Dagur - 02.03.2001, Síða 10
10- FÖSTUDAGUR 2. MARS 200 1
. FRÉTTIR
rD^tr
Færeyska land-
stjómin í uppnámi
Danir leggja málið þannig upp
að felli Færeyingar tillögu uui
sjálfstæði í þjóðaratkvæði séu
þeir að ákveða að vera áfrain
liluti af dauska ríkinu. Högni
Hoydal hefur lagt áherslu á það
að þetta mál snúist ekki uin
dagsetningu atkvæðagreiðslu en
ef Þjóðarflokkurinn ætli að fara
að semja imdir heimastjómar-
lögunum væri grundvöUur
stjómarsamstarfs hrostinn
Þinghúsið í Þórshöfn í Færeyjum. Þar er stjórnarsamstarfið nú í uppnámi.
Anfinn Kallsberg, Iögmaður Færeyja, er á
heimleið gegnum Danmörku úr heimsókn til
Bretlands, þremur dögum fyrr en ráðgert var,
þar sem kreppa virðist ríkja á færeyska stjórn-
arheimilinu vegna ákvörðunar Högna Hoydal,
formanns Þjóðveldisflokksins og ráðherra sjálf-
stæðismála, að framfylgja fyrri ákvörðun um að
kosið verði um sjálfstæði Færeyja þó að þessu
sinni væri 26. maí ekki nefndur sem kjördagur.
Hoydal er starfandi lögmaður í fjarveru Anfinn
Kallsbergs, formanns Þjóðarflokksins, en hann
hafði lýst því yfír fyrir hrottför til Bretlands að
hans flokkur styddi ákvörðun landsstjórnar um
áætlun til sjálfstæðis ekki lengur í óbreyttri
mynd. Mikil óánægja er ríkjandi innan Þjóð-
veldisflokksins um þá ákvörðun Þjóðarflokks-
ins. Flokkur Kallsbergs vildi ekki taka afleið-
ingum þess ef Færeyingar höfnuðu sjálfstæði í
kosningunum. Skoðanakannanir sýna að
meirihluti Færeyinga muni hafna áætlun
landsstjórnar um sjálfstæði, ekki síst eftir að
danski forsætisráðherrann lýsti því yfír að ef
Færeyingar segðu já mundi styrkurinn frá
Dönum hverfa á næstu fjórum
árum, en ekki 12 eins og áætlanir
landsstjórnar gerðu ráð fyrir. Marg-
ir Færeyingar telja að það þoli fær-
eyskur efnahagur ekki.
Tnmaðarbrestux
Kallsberg sagði í færeyska útvarp-
inu í gær að þessi ákvörðun
Hoydals væri mikill trúnaðarbrest-
ur og það kynni að leiða til stjórn-
arslita Þjóðarflokksins, Þjóðveldis-
llokksins og Sjálfstjórnarflokksins.
Akvarðanir um það hvernig staðið
skuli að því að fá sjálfstæði skulu
vera samþykktar af öllum stjórnar-
floldeunum.
„Þetta var síðasti möguleiki að
bjarga sjálfstæðisáætlun Iands-
stjórnarinnar. Mér fannst það vera
mín skylda að framfylgja henni og
það er skylda landsstjórnarinnar. Eg hef hins
vegar tekið burt úr áætluninni ákvörðun um
þjóðaratkvæðagreiðslu þann 26. maí nk.,“ seg-
ir Högni Hoydal í gær. Astæða þess að tillagan
er lögð fram nú er að á miðvikudag var síðasti
möguleiki á að leggja fram tillögur fyrir lands-
þingið sem eiga að ræðast þar á þessu þingi.
Jörgin Niclasen, sjávarútvegsráðherra úr Þjóð-
arflokki, segir að dragi Hoydal ekki tillögu sína
til baka sé enginn starfhæfur meirihluti í lands-
stjórn. Helena Dam á Neystab', leiðtogi Sjálf-
stjórnarflokksins, segir það vera mjög rangt af
Hoydal að leggja fram þessa sjálfstæðisáætlun
þegar ekki ríki um hana eining innan lands-
stjórnar.
Jóannes Eidesgaard, formaður Jafnaðar-
flokksins, er staddur í Danmörku og er ekki
ólíklegt að hann og Anfinn Kallsberg eigi fund
saman í Kaupmannahöfn þegar Kallsberg fer
þar um á heimleið frá Bretlandi.
Framfylgja sjómarsáttmála
„Danir leggja þetta mál þannig upp að felli
Færeyingar tillögu um sjálfstæði í þjóðarat-
kvæði séu þeir að ákveða að vera áfram hluti af
danska ríkinu. Högni Hoydal hefur
lagt áherslu á það að þetta mál
snúist ekki um dagsetningu at-
kvæðagreiðslu en ef Þjóðarllokkur-
inn ætlaði að fara að semja undir
heimastjórnarlögunum væri
grundvöllur stjórnarsamstarfs
brostinn. Það yrði þá í íyrsta skipti
sem stjórn væri slitið vegna þess að
verið væri að framfylgja stjórnar-
sáttmála," segir Helga Hjörvar,
framkvæmdastjóri Norræna húss-
ins í Færeyjum.
