Dagur - 02.03.2001, Side 19
LEIKHUS
KVIKMYNDIR
Kvikmyndagerðarkonurnar Susan Masuka og Gréta Ólafsdóttir, sem eru höf-
undar að þessari mynd, hafa um árabil unnið að heimildarmynd um konur í
stríðinu á Balkanskaga. Þeim hefur verið vel tekið af konunum, sem reyndar
eru hissa á því hvað þærþekkja þeirra málefni vel. Susan og Gréta eru líka
ánægðar með það að vera treyst fyrir þessum skelfilegu sögum kvennanna.
Þrjárkonurfrá
Balkanskaga munu á
ráðstefnu sem haldin er
á vegum Rannsóknar-
stofu í kvennafræðum
m.a.fjallaumskelfi-
lega reynslu kvenna af
stríðunum ífyrrverandi
Júgóslavíu.
Sögulegur dómur Stríðsglæpa-
dómstóls SÞ yfir þremur Bosníu-
Serbum var kveðinn upp í Haag í
síðustu viku. Þeir voru sakaðir
um skipulagðar nauðganir og
pyntingar í fangabúðunum í Foca
árið 1992 og hlutu 28, 20 og 12
ára fangelsi.
Opin ráðstefna undir heitinu
Konur og Balkanstríðin verður
haldin á vegum Rannsóknastofu
í kvennafræðum í Hátíðarsal Há-
skóla Islands í dag. Þátttakendur
eru þrjár konur frá Balkanskaga:
Zarana Papic, aðstoðarprófessor í
mannfræði við Háskólann í
Belgrad, Vesna Kesic, félagsfræð-
ingur og sálfræðingur frá Króatíu
og Vjollca Krasniqi, hókmennta-
fræðingur frá Kosovo. I tilefni
ráðstefnunnar koma einnig tvær
kvikmyndageröarkonur til lands-
ins, þær Susan Muska og Gréta
Olafsdóttir sem hafa getið sér
gott orð fyrir heimildamyndina
The Brandon Teena Story en þær
hafa nú um árabil unnið að
Leikfélag Hveragerðis
frumsýnirí nýju hús-
næðifélagsins leikverk
Kjartans Ragnarssonar
Týndu teskeiðina í
kvöld. Leikendureru
átta, en alls koma tutt-
ugu ogfimm manns að
sýningunni.
Leikfélag Hveragerðis keypti fyr-
ir tveimur árum nýtt húsnæði
undir starfsemi sína sem fengið
heimildamynd um konur í stríð-
inu á Balkanskaga. Myndin er
enn í vinnslu en valin mvmdskeið
verða sýnd á ráðstefnunni. Að
sögn Irmu Erlingsdóttur, for-
stöðumanns Rannsóknastofu í
kvennafræðum eru konurnar
þrjár þekktar fræðikonur á al-
þjóðavettvangi, en þær hafa
einnig unnið mildð og gott hjálp-
arstarf meðal þeirra kvenna sem
beittar voru ofbeldi í Balkanstríð-
inu.
Papic er höfundur þriggja
bóka og fjölda greina um mann-
fræði og feminisma. Hún vinnur
hefur nafnið Völundur. Húsið er
staðsett við hliðina á hinum
fræga sunnudagsbíltúrsvið-
komustað Reykvíkinga Eden. I
kvöld frumsýnir leikfélagið í Völ-
undi leikverk Kjartans Ragnars-
sonar Týndu teskeiðina og hefst
sýningin kl. 20.30. Kjartan
Ragnarsson hefur skrifað mörg
Ieikrit sem notið hafa gífurlegra
vinsælda meðal landsmanna og
eru þau flest í gamansömum dúr
og svo er einnig með Týndu
teskeiðina, þótt gamanið verði
ansi grátt á köflum.
Uppáþrengjandi fyllibytta
Sagan gerist heima hjá hjónum
sem hafa boðið yfirmanni eigin-
mannsins og eiginkonu hans í
mat. Ibúð gestgjafanna er á
hæðinni og í kjallaranum býr
nú að rannsóknum á serbneskri
þjóðernishyggju, stríði og feðra-
veldi og stöðu kvenna í Austur-
Evrópu eftir hrun kommúnism-
ans. I skrifum sínum hefur Kes-
ic sérstaklega skoðað ofbeldi
gegn konum í stríðunum á
Balkanskaga og samspil þjóðern-
ishyggju og nauðgana. Hún hef-
ur mikla reynslu af því að veita
stríðsfórnarlömbum sálfræðiráð-
gjöf og var stofnandi B.a.B.e.
kvenfrelsis- og mannréttinda-
samtakanna, þeirra fyrstu sinnar
tegundar í Króatíu árið 1994.
Hún hefur fengið margvislegar
húshjálp hjónanna og er eigin-
maður hennar drykkjuhrútur og
vandræðagemsi. Fyllibyttan ger-
ir sig heimakomin í matarboði
hjónanna og verður óþolandi og
uppáþrengjandi. Það slysast svo
tií að byttan lætur lífið í íbúð
hjónanna og þá fer nú ýmislegt
spaugilegt að gerast þegar hjón-
in ætla að losa sig við líkið.
