Dagur - Tíminn Akureyri - 21.01.1997, Blaðsíða 11
IDagur-ltomnn Þriðjudagur 21. janúar 1997 -11
KNATTSPYRNA • íslandsmótið innanhúss
Ovæntur sigur
hjá Þrótturum
s
slandsmótið í innanhúss-
knattspyrnu fór fram í Laug-
ardalshöll um síðustu helgi.
í karlaflokki var leikið í íjórum
riðlum. B og C riðlarnir voru
mjög sterkir því í þeim riðlum
voru flest bestu lið landsins. í
B-riðli voru íslandsmeistarar
ÍA, ÍBV, Valur og Keflavík. Svo
fór að ÍA vann riðilinn en Vals-
menn máttu bergja á þeim
beiska bikar að falla í 2. deild.
C-riðillinn státaði af KR, Fram
og Stjörnunni úr 1. deildinni og
Höttur frá Egilsstöðum var þar
ijórða lið. KR vann þennan riðil
og Framarar fylgdu þeim í átta
liða úrslitin. Ur A-riðli komust
Þróttur og FH áfram í 8-liðaúr-
slitin og úr D-riðlinum voru það
Fylkir og KA sem komust
áfram.
Það voru því fjögur lið úr 1.
deildinni og íjögur úr þeirri 2.
sem kepptu í 8-Uða úrslitunum.
Það óvænta gerðist að þrjú af
íjóruin liðum úr annarri deild
komust í undanúrslitin, KA sló
til að mynda íslandsmeistara sl.
tveggja ára, KR út úr keppn-
inni.
innanhússknattspyrnu eftir 13
ára bið og nú er stefnan sett á
sigur í annarri deildinni í sum-
ar. Þeir eru greinilega með gott
lið, blöndu af ungum leikmönn-
um og gömlum og reyndum
jöxlum.
Maður mótsisns:
Heiðar Sigurjónsson Þrótti.
Úrslit eftir bókinni
Það þarf ekki að fara mörgum
orðum um kvennaboltann.
Hann fór eins og við var búist,
Breiðablik mætti á svæðið og
fór heim með bikarinn að
vanda. Það voru Valsstelpurnar,
KR-ingar og Stjörnustúlkurnar
sem komust í undanúrslitin og
svo fór að Blikar og Valur unnu
sína leiki og léku til úrslita.
Valsstelpurnar stóðu vel í stöll-
um sínum úr Kópavogi og voru
þær t.d. eina liðið sem skoraði
fleni en eitt mark hjá Breiða-
bliki. Það er afrek út af fyrir
sig.
Stúlka mótsins: Laufey Óla-
dóttir Val fyrir markið sitt gull-
fallega sem hún skoraði á móti
Blikum. gþö
Páll Rúnarsson fyrirliði Þróttar með sigurlaunin á íslandsmótinu.
Sigrún Óttarsdóttir tók við enn einum bikarnum fyrir hönd Breiðabliks.
KARFA • DHL deildin
Stórsigurhjá
Keflvíkingum
Undanúrslit
ÍA - FH 2 -1
Skagamenn voru heppnir vinna
FH í þetta sinn. Hafnfirðingarn-
ir stóðu sig mjög vel og áttu
ekki færri marktækifæri en ÍA
sem getur þakkað markvörðum
sínum að fá að leika til úrslita á
mótinu.
Þróttur - KA 5-2
Eftir að KA-menn höfðu rutt
KR-ingum úr vegi bjuggust
menn við betri frammistöðu af
þeirra hálfu gegn Þrótti en raun
varð á. KA-menn treystu á
varnarleikinn og skoraðu fyrsta
mark leiksins úr skyndiupp-
hlaupi. Fjalar Þorgeirsson
markvörður Þróttar skoraði
hins vegar tvfvegis með tuttugu
sekúndna millibili undir lok
fyrri hálfleiksins. Það var svo
engin spurning um það hvort
liðið var betra í síðari hálfleikn-
um. Þróttarar yfirspiluðu KA-
menn og unnu sanngjarnan sig-
ur.
