Dagur - Tíminn Akureyri - 11.02.1997, Síða 10
22 - Þriðjudagur 11. febrúar 1997
Jlagur-'ðltmmn
RADDIR FOLKSINS
Heimllisfangið er: Dagur-Tíminn, Strandgötu 31, pósthólf 58,602 Akureyri
Myndlistarskólinn
í Reykjavík
Helgi Jónsson
skrifar
Myndlistarskólinn í
Reykjavík er að verða
fimmtíu ára. Allan þann
tíma hefur skólinn haldið uppi
fræðslu um myndhst fyrir fólk á
öllum aldri, barnadeildir að
deginum og námskeið fyrir
eldri nemendur á kvöldin. Nú
eru að berast þær fréttir að
skólinn muni þurfa að rýma
það húsnæði sem hann hefur
verið í um fimmtán ára skeið.
Enda þótt fréttinni fylgi vilyrði
um að borgaryfirvöld muni að-
stoða skólann við að komast í
annað húsnæði, þá er vægast
sagt þungt hljóð í nemendum.
Upphaf skólans var nám-
skeið í árslok 1947 fyrir félaga í
Felagi íslenskra frístundamál-
ara, en aðsókn var miklu meiri
en búist hafði verið við, svo tek-
ið var á leigu stærra húsnæði
og formlega stofnaður, Mynd-
listarskóli F.Í.F., sem síðar var
gerður að sjáfseignarstofnun og
nafninu breytt í það sem nú er.
Skólinn hefir síðustu fimm-
tán árin verið til húsa á efstu
hæð Tryggvagötu 15 og að
hluta á fimmtu hæðinni síðustu
ár. Þetta er að mörgu leyti góð-
ur staður, með fögru útsýni yfir
Sundin og til fjalla. Nemendur
eru ánægðir og mikill áhugi
ríkjandi. Þó þakið læki stund-
um, ég man eftir að átján balar
væru settir undir lekana, létu
menn það ekki á sig fá.
Húsið var ekki í mikilli notk-
un eftir að Innflutningsdeild
S.Í.S. hætti. Þar voru aðallega
geymslur fyrir eitt og annað.
Síðan keypti Borgin bygginguna
og ráðgerði að gera það að
bílageymsluhúsi. Hætt var við
það og Landsbókasafnið geymdi
þar bækur á meðan verið var
að flytja í Þjóðarbókhlöðuna.
A þessum árum var farið að
endurnýja húsið, bæði utan og
Besta afmælisgjöf
til skólans væri
trygging fyrir var-
anlegu húsnæði.
innan. Olli sú vinna að sjálf-
sögðu ýmiss konar truflun og
óþægindum, sem tekið var með
þolinmæði enda batnaði aðstað-
an á ýmsan hátt, við fengum
lyftu sem var laus við alla
stríðni, þak var endurnýjað og
rafmagni komið í viðunandi
horf. En, svo fréttum við núna
að við fáum ekki að njóta lag-
færinganna sem yfir okkur hafa
gengið, með tilheyrandi ryki og
hávaða. Og þá verður ýmsum
þungt í skapi.
En þó okkur finnist nú
margt skrítið í aðgerðum ráða-
manna, þegar um listir og svo-
leiðis óarðbæra hluti er að
ræða, þá megum við ekki líta á
þetta sem afmælisgjöf til skól-
ans. Það væri bölsýni. Skólann
vantar hentugt húsnæði þar
sem hann getur verið í friði.
Mér hefur dottið í hug að eftir
hálfrar aldar menningarstarf,
þá hljóti hann að eiga mjög
marga velunnara, sem gætu
með virkum stuðningi haft
frumkvæði að því að skólinn
eignaðist varanlegan samastað.
Ég er ekki í vafa mn að borgar-
yfirvöld myndu taka fullan þátt
í slíku átaki. Besta afmælisgjöf
til skólans væri trygging fyrir
varanlegu húsnæði.
„Rollur“ Dags-Tímans -
Nei, takk
Aforsíðu Dags-Tímans sl.
fimmtudag er grein frá
skyggnum „rollum" Andr-
ésar á Kvíabekk.
Það gegnir furðu að blaðið
skuli ekki vanda betur til texta en
raun ber vitni þar sem orðið
„rolla“ er jafnan notað í niðrandi
merkingu samkvæmt orðabók
Menningarsjóðs.
Nokkuð hefur borið á því í fjöl-
miðlum að orð eins og belja,
bykkja og skjáta séu notuð um bú-
fénað. „Rollumyndir" voru á sín-
um tfma í Víkurblaðinu á Húsavík
og orð eins og „rollukjöt“ prýddi
síður Dags. Eftirminnilegt er við-
tal fréttamanns Svæðisútvarpsins
við bónda nokkurn í Fljótum þeg-
ar hann taiaði alltaf um „skjátur",
en bóndinn um kindur. Svona
mætti lengi telja.
í umræddri frásögn af „skyggn-
um rollum" notar Andrés Kristins-
son á Kvíabekk orðið kindur en
fréttamaður virðist fara frjálslega
með texta og notar orð eins og
„afurðarollur" sem er nýtt orð í
mínum eyrum.
Það er krafa lesenda að texti sé
vandaður og málfar gott. Ég hafna
„rollu- og skjátutali" og vonast til
að úr rætist.