Leikarar í sýningunni eru átta,
en alls koma um tuttugu og
viðurkenningar fýrir störf sín í
þágu kven- og mannréttindabar-
áttu í Kióatíu. Krasniqi hefur
rannsakað stöðu kvenna í
Kosovo og er nú að vinna að bók
um Kosovo-stríðið og nauðung-
arflutninga út frá reynslu
kvenna.
Almenntngur laki þátt
í umræðunni
Konurnar þrjár hafa beint sjónum
að þjóðemishyggju í skrifum sín-
um, gjarnan út frá feminísku
sjónarhorni, og hafa verið virkar í
samtökum sem bafa bcitt sér
gegn stríðsátökunum á
Balkanskaga og í þágu fórnar-
lamba. Þær munu fjalla um póli-
tískt ástand á Balkanskaga og
leggja sérstaka áherslu á reynslu
kvenna af stríðunum í fyrrverandi
Júgóslávíu. Að loknu inngangser-
indi þeirra gefst áheyrendum
tækifæri til að spyrja þær spurn-
inga.
Ráðstefnunni Konur og Balkan-
stríðin er ætlað að stuðla að upp-
Iýstri almennri umræðu um
ástandið á landsvæðum fyrrum
Júgóslaxau en um þessar mundir
fer fram mikil umræða í Evrópu
um stöðu Balkanskaga í álfunni.
Fræðikonurnar þrjár telja nauð-
synlegt að tekið sé ntið af reynsl-
unni af stríðsátökunum, með
áherslu á hlutskipti kvenna, og
efnt sé til samræðna milli ólíkra
hugmyndaheima í þeirri viðleitni
að endurreisa stríðshrjáð lönd eft-
ir langvarandi átök.
Ráðstefnan verður haldin, sem
fyrr segir í dag og fer fram í Há-
tíðarsal Háskóla íslands og hefst
kl. 14.00.
fimm manns að sýningunni.
Leikstjóri er Sigurður Blöndal.
Frumsýning er í kvöld eins og
fyrr segir, en næstu sýningar eru
sem hér segir: 2. sýn. mánud. 5.
mars, 3. sýn. miðvikud. 5. mars
og 4. sýn. föstud. 9. mars. Miða-
verð kr. 1 500 - eldri borgarar og
hópar kr. 1200 - börn kr. 500.
Upplýsingar og miðapantanir
eru íTíunni s. 483 4727 kl. 10 -
23.30.
■umhelgina)
Una Sveinbjarnardóttir fiðluleikari
og Anna Guðný Guðmundsdóttir
píanóleikari.
TvUeikstónleikar í Salriuin
Una Sveinbjarnardóttir fiðlu-
leikari og Anna Guðný Guð-
mundsdóttir píanóleikari halda
tónleika í Salnurn £ Kópavogi
laugardaginn 3. mars kl. 1 7. A
efnisski'ánni eru Partíta nr. 1 í
h-moll fyrir einleiksfiðlu eftir
Johann Sebastian Bach, Sónata
fyrir píanó og fiðlu í G-dúr, nr.
10, op. 96 eftir Ludwig van
Beethoven, Introduction et
rondo capriccioso, op. 28 eftir
Camille Saint-Saéns og sfðast
en ekki síst verkið Subito sem
er eitt af síðustu verkum Pól-
verjans Witold Lutoslavski.
Eins og nafn verksins gefur til
kynna er það hratt og snaggara-
legt en hefur einnig mikla dýpt
og áhrifamátt. Subito er nú
Ilutt í fyrsta sinn á Islandi.
Una Sveinbjarnardóttir hefur
stundað nám hjá Prof. Thomas
Brandis í Hochschule der
Kúnste í Berlín frá 1998. Nú í
febrúar lauk hún Diplom-prófi í
fiðluleik með hæstu einkunn og
mun stunda framhaldsnám tií
Kon/ertexamen hjá Prof Brand-
is. Anna Guðný Guðmunds-
dóttir hefur starfað sem píanó-
leikari frá árinu 1982 og tekið
virkan þátt í íslensku tónlistar-
Iífi, leikið inn á hljómplötur og
hljómdiska og komið fram á
tónleikum víða í Evrópu.
Stríð og Mður í Sjallaiiinii
Bubbi Morthens ásamt hinni
nýju hljómsveit sinni „Stríð &
Friður „ heldur tónleika í Sjall-
anum á Akureyri í kvöld 2.
mars og annað kvöld 3. mars.
Undanfarnar vikur hafa þeir
félagar verið í hljóðveri að taka
upp efni á væntanlega plötu. Á
efnisskránni verður góð blanda
að gömlu góðu og nýju fersku
efni.
Þeir scm skipa hljómsveitina
Stríð og Frið ásamt Bubba eru;
Jakob Magnússon bassaleikari,
Guðmundur Pétursson gítar-
leikari, Arnar Geir trommari og
Pétur Hallgrímsson.
Bubbi Morthens.
\_______________________Z
Leikarar í Týndu teskeiðinni eru standandi frá vinstri: Sigurður Blöndal, Anna
Jórunn Stefánsdóttir, Steindór Gestsson, Svava Bjarnadóttir, Jóhann Tryggvi
Sigurðsson og sitjandi frá vinstri: Ingvi Pétursson, Ylfa Lind Gylfadóttir, Guð-
ríður Aadnegaard.