Úrslit
ÍA - Þróttur 5 - 3
Þróttarar komu, sáu og sigruðu
á þessu íslandsmóti. Skaga-
menn, sem eru með mjög
skemmtilegt innanhússlið virt-
ust ætla að taka leikinn í sínar
hendur frá fyrstu sekúndu. Þeir
skoruðu strax 1-0 og voru mun
beittari í upphafi. Þrátt fyrir að
Þróttur næði að jafna virtist
ekkert benda til þess að þessi
titill gengi meisturuniun úr
greipum. En frábær leikur
Heiðars Sigurjónssonar og mik-
ill baráttuandi fleytti Þrótti
langt í þessum leik. Þeir tóku
leikinn í sínar hendur og fætur
og röðuðu inn mörkum og sum
þeirra voru með glæsilegra
móti. Skyndilega var staðan
orðin 2-5 fyrir Þrótt og þeir
komnir með með báðar hendur
á bikarinn þó svo að ÍA næði að
skora eitt mark enn. Þróttur er
aftur orðinn íslandsmeistari í
Tveir leikir fóru fram í
DHL-deildinni á föstudag-
inn. ísfirðingar tóku á
móti Breiðabliki í Jakanum og
Grindvíkingar brugðu sér til
Keflavíkur.
KFÍ-Breiðablik 92-63
Blikar mættu ákveðnir til leiks
og stóðu í heimamönnum í fyrri
hálfleik. Reyndar höfðu þeir
forustu í leikhléi, 30-35. ísfirð-
ingar, sem nýlega höfðu rekið
Andrew Wallejo, telfdu nú fram
nýjum leikmanni, Chiedu Odiau
og stóð hann vel fyrir sínu eftir
því sem heimildir herma. Altént
settu þeir á fulla ferð, léku eins
og þeir best geta og unnu auð-
veldan og stóran sigur, 92-63, á
botnliði úrvalsdeildarinnar.
Keflavík-UMFG 95-69
Grindvíkingar riðu ekki feitum
hesti frá Keflavík. Þeir mættu
að vísu ekki með sitt sterkasta
lið þar sem 3 leikmenn úr byrj-
unarliði þeirra, Helgi Jónas,
Marel og Páll Axel, voru íjarri
góðu gamni vegna veikinda.
Páll hóf að vísu leik en varð að
hætta eftir örfáar mínútur. Þá
var Herman Myers einnig að
standa upp úr flensu. Því varð
viðureign þessara toppliða
aldrei sú skemmtun sem menn
vonuðust eftir, til þess var getu-
munurinn alltof mikill. Þrátt
fyrir það stóðu unglingarnir frá
Grindavík sig vel og geta borið
höfuðið hátt eftir þennan leik.
Þeir voru að keppa við þá bestu
og það á þeirra heimavelli.
gþö
KNATTSPYRNA
norðanupp
i1. deildina
Leiftur, Þór, Selfoss og Leiknir
úr Reykjavík unnu sér sæti í
1. deildinni í innanhússknatt-
spyrnu á sunnudaginn, en leik-
ið var í íþróttahúsinu við Aust-
urberg.
Liðin tóku sæti KS, Vals,
Ilattar og Breiðabliks sem urðu
í neðstu sætunum í riðlum sín-
um í 1. deildinni.
í A-riðhnum tryggði Leiftur
sér sigur með 4:3 sigri gegn
helstu andstæðingxun sínum,
Skallagrími og HK, en Bolung-
arvík féll niður í 3. deildina.
Selfoss sigraði Víking Reykjavík
4:3 í leik sem reyndist ráða úr-
slitum um það hvort liðið færi
upp, en Einherji féll niður í 3.
deild.
Þór komst upp með sigri á ÍR
4:2 og Völsungi 5:2, en það
voru Haukar sem féllu niður.
