, Heskey fyrir Scholes og McCann fyrir Beckham. leikur liðsins batnaði nú til muna og á 55. mínútu skoraði Emile Heskey annað markið eftir und- irbúning Ugo Ehiogu, sem vann skallaeinvígi í teignum. Ehiogu var svo aftur á ferðinni á 70. mínútu, en þá sá hann sjálfur um að skora þriðja og síðasta mark Englendinga, eftir hornspyrnu Frank Lampards. Spánverjar fengu tækifæri til að minnka muninn á 79. mínútu þegar dæmd var vítaspyrna á Englendinga, en Nigel Martyn gerði sér lítið fyrir og varði frá Javier Moreno. Sigurinn gefur Englendingum eflaust góðar vonir fyrir framhaldið í undankeppni HM, en þar er staða liðsins vægast sagt slæm á botni 9. riðils eftir tap gegn Þjóðverjum ogjafntefli gegn Finnum Úrslit annarra vináttulandsleikja Italía - Argentína 1 -2 N,- írland - Noregur 0-4 Makedónía - Tékkland 1-1 Slóvenía - Úrúgvæ 0-2 Grikkland - Rússland 3-3 Lúxemborg - Finnland 0-1 Liechtenstein - Lettland 0-2 Holland - Tyrkland 0-1 Bosnfa - Ungverjaland 1-1 Króatía - Austurríki 1 -0 Sviss - Pólland 0-4 Malta - Svíþjóð 0-3 Jórdanía - Búlgaría 0-2 Þór og VíMngur berjast um anuað sætið Einn leikur fer fram í 2. deild karla í handknattleik í kvöld, en þá fá Þórsarar lið Víkinga í heimsókn í íþróttahöllina á Akureyri. Leikur- inn er báðum liðum mjög mikilvægur, þar sem baráttan um um ann- að af tveimur lausum sætum í Nissandeildinni að ári, kemur eflaust til með að standa á milli Iiðanna. Víkingar eru nú í öðru sæti deild- arinnar með 16 stig eftir 12 leiki, þremur stigum á eftir toppliði Sel- fyssinga, sem hafa leikið jafnmarga leiki. Þórsarar eru svo í þriðja sætinu með 11 stig, en eiga þrjá leiki til góða og gætu því komist stigi yfir Víkinga með fullu húsi. Fjölnir er síðan í fjórða sætinu með 8 stig eftir 10 leiki og Fylkir án stiga í botnsætinu eftir 11 leiki. Bæði Þór og Víkingur eiga eftir útileiki gegn Selfyssingum og halda Þórsarar suður yfir heiðar í þann leik næstkomandi föstudag, sem er næsti leikur þeirra í deildinni. Næsti leikur Víkinga er aftur á móti útileikur gegn Fjölni á þriðjudaginn og síðan á liðið frí þar til 23. mars, þegar þeir mætir Selfyssingum austan Fjalls. Síðasti leikur Vík- inga í deildinni er síðan heimaleikur gegn Fjölni þann 30. mars. Eftir leikinn gegn Selfyssingum, eiga Þórsarar þrjá lciki í röð gegn Fylki, þann fyrsta í Árbænum strax daginn eftir Selfossleikinn og síð- an tvo seinni leikina fyrir norðan dagana 16. og 17. rnars. Síðan eiga Þórsarar tvo leiki gegn Fjölni í restina, sem báðir fara fram á Akur- eyri 23. og 24. mars. Það er því ljóst að slagurinn um sæti í Nissandeildinni verður harð- ur og gæti leikurinn í kvöld ráðið úrslitum um hvort Þór eða Víking- ur fer upp. Selfyssingar verða að teljast nokkuð öruggir á toppinum, en þeir eiga auk leikjanna við Þór og Víking eftir að leika gegn Fjölni og Fvlki, báða leikina á útivelli 17. og 30. mars. Ársþing HSK hvetur til samstarfs UMFÍ og ÍSÍ 79. héraðsþing Héraðssambandsins Skarphéðins, sem haldið var á Flvolsvelli um síðustu helgi, hvetur stjórnir UMFl og ISI til að taka nú þegar upp markvisst samstarf með hagsmuni heildarinnar að Ieið- arljósi. I ályktun þingsins segir að samstarf samtakanna gæti síðan orðið grundvöllur að viðræðum um hugsanlega sameiningu þeirra og sá árangur sem þá hefði náðst yrði kynntur á næstu ársþingum hreyf- inganna. Um 90 fulltrúar frá 37 aðildarfélögum HSK og tveimur sérráðum sambandsins, auk stjórnar, gesta og starfsmanna^, sátu þingið og var umræðunum um hugsanlega sameiningu UMFI og ISI fyrirferðar- mest meðal fjölda mála sem fjallað var um. Á þinginu var lögð fram 70 blaðsíðna skýrsla um starfsemi héraðs- sambandsins á liðnu ári, en í skýrslunni kemur fram að starfið var þróttmikið á 90 ára afmælisári sambandsins. 1 lok þings var kosin 8 manna stjórn og varastjórn sambandsins og 17 starfsnefndir HSK. Árni Þorgilsson frá Hvolsvelli var endurkjörinn formaður sambands- ins.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.