Dagur - 14.03.2001, Page 12
12- MIDVIKUDAGUR 14. MARS 2001
MIDVIKUDAGUR 14. MARS 2001 - 13
FRÉTTASKÝRING
i.
FRÉTTIR
Áralöngu markaðsstarfl ógnað
GEIRA.
GUÐSTEINS-
SON
SKRIFAR
Ekki reiknað með af-
skiptum stjómvalda af
sj ómaimadeiliumi.
Sj ómannaverkfall
gæti haft þó nokkur
ahrif á gengi krónunn-
ar og þar með verð-
bólgu, vexti og vísitöl-
ur til verri vegar fyrir
þjóðarbúskapinn.
Krafa sjómanna um
löndunarfrí á uppsjáv-
arfiski vegur þungt.
Fátt, eða jafnvel ekkert, virðist
geta komið í veg fyrir að verkfall
sjómanna bresti á aðfaranótt
föstudagsins. Viðræðunefndir
hafa fundað á hverjum degi í
Karphúsinu, en nánast ekkert
miðar í samkomulagsátt. Fundur
var eftir hádegi í gær, en hljóðið í
samninganefndarmönnum var
þungt áður en haldið var á þann
fund. Komi til verkfalis sjómanna
skulu þau skip er verkfallið nær
til hætta veiðum strax og verkfall-
ið tekur gildi. Er skipverjum þá
ekki heimilt að framkvæma aðra
vinnu í þágu útgerðar en að sigla
skipinu til hafnar, landa úr skip-
inu, samkvæmt ákvæði samnings
um löndun afla, og undirbúa
skipið að öðru leyti undir hafnar-
legu. Þó skal heimilt ef útgerð
kýs, að landa aflanum í annarri
höfn þ.m.t. erlendri höln, og
skulu skipverjar þá sigla skipinu í
heimahöfn strax að löndun lok-
inni.
Stjómvöld grípa ekki iim sjó-
mannadeiluna
Landsamband íslenskra útvegs-
manna telur engar líkur á því að
komast megi hjá verkfalli sjó-
manna, enda hafi ekki náðst sam-
komulag um nokkurt einasta at-
riði, engin lausn liggi á borðinu.
Verkfallið muni hafa gríöarlcg
áhrif á allt þjóðarbúið, ekki bara
útgerð og fiskvinnslu, en erfitt sé
að verðleggja það. Sjómenn verði
einnig fyrir tjóni. Friðrik Arn-
grímsson, framkvæmdastjóri
LIU, segir að þegar t.d. fækki í
áhöfn vegna framþróunar í fisk-
veiðum, vilji útgerðarmcnn að sá
hagnaður sem af því hljótist
skiptist milli útgerðarmanna og
sjómanna. I dag sé hins vegar
betra fyrir útgeröina að hafa 12
menn í áhöfn þó ekki sé þörf á
nema 10!
„Við erum með hátt launahlut-
fa11 í öllum samanburði, hvort
sem samanburðurinn er við er-
Iendar útgerðir eða við annan at-
vinnurekstur. Okkar svigrúm er
því ekki stórt, en við þurfum lyrst
og fremst að ná Iram hagræðingu
og aðilar þurfa að skipta því á
milli sín. I því liggja möguleikarn-
ir,“ segir Friðrik.
Hann kveðst ekki hafa trú á því
að stjórnvöld muni grípa inn í
deiluna með lagasetningu, og
reyndar hafi útgerðin fengið um
það skýr skilaboð. „Stjórnvöld
munu heldur ekki koma að þess-
ari deilu með því t.d. að leggja
eitthvað til lausnar nema að við
komum okkur saman um eitt-
hvað, t.d. ef þarf lagabreytingu
til. Það kemur engin hönd að
ofan til þess að leysa þessa vinnu-
deilu með því að leggja eitthvað í
púkkið," segir Friðrik Arngríms-
son.