Trúa ekki á olíuna
Helga Hjörvar segir að það merki-
lega í þessu máli frá sjónarhorni Is-
lendinga sé að hinn almenni Fær-
eyingur trúi ekkert á olíuna sem
verið er að leita að í færeysku lög-
sögunni að hún muni færa Færey-
ingum einhvern auð. OlÍLiborpallar eru komn-
ir á svæðið og búið er að gera samninga um
þyrluflutninga. Sennilega eru eldri Færeyingar
svo markaðir af gömlu kreppunni að þeir trúa
ekld á olíuauð þeim til handa en umræðan
snýst ekki síður um það hvað Danir hafi spar-
að sér t.d. að þurfa ekki að borga til NATO
vegna herstöðvarinnar í Færeyjum, og er það
borið saman við kostnað Hollendinga.
Helga Hjörvar: Það yrði þá í fyrsta skipti sem
stjórn væri slitið vegna þess að verið væri að
framfyigja stjórnarsáttmáia.
Högni Hoydal: Þetta var síðasti möguleiki að
bjarga sjálfstæðisáætlun landsstjórnarinnar.
Spuminjj iiiii traust
Helga Hjörvar segir umræðuna mjög heita og
marga vera mjög æsta. Umræðan snúist einnig
um það hvort fólk geti treyst stjórnmálamönn-
unum og hefðu Danir t.d. farið að beita sér í ol-
íumálinu hefði fullveldið fengið tilskilinn meiri-
hluta kjósenda. I hvert sldpti sem Paul Nyrup
Rasmussen, forsætisráðherra Dana, opni
munninn um færeysk málefni Ijölgi þeim sem
vilja taka áhættuna af því að velja sjálfstæði til
handa Færeyjum, vegna þess að mörgum Fær-
eyingum finnst hann tala niður til þeirra. GG
Jóannes Eidesgaard: Er
staddur í Danmörku og
er ekki ólíkt að hann og
Anfinn Kallsberg eigi
fund saman í Kaup-
mannahöfn
Umhverfismerkið Svan-
uriim slær í gegn
Norræna um-
hverfismerk-
ið, Svanur-
inn, sem hef-
ur verið notað
frá árinu
1989, er
þekktasta
umhverlis-
merkið á
Norðurlönd-
unurn. Það
hefur slegið í
gegn, ef marka má þann fjölda
sem nýtir merkið á framleiðslu
sína og könnun sem gerð hefur
verið, meðal neytenda um traust
á merkinu. Svanurinn er vel
þekkt umhverfísmerki á norræna
markaðnum. Könnunin, sem gef-
in hefur verið út í skýrslu, verður
lögð til grundvallar áframhald-
andi þróunar merkisins, sem
verður kynnt opinberlega
23.mars.
Norrænu aðgengis-
verðlaunin
Norrænu aðgengisverðlaunin
fyrir árið 2000 voru afhent í
Stadshuset í Stokkhólmi, á dög-
unum. Norræna nefndin um
málefni fatlaðra stofnaði að-
gengisverðlaunin, en nefndin er
þverfagleg nefnd sem heyrir
undir Norrænu ráðherranefnd-
ina. Þema verðlaunasamkeppn-
innar árið 2000 var „Nýsköpun í
aðgengi fyrir alla". Fyrstu verð-
laun fékk verkefnið „Byggjum
skynsamlega“, sem er samstarfs-
verkefni sjö stofnana um mál-
efni fatlaðra í Svíþjóð. Norræna
nefndin um máléfni fatlaðra,
vefsíða: http://nmnv.nsh.se
Umhverfis
Norðuxsjó á hjóli
Nýjasta sumarleyfistilboðið er
merkt leið fyrir hjólreiðamenn
umhverfis Norðursjó. Leiðin,
sem Iiggur í gegnum Noreg, Sví-
þjóð, Danmörku, Þýskaland, Hol-
land, England og Skotland, er
6000 kílómetra löng og að sjálf-
sögðu verður að nýta ferjusam-
göngur sums staðar. Þátttakend-
ur í verkefninu eru 70 héruð í
löndunum en verkefnið er upp-
runalega norskt og því er stýrt frá
Noregi og fjármagnað að hluta frá
ESB. Formleg opnun á leiðinni
verður í Hamborg þann 5. maí og
þá hefst einnig hjólreiðaferð sem
á að auglýsa verkefnið í öllum
Norðurlöndum og í þátttökulönd-
unum. Nánar um verkefnið:
http:llwww.northsea-cycle.com
Græni svanurínn,
umhverfismerki
Norðuríandanna.
áðuren þú kaupir
Á neytendasíðunum á netinu, www.ns.is, eru tíartegar upplýsingar um
framboð, gæði og verð vóru og pjónustu. Fjöidi neytenda hefur sparað sér fé
og fyrírböfn með þvi að skoða kannanímar okkar áður en þeír gerðu upp hug
sínn um kaup á vóru og þjónustu.
NEYTENÐ ASAMTÖKIN
sími: 545 1200 / neífang: ns@ns.is