Leiknismenn unnu stóra sigra í
leikjum sínum í D-riðli. Þeir
byrjuðu á því að sigra „gamla
innanhússstórveldið" FISÞ-b
10:0, en Þingeyingar leika í 3.
deildinni að ári.
KNATTSPYRNA
Geir
ráðinn
Snorri Finnlaugsson hefur látið
að störfum sem framkvæmda-
stjóri Knattspyrnusambandsins,
en hann hefur gegnt þeirri
stöðu sl. sex ár. Geir Þorsteins-
son var ráðinn eftirmaður hans
á stjórnarfundi KSÍ um helgina,
en Geir hefur verið skrifstofu-
stjóri undanfarin ár.
Kristinn
féllúrleik
Kristinn Björnsson, skíða-
maður frá Ólafsfirði, féll úr
keppni í fyrri umferðinni í
heimsbikarmóti í svigi, sem
fram fór í Wengen í Sviss á
laugardaginn. Kristinn sem
varð 60. í rásröðinni keyrði
út úr brautinni eftir átján
sekúndur.
ÍSHOKKÍ
Björninn
sigraði SR
Björninn gerði sér lítið fyrir
og lagði SR að velli, 7:6, um
helgina og mun þetta vera
fyrsti sigurinn sem Björninn
vinnur á íslandsmóti meist-
araflokks. Björninn byrjaði
mjög vel og skoraði fimm
fyrstu mörkin í leiknum. Úr-
slit í einstökum lotum urðu
4:0, 2:3 og 1:3.
Clark McCormick, fyrrum
leikmaður SR, reyndist sín-
um gömlu félögum mjög erf-
iður í leiknum og hann skor-
aði sigurmarkið þegar rúm-
ar fjórar mínútur voru til
leiksloka.
Mörk Bjarnarins: Clark McCorm-
ick 5, Andri Þ. Óskarsson 1, Sig-
urður Sveinbjarnarson 1.
Stoðsendingar: Jónas Breki
Magnússon 3, Sigurður Svein-
bjarnarson 2. Brottvísanir: 18
mínútur.
Mörk SR: Heiðar Ingi Ágústsson
4, Pétur Már Jónsson 1, Sigur-
björn Þorgeirsson 1.
Stoðsendingar SR: Kristján Ósk-
arsson 3, Heiðar 1. Ágústsson 1.
Brottvísanir: 24 mínútur.
BLAK
Þróttur
lagðiKA
Tveir leikir fóru fram í 1.
deild karla. Þróttur úr
Reykjavík sigraði KA 0:3 í
viðureign liðanna í KA-
heimilinu á föstudagskvöld.
Hrinunum lyktaði 8:15,
10:15 og 5:15 og leikurinn
tók 61. mínútu. Þá unnu
Stúdentar sigur á botnliði
Stjörnunnar 3:2 (15:13,
15:10, 9:15, 11:15 og 15:11.)
Leikurinn stóð í 102. mínút-
ur.
Staðan er þessi í
1. deild karla:
Þróttur R. 10 8 2 27:10 27
Þróttur N. 10 8 2 24:11 24
ÍS 9 4 5 14:19 14
KA 826 9:19 9
Stjarnan 7 0 7 6:21 6
Einn leikur fór fram í 1.
deild kvenna. Stúdínur
styrktu stöðu sína á toppn-
um með sigri á Víkingi 3:0
(15:6, 15:6 og 15:9).
HANDBOLTI
ÍBAmætir
Haukum
ÍBA og Haukar mætast í
kvöld í 1. deild kvenna og
fer leikurinn fram í KA-
heimilinu og hefst kl. 20:45.
Leikurinn átti upphaflega að
fara fram annað kvöld, en
var flýtt að beiðni Hauka-
stúlkna, sem vilja fylgjast
með karlaliði félagsins, sem
mætir FH í bikarnum annað
kvöld.