Deildaskipta þarf Sjómanna-
sambandinu
Loðnuskipið Súlan EA var á leið
úr Iöndun í Grindavík í gærmorg-
un á Ieið á loðnumiðin vestan
Vestmannaeyja. Allar þrær eru
nýttar til að tryggja sem mest af
hráefni áður en skipin verða
bundin við bryggju, jafnvel þrær
sem ekki hafa verið notaðar árum
saman. Ekki er þó landað á tún
eða í hraungjótur eins og stund-
um áður. Núgildandi heilljrigðis-
reglugerð hindrar það. Bjarni
Bjarnason, skipstjóri, segist reik-
na með að hann sé í næstsíðasta
túr fyrir verkfall. „Það hefur verið
mjög óeðlilegur gangur í þessari
vinnudeilu. Því veldur m.a. að
hagsmunir sjómanna eru svo mis-
munandi eftir því á hvaða veiðum
þeir eru. Það eiga ekki saman
hagsmunir vertíðarbáta, loðnu-
báta og frystiskipa, þar sem það
eru unnin svo gjöróh'k störf um
borð. Það þarf að semja fyrir
hvern hóp fyrir sig. Það þarf ekki
endilega að stofna ný stéttarfélög,
heldur að hafa Sjómannasam-
bandið deildaskipt," segir Bjarni
Bjarnason.
Krafa um löndunarfrí
„Það hefur alls ekkert þokast í
samkomulagsátt," segir Sævar
Gunnarsson formaður Sjó-
mannasambandsins. „Við Iögðum
fram hugmynd að skammtíma-
samningi í janúarmánuði sl. þar
sem við fórum ekki fram á neitt
annað en það sem samið hefur
verið við aðra launþega um, þ.e.
greiðslur í sjálfseignarsjóði lífeyr-
issjóðanna, kauptryggingu og
launaliði auk lagfæringa á slysa-
tryggingum. Það er algjörlega
óviðunandi að sjómenn skuli
alltaf þurfa að sanna að eitthvað
hafi verið að hjá útgerðinni um
borð til þess fá eðlilegar slysa-
greiðslur," segir Sævar. Samtök
atvinnulífsins hafa samið við
skipafélögin í fraktinni um þetta
atriði við alla farmenn og einnig
um greiðslur í séreignasjóði líf-
eyrissjóðanna sem og launahækk-
anir á föstu launaliðunum. Þess-
um atriðum neituðu útgerðar-
menn að ganga að, og síðan hafa
þcssi atriði ekki fengist rædd.
„Við höfum einnig reynt að ræða
við þá um verömyndunina í heild
sinni og boðist til þess að leggja
það mál til hliðar í von um að
komast áfram í öðrum málum, en
það hefur ekkert gengið," segir
Sævar.
Hann segir kröfu sjómanna
skýra hvað varðar verðmyndun.
Þeir vilji að allur fiskur fari á
markað eða að það verði í gangi
markaðstengt verð.
„Við höfum boðið upp á allar
aðrar leiðir til þess að leysa það
mál, en útgerðarmenn hafa ekki
komið með neinar hugmyndir
eða leiðir sem gætu leitt til lausn-
ar þess máls þrátt fyrir að þeir
Pétur Bjarnason: Ekki hægt að
horfa fram hjá því að traust íslend-
inga á fiskmörkuðum eriendis mun
rýrna og allt markaðsstarf mun
truflast.
hins vegar ekki á óvart að ekki hafi
tekist að semja ef Iitið er til þrigg-
ja síðustu samninga sem hafa allir
leitt til verklalls og síðan hafa
stjórnvöld höggvið á hnútinn,"
segir Gunnar Svavarson, forstjóri
SH.
Verkfallið alvarlegast fyrir
vetrarvertíðina
Björgólfur Jóhannsson, forstjóri
Síldarvinnslunar í Neskaupstað,
segir að áhrif sjómannaverkfalls
verði ekki mikil til að byrja með á
starfsemi Síldarvinnslunar, en
hafi áhrif á markaði fyrir íslenskan
fisk verði það mjög langvinnt.
