Dagur - Tíminn Akureyri - 14.01.1997, Blaðsíða 5

Dagur - Tíminn Akureyri - 14.01.1997, Blaðsíða 5
Jlagur-®rmtmt Þriðjudagur 14. janúar 1997 - 5 I F R É T T I R Rækjuiðnaður Búist við hörku hráefnisslag Unnið við rækjuvinnslu í Þormóði ramma á Siglufirði. Spáð vaxandi sam- keppni rækjuverk- smiðja um hráefni til vinnslu vegna kvóta á Flæmingjagrunni og niðurskurðar á úthafs- veiðikvóta. Tap hjá mörgum vegna lágs af- urðaverðs þrátt fýrir metafla Reiknað er með að sam- keppni rækjuverksmiðja um hráefni muni aukast til muna í framhaldi af minnk- andi framboði frá Flæmingja- grunni og minni úthafsveiði- kvóta. Pétur Bjarnason fram- kvæmdastjóri Félags rækju- og hörpudiskframleiðenda ráð- leggur mönnum að spenna bogann ekki of hátt í sam- keppninni um hrá- efnið miðað við af- urðaverð. Hann óttast að menn kunni að fara of- fari í samkeppn- inni þótt í þeim efnum sé nóg af vítum til að varast frá fyrri tíð. Þá hefur verið tap á rekstri margra verksmiðja vegna lágs afurðaverðs á sl. ári þrátt fyrir að rækjuafli hafi aldrei verið meiri en þá, eða hátt í 85 þús- und tonn. Aftur á móti eru teikn á lofti um að afurðaverð muni stíga á árinu. í það minnsta fá menn orðið fleiri krónur fyrir hvert pund eftir því sem það hefur styrkst á gjald- eyrismörkuðum. Rækjukvóti íslenskra skipa á Flæmingjagrunni er aðeins um 6.800 tonn á móti um 20 þús- und tonna afla í fyrra. Þá hefur kvóti í úthafsveiðirækju verið skertur um þrjú þúsund tonn, eða úr 63 þúsundum í 60 þús- und tonn. Talið er að þessi nið- urskurður minnki hráefnis- framboð til rækjuverksmiðja um allt að 10-15 þúsund tonn frá fyrra ári. Það þýðir að um 70 þúsund tonn verða til skipta í ár. Þótt þarna sé um minnkun að ræða á milli fiskveiðiáranna 1995-1996 og 1996-1997 er væntanlegur afli í hærri kantin- um miðað við mörg undanfarin ár. f því sambandi má minna á að heildarrækjuafli var um 40 þúsund tonn árið 1991. Óvíst er hvaða áhrif minnk- andi framboð af rækju muni hafa á atvinnuástandið þótt ætla megi að það geti leitt til einhverrar fækkunar í röðum starfsfólks. Hinsvegar er sama þróunin í rækjuiðnaði og hefur verið í öðrum greinum sjávar- útvegs sem lítur að hagkvæmni stærðarinnar. Af þeim sökum hafa rækjuverksmiðjur verið að sameinast í stærri heildir þar sem einyrkjabúskapur heyrir sögunni til. Aftur á móti eru teikn á lofti um að afurðaverð muni stíga á árinu. í það minnsta fá menn orðið fleiri krónur fyrir hvert pund eftir því sem það hefur styrkst á gjaldeyris- mörkuðum. Til marks um þróun afurða- verðs þrátt fyrir metafla og góða sölu bendir Pétur Bjarna- son m.a. á að verðið lækkaði um 19% í heildina 1996 til við- bótar við 23- 25% lækkun árið 1995. Þessar afurðaverðslækk- anir eru þó misjafnar eftir stærð rækjunnar, eða á bilinu 12-35%. Þó er dæmi um að minnsta rækjan hafi lækkað í verði um allt að 44% frá því verðið var einna hæst hér um árið. -grh Pétur Bjarnason framkvæmdastjóri Félags rækju- og hörpudiskframleiðanda Óttast að margir kunni aðfara offari í sam- keppni um hráefnið Reykjavík Mynd: GVA Frost og funi Eldur kom upp í húsnæði Skautasvells Reykjavík- ur aðfaranótt laugardags. Grunur leikur á íkveikju. Bergþór Einarsson for- stöðumaður sagði í gær að tjón væri töluvert, öll ein- angrun væri ónýt og sperr- ur, rafmagnslagnir og ýmis lausabúnaður hefði farið illa. RLR rannsakar málið en hafði ekki haft uppi á brennuvörgum í gær. Skautasvellið var opnað aft- ur á hádegi í gær eftir bráðabirgðaviðgerð. BÞ Austfirðir Fyrsta loðnan á árinu jHByrsta loðnan á þessu ári !