Dagur - Tíminn Akureyri - 21.01.1997, Síða 3

Dagur - Tíminn Akureyri - 21.01.1997, Síða 3
|Dagur'®tmitm Þriðjudagur 21. janúar 1997 - 3 F R E Þjóðin velji milli ferða- þjónustu og stóriðju? Sitt sýnist hverjum um hvort nýtt álver yrði þjóðinni til hagsbóta. Formaður Ferðamála- ráðs óttast að ferða- þjónustan verði undir nái núverandi virkjunar- og stóriðjuframkvæmd- ir fram að ganga. Náttúran hefur langmest áhrif á ákvörðun þeirra sem ákveða að heim- sækja ísland, samkvæmt viða- mikilli könnun sem Ferðamála- ráð gekkst fyrir. Yíir 90% er- lendra ferðamanna sem hingað koma í sumarleyfl segja náttúr- una hafa mikil áhrif á ákvörðun sína. Hreinleiki, friðsæld lands- ins og hálendið voru næst í röð- inni. Einungis lítill hluti taldi þessa þætti litlu/engu máli skipta. „Þetta stangast illilega á við núverandi áætlanir um virkj- anir og stóriðjuuppbyggingu," sagði Birgir Þorgilsson formað- xu- Ferðamálaráðs um þessar af- dráttarlausu niðurstöður könn- unarinnar. „Ég á erfitt með að sjá þessa tvo þætti þróast hlið við hlið til hagsældar fyrir báða. Pvert á móti er ég hræddur um að ferðaþjónustan verði undir nái núverandi hugmyndir á veg- um stjórnvalda fram að ganga.“ Birgir sagðist samt þeirrar skoðunar að meiri hagnaðar væri að vænta af ferðaþjónustu í framtíðinni heldur en af stór- iðju. Minnti hann á að ferða- þjónustan skili nú þegar um 20 milljarða gjaldeyristekjum á ári (um 100.000 kr. að meðaltali frá hverjum gesti). Þeir Magnús Oddsson ferða- málastjóri eru sammála um að, með nokkrum undantekningiun, sóu niðurstöður könnunarinnar tiltölulega hagstæðar fyrir ís- lenska ferðaþjónustu sem at- vinnugrein. Meðal þess sem mönnum kom á óvart var að þriðjungur fólks í sumarleyfi og helmingur þeirra sem komu að hausti höfðu bókað ferðina á síðustu 2 vikunum fyrir brottför. Yflr 90% sögðu þá ímynd af fandinu sem kynnt sé í ferða- bæklingum hafa staðist sam- kvæmt þeirra eigin upplifun. Þá kom á óvart að 20% Bandaríkja- manna og 12% annarra höfðu aflað sér upplýsinga um landið á Internetinu. Enn kom á óvart að helmingur allra ferðamanna (yfir 70% á haustin) ferðast á eigin vegum en ekki í pakka- ferðum. Höfuðborgarsvæðið Verðhækk- un gengin tíl baka Sú 7% verðhækkun sem varð á íbúðum á höfuð- borgarsvæðinu í júlí og ágúst var öll gengin til haka í október, samkvæmt útreikning- um Fasteignamats ríkisins. Meðalverð á fermetra í íbúðum í Qölbýh var þá aftur orðið það sama og í ársbyrjun. Fermetra- verðið (nafnverð) í fjölbýlisíbúð- um í Reykjavík, sem komið var í tæplega 80 þús.kr. að meðaltali mánuðina ágúsl/september, lækkaði aftur í 77 þús.kr. að meðaltali mánuðina septem- ber/október — sem er hið sama og meðalverð næstu 12 mánuða þar á undan (nóv.’95 til okt.’96). Meðalverð 2ja herbergja íbúða var um 86 þús.kr. á m2 í september og október. Allra bestu og nýjustu 2ja herbergja íbúðirnar ná verði sem er um og yfir 100 þús.kr. á fermetra, en verð þeirra lélegustu og/eða elstu fór niður í 70 þús.kr. á fermetra eða minna. Verðið fer síðan lækkandi eftir því sem íbúðirnar stækka. Meðalverð 3ja herbergja íbúða var um 79 þús.kr.m2, 4ra her- bergja íbúða 74 þús.kr.m2 og 5 herbergja íbúða tæplega 70 þús.kr. á hvern fermetra. Frá- vikin eru síðan svipuð og áður er lýst á 2ja hverbergja íbúðun- um. Kópavogur Nýtt verknámshús Menntaskólans í Kópavogi var opnað á föstu- daginn, að viðstöddum m.a menntamálaráðherra og bæjarstjóra. Þar verða hýstar hótel- og matvælagreinar og eftir því sem næst verður komist er þetta eina skólahúsið á landinu, sem er með bar. Ferðamái Jólafríin vinsæl Islendingum sem koma til landsins í desember hef- ur ijölgað gífurlega á síðustu árum, eða um 27% frá árinu áður og 73% á þrem árum. í