Fyrst gæti áhrifanna á bolfisk-
mörkuðum, t.d. fyrir frystan fisk
til Bretlands og saltaðan fisk til
Spánar. I gangi sé vetrarvertíð sem
gefi af sér milda framleiðslu salt-
fisks, og þá komi að landi vænsti
fiskurinn. Einhverjar birgðir séu í
landinu af mjöli og lýsi svo áhrif á
þeim mörkuðum gætir síðar.
Björgólfur Jóhannsson óttast að
verkfallið geti oröið langvinnt og
snúið, en hann trúir ekki að
stjórnvöld láti það óátalið að þjóð-
arbúið missi af miklum útflutn-
ingstekjum.
„Allur fiskur á markaði er ekki á
samningsborðinu. Það er óeðlilegt
að einhverjir aðilar ákveði hvað
t.d. Síldarvinnslan eigi að borga
fyrir fiskinn, ég treysti mínum sjó-
mönnum til að semja um það. Eg
er ekki tilbúinn að standa í þeirri
stöðu fyrir Síldarvinnsluna þegar
skip kemur inn að vita ekki hvort
ég fái aflann til vinnslu eða ekki.
Rekstraröryggi fyrirtækisins og at-
vinnuöryggi starfsmanna yrði þá
fyrir borð borið. Við erum að slep-
pa fyrir horn með loðnuvertíðina
þó það væri hægt að lengja hana
um hálfan mánuð meðan verið
væri að ná öllum kvótanum, en
þetta verkfall veldur vetrar\'ertíð-
inni miklum skakkaföllum, er
nijög alvarlegt fyrir hana fljótlega.
Það græðir enginn á verkfalli,"
segir Björgólfur Jóhannsson,
fra m kvæ md a s tj ó r i S í 1 d ar vi n n s I -
unnar.
Persónulegur ágreiningur
Pétur Bjarnason, framkvæmda-
stjóri Fiskifélags Islands, segir það
augljóst að langvinnt sjómanna-
verkfall muni hafa gífurlega skað-
vænleg áhrif og tekjurýrandi fyrir
þjóðlélagið, ekki bara fyrir það
fólk sem hefur atvinnu af sjávarút-
vegi, heldur allt þjóðfélagið.
„Það er ekki hægt að horfa fram
hjá því að traust Islendinga á fisk-
mörkuðum erlendis mun rýrna og
allt markaðsstarf mun truflast. Við
veröum ekki taldir eins ábyggileg-
ir birgjar og annars væri. Aðilum
að þessari deilu hefur lengi geng-
ið illa að ná samningum og rnikil
nauðsyn er til þess að á því verði
breyting. Jafntíð sjómannaverkföll
og hjá okkur eru auðvitað engum
til góðs og það óska allir eftir að
deiluaðilar nái saman og ekki
þurfi að búa við jafntíð sjómanna-
verkföll og raunin er."
Aðspurður hvort hann teldi að
samningaviðræður gengu erfiðlega
vegna persónulegra viðhorfa meðal
forustumanna deiluaðila sagði Pét-
ur: „Eg trúi ekki að tregðu við það
að ná samningum megi rekja til
persónulegs ágreinings forsvars-
manna samningsaðila. Ég trúi ekki
öðru en að þeir leggi allir persónu-
leg mál til hliðar og vinni að heil-
indum að því verkefni sem þeir
hafa tekið að sér. Eg ætla þeim
ekki annað," sagði Pétur.
Getur haft ábrif gengið
Ásgeir Daníclsson, hagfræðingur
hjá Þjóðhagsstofnun, segir að verð-
mæti þess loðnuafla sem ekki
veiðist vegna sjómannaverkfalls -
ef við bætist 100 þúsund tonn - sé
tæplega 2 milljarðar króna. Ut-
hafskarfaveiði og kolmunnaveiði sé
að hefjast, og langt verkfall kynni
að hafa þau áhrif að nánast ekkert
veiddist af þessum tegundum á
þessu ári. Verðmætasti þroskurinn
veiðist á vetrarvertíð veiðist nú í
salt, og sú vertíð stendur sem hæst,
og það fólk sem að því vinnur
hleypur ekki í aðra vinnu. Kostnað-
ur verður af atvinnuleysi land-
verkafólksins gæti nurnið hund-
ruðurn milljóna króna vegna at-
vinnulevsisbóta.
