Dagur - Tíminn Akureyri - 11.02.1997, Blaðsíða 3
|Dagur-'9Itmmrt
Þriðjudagur 11. febrúar 1997 -15
KÓLALÍF
I Ð í
LANDINU
Brekkuskóli er ljótt
Nemendurnir hérna á síðunni eru aldeilis ekki
ánœgðir með tillögu skólanejhdar Akureyrar um
að sameina Barnaskóla Akureyrar og
Gagnfrœðaskóla Akureyrar í einn hverfisskóla,
Brekkuskóla. Þeim finnst nafnið á nýja
skólanum fyrir það fyrsta Ijótt en það er
ýmislegt fleira sem þau setja fyrir sig.
Spurt í Gagnfræðaskóla Akureyrar .
Vaka Halldórsdóttir,
10. bekk
Geir Hirlekar,
10. bekk
Að stokka vina-
„Við erum ekki búin að fá nein
rök fyrir því af hverju er verið
að sameina skólana. Mér flnnst
að það ætti að vera annar skóli
fyrir eldri krakka, það er miklu
skemmtilegra að byrja í nýjum
skóla. Þegar maður er alltaf í
sama skólanum er maður alltaf
með sömu kennarana og kynn-
ist ekki nýjum krökkum.“
Hrafnheiður Valdís
Olgeirsdóttir, 10. bekk
„Það var æðislega skemmtilegt
að koma hingað, maður var svo
spenntur að maður gat næstum
ekki sofið. Svo kom maður í
skólann og sá fullt af nýjum og
sætum strákum. Mér finnst al-
veg ömurlegt ef það á að taka
það frá krökkum að fara yfir í
Gaggann. Það er viss gleði sem
fylgir því að breyta um skóla í
stað þess að vera alltaf á sama
stað.“
Og Hrafnheiður Valdís er
með lausina: „Það ætti bara að
stækka Barnaskólann og þá
væri þetta komið í stað þess að
stækka Lundarskóla og Oddeyr-
arskóla. Þetta finnast mér
ágætis rök. Ég held að ef maður
hefði alltaf verið í sama skólan-
um ætti maður kannski tvo vini
í dag í staðinn fyrir 30.“
„Manni finnst maður meiri
maður þegar maður fer yfir í
annan skóla og það var ógeðs-
lega gaman að koma hingað.
Það gengur líka ekki að hafa
sömu reglur fyrir okkur og sex
ára krakka sem mega ekki hafa
tyggjó í tímum og verða að
koma með hollt og gott nesti.
Hér er selt kók og svoleiðis sem
litlu krakkarnir myndu ábyggi-
lega ekki mega kaupa. Ég held
líka að það yrði rosaleg breyt-
ing að fara úr grunnskóla yfir í
menntakóla ef maður færi ekki
fyrst í Gaggann."
hópinn upp
Gangaverðirnir í Gagnfræðaskóla Akureyrar, Kolbrún Friðgeirs-
dóttir og Sigríður Ólafsdóttir, sem nota reyndar starfsheitið blönd-
ur sbr. starfsfólk í blönduðum störfum, eru sammála um að það
hafi góð áhrif á krakkana að breyta um skóla, fá nýja kennara og
eignast nýja vini. „Ég á tvö börn sem hafa verið hér í skólanum og
verið mjög ánægð og ég held að börnin hafi mjög gott af því að
skipta um skóla. Þau stokka upp í vinahópnum og félagslífið verður
öðruvísi. Breytingin er heilmikil og ég held að þau séu þá líka betur
undir það búin að fara í framhaldsskóla," segir Kolbrún og Sigríður
bætir við: „Krökkunum finnst þau svo stór og mikil þegar þau eru
komin hingað þótt þau séu kannski lítil í sér fyrstu vikurnar og ég
held að þetta þroski þau.“
Vinir saman
Haíþór Úlfarsson og Ásta Arnardóttir, 8. bekk komu full spennu í
Gagnfræðaskólann í haust. „Það er miklu betra að hafa 8., 9. og
10. bekk saman, ég held það sé líka skemmtilegra. Mér fannst
skemmtilegt að koma hingað,“ segir Ásta og Úlfar er sammála:
„Mér fannst fínt að koma hingað, maður var byrjaður að hlakka til
að fara í 8. bekk þegar maður var í 5. bekk. Hér getur maður verið
með öllum vinum sínum."
En hvað segja
7-bekkingar?
Birgir Ólafur
Konráðsson
„Mér finnst það algjört rugl að
sameina þessa aldurshópa. Ég
vil hafa þetta eins og þetta hef-
ur verið.“ Enda var Birgir far-
inn að hlakka til að fara yfir í
hinn skólann.
nafn
Guðrún Fanney
Einarsdóttir
„Mér finnst nafnið ljótt og að
þetta eigi að vera eins og það
er. Mig langar að kynnast
krökkum frá Lundarskóla og
Oddeyrarskóla, maður nennir
ekki alltaf að vera í sömu
bekkjunum.“
Einar Guðmundsson
„Mér er svo sem alveg sama en
vil ekki hafa sama skólastjór-
ann og sömu kennarana. Ég vil
líka að það verði leyfður vanga-
dans, skólastjórinn bannar það
hérna í Barnaskólanum og ég
skil ekki hvað er svona ótíma-
bært við það að vanga.“
Sveinn Hjörleifsson
„Núna eru 600 nemendur í
Síðuskóla og það eru næg
vandamál þar og ef það koma
800 nemendin- í þennan
Brekkuskóla þá myndu vanda-
málin verða enn meiri. Ég var
farinn að hlakka til að fara yfir
í hinn skólann áður en ég frétti
þetta, bróðir minn er þar og
hann á vini sem ég þekki líka.
Nafnið er líka fáránlegt.“ -mar