Dagur - Tíminn Akureyri - 11.02.1997, Page 2
14 - Þriðjudagur 11. febrúar 1997
|Dagur-®mttmt
HERAÐSFRETTABLOÐIN
Ríkisstjórnarfundi
aflýst vegna
afmælis Alla ríka
Hraðfrystihús Eskifjarðar hélt forstjóra sínum, Aðal-
steini Jónssyni, einhverju þó veglegustu afmælisveislu
sem sögur fara af hér um slóðir, síðastliðið fimmtudags-
kvöld. Starfsfólk Hraðfrystihússins fjölmennti í Valhöll og
að auki fjöldi vina afmælisbarnsins, víða að af landinu.
Viðvaningum var ekki treyst fyrir tónlistarflutningnum
heldur fenginn þaulvanur maður, Geirmundur Valtýs-
son ósamt sinni rómuðu hljómsveit til að leika fyrir dansi
fram eftir nóttu. Ýmislegt fleira var til skemmtunar m.a.
söngur Jóhanns Mós Jóhannssonar.
Það mó með sanni segja að ekkert hafi verið sparað til
að gera stundina ógleymanlega. Veitingar voru ómæld-
ar og loðnuskipin biðu þögul við bryggju meðan aðrir
voru að leita. Samt eru Eskfirðingar þekktir fyrir flest
annað en að lóta aðra finna fyrir sig loðnuna. Áhafn-
irnar voru í afmæli, kannski afmæli aldarinnar ó Eski-
firði. Austurland var ó staðnum og smellti af nokkrum
myndum. Myndir: SÞ
Halldór Ásgrímsson utanríkisráð-
herra sagði skemmtilegar sögur af
samskiptum hans og Alla í gegn
um tíðina. Sú nýjasta var á þá leið
að ráðherra leist þunglega á að
komast í veisluna á fimmtudaginn
vegno ríkisstjórnarfundar á föstu-
dagsmorguninn. Hann óskaði eftir
því að fundinum yrði frestað um
eina klukkustund en engin leið var
að verða við því. Þegar Halldór var
svo inntur eftir því hvers vegna
honum hentaði ekki fundartíminn
sagðist hann vera að fara í af-
mælisveislu til Alla ríka. Var þá
fundinum aflýst tafarlaust.
Guðmundur
Bjarnason bæjarstjóri
í Neskaupstað og
stjórnarmaður í
Hraðfrystihúsi
Eskifjarðar hf.
Stjórnaði veislunni.
Hulda
Rósmundsdóttir, sem
lengi hefur starfað
hjá Hraðfrystihúsinu,
ávarpaði
afmælisbarnið fyrir
hönd starfsfólksins.
Þá afhenti hún
Aðalsteini málverk
eftir Jóhannes Sveinsson Kjarval
ekki eina Kjarvalsmálverkið sem
hf. gaf honum annað.
að gjöf frá starfsfólkinu. Þetta var þó
Alli fékk þvi Hraðfrystihús Eskifjarðar
BæjaFins besta
íþróttamaóur
Hverageróis
Hlín Guðnadóttir, 11 ára
fimleikastúlka var kjörir
íþróttamaður Hveragerðis fyrii
árið 1996 á aðalfundi íþrótta-
félagsins Hamars á sunnu-
daginn. Sérstakar viðurkenn-
ingar voru veittar afreksfólki í
einstökum deildum. Á fundin-
um urðu formannaskipti
stjórn Hamars, Ingibjörg
Guðjónsdóttir, sem hefur verið
formaður síðustu tvö ár lét af
störfum en Þorvaldur Snorra
son tók við formennskunni.
Á meðfylgjandi mynd, sei
Bjöm Pálsson tók, er Hlín mei
fangið fullt af blómvöndum o;
verðlaunagripum, sem hún
hlaut í kjörinu á sunnudaginn.
KURL
Þjóðtrúin á rík ítök f okkur
íslendingum og oft erum við
fljót að ákveða að eitt og annað
sem hendir okkur í daglega líf-
inu sé ættað frá öðrum heimi.
Fyrir nokkrum árum var sú er
þetta ritar úti á kvöldgöngu og
var komin vel út fyrir bæjar-
mörkin, þar sem götulýsingar
gætti ekki. Dökkt var til jarðar
að líta og dimmt úti þrátt fyrir
stjörnubjartan himin. Þarna
sem ég er ein á göngu með
hugsunum ntínum verð ég þess
skyndilega vör að eitthvað kem-
ur á móti mér. Sé ég cins og
móta fyrir Ijósklæddri veru
hinum megin á veginum í
myrkrinu, auk þess að ég heyri
taktfast fótatak og más.
Þegar veran kemur nær, sé ég
ekki betur en að hún sé höfuð-
laus og dettur helst í hug að
þarna sé Sandvíkur-Glæsir
sjálfur á ferðinni í nýjum bún-
ingi, en hann var, sem kunnugt
er, þekktur af því að ferðast um
með höfuðið undir hendinni.
Um leið og veran geystist fram
hjá, lyfti hún hendi og heilsaði
kumpánlega: Hello! í sömu
andrá skinu við mér skjanna-
hvítar tennur og hvítmataði í
augu, einhvers staðar ofan
herða. Þarna var sumsé á ferð-
inni körfuboltaþjálfari og leik-
maður Hattar, kolsvartur að lit.