„Ef íslendingar verða af völdum
verkfalls óábvggilegir birgjar missa
þeir viðskipti sem erfitt gæti orðið
að ná aftur. Einu fréttirnar af
samningum voru um tíma þær að
samningsaðilar gætu ekki verið
saman í einu herbergi. Það boðar
ekki gott, en ég held að llestir
reikni með verkfalli. I verkfalli tap-
ast gjaldeyristekjur, viðskiptajöfn-
uðurinn versnar enn frekar, hann
kann að virka neikvætt á gengi ís-
lensku krónunnar. Tveggja millj-
arða króna tekjutap er ekki stór
partur af þeim viðskiptahalla sem
verið hefur og er stórt vandamál,
og lagar ckki þá stöðu. En ef það er
dropinn sem fyllir mælinn varð-
andi gengisóvissuna gæti það haft
þó nokkur áhrif á gengi krónunnar
og þar með verðbólgu, vexti og vísi-
tölur til verri vegar fyrir þjóðarbú-
skapinn," segir Asgeir Daníelsson.
Björgólfur Jóhannsson: Óttast að
verkfallið geti orðið langvinnt, en
trúir ekki að stjórnvöld láti þjóðar-
búið missa af svo miklum útflutn-
ingstekjum.
Fátt, eða jafnvel ekkert, virðist geta komið í veg fyrir að verkfall sjómanna bresti á aðfaranótt föstudagsins.
viðurkenni að þetta sé vandamál.
Við viljum halda inni Verðlags-
stofu skiptaverðs, enda er hún að
vinna þarft verk f upplýsinga-
streymi og undanfarin þrjú ár
hafa málin verið mun skýrari en
annars væri fyrir tilstilli hennar.
Krafan um löndunarfrí á upp-
sjávarfiskveiðum er mjög þung af
okkar hálfu, en hún hefur ekki
fengist rædd frekar en allar hinar
kröfur okkar í Karphúsinu. Við
miðum okkur við nálægar þjóðir
eins og Norðmenn og Færeyinga,
en þar hefur það tfðkast í áratugi
að sjómenn séu ekki að landa
grútnum eftir túrana. Loðnusjó-
menn leggja þunga áherslu á
þetta atriði nú. Við Ijáum ekki
rnáls á því að breyta hlutaskipt-
unum, en á því hafa útgerðar-
menn verið að klifa," segir Sævar
Gunnarsson.
Friðrik Arngrímsson: Þegar fækkar i
áhöfn vegna framþróunar í fisk-
veiðum, vilja útgerðarmenn að sá
hagnaður sem afþví hljótist skiptist
milli útgerðarmanna og sjómanna.
Versta hjá þeim sem borga
minnst
Sævar Gunnarsson segir umræð-
ur um meinta þátttöku sjómanna
í kvótakaupum ekki eins háværar
nú og áður en krafa Sjómanna-
sambandsins sé enn sú sama, að
sjómcnn séu ekki neyddir til þátt-
töku í kvótakaupum útgerðar-
manna gegnum verðið. Afkomu-
tölur margra sjávarútvegsfyrir-
tækja sem birst hafa að undan-
förnu sýna í flestum tilfellum
slæma afkomu. Sævar segir að
þau fyrirtæki sem séu að borga
lægsta hráefnisverðið séu að sýna
verstu afkomutölurnar, málið sé
ckki flóknara.
Margra ára markaðssetning
tapast
Gunnar Svavarsson, forstjóri
Sölumiðstöðvar hraðfrystihús-
Bjarni Bjarnason: Það þarf ekki
endilega að stofna ný stéttarfélög,
heldur að hafa Sjómannasam-
bandið deildaskipt.
