Dagur - 02.03.2001, Síða 21

Dagur - 02.03.2001, Síða 21
T^mit FÖSTVDAGUR 2. MARS 2001 - 21 íslenskur spjaldvefnaður I dag kl. 17 verður opnuð í Þjóðar- bókhlöðu sýning um spjaldvefnað. Sýningin er gerð í tilefni af því að eitt hundrað ár eru lið- in frá útkomu bók- arinnar Llber Brettchenweberei eftir þýsku fræði- konuna Margarete Lehmann-Filhés þar sem hún gerir grein fyrir rann- sóknum sínum á islenskum spjaldvefnaði. A sýningunni eru ýmis konar spjaldofin bönd úr eigu Pjóðminjasafns íslands. Einnig eru á sýningunni nýleg spjaldofin bönd eftir Sigríði Hall- dórsdóttur vefnaðarkennara sem mest hefur rannsakað ís- lenskan spjaldvefnað og Philippe Ricart lista- og handverks- mann. Sýningin er opin til 25. mars á sama tíma og Þjóðarbókhlaðan. Bjargræðiskvartettinn skemmtir Norðlendingum Bjargræðiskvartettinn verður á ferðinni um Norðurland um helgina. Þau munu skemmta é Sauðárkróki í kvöld 2. mars kl. 21, á Dalvík laugardaginn 3. mars kl. 17 og það sama kvöld verða þau í Deiglunni kl. 21, Listagili á Akureyri. Á dagskrá eru lög úr ýmsum éttum og frá ýmsum tímum en textarnir eru allir eftir Ómar Ragnarsson. Mörg þessara laga urðu vinsæl í flutn- ingí þekktra íslenskra dægurlagasöngvara og hljómsveita en Bjargræðiskvartettinn hefur útsett þau upp á nýtt. Bjargræðiskvartettinn skipa: Aðalheiður Þorsteinsdóttir, Anna Sigriður Helgadóttir, Gísli Magnason og Örn Arnarson. Miðaverð kr. 1.200,- Heimsfræg málverk i Listasafni íslands Sunnudaginn 4. mars kl. 16.00 verður opnuð í Listasafni íslands sýning á verkum eftir meistara landslagsmálverksins í Frakklandi á 19. öld. Einnig er að finna á sýn- ingunni verk eftir hollenska 17. aldar meistara sem höfðu afgerandi áhrif á þróun landslagsmálverksins í Evrópu á 19. öld. Sýningin ber yfirskriftina Náttúrusýnir og eru verkin öll í eigu Fagurlistasafns París- arborgar, Petit Palais. Þetta er í fyrsta skipti sem verk eftir listamenn á borð við Gustave COUR- BET, Claude MO- NET, Paul CEZANNE, Alfred SISLEY, Camille PISSARRO, og Jean-Baptiste COROT eru sýnd í íslensku safni. Sýningin er því stórfrétt í íslensku menningarlífi. skemmtileg fjölskyldusýning og höfðar boðskapur hennar til allra aldurshópa. Myndlistarvor íslandsbanka í Eyjum 2001 Undanfarin tvö ár hafa verið settar upp mvndlislarsýningar í Eyjum undir heitinu Myndlistarvor Islandsbanka í Eyjum. Ákveðið hefur verið að hlev'pa mvndlistinni hið þriðja sinn út í vorið í Eyjum og verður fyrsta sýningin opnuð laugardaginn 3. mars kl. 1 / .00 á verk- um Sigurðar Örlygssonar. OG SVO HITT... Tilkynining frá Útlendingafélagi Eyjafjarðar Aðalfundur félagsins verður haldinn miðvikudaginn 1-4. Febrúar ld.20.00 í Einingar-Iðju salnum Skipagötu 14, 2. Hæð. Venjuleg aðalfundarstörf. Önnur mál. Nýjir félagar velkomnir. Stjórnin. Davíðsljóðakvöld „Eg er ríkur! - Ein llaska er nóg!" orti Davíð Stefánsson í Vodka - og hafa- margir orðið til að fara með línur úr því kvæði síðan. Það birtist í 4. ljóða- bók skáldsins frá Fagraskógi, sem út kom 1929 og nefndist „Ný k\æði.“ Da\íðsljóðakvöld er að Bjarkarstíg 6 í kvöld 2. mars - og hefst kl. 20.30. Gjugg í sveit Laugardagskvöldið 10. mars nk. ætlar Söngfélagið Sálubót að standa fyrir sjávarréttarhlaðborði, skemmtun og dansleik í Stjórutjarnarskóla. Uppi- staðan er um 30 óvenjulegir og sjald- séðir fiskréttir. Yfirkokkur er Gunnar Smári Björgvinsson. A meðan á borð- haldis tendur verður boðið upp á fjölda skemmtiatriði s.s. eistneskan þjóðlaga- söng, vt'snaspjall, hugleiðingar og kór- söng. Veislustjóri verður Sleingrímur J. Sigfússon. Hljómsveitin Folk Hig- hlights Orchestra kemur fré Eistlandi og Ieikur fyrir dansi ásamt Jaan Ala- vere. Forsala aðgöngumiða hefst mánudaginn 5. mars og verður í ölluin útibúum Sparisjóðs S-hingeyinga og í Penanum-Bókvali á AkureyTÍ. Miða- verð er kr. 3.800. Nánari uppl. í sím- um 464-3327, 464-3425 og 462-6210. Samráðsfundur grunn- og fram- haldsskóla í Gryfjunni í VMA Nefnd á vegum Héraðsnefndar Eyja- fjarðar sem skipuð var ti) að koma á auknu samstarfi milli skóla og skóla- stiga á Eyjafjarðarsvæðinu hefur skipu- lagt samráðsfund fvrir grunn- og fram- haldsskóla á Eyjafjarðarsvæðinu sem haldin verður í dag 2. mars kl. 14:00 í Gryfjunni í VMA. Eltir erindin fara fram umræður í hópum. Fundurinn er opinn öllum sem áhuga hafa á að kynna sér þessi mál. Félagsfundur í Síðuskóla Iélagsfundur Umsjónarfélags ein- hverfra verður haldin að Síðuskóla á Akureyri í kvöld kl. 20.00. Dagskrá fundarins: Iíu útvarjisrásir og sand- pappír. Jarþrúður Karlsdóttir, sjúkra- þjálfari og starfsmaður Svæðisskrif- stofu Reykjavfkur um málefni ein- hverra fjallar um skyntruflanir hjá fólki með einhverfu. Félagið hefur Iátið þýða grein eftir mann með einhverfu þar sem skyntruflunum er lýst á áhrifaríkan hátt. Greinin og fleira fræðsluefni mun liggja frammi á fund- inum. Einnig mun stjórn Uinsjónarfé- lags einhverfra kynna starfsemi félags- ins og situr fvrir svörum að þvf loknu. UE hvetur alla sem tengjast einhverfu að fjölmenna á fundinn. Það kostar ekkerl inn á fundinn og hann er opin öllum. Braumur uMHim máMtilmI Ef a þig sækir svefn við akstur skaltu leggja bílnum á öruggum stað og fá þér blund Þjóðardómur eða þröngir hagsmunir Lífið er saltfiskur Við erum tals- menn framfara N - segir Ogmundur Jónasson þingmaður vinstri grænna, í helgarviðtaii Draumalandið og seppi Áskriftarsíminn er 800-7080 I HELGARBLAÐI DAGS Bækur, kynlíf, bíó, dómsmál, bridge, krossgáta og margt fleira

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.