Dagur - Tíminn Akureyri - 21.01.1997, Qupperneq 12
HANDBOLTi • Þýskatand
KNATTSPYRNA • þjálfun
Golac með Skagamenn
Serbinn Ivan Golac var um helgina ráðinn þjálfari ís-
lands- og bikarmeistara ÍA í knattspyrnu til næstu
tveggja ára. Golac hefur undanfarið þjálfað Partizan
Belgrad í heimalandi sínu, en þar áður stýrði hann skoska
liðinu Dundee United. Golac var á sínum tíma þekktur leik-
maður, með júgóslavneska landsliðinu auk þess sem hann
lék um tíma með enska félaginu Southampton.
Þriðjudagur 21. janúar 1997
Línuritin sýna ijögurra
daga veðurhorfur á
hverjum stað. Línan sýnir
hitastig, súluritið 12 tíma
úrkomu en vindáttir og
vindstig eru tilgreind fyr-
ir neðan.
Suðvestan hvassviðri
með skúrum eða éljum á
vestanverðu landinu en
þurrt austan til.
Útlit er fyrir áfram-
haldandi lægðagangi fram
yfír helgi.
Reykjavík
-5-
VSV5 S 3 S 6 VSV3 SA4
VSV3 SSA5 S 5 SSA3
Stykkishólmur
VSV5 SSV3 S 9 SV5 SA6
VSV4 SSA6 SSV5 SA3
Bolungarvík
--------------------------------0
VNV 4 SV 3 sa SV 6 SSA5
SV4 SSA5 SV5 ANA 2
Blönduós
VSV3 SV2 S5 SV3 SSA2
SV2 SSA3 S 4 A 1
Akureyri
? Mið Fim Fös Lau mm
J-15
-10
- 5
- 0
SV4 VSV3 S 5 SV4 SSA3
SV3 SSA4 S6 SA3
Egilsstaðir
°9 Mið Fim Fös Lau
-10
- 5
----------------------L 0
SV4 V3 S 5 SSV5 S4
V3 S 3 S 5 S 3
Kirkjubæjarklaustur
-10
- 5
----------------------------------0
VSV 4 VSV2 S4 SSV4 SA4
VSV2 SSA3 S 3 SSA 2
Stórhöfði
°9 Mið Fim Fös Lau mm
-------------------------------------1-20
-15
-10
- 5
____________________________________0
VSV7 S 3 SSA9 SV4 SA7
V6 SSA9 S10 SSA7
Útsala
áCandy
heimilistækjum
KAUPLAND
BCAURANGI
Sími 462 3565 • Fax 461 1829
Héðinn með sjö
mörk í botnslagnum
Jóhanner
íþrótta-
maðurÞórs
Jóhann Þórhallsson, sautján
ára gamall skíða- og knatt-
spyrnumaður, hlaut sæmd-
arheitið íþróttamaður Þórs fyrir
afrek sín á síðasta ári. Valið var
tilkynnt í hófi sem haldið var í
félagsheimili Þórs, Hamri, sl.
föstudagskvöld.
Jóhann varð tvöfaldur ís-
landsmeistari á skíðum í fyrra
og átti einnig mikilli velgengni
að fagna í knattspyrnunni sl.
sumar þar sem hann var einn
af lykilmönnum 3. flokksins
sem varð íslandsmeistari, bæði
utan- og innanhúss. Þá lék Jó-
hann sína fyrstu leiki með
meistaraflokki félagsins í haust.
„Ég get ekki annað sagt, en
að þetta hafi verið toppár hjá
mér, í báðum greinunum,“
sagði Jóhann eftir útnefning-
una. „Það getur stundum verið
erfitt að æfa tvær greinar og
æfingarnar voru ansi margar á
síðasta ári. Ég fór til að mynda
yfirleitt alltaf á æfingar þegar
ég var búinn í skólanum á dag-
inn,“ sagði Jóhann, sem hélt
upp á sautján ára afmæli sitt
fyrir nokkrum dögum og stund-
ar nám á fyrsta ári í VMA.
Jóhann hefur verið mjög sig-
ursæll á skíðum í gegnum yngri
flokkana, en hann segist engu
að síður ákveðinn í að einbeita
sér að knattspyrnunni, á kostn-
að skíðaíþróttarinnar.
„Ég held að framtíðin sé
meiri í fótboltanum. Það er erf-
itt að stunda skíðin án þess að
flytjast út og æfa við bestu að-
stæður og það réði mestu um
þessa ákvörðun. Ég spilaði tvo
leiki með meistaraflokki Þórs í
knattspyrnu í fyrra og vonast til
að vera í hópnum næsta sumar.
Það væri toppurinn og það er
jafnframt það sem ég stefni
að,“ sagði Jóhann.
