Dagur - 02.03.2001, Page 11
FÖSTUDAGUR 2. MARS 2001 - 11
ERLENDAR FRÉTTIR
íbúar í Seattle voru nokkra stund að jafna sig á stóra skjálftanum.
Minna tjón en
talið var fyrst
Jarðskjálftiim sem
varð nyrst á Kyrra-
hafsströnd Bandaríkj-
anna á miðvikudag er
sá stærsti í hálfa öld.
Ibúar í Seattle og nágrenni nyrst
á Kyrrahafsströnd Bandaríkjanna
voru í gær að jafna sig eftir jarð-
skjálfta sem varð þar á miðviku-
dag og mældist 6,8 stig á
Richterkvarða. Þetta er stærsti
jarðskjálfti sem orðið hefur á
þessum slóðum í hálfa öld, en
manntjón varð lítið og eignatjón
minna en búist var við í fyrstu.
Upptök skjálftans voru um það
bil 56 km suðvestur af Seattle,
höfuðborg Washingtonrikis, en
það sem bjargaði því hve litlu
tjóni hann olli er væntanlega sú
staðreynd að upptökin voru á 53
km dýpi undir yfirborði jarðar.
Einn maður lést og 250 manns
hlutu meiðsl sem hægt er að
rekja beint til jaröskjálftans, en
enginn var alvarlega slasaður.
Allt í allt má þó búast við að
eignatjón nerni meira en millj-
arði bandarískra dollara, eða hátt
í 90 milljörðum króna.
Ríki og borgir í Washington
hafa lagt í miklar fjárfestingar til
þess að styrkja byggingar og brýr
á síðustu áratugum, og svo virð-
ist sem sú fjárfesting hafi skilað
sér núna. Flestar byggingar sem
byggðar hafa verið á síðasta ald-
arfjórðungi eða svo hafa verið
gerðar með hliðsjón af ströngum
öryggisstöðlum þar sem mið er
tekið af þvf að sterkir jarðskjálft-
ar geta komið á þessum slóðum.
Merkilegt þótti að jarðskjálft-
inn kom sama dag og George W.
Bush Bandaríkjaforseti hugðist
koma í veg fyrir að áætlun um
aðstoð til sveitarfélaga vegna
náttúruhamfara yrði framlengd,
en svo vill til að Seattle var eitt
fyrsta sveitarfélagið í Bandaríkj-
unum sem naut góðs af þessari
áætlun. Markmið hennar er að
gera sveitarfélögunum kleift að
styrkja eigin varnir gegn náttúru-
hamförum, og þykir hún heldur
betur hafa sannað gildi sitt í
þessum jarðskjálfta.
Vísindamenn segja að íbúar í
Washington megi teljast heppnir
að jarðskjálftinn varð ekki stærri,
því þarna geta orðið jarðskjálftar
sem mælast allt að 9 stig á
Richterkvarða. Arið 1949 varð á
svipuðum slóðum jarðskjálfti
sem mældist 7,1 stig og annar
árið 1965 mældist 6,5 stig.
Allra stærstu jarðskjálftar á
þessum slóðum geta valdið flóð-
bylgju sem borist gæti alla leið til
Japans og Kóreu, líkt og gerðist
árið 1700 þegar slíkrar bylgju
varð v'art í Japan.
Vísindamenn bentu einnig á
það í gær að áhrif skjálftans
hefðu orðið mun meiri og verri ef
veturinn hefði ekki verið jafnúr-
komulítill og verið hefur. Miklar
rigningar, sem annars eru al-
gengar á þessum slóðum, hefðu
getað valdið aurskriðum víða um
Washingtonríki.
Bíll sprakk í ísrael
JERUSALEM - ísraelskur bíll sprakk í loft upp í norður ísrael í gær
eftir talsvert langan eltingaleik við lögregluna. Lögreglan taldi að í
bílnum v'æru hryðjuverkamenn sem hygðust setja af stað bílspreng-
ingu. Samkvæmt upplýsingum frá sjúkraílutningamönnum þá dó
einn rnaður í sprengingunni en níu slösuðust og sumir alvarlega.
Samkvæmt sömu heimildum hafði lögreglan náð að setja upp vegar-
tálma nálægt Umm al-Fahm, sem er arabískur bær í norðurhluta
landsins. Annað vitni lýsti bílnum sem leigubíl.
Vögnimiun lyft af teimmnin
GREAT HECK, England - Breska lögreglan sagði síðdegis í gær að
svo gæti farið að enn fleiri lík fyndust í rústum Iestarvagnanna sem
lentu í árekstri íYorkshire í fyrradag. Vitað er um 1 3 manns sem fór-
ust og 75 sem slösuðust. Síðdegis í gær voru stórir kranar að lyfta
flökum vagnanna af teinunum og koma þeim þannig fv'rir að hægt
væri að fjarlægja þá og var allt eins búist við að fleiri lík fyndust við
þá aðgerð.
Rústa myndastyttur
KABUL - Talibanahreyfingin í
Afganistan, sem þar er nú við
völd í 90% landsins, hóf í gær
kerfisbundna eyðileggingu á
myndastyttum sem eiga rætur
sínar í rfkri menningararfleifð
landsins. Ástæðan er sú að slík-
ar styttur hafa nú verið lýstar
sem ó-islamskar. Eyðilegging
myndastyttnanna hófst í gær
þrátt fyrir áskoranir sem komu
erlendis frá, m.a. frá Kofi Ann-
an aðalritara Sameinuðu þjóð-
anna um að þyrma þessum
menningarverðmætum.