Atli Vigfússon.
Lesandi hringdi
W að
Húlfið eða kasSam?lLS'f“skaltas^lum I
11111 helgína. ' hefðl allt veriö lokað
af fólki á
opnar. Apótekið var að * 6 dyrnar væru
tlma °g Þá gátu menn komL°f 1 etahverJ'a tvo
urnar í hólfið en það var allt oJ °g S6tt skyrsl-
Kristján vill benri« m f Í og sumt-“
hefðl nú mátt vera opta um6Íf f01 á að hurðhl
Þurfi ekki að fá frí í Vinrm ti ,eIgina svo menn
skýrslurnar. U tl] hess að fara með
^ JWjemheMÚð
&
&
&
Listadeild Ríkissjónvarpsins er sennilega öll í
fríi þessa dagana ef marka má viðbrögð hennar
vegna 200 ára afmælis eins mesta tónskálds
sögunnar, Franz Schuberts. í kvölddagskrá á af-
mælisdaginn mátti sjá dagskrárliði eins og
„Saltfiskur með sultu“ sem smakkast hræðilega
og „Norrænt“ sem er afleiðing norræna sam-
starfsruglsins. Vaknið!!
Trygginga- og íjárfestingaféliig auglýsa grimmt
bílalán á „ótrúlega" hagstæðum kjörum, rétt
eins og það séu engar afborganir af lánunum.
Þú sest bara upp í límosínuna, og frúin brosir
breitt. Staðreyndin er hins vegar sú að af 500
þúsund króna láni eru greiddar 100 þúsund í
kostnað og vexti. Nýjasti vinkillinn í gjaldþrotum
heimilanna, og var þó af nógu að taka.
Er ríkisvaldið andsnúið jafnræði í atvinnulífinu?
er heiti á viðskiptaþingi Verslunarráðs. Ein-
kennilegt að engin skuli hafa áttað sig á því fyrr
og þurfa til þess heilt þing.
Grín á netinu
Undirritaður rak augun í efn-
isflokk á Internetinu á dögun-
um, þar sem gert er grín að
trúarbrögðum. Sumir eru
harla ósmekklegir en aðrir
ættu að sleppa í gegnum sið-
ferðisnálarauga landsmanna.
Sú er að minnsta kosti mín
trú og ef það reynist rangt,
verð ég bara að taka afleið-
ingum þess. Eigum við ekki
að semja um símatíma milli
kl. 13 og 13.30 í dag fyrir þá
sem fá áfall. En laggó með
það:
Þrjár röksemdir fyrir því
að Jesús var íri:
1) Hann kvæntist aldrei
2) Honum hólst aldrei á vinnu
3) Síðasta ósk hans var að fá
drykk
Þrjár röksemdir fyrir því
að Jesús var frá Puerto Rico
1) Hann hét Jesús að fornafni
2) Hann átti í sífelldum úti-
stöðum við lögin
3) Mamma hans vissi ekki
hver pabbi hans var.
Þrjár röksemdir fyrir því
að Jesús var ítali
1) Ilann talaði með höndun-
um
2) Hann drakk alltaf vín með
mat
3) Hann starfaði í byggingar-
iðnaðinum
Þrjár röksemdir fyrir því
að Jesús var blökkumaður
1) Hann kallaði alla bræður
2) Hann átti engan fastan
samastað
3) Enginn vildi ráða hann í
vinnu
Þrjár röksemdir fyrir því
að Jesús var frá KaUforníu
1) Hann fór aldrei í klippingu
2) Hann gekk um berfættur
3) Hann innleiddi ný trúar-
brögð
Og að lokum, þrjár rök-
semdir fyrir því að Jesús
var íslendingur
1) Hann fæddist í smáþorpi en
fluttist í borgina
2) Allir félagar hans tengdust
fiskveiðum
3) Hann var ýmist með dökkt
eða ljóst hár (ef marka má
málverk)
Til vamar
Reykvíkingum
Undirritaður á nú lögheimili á
Akureyri en bjó fyrrum í Reykja-
vík. Hann getur ekki annað en
tekið upp hanskann fyrir Reyk-
víkinga sem verða tíðum fyrir
óréttlátri gagnrýni þegar
samgöngukerfið lamast vegna
snjóalaga. Heyra má tíðum að
þeir kunni lítið að keyra í snjó og
þeir fáu sem það kunni, komist
ekki leiðar sinnar vegna skuss-
anna á sumardekkjunum. Þótt
lögboðið sé að aka á snjódekkj-
um hluta ársins, þá líða vetur
þar sem engin þörf er á þeim. Ég
get t.d. upplýst að veturinn 1995-
1996 ók ég um á sumardckkjum í
borginni og missti aldrei úr akst-
ursdag vegna aðstæðna. Og því-
líkur peningur sem sparast í við-
haldi gatna!
í öðru lagi er eðlilegt að öku-
menn í Reykjavík séu ekki með
sömu reynslu í snjóakstri og t.d.
Akureyringar. Það snjóar einfald-
lega ekki nema örfáa daga í
Reykjavík í meðalári. Og það er
e.t.v. helsti kostur þess að búa
þar!
Umsjón: Bjöm Þorláksson.