Dagur - Tíminn Akureyri - 14.01.1997, Blaðsíða 12

Dagur - Tíminn Akureyri - 14.01.1997, Blaðsíða 12
KÖRFUKNATTLEIKUR -5- -10- *NNV3 ANA 4 ANA 4 N6 NNV3 NNA 4 ANA7 NNA 5 NNV6 Kirkjubæjarklaustur -10 VNV 2 A3 A2 NNA3 ANA 2 ASA 2 A3 N3 N3 Stórhöfði -10 VNVS A8 ANA6 N8 ANA 3 NNV3 A8 N6 N6 Fred Williams úr Þór reynir skot í stjörnuleiknum, en þeir Shawn Smith Haukum og Falur Harðarson úr Keflavík bíða átekta. Myn&.pjetur KNATTSPYRNA • England Newcastle-feðgar komnir / hár saman Sir John Hall aðaleigandi Newcastle og sonur hans og meðstjórnandi, Douglas Hall, greinir á um það hver eigi að taka við stjórnartaumunum hjá Newcastle Utd. eftir að Kevin Keegan hvarf úr starfi. Sir John vill fá hinn 63 ára gamla Bobby Robson frá Barce- lona meðan sonur hans, Douglas, telur ráðlegast að fá Kenny Dalglish í stjórastólinn á St. Jamses Park. Dalglish hefur reyndar lýst því yfir að hann sé tilbúinn að koma aftur til starfa í fremstu víglínu enska fótbolt- ans. Eftir að hafa gert bæði Liverpool og Blackburn að enskum meisturum hefur hann verið í fríi sl. tvö ár. gþö •10 5 0 NNA 4 ANA 3 NA 5 NNA 4 SA 1 NA2 ANA4 NNA4 N2 Akureyri °c Mið Fim Fös Lau mm --------------------------------------------------1-15 33' u NNA4 A3 NAS N4 SSV 2 ANA3 ANA 4 NNA5 N3 Egilsstaðir J -ui NNA5 NA5 NA 8 NNA 7 A3 NA5 NA6 NNA7 NNA4 Bolungarvík -5- -10 -15 -U NNA 6 NA 5 NA 8 NNA 6 SA 2 NA5 NA8 NNA8 N4 Blönduós Þriðjudagur 14. janúar 1997 Reykjavík N4 ANA 3 NA5 NNA4 ANA2 NNA 3 NA 5 NNA 5 NNA 4 Stykkishólmur Línuritin sýna íjögurra daga veðurhorfur á hverjum stað. Línan sýnir hitastig, súluritið 12 tíma úrkomu en vindáttir og vindstig eru tilgreind fyr- ir neðan. Nú virðist hann ætla a sýna gamalkunnuga norðaustantakta næstu daga. í dag verður í það minnsta hvassvirði með snjókomu eða éljum á Vestfjörðum og annesjum norðanlands, en sokkuð skaplegt veður með þýðu um miðjan daginn annrs staðar. Undir kvöld gengur í allsnarpa norðanhríð um landið norðanvert og kólnandi veðri um land allt. Útsala á Candy heimilistækjum KAUPLAND KAURANGI Sími 462 3565 • Fax 461 1829 Frábær tilþrifi stjömuleiknum Hinn árlegi stjörnuleikur KKÍ fór fram laugar- daginn 11. jan si. Þar kepptu úrvalslið valin af þjálf- urum toppliðanna í DHL- deildinni, Sigurði Ingimundar- syni þjálfara Keflavíkinga, sem valdi og stjórnaði Sprite- liðinu og Friðrik Inga Rúnars- syni þjálfara UMFG, sem valdi ESSO-liðið. Leikurinn var mjög skemmti- legur lengst af og skemmtu flestir leikmennirnir sem voru á Qölum Laugardalshallarinnar sér hið besta þó engir meira en Malcom Montgomery og Her- mann Mayers, en hann var val- inn maður leiksins í leikslok. Margir leikmenn fóru á kostum og sýndu tilþrif sem ekki sjást í hverri umferð DHL- deildarinn- ar. í Sprite-liðinu átti Torrey John frábæra spretti í fyrri KNATTSPYRNA Þjálfaramál ÍA Lundbye og Golac líklegastir Daninn Preben Lundbye og Júgóslavinn Ivan Gol- ac eru efst á óskalista Skagamanna, sem enn hafa ekki gengið frá ráðningu eftir- manns Guðjóns Þórðarsonar sem þjálfara meistaraflokks karla. Fleiri nöfn eru inni í myndinni hjá Skagamönnum, en ekkert verður aðhafst fyrr en eftir aðalfund knattspyrnu- deildarinnar, sem haldinn verð- ur annað kvöld. Preben Lundbye kom hingað til lands og leit á aðstæður hjá Skagamönnum. Lundbye hefur meðal annars þjálfað danska 1. deildarliðið Silkeborg. Golac, sem fyrir nokkrum árum barst til tals sem landsliðsþjálfari ís- lendinga, er einnig inni í mynd- inni. Hann hefur þjálfað lið Partizan Belgrad í heimalandi sínu, auk þess sem hann hefur stýrt skoska liðinu Dundee United. hálfleik ásamt Damon Johnson og í seinni hálfleiknum fór Guð- jón Skúlason oft á kostum og raðaði niður þriggja stiga körf- unum. Olíumennirnir í ESSO- liðinu voru lengstum með for- ustu í leiknum og fyrir þeim fóru Herman Myers og Kristinn Friðriksson. Þeir tveir voru að öðrum ólöstuðum menn dags- ins. Herman skoraði að vild þegar hann var inná, hirti fjölda frákasta og átti nokkrar gullgóðar stoðsendingar. Krist- inn fór í gang á síðustu sek- úndu fyrri hálfleiks þegar hann setti niður þriggja stiga körfu frá miðju og innáiglaði forustu þeirra í hálfleik, 51-63. Hann hélt síðan uppteknum hætti í seinni hálfleik og bætti við sex þristum. Torðslukóngurinn Malcom Montgomery átti þó fallegustu körfu leiksins þegar hann tróð með tilþrifum á síð- ustu sekúndu leiksins. Þriggja stiga keppnin Ungur leikmaður KFI, Baldur Jónasson, kom sá og sigraði í þriggja stiga keppninni og vann þar meðal annarra öldunginn Guðjón Skúlason. Aðrir sem máttu þola tap fyrir ísfirðingn- um unga voru Marel Guðlaugs- son, Helgi Jónas Guðfinnsson og Páll Axel Vilbergsson. Glæsi- legur árangur hjá Baldri í sinni fyrstu keppni. Besta troðslan hjá Montgomery Troðslukeppnin er það sem ungmennin bíða alltaf eftir með mestum spenningi. Þar sjást troðslur sem ekki sjást að jafn- aði í hefðbundnum körfubolta- leikjum. Að þessu sinni var keppnin milli troðslukónga síð- ustu ára, Raymond Harding frá Þór Þorlákshöfn en hann sigr- aði fyrir tveim árum og Malcom Montgomery frá Selfossi sem varð troðslukóngur síðasta árs. Svo fór að Montgomery vann aftur nú og fór nokkuð létt með það. Aðeins tveir íslendingar tóku þátt í troðslukeppninni, Keflvíkingurinn Þorsteinn Hún- Qörð og Haukamaðurinn Þór Ilaraldsson. Mætti landinn taka sig lítið eitt á í þessum efnum og velgja Könunum örlítið meira undir uggum. gþö |Dagnr4Htmmtt Einar Sveinbjörnsson veðurfrœðingur

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.