Svepparæki
í deiglunni á ísafirði
- Steinþór B. Kristjánsson á Flateyri er að skoða
arðsemisútreikninga vegna væntanlegrar sveppa-
ræktar í fyrrum loðdýrabúi á Kirkjubóli í Engidal
I þessum húsum var tyrir nokkrum árum rokíð loSdýrabú. Þar er nú ýmlskonar stortsemi, eins og
eðsetur Gámaþjónustu Vestfjarða, en fyrithugað er að setja upp svopparækt í miðhúsinu.
Tveir af stjórnendum Samherja hf., á Akureyri, þcir Þorstcinn Mór Haldvinsson og Porsteinn Vilhelmsson, voru
staddir á ísafirði í bvrjun síðuslu viku, en þá kom (iuðbjörg ÍS-46 með fullfermi til lands ur sinni fyrstu veiðiferð á árinu.
Þeir nafnar héldu fund mcð áhöfn skipsins. þar sem gert var grein fyrir brevtingum sem hafa orðið á rckstri Guðbjargar
og framtiðarhorfum á rekstri þess. Virtist almennrar ánægju gæta á mcðal áhafnar innar með breytingarnar. l.jósmyndari
blaðsins náði mynd af þeim félögum i brú skipsins, rétt fyrir brottför á þriðjudag ásamt þremiir af eigendum Hrannar
hf. Frá vinstri: Guðmundur Guðinundsson, Þorstcinn Már Baldvinsson. Guöbjartur Asgeirsson, scm verður áfram
skipstjóri á Guðbjörgu, Ásgeir Guðbjartsson og Þorsteinn Vílhelmsson, sem um árabll var einn kunnasti aflaskipstjóri
landsmanna og mikill samkeppnisaðili þeirra feðga Ásgeirs og Guðbjartar.
Steinþór B. Kristjánsson á
Flateyri gerði tilraunir með
ræktun á því scm menn kalla
konung sveppanna, Shiitake,
í gámum á Flateyri fyrir tæp-
um tveimur árum. Sveppir
þessir eru bragðsterkari en
þeir sveppir semjiú eru seldir
í verslunum og þurrefnisinni-
hald þeirra er um 10% meira
en hvftu sveppanna sent flestir
þekkja. Tilraunin á Fiateyri
heppnaðist mjög vel og telur
Steinþór sig vera búinn að
ftnna leyndardóminn á bakvið
slfka ræktun og er nú að huga
að uppsetningu á aivöru
framleiðslu í húsnæði að
Kirkjubóli í Engidal við
Skuluisijörð, en þar var áður
loðdýrarækt.
f samtali við biaðið sagði
Steinþór að nú væri unnið að
því að gera arðsemisútreikn-
inga. Sagði hann að ef allt
gengi upp í þessum útreikn-
íngum og farið yrði af stað, þá
ætti að vera hægt að heija
starfsemi eftir þrjá til fjóra
mánuði.
Húsið sem hér um ræðir er
eitt af þrem húsum sem áður
hýstu loðdýrabú, cn tilheyrir
nú hlutafélagí sem er f eigu
Ágústar og Flosa ehf. og
Gámaþjónustu Vestfjarða ehf.
á ísafirði. Leggja verður í
töluverðan kostnað við lag-
færingar á húsnæðínu áður en
sveppaframleiðsla getur haftst
þar, en húsið er sem stendur
óeinangrað stálgrindarhús. Þá
vonast Steinþór til að hægt
verði að nýta hitaorku frá
sorpbrcnnslunni Funa til að
kynda upp húsið.
Steinþór sagði að sveppir
væri sú grænmetistegund sem
erfiðast væri að rækta við til-
búin skilyrði. Hann sagðist þó
hafa náð góðutn árangri í
þeim ræktunartilraunum sem
gerðar voru á Flateyri. Fram-
leiðslan þaðan þótli mjög góð
og voru viðtökur góðar við
framieiðslunni, sér í lagi hjá
fólki sem tínt hefur sveppi út
í náttúrunni. Þá segir Sleinþór
að mikið hafi verið skrifað af
lærðum greinum um Shiitake
sveppinn og gagnsemi hans.
Þegar fólk neyti hans sé það í
raun að fá miklu meira en
stoðefni í matargerð, því hann
þyki mjög heilsusamlegur
fyrir starfsemi líkamans, svo
sem fyrir blóðrása- og ónæmis-
kerfið.
- HK.
Ólyginn sagði...
...að Bolvíkingar megi
svo sannarlega herða sig f
brennivíns- og bjórdrykk-
ju á næstunni. f þessu tólf
hundruð manna plássi
verður innan tíðar settur
upp þriðji barinn. Fyrircru
barir í V fkinni (fyrrverandi
Finnabæ) og f Vfkurbæ.
Þessa dagana er svo verið
að smíða nýjan bar sem
væntanlega verður settur
upphjáJóni Bakanogættu
Bolvíkingar þá að vera
þokkalega settir þegar þá
langar á pöbbarölt.