Sævar Gunnarsson: Það hefur alls
ekkert þokast I samkomulagsátt.
kemur upp sú staða að ekki er
hægt að afgreiða fisk inn í kerfið
þar sem menn eru vanir að ganga
að honum og fá hann keyptan,
sérstaklega þar sem verið er að
þjóna mörgum aðiium. Það hefur
áður orðið til þess að stórir not-
endur eöa matsölustaðir taka
hann út af sínum matseðli vegna
þess að veitingastaðirnir hætta að
treysta á þennan fisk með íslensk-
um uppruna, og þá er mjög erfitt
að koma honurn inn aftur vegna
þess að þessir aðilar nenna ekki að
standa í því að varan sé stunduni
til og stundum ekki. Þannig tapast
marga ára markaðssetning á
skömmum tíma," segir Gunnar.
Það er því mikiö í húfi að samn-
ingar takist, helst ckki síðar en á
fimmtudag. Langt verkfall hefur
mjög alvarlegar afleiðingar að
dómi Gunnars. „Það kemur mér
Gunnar Svavarsson: Augljóst að
verkfall sjómanna mun hafa mjög
truflandi áhrif á markaðinn erlendis.
anna, segir augljóst að verkfall
sjómanna muni hafa mjög trufl-
andi áhrif á markaðinn erlendis.
Raunar hafi yfirvofandi verkfall
þegar haft áhrif J)ar sem kaup á
fiskafurðum frá íslandi hafi auk-
ist mikið þar sem ekki sé hægt að
reikna með íslenskum fiski á
markaðnum, t.d. eftir vikutíma.
Skortur á vörunni geti ennig leitt
til verðóróleika, og þá spennist
verðið upp. Þess má geta að eftir
að kúariðufárið hófst fyrir
nokkrum árum jókst sala á ís-
lenskum fiski en eftir að gin- og
klaufaveiki varð kunn hefur orðið
algjör sprenging í eftirspurn eftir
fiski á Bretlandi. Þeirri aukningu
kunna íslendingar að missa af
vegna sjómannaverkfalls.
„Ef verkfallið verður mjög lang-
vinnt og það fer að gæta skorts á
fiski á erlendum mörkuðum,
Of þröngt sjónar-
hom rannsókna
Halldór Blöndal gagn-
rýnir Rannsóknastöð-
ina við Mývatn og
frantkvæmd laga mn
vemdun Laxár og Mý-
vatns. Hann fagnar
nýjum náttúmvemd-
arsamtökum.
Halldór Blöndal forseti Alþingis
og fyrsti þingmaður Norðurlands
eystra kveðst fagna því ef heima-
nienn í Mývatnssveit stofni nátt-
úruverndarsamtök þar sem víð-
tækari náttúruverndarsjónarmið
verði höfð að leiðarljósi en verið
hefur til þessa. Eins og fram kom
í Degi í gær eru samtök af þess-
um toga í undirbúningi og eitt af
stefnumáluin félagsins verður að
berjast fyrir breytingu á lögunum
um verndun Laxár- og Mývatns-
svæðisins.