■ veiddist sl. fimmtdag á ■ austanverðu Hvalbaks- grunni og hafa alls 15 bátar fengið einhvern afla á árinu, alls 11.166 tonn. Tæplega helmingur loðnuafl- ans hefur farið til vinnslu hjá Síldarvinnslunni hf. á Neskaup- stað, eða 5.329 tonn. Um helg- ina lönduðu Háberg GK-299, Súlan EA-300, Þorsteinn EA- 810, Beitir NK-123 og Jón Sig- urðsson GK-62 í Neskaupstað. Þrír bátar, Oddeyrin EA-210, Björg Jónsdóttir ÞH-321 og Örn KE-13, lönduðu 2.440 tonnum á Seyðisfirði. Elliði GK-445, Jón Kjartansson SU-111 og Hólma- borg SU-11 lönduðu 2.320 tonnum á Eskifirði og á Fá- skrúðsfirði lönduðu Jón Sig- urðsson GK-62, Huginn VE-55 og Bjarni Ólafsson AK-70 alls 1.078 tonnum. Veður hefur ver- ið fremur slæmt á miðunum fyrir austan og þar er búist við austan og norðaustan átt og stinningskalda næstu daga. A sumar- og haustvertíð veiddust alls 473.964 tonn og til viðbótar því magni fengu íslenskar loðnuverksmiðjur 57.528 tonn frá erlendum loðnuskipum. Afl- inn á loðnuvertíðinni 1996/1997 er því orðinn 485.130 tonn en upphfskvótinn er 737.000 tonn en búist er við að hann verði aukinn upp í a.m.k. 1.300.000 tonn. GG Sjómenn Mengað andrúmsloft í vistarverum áhafna Dæmi eru um að útblást- ursrör úr vélarrúmum skipa hafi mengandi áhrif á andsrúmsloft í vistarver- um áhafna. í mörgum skipum eru loftinntök staðsett of nálægt útblástursrörum þannig að loft- skiptibúnaðurinn dælir meng- uðu lofti inn í vistarverurnar í stað þess að koma með nýtt og betra loft. Þetta kom m.a. fram á málþingi um starfsumhverfi vélstjóra sem haldið var sl. laugardag. Helgi Laxdal formaður Vél- stjórafélags íslands segir að þetta sé bara eitt dæmi af mörgum sem þarfnast úrlausn- ar í hollustu- og aðbúnaðarmál- um sjómanna um borð í skip- um. Ilann segir að þótt mjög gott starf sé unnið í öryggismál- um sjómanna þá hafi umhverf- isþættinum ekki verið sinnt sem skyldi til þessa. Á þinginu kom einnig fram að krabbameinsvaldandi efni er Útblástursrör frá vélum skipa staðsett of ná- lægt inntaki lofthreinsi- búnaðar. Umhverfis- þætti í öryggismálum sjómanna ekki sinnt sem skyldi að finna í nær flestum þeim olíutegundum sem vélstjórar vinna með í vélarrúmum skipa. Með því að handíjatla þessi efni með berum höndum geta þau borist í líkama vélstjóra með húðöndun ef fyllsta hreinlætis er ekki gætt. Þar fyrir utan geta þessi efni verið það sterk að þau eyðileggja t.d. gúmmí- hanska eftir nokkurn tíma. Þar fyrir utan er andrúmsloft í vélarrúmum oft mettað fínleg- um olíudropum þrátt fyrir loft- hreinsibúnað. Þessir þættir auk hávaða frá vélum hefur haft þær afleiðingar að tíðni krabba- meins í blöðruhálskirtli og heilablóðfall er mun algengara hjá vélstjórum en hjá öðrum starfsstéttum. -grh

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.