Alls hlutu átta íþróttamenn
tilnefningar í valinu og deildir
félagsins tilnefndu hver um sig
einn íþróttamann. Bestu
íþróttamenn ársins í hverri
grein fengu eignarbikara af-
henta, en það voru þeir Páll
Gíslason, sem valinn var af
knattspyrnudeild, Konráð Ósk-
arsson af körfuknattleiksdeild,
Atli Már Rúnarsson var valinn
af handknattleiksdeild og Jó-
hann af skíðadeildinni. Athygli
vekur að þrír þeirra stunduðu
íþróttir með tveimur greinum
innan Þórs, því auk Jóhanns
léku bæði Páll og Atli Már með
meistaraflokki félagsins, bæði í
knattspyrnu og handknattleik.
Héðinn Gilsson skoraði sjö
mörk fyrir lið sitt Fre-
denbeck og átti góðan
leik, gegn Hameln um helgina
þegar liðin skyldu jöfn, 24:24 í
fallbaráttuslag þýsku 1. deild-
arinnar. Fredenbeck var óhepp-
ið að fara ekki með sigur af
hólmi en mark var dæmt af lið-
inu á lokasekúndunum.
Gengi íslendingaliðanna var
upp og ofan um helgina. Lið
Patreks Jóhannessonar fékk
slæma útreið gegn Niederw-
urzbach á útivelli 33:21 og
skoraði Patrekur fjögur marka
Essen, þar af eitt úr vítakasti.
Minden, lið Sigurðar Bjarna-
sonar, mátti þola tap á heima-
velli gegn Róbert Sighvatssyni
og félögum hjá Schuttervald
27:30. Róbert skoraði tvö af
mörkum liðs síns og Sigurður
gerði eitt marka Minden.
Wallau Massenheim, sem
Kristján Arason þjálfar, mátti
þola sitt annað tap á heimavelli
í vetur. Gestirnir, Nettelstedt,
voru betri aðilinn og unnu ör-
uggan sigur 27:36. Af öðrum
úrslitum í leikjum deildarinnar
er það helst að frétta að Lemgo
vann öruggan útisigur gegn
Bayer Dormagen 17:23 og
Flensborg sigraði Gummersb-
ach á útivelh, 22:23. hb/fe Héðinn Gilsson.
Einar til
Haukanna
Körfuknattleiksdeild Hauka
réð um helgina Einar Ein-
arsson, fyrrum leikmann og
liðsstjóra Keflvíkinga, sem þjálf-
ara fyrir meistaraflokk félagsins
í stað Reynis Kristjánssonar,
sem sagði upp fyrir helgi.
Einar hefur þjálfað yngri
flokka Keflavíkur með góðum
árangri og verður fróðlegt að
fylgjast með gengi hans hjá
Haukum.
Ráðning Einars kom mörgum
á óvart því talið var að Hauk-
arnir fengju innanfélagsmann.
Hann var með sína fyrstu æf-
ingu á sunnudagskvöldið og
gekk hún vel. gþö
KNATTSPYRNA
Heimir meiddist
Landsliðsmaðurinn Heimir
Guðjónsson, varð fyrir
slæmum meiðslum á íslands-
mótinu innanhúss um helgina.
Heimir var í baráttu inn bolt-
ann, kom illa niður og meiddi
sig á vinstri fæti. Ekki var vitað
í gærdag hvort liðbönd í ökkla
voru tognuð eða slitin, en ljóst
er að Heimir verður frá æfing-
um og keppni næstu vikurnar.
gþö
HANDBOLTI
Þorbjörn velur
17 leikmenn
Þorbjörn Jensson tilkynnti í
gær val sitt á landsliðshópn-
um, en ísland mun leika vin-
áttulandsleiki gegn Þýskalandi
þann 1. og 2. febrúar. Hópurinn
er skipaður eftirtöldum leik-
mönnum. Eins og sjá má er
einn nýliði í hópnum, Hlynur
Jóhannesson, en hann var val-
inn fyrir leikina gegn Dönum en
fékk ekki að spreyta sig.
Markverðir:
Bergsveinn Bergsveinsson, UMFA 113
Guðmundur Hrafnkelsson, Val 253
Hlynur Jóhannesson, HK 0
Aðrir leikmenn:
Bjarki Sigurðsson, UMFA 177
Dagur Sigurðsson, Wuppert. 62
Geir Sveinsson, Montpellier 302
Gunnar B. Viktorsson, ÍBV 7
Gústaf Bjarnason, Haukum 54
Júlíus Jónasson, TV Suhr 236
Konráð Olavson , Stjörnunni 136
Ólafur Stefánsson, Wuppert. 53
Patrekur Jóhannesson, Essen 115
Róbert Julian Duranona, KA 7
Róbert Sighvatsson, Schuttervald 32
Sigurður Bjarnason, Minden 95
Valdimar Grímsson, Stjörnunni 208
ÍÞRÓTTAMAÐUR ÞÓRS
KARFA
mmum
Ilagur-QItmtmt
Björn S.
Einarsson
veðurfrœðingur