Of þröng í rannsóknuni
„Lögin um verndun og friðun
Laxár og Mývatnssvæðis in s voru
samþvkkt vorið 1974 og í um-
ræðunni um þau kom skýrt fram
að ætlast var til þess að Náttúru-
rannsóknastöðin í Mývatnssveit
yrði rekin þar og gæti orðið sveit-
inni til gagns," segir Halldór
Blöndal. „Og ég er auðvitað mjög
feginn því ef stofnuð verða sam-
tök í Mývatnssveit sem leggja
áherslu á friðun svæðisins norð-
an Vatnajökuls og horfa á það
sem eina heild. En Náttúrurann-
sóknastöðin í Mývatnssveit hefur
verið allt of þröng í sínum rann-
sóknum. Eg hef ekkert út á ein-
staka yísindamenn að setja, enda
kann ég ekki að meta þeirra verk,
en það fer enginn í grafgötur um
að störf forstöðumanns stofunar-
innar hafa að öðrum þræði beinst
að því að byggja upp rannsóknar-
aðstöðu í Reykjavík, en ekki í Mý-
vatnssveit. Hann hefur unnið úr
rannsóknunt sínum að verulegu
leyti í Reykjavík, við Háskóla Is-
lands. En hugmyndin var sú að
miðstöð rannsóknanna yrði í Mý-
vatnssveit," segir Halldór. Að-
spurður um hv'ort það væri ekki
sama hvar unnið væri úr rann-
sóknunum þar sem það væri fyrst
og fremst vísindagildið sem skipli
máli sagði Halldór að menn hafi
séð fyrir sér að við Mývatn yrði
byggð upp merkileg starfsemi,
sem snerist ekki um Mýv'atn í'
þrengsta skilningi þess orðs,
heldur um svæðið allt. Að þarna
risi meningarsetur með tilheyr-
andi starfsemi, fyrirlestrum,
rannsóknum og öðru slíku og að
starfsemin yrði ekki einskorðuð
við sumarið og kannski haustið.
Til bölvunar
Halldór telur að lögin um vernd-
un Laxár- og Mývatnssvæðisins
séu barn síns tíma og hann sé að
því leyti til sammála þeirn sem
standa að stofnun hinna nýju
samtaka. Hann segir að lögin hafi
einfaldlega ekki dugað til að efla
betra aðgengi ferðamanna að
svæðinu og þannig náð að stuðla
að betri umgengni um svæðið og
náttúruvernd í víðum skilningi.
En eins og framkvæmd laganna
hafi verið þá megi segja, að hv'að
þetta varðar hafi þau frekar verið
til bölvunar en hitt. „Auðvitað
vilja menn vernda þetta svæði,
það er enginn á móti því. Það cr
eins og sumir haldi að ef ekki
væru til þessi Iög urn verndun
Laxár og Mývatns, þá væru Mý-
vetningar búnir að stórspilla sinni
sveit. Eg skil ekki slíkan hugsun-
arhátt," segir Halldór Blöndal.
Styður Mývetninga
Gísli Már Gíslason,
prófessor og stjórnarfor-
maður Náttúrurann-
sóknastöðvarinnar við
Mýv'atn, segist styðja
framtak Mýv'etninga
sem v'inna nú að stofn-
un Náttúruverndarsam-
taka Mýv'atns. Dagur
skýrði frá þessu í gær og
segja aðstandendur sko-
rta á að raddir heima-
manna heyrist í urnræð-
unni um náttúruvernd svæðisins.
„Mér líst ágætlega á þetta, ekki
veitir af. Eg er búinn að skoða
stofnskrá þeirra og hún er metn-
aðarfull. M.a. eru þarna ákvæði
um að allir alþjóðasamningar
verði virtir þannig að ég get ekki
annað en fagnað þessu," segir
Gísli.
Einn áhugamanna unt stofnun
félagsins sagði í Degi í
gær að lögin um v'ernd-
un Mývatns og Laxár frá
árinu 1974 þyrfti að
endurskoða og hefur
margoft heyrst í umræð-
unni að Mývetningar
eru óhressir með hve lít-
ið forræði þeir hafa
aagnvart framkvæmdum
í sveitinni. Spurður sér-
staklega um þetta segir
Gísli að lögin beri með
sér að þau séu 27 ára gömul og til
hafi staðið að breyta þeim. Hann
segist gera ráð fyrir að hugur fé-
lagsmanna sé að friða Svðri-flóa
vatnsins en breytingartillögur í þá
áttina hafi komið fram.
„Það má vel vera að ég skrái
mig í þessi sanitök," segir stjórn-
arformaður Náttúrurannsókna-
stöðvarinnar við Mvvátn. - BÞ
Gísli Már Gíslason:
Gott framtak
heimamanna.
'í.