Mullah Qudratullah Jamal,
upplýsingamálaráðherra tali-
banastjórnarinnar sagði í gær
að einn þeirra staða þar sem
styttur yrðu örugglega brotnar
niður væri Bamiyan, en þar er
að finna tvær frægar styttur af
Budda sem höggnar eru í gegn-
heila kletta og eru einhver
þekktustu menningarstaðir úr afganskri sögu.
Gin- og klaufaveikin breiðist ut
LONDON - Segja má að meginland Evrópu hafi í gær verið að breyt-
ast í eitt allsherjar virki til varnar gin- og klaufaveikinni sem komið
hefur upp í Bretlandi. I Frakklandi var hafin slátrun á 30.000 kind-
um sem fluttar höfðu verið inn frá Bretlandi og í Portúgal var þess
krafist af ferðamönnum sem komu frá Bretlandi að þeir gengju í
gegnum sótthreinsandi efni áður en þeim var hleypt inn í landið.
Ekki minnkaði titringurinn við fréttir af því að veikin hafi verið stað-
fest á bæ í Norður - Irlandi, aðeins tvær rnílur frá landamærunum til
Irlands. Irland er sem kunnugt er í ES og flutningar milli Irlands og
meginlandsins hafa ekki verið takmarkaðir með sama hætti og flutn-
ingar til Englands - ennþá. Veruleg hætta er talin á að gin- og klaufa-
veikin verði að faraldri á N-Irlandi h'kt og í Englandi.
FRÁ DEGI
FÖSTUDAGUR 2. MARS
61. dagur ársins, 304 dagar eftir.
Sólris kl. 8.31, sólaralag kl. 18.50.
Þau fæddust 2. mars
• 1824 Bedrich Smetana, bæhcimskt tón-
skáld.
• 1876 Píus tólfti, páfi sem ríkti á árum
seinni heimstyrjaldarinnar (1939-58).
• 1900 lvurt Weill, þýskt tónskáld sem
vann mikið með leikskáldinu Bertolt
Brecht.
• 1904 dr Seuss, höfundur sögunnar um
Trölla sem stal jólunum og fleiri barna-
bóka.
• 1922 Hannes Sigfússon skáld.
• 1944 Lou Reed, bandarískur tónlistar-
maður.
• 1950 Karen Carpenter, bandarísk dæg-
urlagasöngkona.
TIL DAGS
• 1951 Viðar Víkingsson kvikmyndagerð-
armaður.
• 1962 Jon Bon Jovi, söngvari og lagahöf-
undur.
Þetta gerðist 2. mars
• 1807 lagði bandaríska þjóðþingið bann
við því að flytja þræla til landsins.
• 1946 var Ho Chi Minh kosinn forseti
Víetnams.
• 1957 var Heilsuverndarstöðin í Reykja-
vík vígð.
• 1972 var geimfarinu Pioneer 10 skotið
út í geiminn í átt til Júpíters, stærstu
plánetu sólkerfisins.
Vísa dagsins
Óróleiki æsir iaugcir,
eitri mengar vöku og hlund.
Vanefnd loforð verða draugar,
villa um mig hverja stund.
ÖrnArnarson (Magnús Stefánsson, 1884-1942)
Afmælisbam dagsins
Mikhaíl Sergejevitsj Gorbatsjov er sjö-
tugur í dag. Hann er maðurinn sem
reyndi að gefa Sovétríkjunuin mannlegt
yfirbragð en lagði í staðinn grunninn að
enclalokum þeirra. Fyrir vikið blaut
hann friðarverðlaun Nóbels árið 1990.
Hann fæddist í Privolje, sem er í Stavr-
opol-héraði í suðvesturhluta Rússlands.
Ungur gekk hann til liðs við Flokkinn
og var kominn í miðstjórn hans þegar
árið 1971. Hann var aðalritari Komm-
únistaflokksins 1985-91 og forseti Sov-
étríkjanna 1990-91.
Oftast er erfiðara að telja klóku fólki trú
um að maður sé það sem maður er ekki
heldur en að verða í raun og veru það
sem maður vill líta út lýMr að vera.
Georg Christoph Lichtenberg (1742-1799)
Heilabrot
Tveir mafíuforingjar, köllum þá A og B,
settust niður á bar og fengu sér drykk. Báð-
ir fengu sér sams konar drykk með klaka.
Hvorugur vissi að þeir voru í bráðri lffs-
hættu, því launmorðingi hafði byrlað þeim
eitur. A drakk sinn dr)'kk í rólegheitum, en
B skellti sínum í sig í hvclli og pantaði strax
annan. Að fáeinum mínútum liðnum datt
A niður dauður, en B fann ekki fyrir neinu
og lifði bariatilræðið af. Hvernig stóð á því?
Síðasta gáta: Guðlaugur kunni ýmislegt
fyrir sér í töfrabrögðum. Eitt sinn hélt
hann á vatnsglasi, sem var úr plasti þannig
að það brotnar ekki við fall. Hann Iyfti glas-
inu í höfuðhæð og lét það dctta niður á
gólf, nærri tveggja metra fall, án þess að
einn einasti vatnsdropi færi til spillis.
Hvernig fór hann að því.
Lausn: Vatnsglasið var tómt ...