báðum tilvik- um er fjölgun utanferða í jólamánuðinum um tvöfalt meiri heldur en heildar- fjöigun milli ára og á síð- ustu þrem árum, samkvæmt tölum Útlendingaeftirlitsins. Tæplega 16.000 íslend- ingar komu nú heim í des- ember borið saman við 12.500 ári áður og aðeins um 9.000 í desember 1993. í ár hafa fleiri íslendingar ferðast milli landa í desem- bermánuði heldur en að meðaltali alla aðra mánuði ársins, sem líklega hefði einhvern tíma þótt tíðindum sæta. En á hverju byggist þá þessi gífurlega Ijölgun á utanferðum landsmanna í jólamánuðinum? Einar Sig- urðsson, aðstoðarmaður forstjóra Flugleiða, segir að fyrst og fremst sé það mikil ijölgun farþega í borgar- ferðirnar, þ.e. stuttar ferðir til ýmissa borga í nágranna- löndum okkar. í öðru lagi telur Einar að íslendingar búsettir erlendis hafi nú í meira mæli komið heim um jólin. Áfengismál Sönnunargögn eyði- lögð í örbylgjuofni Rannsóknarlögregla ríkis- ins rannsakar meinta spillingu á blóðsýnum sem send voru frá lögreglunni í Vestmannaeyjum á Þorláks- messu til Rannsóknarstofnunar Háskólans í lyíjafræói. Þegar blóðsýnin komu í hendur Há- skólans til rannsóknar var búið að vinna á þeim skemmdar- verk. Að öllum líkindum hefur sýnunum verið stungið inn í ör- bylgjuofn með þeim afleiðingum að þau eru ónýt. Blóðsýnin voru tekin úr tveimur ökumönnum sem voru staðnir að meintum ölvunar- akstri í Vestmannaeyjum skömmu fyrir jól. Samkvæmt heimildum blaðsins voru sýnin ekki lengur á leiðinni til Rann- sóknarstofnunar Háskólans en venja þykir. Málinu var strax vísað til RLR sem fer með rann- Dómsmálaráðuneytið er nú að endurskoða ör- yggi við flutning blóð- sýna milli landshluta eftir að blóðsýni voru eyðilögð með óvenju- legum hætti. sókn málsins. Á leið sýnanna frá lögreglustöðinni í Eyjum og til Rannsóknarstofnunar Há- skólans eru a.m.k. fimm ör- bylgjuofnar sem koma til greina samkvæmt heimildum blaðsins, m.a. á flugvellinum í Eyjum og í Reykjavík. Dómsmálaráðuneytið hefur í kjölfar þessa máls tekið til skoðunar öryggismál við flutn- ing á blóðsýnum milli staða. RLR varðist allra frétta en mál- ið þykir í alla staði hið vand- ræðalegasta fyrir lögregluna. Þrátt fyrir að sönnunargögnin séu ónýt sleppa hinir meintu ölvuðu ökumenn ekki alveg. Má búast við því að þeir fái sekt en líklegt þykir að þeir sleppi við ökuleyfissviptingu þar sem helstu sönnunargögn eru ekki lengur fyrir hendi. ÞoGu/Eyjum Þórshöfn Grunur um bókhaldsfölsun Skömmu fyrir jól sagði sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Þórshafnar og nágrennis upp starfi sínu og óskaði eftir að hætta þá þegar. Sparisjóðs- stjórinn tók við starfinu í maí- mánuði 1996 en áður var hann sveitarstjóri Suðureyrarhrepps. Viðskilnaður hans við það emb- ætti er hins vegar kominn til rannsóknar hjá Rannsóknarlög- reglu rrkisins og það mun vera ástæða uppsagnarinnar. Þegar Suðureyri sameinaðist ísafirði, Flateyri og Þingeyri í eitt sveit- arfélag, /saíjarðarbæ, fór bók- hald hreppsins til endurskoðun- ar á ísafirði ásamt bókhaldi annarra hreppa sem að sam- einingunni stóðu. Þar kom í ljós skekkja í bókhaldi sem reyndist það alvarleg að málinu var vís- að til rannsóknar hjá RLR. Samkvæmt heimildum blaðsins mun það m.a. vera fjárdráttur upp á liðlega eina milljón króna og tilburðir til fölsunar í bók- haldi sveitarfélagsins, en velta þess mun hafa numið nærri 30 milljónum króna. „Málið er í rannsókn hjá Rannsóknarlögreglu ríksins og hún lýkur henni vonandi fljót- lega. Þá verður ákveðið á grundvelli niðurstöðu rann- sóknarinnar hvort ástæða er til að vísa málinu til Ríkissaksókn- ara,“ sagði Kristján Þór Júlíus- son, bæjarstjóri á ísafirði. GG

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.